Dagur - 01.05.1930, Side 4

Dagur - 01.05.1930, Side 4
84 D AGUR 22. tbl. . maðurinn< í haust, var höfundur hennar þess ásjáandi við slátrun hesta niðri á Oddeyri, að hestur var þar leiddur fram eða ýtt áfram af 5 mönnum fram á sláturvöllinn, þar sem lágu skrokkar af öðrum hestum, flegnum eða háliflegnum. ] Aumingja skepnan stympaðist við af öllum mætti, svo af því er óhætt að ætla, að hún hefir vitað hvað var að gerast og að hún mundi eiga að hljóta sömu afdrif. Svona lagað hefir verið látið líð- ast óátalið fram að þessu; ef til vill af því að almenningur kallar þetta >skynlausar< skepnur og ger- ir sér ef til vill ekki nægilega ljóst, að þær hafi eins mikið vit og eins næmar tilfinningar eins og er, en nærri mér er að álykta, að menn- irnir, sem t. d. voru þarna að verki hafi vitað að hesturinn var fullur hræðslu og örvæntingar. Slíka menn ætti að draga fyrir lög og dóm og hegna að verðleikum. Ef engin lög eru til, sem ná yfir slikt, þarf að semja þau nú þegar. Eg vona að öllum skiljist það $mátt og smátt, að eftir þvi sem menn fara betur með öll þau dýr, sem eru undir þeirra umsjá, að því meiri ánægju veita þau eigendunum og þess meiri arð hafa þeir af þeim. Svo er það athyglisvert, að menn bera ekki síður ábyrgð á illræðis- verkum þeim, sem koma fram á hinum ýmsu dýrum, en þeim sem þeir beita hver gagnvart öðrum. Pað eru ótal dæmi, sem mætti tilfæra um tilfinningar hinna ýmsu dýra, t. d. um móðurást þeirra, sem virðist vera mjög sterk, og einnig um hugvit þeirra og fleira. Pau ganga jafnvel móti hættum og dauða til að verja afkvæmi sín. Hugvit sýna þau ýms bæði í byggingarlist o. fl., og fyrirhyggju sýna ýms dýr f því að safna sér vetrarforða og í fleiru, svo að öllu athuguðu finst mér ekki rétt að nota orðið skyn- laus um dýrin, en aftur á móti ó- hætt að slá því föstu, að þau hafi Sál þó á lægra stigi sé en hjá mönn- um. Eitthvert skáldið hefir sagt: »Milli manns og hests og hunds hangir leyniþráður<. — En eg vil taka það víð- tækara óg segja, að það hangi leyni- þráður milli allra skapaðra * skepna, alt frá manninum og jafnvel niður að hinum lægstu dýrum; alt sé ein keðja og í hinu dásamlegasta sam- ræmi frá Skaparans hendi. Að endingu vildi eg geta þess að mér finst hlutverk mannsins hér á jörð eigi að vera það að lina þjáningar, þar sem hann með nokkru móti getur komið því við, en nota sem min$t hann getur vit sitt og yfirburði dýrunum eða hinum minni máttar til ofsóknar, og alls ekki til grimdaræðis eða kvalar eða mis- þyrmingar, og allra síst á þeim mál- lausu og varnarlausu dýrum, þ. e. s. ef hann vill að nokkru leyti lifa í samræmi við hinn kærleiksfulla Skap- ara alls. — Umfram alt, sýnið dýr- unum miskun og mannúð, og ef þér þurfið nauðsynlega að taka líf þeirra, þá gerið það á drengilegan hátt og kvalalausan. Jón Jakobsson. -----o—— ENSKU REYKTÓBAKS- TEGUNDIRNAR Richmond. M/averley. Glasgow. Capstan. Garrick eru góðkunnar rneðal reykend- anna um land alt. í heildsölu hjá Tóbaksverslun Islands. P i 1 s n e r 2ezi— Ódýrast. Innlent Perlur. Annað hefti af mánaðarriti þessu er komið út. í siðara heftinu er skýrt frá því. að ritið muni koma út annanhvern mánuð, en ekki mánaðarlega, eins og ætlunin var í fyrstu. f síðara heftinu er fyrst kvæði eftir Jakob Thorarensen, og nefnist það »Skuldheimtumaðurinn<. Pá kemur saga eftir sama höfund: »Örðug straumhvörf*. Pá er smá- sagan »Dansleikurinn< eftir Alexand- er Kielland, grein um Ásmund Sveinsson myndhöggvara eftir Davíð Porvaldsson og fylgja myndir af nokkrum listaverkum Ásmundar. Pá er »Vermihúsið«, smásaga eftir Ouy de Maupassant, »Bátur minn er. brotinn«, kvæði eftir Loft Guð- mundsson, »Presturinn og kölski«, saga eftir rússneska skáldið Dosto- jevski, »í afturelding«, kvæði eftir Ouðna Jónsson, »Koma skipstjór- ans«, saga, »Frá hæstu tindum«, 6 myndir, og að lokum »Kímni« og verðlaunagetraun. Allur frágangur á ritinu er hinn prýðilegasti eins og áður, og í alla staði er það aðlaðandi bæði að útliti og efni. ------O". — UPPBOÐ. Laugardaginn þann 17. maí n. k. verður haldið opinbert upp- boð að Öldu í Saurbæjarhreppi og hefst það kl. 12 á hádegi. Par verða seldir allskonar búshlutir og ef til vill eitthvað af skepnum. — Uppboðsskilmálar verða birtir á staðnum. Öldu 28. apríl 1930. Tómas Saldvinsson. Tilkynning Vélbátasamtrygging Eyjafjarðar krefst þess hér með, að allir .bátar, sem vátrygðireru hjá félag- inu, hafi, er þeir liggja við festar í höfn, legu- færí, ekki léttari né grennri en hér segir: Bátar undir 6 tonna, atk. minst 75 kg. 45 faðm. keðju 16 mm. að gildl. Do. fráó—9 — do — 100 - 45 — do 18 — - —r Do frá 9—12 — do — 125 - 45 — do 20 — - — Petta tilkynnist hér með hlutaðeigendum til eftirbreytni. Akureyri, 28. Apríl 1930. Stjórn Vélbátasamtryggingar Eyjafjarðar. 1 Kristjánsson, Helgi Pálsson, Oddur Siourðsson. Herkúles. Bændur, athugið vel hvort þér getið komist af án vélavinnu við heyskapinn. Kaupið HERKULES heyvinnuvélar\ þær svíkja engan. Fjöldi meðmæla frá ánægðum notendum víðsvegar um land alt, er til sýnis á skrifstofu vorri. Samband islenzkra samvinnufélaga. Ritstjórar: Fi-iðrik Ásmundsson Brekkan. Aðalstræti 16. Ingimar Eydal. munntóbak Obels er best. Prwatsmiðja Odda Bjðnwaotuu*.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.