Dagur - 27.02.1930, Blaðsíða 3
io. tbl.
DAGUR
30
íhaldsmenn Scheving með dunandi
iófaklappi í ræðuiok.
Jón H. Porbergsson talaði tvisvar.
Sagði, að alt ylti á framleiðslu, en
enginn vildi framleiða. Verkamenn
ættu við betri' kjör að búa en
bændur. Hann hefði haft sig »upp«
með 1 kr. á dag, en vildi nú gjarnan
>niður aftur«, ef ekki aftraði sér
þjóðarnauðsyn.
Sveinn Bjarnason talaði og. Bað
hann menn þess iengstra orða, að
geyma trú sína og kenningar þær,
er þeir hefðu numið í bernsku.
Bróðurkærleikur og ’drengskapur
ættu að stjórna heiminum. Fram-
sóknarblöðin gættu eigi þessa sem
skyldi. Pau hefðu borið harðsnúna
andstöðu gegn samvinnulögunum á
íhaldstlokkinn.
Frímann B. Arngrfmsson og
Steingrímur bæjarfógeti báðu íslands-
banka gengis.
Brynleifúr Tobiasson flutti tvær
ræður. Tók hann einkum lygabylgju
Líndals til athugunar. Leiddi hann
óyggjandi sannanirað nefndarskipun
þeirri, er Morgunblaðið hafði borið
á móti. Forsætisráðherra hatði skipað
nefndina. Morgunblaðið halði logið.
Ltndal hatði iiutt lygina, og fiýtt
þannig fyrir því, áð henni yrði
hrundið.
Mun það stærsta . verk hans i
þágu vinar síns, sannleikans, á
þessum fundi. Brynleifur rakti og
nokkuð »guðvef« Sv. Bj. Var ekki
trútt um, að grysjaði i gegn um
hann að því loknu.
Kvaðst B. T. ekki hafa heyrt
Sveini Bjarnasyni nokkru sinni við-
brugðið fyrir bróðurkærleika, og varð
eigi séð, að fundarmenn væru þar
á öðru máli. Pótti ræðimanni ugg-
vænt, að Akureyringar yrðu snortnir
af kristilegum heilræðum úr munni
Sveins Bjarnasonar. Pá minti ræðum.
á skrif Björns Kristjánssonar um
samvinnufélögin og sannaði glögg-
lega harðsnúna andstöðu íhalds-
ins gegn þeim.
Hitnaði allmikið i fundinum eftir
fyrri ræðu Brynleifs, og þótti Líndat
gerast allóvandur að málaflutningn-
um. Var helzta vörn hans, að hann
hefði sagt ef, og munu allir fundar-
menn hafa kannazt við það. Varð
þó vörnin nokkuð veik, er Bryn-
leifur lýsti háttum og orðalagi
þeirra manna, er rógberar nefnast,
Fundarstjóri, Steingr. jónsson,
bæjarfógeti, skoraðist undan að
veita Brynleifi orðið í síðara sinn.
Sagðist *ekki hafa ætlað að veita
fleirum orðið«. Var þó ekkert tekið
fram um takmörkun fundartímá
áður, en ósvarað fyrirspurn frá
Líndal til Brynleifs. Var og húsfyllir
fólks, og fundurinn setinn sem
fastast. Mun þó enginn vænadóm-
arann hér á staðnum um vilhalla
fundarstjórn. Hitt mun sönnu nær,
að lögreglustjórinn, er annríkt mun
eiga um þessar mundir, hafi þarfn-
azt hvíldar eftir vel unnið dagsverk.
Fundurinn stóð til kl. 1 f. h.
Allan síðari hluta hans hafði Lín-
dal nálgast bardagaaðferð íhaldsins,
þá er Scheving hafði lýst, og
flokkurinn klappað fyrir. Einari
Olgeirssyni var neitað um orðið.
Líndal og íhaldið »lagöi niður Sk0itið.«
Z.
S ims keyti.
(Frá Fréttastofu íslands.)
Rvik 24. febr.
ALPlNOI. Jón Bald. og Erl. Frið-
jónsson flytja breytingarfillögu um
greiðslu verkakaups á þá leið, að
iðnaðarmenn fái sömu réttindi um
vikugreiðslur verkakaups sem al-
gengir verkamenn. — Har. Ouð-
mundsson flytur frurav. um fast-
eignaskatt; sami þingmaður fiytur
og breytingartill. við 1. grein toll-
laganna, og verði tollurinn samkv.
því 40 au. á kg. af óbrendu kaffi
og kaffibæti og 50 au, á brendu
kaffi, en á sykri og sírópi 10 au.
á kg. — í gær kom fram þings-
ályktunartillaga um þjóðaratkvæða-
greiðslu viðvikjandi flutningi Al-
þingis til Pingvalla. Margir töldu
ófært -að láta þjóðaratkvæði fara
fram, nema kjósendur fengju ítar-
legar upplýsingar um þann kostn-
að, er flutningurinn hefði í för með
sér. Eftir langar umræður var mál-
inu frestað. — Erlingur og Ingvar
P. bera fram frumvarp um skrán-
ing skipa, og Haraldur sjö kafla
bálk um tekju- og eignaskatt.
Slæmar gæftir hafa verið undan-
farnar vikur í verstöðvum sunnan-
lands, þó gaf einn til tvo daga
sumstaðar og aflaðist þá sæmilega.
Úilánastarfsemi í Vestmannaeyj-
um er byrjuð.
»Botnia« og »Dr. Alexandrine*
komu í dag samtímis. Leki kom að
Botniu í gær, sökum þess að bolti
hafði losnað. Viðgerð fer fram hér.
ÚTLÖND. París: Cheautemps
hefir myndað stjórn I Frakklandi.
Briand er utanrikismálaráðherra á-
fram. Cheautemps er frjálslyndur
sósialisti.
Oslo: Óvanalega mikili síidarafli
við Noreg, einkanlega við Egersund.
Tokio: Pingkosningar eru afstaðn-
ar, stjórnarflokkurinn hefir yfirgnæf-
andi meirihluta þingsæta.
Róm: Skriðuhlaup mikil hafa átt
sér stað í Maceratahéraði. Talið er,
að 21 maður hafi farist og mörg
hús hrundu.
Rvík 26. febr.
Bráðabirgðaskýrsla um mat á ís-
Iandsbanka í febr. 1930 frá rann-
sóknarnefndinni er framlögð. Skýrsl-
an er á þessa leið:
{ aðalbankanum áætlun við töp
áýmsum skuldunautum 5.375.375,00
kr. Auk þess er gengismunur á
skuld bankans við danska póst-
sjóðinn, sem talin er í íslenzkum
krónum á hlaupareikningi bankans,
en eru danskar kr. 3.900.000,00,
sem með gengi pr. 3'/i2 1929
nemur 849.030.00 kr., og þar að
auk gengismunur á sterlingsláni
1921, sem taiið er á efnahagsreikn-
ingi bankans með gengi kr. 22.00 pr.
sterlingspund, og nemur sá mis-
munur36.953,54 kr.Alls 6.261.368,54
krónun
Á útbúi bankans í Vestmanna-
eyjum metur Jón Brynjólfsson tap-
ið 205.000.00 kr. A útbúi bankans
á Akureyri metur Böðvar Bjarkan
tapið 260.000.00 kr. Á útbúi bank-
ans á ísafirði métur Jón Guð-
mundsson tapið 808,990.00 kr. Á
útbúi bankans á Seyðisfirði er tap-
ið 1.919.493.30 kr., en frá því má
ORÐSENDING.
Pið, sem einhverra hluta vegna ekki getið farið á ALPlNGISHÁTÍÐINA
þurfið samt sem áður ekki að fara á mis við hana að öilu leyti.
Söng, ræðuhöldum O.s.frv. verður varpað út frá hinni nýju útvarpsstöð
svo hvert einasta mannsbarn á landinu getur
heyrt þær. — Þið þurfið að fá ykkur viðtökutœki.
Við höfum og munum hafa úrval af viðtækjum, og öllu þeim tilheyrandi.
Verð frd 60—500 krónur.
Gerið svo vel að gera fyrirspurnir og senda pantanir i tíma, þvi ann-
ars má búast við, að við ekki getum fullnægt eftirspurninni, þegar fer
að líða að hátíðinni.-
VirðingarfyUt.
Raftœkiaverzlunin Electro Co., Akureyri.
Indriði Helgason.
Jörðin Sigtún
í Öngulstaðahreppi, fæst til kaups eða Ieigu á næsta vori ef
um semur. Nánari upplýsingar gefur Sig. Ein. Hlíðar dýralæknir,
eða ábúandi jarðinnar
Pétur Gunnarsson.
Við ftöfum tekið a leigu
brauðgerðarhús Axels Schiöths hér frá 1. marz
n. k., og byrjum þá þar brauða- og köku-
gerð. Verða þar daglega bökuð öíl venjuleg
brauð og kökur, og auk þess aðrar tegundir
eftir pöntunum, að svo miklu leyti, sem hægt
verður.
Salan byrjar 1. marz n. k. og fer fram í
Hafnarstræti 91 (nýja verzlunarhúsinu okkar), og
Hafnarstræti 23 (brauðgerðarhúsinu, sími 16) og
auk þess annast verzlun á A. Schiöths á Odd-
eyri sölu á brauðum okkar.
Kaupfélag Cyfirðinga.
draga 126.818.82 kr., sem þegar er
afskrifað, og verður tapið því
1.792 674 48 kr., eða tapið samtals
9.328.033.02 krónur.
Eignir bankans, sem telja má til
frádráttar þessu, eru: hlutafé bank-
ans að upphæð 4.500.000.00 kr,;
lagt til hliðar fyrir tapi 853.088.18;
ágóði ársins 1929 441.870.82 kr.
Alls: 5.794.959.00 kr. Mismunur:
3.533.074.02 krónur.
Bráðabirgðaskýrsla þessi er dag-
sett 25. febr. 1930, og hafa undir
hana ritað rannsóknarnefndarmenn-
irnir Helgi P. Briem, Stefán Jóhann
Stefánsson og Sveinbjörn Jónsson.
Sum töpin munu vera með fyrir-
vara. Aðalskýrslan með athuga-
semdum er væntanleg i dag.
Jónas Jónsson dómsmálaráðherra
birtir í »Tímanum« í dag opið bréf
til Helga Tómassonar læknis.*
* »Opið bréf«, sem hér um getur, mun
standa i sambandi við læknaróg um
heilsufar dómsmálaráðherrans,
Skjaldvör-tröllkona
verður leikin í Pi'nghúsinu við.Pverá,
laugardagskveldið 1 marz n. k. kl.
8»/2 e. h.
Aðgöngumiðar seldir á staðnum.
Sýnd I síoasta sinn!
Leikstjórnin.
Leikfélagið æfir nú sem stendur franskan
gamanleik >Æfintýrið«. Leikurinn, sem er
bæði vel saminn og fjörugur, hefir áður
verið sýndur í Reykjavík við góðan jorðstír.
Sœnskt skip »Aina< frá Gautaborg, er
hér nú með kol til K. E. A.
Gamanleikur, er nefnist »Varaskeifan«,
var sýndur hér í leikhúsinu á föstudags-
kvöldið, fyrir forgöngu hjúkrunarfélagsins
Hlif. Leikurinn þykir ágætur, en meðferð
sumra Ieikendanna þótti nokkuð ábótavant,
sem að nókkru leyti mun hafa stafað af
æfingarleysi.