Dagur - 30.05.1930, Blaðsíða 2

Dagur - 30.05.1930, Blaðsíða 2
f 112 DSCrUR 32. tbl. kostamaður og karlmenni, sem skólastjórar skyldu altaf vera, Án karlmensku og hugdirfðar verða þeir hvorki svo hreinskilnir né né röggsamir sem nauðsyn ber til. Eg greini hér nokkur dæmi þess, hvern hug nokkrir nemendur hans bera til hans, hversu þeir bera honum söguna. Guðmundur skáld Frið- jónsson ritar: »Jón Hjaltalín var stjórnvitringur — í yfirráðum sín- um við skólann. Fyrir honum ber eg virðingu og því meiri sem eg hefi auðgast að árum«. Jón Gauti Pétursson, bóndi á Gautlöndum, ritar: »Víst er það trúa mín, að fáir nemendur, sem nokkurs er um vert, hafi haft þar skólavist til lang- frama svo, að þeir eigi mótuðust nokkuð af persónustyrk Hjaltalíns og metti hann því meir á síðan, sem lífið færði þeim fleiri hnetur að brjóta«. Var Hjaltalín þá tekinn mjög að bila að kröftum og heilsu, er Jón Pétursson var nemandi hans. Hann var í skólanum tvö siðustu stjórnarár Hjaltalins. Árni Jóhanns- son, bankaritari í Reykjavík, segir: »Sérstaklega er mér Ijúft að minn- ast rektors, J. A. Hjaltalíns, með virðingu og þakklæti. Ágætari skóla- stjóra get eg vart hugsað mér. Né heldur betri kennnara«. Benedikt Björnsson, skólastjóri á Húsavík, kemst svo að orði: »Jón A. Hjalta- lín var mikill að vallarsýn, svipstór og alvarlegur, en þó flestum mönn- um skilningsbetri á ótamda fjör- spretti æskumanns og trúandi á það, að fella mætti þá orkustrauma í fasta farvegi til átaka í þarfir nýtra verka, enda leiddu áhrif Hjaltalins til persónulegrar ábyrgðar-vitundar og sjálfsaga. Og áhrif Hjaltalíns sem stjórnanda eða leiðtoga reynd- ust mér drýgri til þroska en áhrif hans sem kennara, nema í íslenzku.« Björn Hallsson, fyrv. alþm. á Rangá austur, skrifar: »Enginn vandalaus maður hefir haft eins mikil áhrif á mig og Hjaltalín skólastjóri, sem var bæði ágætur kennari og mikil- menni sem skólastjóri og leiðtogi ungra manna. Hann var allra manna hreinskilnastur, karlmenni í hugsun og framgöngu og fastur fyrir. Menn báru virðing fyrir honum og tilýddu honum sem skólastjóra*. Guðmund- ur Magnússon, bóndi í Arnarnesi við Eyjafjörð, ritar: »Pau áhrif hafði skólinn á mig, að mér óx þar bæði einurð og kjarkur — — — Pessi áhrif þakka eg fyrst og fremst kennurunum, einkum skólastjóra J. A. Hjaltalín, sem var, að mínu áliti, ágætur að stjórna og hafði mikil drengskaparáhrif á pilta, því hann var þéttur á velli og þéttur í lund, og hann lagði meiri stund á að v e r a drengskaparmaður en að sýnast fyrir mönnum og þannig vildi hann uppala nemendur sína«. Guðmundur Guðmundsson, hrepp- stjóri á Púfnavöllum, ritar: »Hjalta- lín var alvörumaður og enginn veifiskati; hafði sem stjórnandi flesta þá kosti, sem hafa þarf«. Gísli Helgason, bóndi í Skógargerði aust- ur, lýsir honum þannig: »Peir bættu hvor annan upp (o: Hjalta- lín og Stefán Stefánsson, síðar skólameistari). Hjaltalín var ramm- islenzka kjarnmennið, sem gaf eitt- hvað bjargfast, óbifanlegt að styðj- ast við«. Halldór Stefánsson, alþm., kveður svo að orði um skólavist sína: »Um skólann og skólavistina hefir mér verið lang-minnisstæðast #...# + ##-####### #-#-# #-• # ♦ # stjórnarhættir skólastjóra, Jóns A. Hjaltalíns. Hefi eg jafnan dáðst að hinum næma skilningi hans á sálar- lífi ungmenna, sem fram kom i því, hversu frábært lag hann hafði á að sameina stjórn sína á hinni frjálshuga og ærslafullu æsku — án þess hún fyndi sér misboðið í nokkru — og vekja hénni mann- dóm og metnað. Neytti hann og hins sama lags í kenslu sinni, svo að nemendur höfðu hennar hin beztu not, þrátt fyrir það þótt hann hefði ekki aðra kennarahæfi- leika með afburðum (að mínum dómi)«. Hermann Valdimar Guð- mundsson, bóndi í Vallanesi í Skagafirði, ber honum þenna vitnis- burð: »J. A, Hjaltalín var orðlagð- ur reglumaður í stjórn skólans. Var það oft svo, ef einhver ólæti voru meðal pilta í skólanum, að Hjaltalín þurfti ekki annað en koma fram á meðai þeirra, sem ókyrrir voru, og líta á þá með þögn. Pá féll alt niður í dúnalogn. Nemend- ur báru yfirleitt mikla virðingu fyrir honum«. Páll Bergsson, kaup- maður í Hrisey, ségir um skóladvöl sína: »Mér varð nokkru Ijósara, þegar á leið æfina, hvað umgengni við kennara mína, þá Hjaltalín og Stefán Stefánsson, kom mér að góðum notum. Tel eg þar fyrst Hjaltalín, sem sníða vildi úr okk- ur námsveinum aðalsmenn hrein- Iegs og göfugs hugsunarháttar — — — Hann áminti okkur seint og snemma um að vera, en ekki »sýnast« og hníflaði óspart alt of- læti í hugsun og breytni«, Sveinn Ólafsson, alþm. i Firði í Mjóafirði, ritar: »Áhrif skólavistarinnar á æfi- kjör mín virðast mér allmikil ver- ið hafa, bæði gagnleg og góð — — — En djúptækust áhrif á mig hafði skólameistari Jórt A. Hjaltalín-----------Hann var djarf- ur og hreinskilinn drengskapar- maður, spakur að viti, heilráður og hagorður, en hversdagslega »glaðr og reifr««. Á kenslu Hjalta- líns lýkur Sveinn og lofsorði. En fagurlegast minnist Möðruvallavist- ar sinnar og húsbóndans þar Valdi- mar Snævarr, skólastjóri á Norð- firði. Hann segir þannig frá nytj- um af námi sínu þar: »a. Skólinn vakti hjá mér djúpstæða og varan- lega mentaþrá og löngun til að læra meira. b. Skólinn skóp mér trú á sjálfan mig Og mína eigin máttugleika. En jafnframt hvatti hann mig til dáða og dreng- skapar i ölium greinum. c. Skól- anum á eg að þakka góða fræðslu í ýmsu. Hann einn allra skóla sá mér fyrir undirbúningi undir lífs- starf mitt — kensluna — og brynj- aði mig þeim kjarki, að mér hefir auðnast að umbera allar þrenging- ar hinnar lítilsmetnu barnakennara- stöðu í 27 ár«. — — — »Er mér næst skapi að halda, að áhrifin megi rekja til allra aðiljanna, kenn- ara, námsgreina, félagsskapar og skólabrags. Pó stendur skólameist- ari Jón A. Hjaltalín eins og »klett- ur úr hafinu«, að mínu áliti, í þessu sambandi. Hann mótaði mig dýpst og varanlegast og þá allra helzt í kenslustundunum, en einnig í við- ræðum og daglegri umgengni. Per- sóna hans, hins silfurhára lávarðar, sem í senn var merkilega íhalds- samur og djarf-róttækur að hætti enskra fyrirmanna (?) kendi okkur býsna mikið, honum óafvitandi þó«.* Af hverjum eiginleikum stafa þessir glæsilegu vitnisburðir, er gamlir gagnfræðingar gefa meistara sínum? Hér verður drepið á örfá atriði til svars við slíkri spurningu. En henni verður ekki svarað, nema getið verði meginat- riða úr sögu hans, mentunar hans og undirbúnings undir æfistarf sitt. Eigi er undarlegt, þó að sumir kenni dulrænna tilfinninga, er þeir virða fyrir sér æfiferil merkra manna. Stundum virðist svo, í fljótu bragði að minsta kosti, sem eitthvert ann- að vit en sjálfra þeirra ráð hafi valið þeim hlutverk þeirra á leik- sviði lífsins. Pessi grunur kviknar af því, að langan tíma bjuggu þeir sig undir höfuðstarf lífs síns, án þess að þeirr vissu slíkt eða ætl- uðu sér slíkt. Mörg æfiár þeirra, vinna og mentun varð að undir- búningi undir starf, sem þá gat ekki órað fyrir, að þeim yrði falið eða þeir gegna myndi langan aldur og yrði óðal þeirra, minnisvarði og skapaþúfa. Þetta sannast á Jóni A. Hjaltalín. Hann dvelst fjórtán ár með Bretum og Skotum. Á þeim tíma veittist honum einhver hinn ákjósanlegasti undirbúningur undir enskukenslu, skólastjórn og forustu ungra íslendinga á fyrstu vaxtar- og þroskaárum þjóðlífs vors, er vér loks höfðum öðlazt löggjafar- vald. En hann gat þó ekki, fyrr en allra seinast, haft hugboð um, að fyrir hónum lægi slíkt starf. Jón Ai Hjaltalín var Vestfirðing- ur að ætt og uppruna. Hann var, sem margir merkustu menn þjóðar vorrar, prestssonur. Hann var af prestum kominn í marga kynliðu. Hann fæddist á Stað í Súgandafirði 21. marz 1840. Ungur fór hann í eina latínuskóla landsins á þeirri tíð. Námsmaður var hann góður. Hann varð stúdentmeð 1. einkunn 1861, prestaskólakandídat 1864, einnig með 1. einkunn. Fram að þessum tíma fetar hann þjóðbraut íslenzkra embættismannaefna. Hann hlýtur það lof, sem ferðamenn hljóta, er þeim sækist skjótt og vel ferð um þann Langadal. Hann virð- ist álitlegt borgaraefni, sem hann og var. Er slíkt altaf vel, en aldrei bezt, aldrei hiö æðsta. En nokkru síðar en hann er kominn á enda námsbrautar, fer hann út af þjóð- veginum. Hann hélt ekki áfram, fór ekki upp í prestsembætti og prédikunarstól. Tvö ár fæst hann við kenslu í Reykjavík. Var hann þá þegar, að sögn, ekki algerlega kirkjutrúarmaður. Arið 1866 leggur hann í langferð, sem á þeim árum var fátið meðal íslenzkra presta- skólakandidata, þótt ekki væri hún algerlega dæmalaus. Hann fór með konu sinni til Englands. Atii hann þar þó enga atvinnu vísa. Sést af slíkri víkingaför, að í ýmsu hefir honum verið ólíkt farið skólabræðr- um og félðgum. Jón A. Hjaltalín kvæntist ungur. Hlaut hann glæsilegt gjaforð, Guð- rúnu, dóttur Jóns landlæknis Por- steinssonar. Var það skollans lag- lega gert af prestling, að ná í iand- læknisdótturina og í móðurætt * Kaflar þessir eru úr svörutn við fyrir- spurnum, er eg gerði til margra gagn- fræðinga um hag þeirra af námi þeirra á Möðruvöllum eða i ikólanum hér á AWureyri, komna af æðstu höfðingjaætt lands- ins, Stephensens ættinni. Var henni á unga aldri við brugðið fyrir feg- urð, fjör og yndisleik. Svo kvað Matthías um hana látna: »Pað sannlega sýndist þjóðum, sem svanur úr Norðurheim með Braga blíðustu Ijóðum sér birtist í svanna þeim« En ekki varð hjúskapurinn hon- um að sama skapi til gæfu, sem hann var álitlegur í öndverðu, og varð margrætt um. Öllu slíku virð- ist hann tekið hafa með jafnaðar- geði. Hann hirti lítt um almanna- dóma. Var honum að slíku styrkur í skólastjórn. Hjúskapur hans varð skaphöfn hans undirbúningur undir skólastjórn hans. Ætla má, að konu hans hafi ekki verið gefið um að gerast prestskona á útkjálkabrauði né fram til dala. Ef til vill hefir slíkt hvatt hann til utanfarar. Eiríkur Magnússon hafði þá fyrir nokkrum árum ráðist utan. Siíkt hefir getað ýtt undir. En mestu hefir, án efa, ráðið um utanför hans útþrá og æfintýrahugur, djarfur og frjáls í sönnustu merkingu þess hins mjög misskilda orðs. Utanför hans sýnir bæði kjark og áræði. Hann fékst á skólaárum sínum við kveðskap. Sá órói, sem bar hann utan, var náskyldur Ijóðlund hans og Ijóð- hneigð. En það er merkilegt að Ijóðgáfa hans studdi hann með Bretum. Enn kom það íslendingi vel erlendis, að kunna að yrkja, eins og slikt gagnaði Agli, Hall- freði og Sighvati. Hjaltalín gekk fyrir Victoríu drottning og flutti henni kvæði, sem hann kallaði Sig- rúnarkviðu (Victoríu kallaði hann Sigrúnu). Hann hafði hið mesta gagn af drottningarkviðu sinni. Framan af bjuggu þau hjón við krappan kost í vesturvíking. Héð- an frá rýmkaðist hagur hans. Hann fékk atvinnu við bókasafn í Edína- borg. Hann gat sér góðan orðstír fyrirvinnubrögðogframkomu. Hann kyntist mögru stórmenni hinnar voldugu stórþjóðar og átti tal við suma hina mestu andans menn, er þá voru uppi, t. d. Carlyle. Finna má dæmi þess, að merkum Bret- um gazt vel að þessum landa vor- um, hæfileikum hans, mannkostum og dugnaði. Veittu þeir honum meðmæli um bókavarðarðarstöðu, er hann ásamt 19 Englendingum sótti um. Voru fyrst teknir fimm og síðan tveir þessara umsækjenda, er úr skyldi velja. Svo nærri komst Hjaltalín stöðu þessari, að hann varð annar. Bretinn varð hlutskarp- ari. En það sýnir traust á Hjalta- lín, útlendingnum norðan frá fs- landi, að hann varð annar í röð í þessu tvítuga kapptefli. Pess er ekki getið, að Jón A. Hjaltalín hafi sérstaklega kynt sér enska skóla. Pó hafði hann af þeim nokkur kynni. Fóstri hans og frændi, Ásgeir Sigurðsson, aðal- konsúll í Reykjavík, sótti skóla í Edínaborg. Hefir mér skilizt á konsúlnum, sem Hjaltalín hafi ekki allskostar getizt að kenslu þar. Hann lét brezka menning ekki blinda sig^ En þótt hann i Skotlandi eða Bret- landi byggi sig ekki undir skólastjórn né kenslu, urðu fjórtán dvalarár hans þar honum hinn frjóasti und- irbúningur undir menningarstarf hans norður í Hörgárdal. Hann öðlaðist það vald á brezkri tungu,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.