Dagur - 25.04.1930, Blaðsíða 1

Dagur - 25.04.1930, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir *1. júll. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfélagi Eyfirð- inga. «ii ••e XIII. ár; Afgreiðsian er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. *• ••••••«••••• ••••••••••••• Akureyri, 25. Apríl 1930. -• • -•-•-«h#-#-#--# í 20. tbl -•-•-•-• • 77/ kaupenda og lesenda „DAGS“. Kaupemlum ug lesendum D A G S er hér meÖ bent d þaö, aÖ sú breyting verÖur á útkomu blaösms, aö fyrst um sinn, unz önnur ráöstöfun veröur gerö, kemur aö öllu forfallalmisu út af því auka- blaö á hverjum mánudegi. — BlaÖiö kemur þannig fyrst um sinn út tvisvar í viku, á mánwdögum og fimtudögum. Þeir, sem koma vilja auglýsingum í mánudagsblaöiö, eru vinsam- legast beönir að skila þeim helzt á laugardagskwöld og ekki síöa/r en kl 10 f. h, á mánudögum. — Auplýsingar í fimtudagsblaöiö þurfa eins og hingaö til dö koma helzt á miðvikudag og aldrei síöcvr en kl. 10 f. h. á fimtivdag. — Eins og áöur hefir verið tilkynt, hefir gjald- keri blaðsins, Ámi Jóhannsson í Kaupfél. EyfirÖinga, alt stcvrf, er aö auglýsingum lýtur, meö hönd/um fyrir blaöið. — Auk hans má þó skila auglýsingum til annarshvors ritstjórans og í Prentsmiöju Odds Bjömssonar eins og aÖ undanfömu. Næsta blaö kemur út á mánudag. Kaupfélag Eyfirðinga. Aðalfundur félagsins var haldinn í Nýja-Bíó hér á Akureyri dagana 14, —16. þ. m. og stóð þannig yfir í 3 daga. Fundarstjóri var kosinn Davið Jónsson hreppstjóri á Kroppi og varafundarstjóri Pórhallur Ás- grímsson bóndi á Þrastarhóli. Skrif- arar fundarins voru Halldór Guð- laugsson bóndi í Hvammi og Tryggvi Konráðsson bóndi í Brag- holti. Á fundinum voru mættir 85 fulltrúar af 87, er kjörnir höfðu verið heima i deildunum. Auk þess í árslok 1928. voru mættir 5 stjórnarneíndarmenn, framkvæmdarstjóri félagsins og end- urskoðendur, og þar að auki sátu fundinn margir aðrir kaupfélags- menn. Framkvæmdarstjóri lagði fram endurskoðaða reikninga félagsins fyrir síðasta ár, skýrði þá og gerði glögga grein fyrir hag félagsins og ástæðum við síðustu áramót. Innstæður í eftirtöldum sjóðum félagsins voru sem hér segir: í árslok 1929. Vöxtur á árinu. Stofnsjóður 495 þús. Innlánsdeild 402 — Varasjóður 139 — Tryggingarsjóður 45 — Fyrningarsjóður 87 — Byggingasjóður 64 — Sambandsstofnsjóður 85 — Skuldatryggingarsjóður 3 — kr. 597 þús. kr. 412 - - 181 - - 48 - - 101 - - 111 - - 101 - - 5 - - 102 þús. 10 - 42 - 3 - 14 - 47 - 16 - 2 - kr. Samtals 1320 þús. kr. 1556 þús. kr. 236 þús. kr. Nemur þá vöxtur ofangreindra sjóða á síðasta ári hátt upp i fjórð- ung milj. kr. Allir sjóðirnir að undanskildum tveimur hinum fyrst töldu, eru óskiftilegir. Nam upphæð þeirra um síðustu áramót 547 þús. kr., eða nokkuð yfir helming miljónar. Skifti- legu sjóðirnir, Stofnsjóður og Inn- lánsdeild, eru eign einstakra félags- manna, og voru þeir samtals rúmlega ein miljón á sama tíma. Innieignir félagsmanna í viðskifta- reikningum við aðalverzlunina og útibúið á Dalvik voru við reiknings- lok 295 þús. kr. og er það 35 þús. kr. hærra en i fyrra. Á árinu hafa því innstæður félagsmanna i Stofn- sjóði, lnnlánsdeild og viðskiftareikn- ingum aukist um 147 þús. kr. Við áramót voru peningar í sjóði 266 þús.; er það 47 þús. kr. hærra en í íyrra. Gömlu skuldirnar frá 1921, sem upphaflega voru um hálfa miijón og á sínum tíma ollu nokkrum áhyggjum, eru nú komnar niður i 29 þús. kr., hafa lækkað um 11 þús. kr. á árinu. Eru þær nú ekki lengur áhyggjuefni, þar sem sjóður sá, er stofnaður var tii þess að mæta skakkafðllum af völdum þeirra, er nú 19 þús. kn hærri en skulda- upphæðin sjálf. Vörusala félagsins vár á árinu sem hér segir: Alls hefir félagið selt vörur innan- lands fyrir 3.147.000 kr.; en árið 1928 var samskonar sala 1.917.000 kr. Hefir því innanlandssala á vörum hækkað um 1.230.000 kr. f sölu þessari er ekki meðtalin innanlandssala sláturfjárafurða frá sláturhúsi félagsins, né sala frysti- síldar frá frystihúsinu. Innlendar afurðir að frádregnum vörum, sem Kjötbúðin hefir keypt, hafa verið teknar til sölumeðferðar fyrir alls 1.561.000 kr.; en árið 1928 fyrir 1.282.000 kr.; mismunur 279 þús. Vörubirgðir i árslok af frádregnum afföllum voru rúmlega 1 milj. kr. Úthlutaður arður til félagsmanna af ágóðaskyldri vöruúttekt þeirra var 11%. Eftirstöðvar sláturhússreiknings nægðu til þess að kjötframleiðend- um væri bætt upp kjöt sitt 1929 með 15 au. á kg. og gærur með 10 au. á kg. Var það samþykt. Afgangurinn yfirfærist til næstaárs. Ennfremur var samþykt að eftir- stöðvum ullarreiknings yrði varið til uppbótar á ull með 20 au. á kg; llppbætur af innlendunj vörum og óúthlutaður arður af erlendum vörum var 66,500 kr. hærri en næsta ár á undan. Helstu nýjar framkvæmdir félags- ins á sfðasta ári eru þessar: 1. Lokið byggingu Mjólkursam- lagsins og vélauppsetningu. 2. Endurbót gerð á frystihúsi og bryggju á Oddeyrartanga. 3. Reist að nokkru nýtt verzlunar- hús á Torfunefi. 4. Gerður fiskreitur og reist geymsluhús á Gleráreyrum. 5. Reist að nokkru smjörlíkisverk- smiðja í Grófargili. 6. Reist nýtt sláturhús á Dalvík. Má af þessu sjá, að félagið hefir ekki haldið að sér höndum um verklegar framkvæmdir á árinu. Auk þess, er að framan greinir, skal enn getið nokkurra samþykta, er fundurinn gerði. Samþykt var að veita ungmenna- félögum í Öngulstaðahreppi 2000 kr: styrk til sundskálabyggingar í hreppnum. Samþykt, að nýir félagsmenn leggi allan ágóða af vöruúttekt sinni í Stofnsjóð, þangað til inn- stæða þeirra í sjóðnum er orðin 300 kr. Er þetta gert til öruggari tryggingar viðskiftum þeirra við félagið. Rá var og samþykt s^ð stofna »félagsráð«, skipað einum manni úr hverri deild félagsins. Skulu þeir kosnir á aðalfundum deildanna til eins árs í senn og sömuleiðis vara- menni Ráðið skal mæta á fundum stjórnarinnar, minst einu sinni á hverjum ársfjórðungi. Skal stjórnin að jafnaði, og þegar því verður við komið, leggja öll nýmæli um rekst- ur og framkvæmdir félagsins fyrir félagsráðið til álita. Félagsráðið ber fram áhugamál deildanna og ræðir þau ásamt stjórn og framkvæmda- stjóra og kynnir starfsemi félagsins heima i deildunum. Tillögur komu fram á fundinum um itakmörkun tölu fulltrúa á aðal- fundum félagsins en mjög voru skoðanir skiftar um það mál og lauk því svo að þvi var slegið á frest með rökstuddri dagskrá, til þess að deildunum gæfist færi á að taka það til nýrrar athugunar. Þá lagði sljórnin fyrir fundinn uppkast að reglugerð um eftirlauna- eða lífeyrissjóð fastra starfsmanna félagsins. En þar sem deildum fé- lagsins hafði ekki gefist kostur á að hafa það mál til athugunar, sam- þykti fundurinn að fresta úrslitum þess til næsta aðalfundar. Á fundinum flutti Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri mjög fróðlegan fyrirlestur um rækfun iands. Var er- iridi því vel tekið af fundarmönn- um og spunnust nokkrar umræður út af því. Eitt fundardagskvöldið var fund- armönnum sýnd kvikmynd af sam- vinnuhreyfingunni í Svfþjóð. Eins og kunnugt er, er samvinnuþrosk- inn kominn á hátt stig þar í landi. Úr stjórninni gengu formaður fé- lagsins Einar Árnason fjármálaráð- herra og varaformaður félagsins Ingimar Eydal, en voru báðir end- kosnir. Ennfremur var 1. endurskoðandi, Stefán Stefánsson, endurkosinn. Til þess’ að mæta sem fulltrúar félagsins á aðalfundi S. f. S. voru kosnir þessir aðalfulltrúar: Bene- dikt Guðjónsson á Moldhaugum, Þórarinn Eldjárn á Tjörn, Vilhjálm- ur Pór kaupfélagsstjóri og Július Ólafsson í Hólshúsum. Ennfremur voru kosnir tveir aukafulltrúar, þeir Stefán Stefánsson á Varðgjá og Valdemar Pálsson á Möðruvöllum. Fyrir nokkrum árum lét gáfaður kaupmannssonur í Eyjafirði þau orð falla, að Kaupfélag Eyfirðinga hefði verið drýgri lyftistöng fram- fara og félagsþroska á félagssvæð- inu en nokkuð annað. Síðan þau orð voru töluð, hefir félagið magn- ast að vexti og þrótti, og vantar nú ekki nema herzlumuninn tií þess, að það með eigin veltufé geti rekið starfsemi sína, óháð öllum öðrum en sjálfu sér. Pegar því. marki er náð, er einum þættinum í hugsjónastarfi .Hallgrims Kristins- sonar fullnægt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.