Dagur - 05.06.1930, Blaðsíða 3

Dagur - 05.06.1930, Blaðsíða 3
34. tbl. D AQUR 119 Kjörseðill við hlutbundna kosningu til Alþingis 15. Júní 1930 A-listi X B-listi C-listi Haraldur Guðmundsson alþingismaður, Reykjavík Jónas Jónsson dómsmálaráðh., Reykjavík Pétur Magnússon málaflutningsm., Reykjavík Erlingur Friðjónsson alþingismaður, Akureyri. Jakob Lártisson Prestur, Holti Guðrún Lárusdóttir frú, Reykjavík Davíð Kristjánsson bæjarfulltrúi, Hafnarfirði Jón Hamnesson bóndi, Deildartungu Kári Sigurjónsson bóndi, Hallbjarnarstöðum Elísabet Eiriksdóttir kennslukona, Akureyri. Þorsteinn Jónsson kaupfélagsstj., Reyðarfirði Skúli Thorarensen bóndi, Móeiðarhvoli Guðlmigur Jónasson bæjarfulltrúi, Seyðisfirði Kristinn Guðkmgsson bóndi, Núpi Sigurður Kristjárisson ritstjóri, ísafirði Finnur Jónsson póstmeistari, Isafirði. Tryggvi Þórhallsson forsætisráðh., Reykjavík Magnús Gíslason sýslumaður, Eskifirði Syona lítur kjörseðillinn út, þegar búið er að kjósa B-listann. Skákrossinn á kjósandinn að gjöra með blýanti, sem liggur á kjörborðinu. ; Gætið þess að setja krossinn FRRAMAN VIÐ bókstaf þess lista, sem þér ætlið að kjósa. hans auglýst þekkingarleysi sitt, kæruleysi og skilningsskort á ðllu því er að menningarmálum þjóð- arinnar Iýtur. Ræða þessa unga manns, sem ekki var óskipulega flutt, var hinn venjulegi Morgun- blaðsvaðall, sem alræmdur er orð- inn upp á siðkastið* um lítilsvirð- ingu kenslumálaráðherrans fyrir »sérfræði« um afsetningu Helga Tómassonar o. s. frvt Hinar éin- ustu menningarstofnanir, sem ræðu- maður auðsjáanlega hafði heyrt nefndar voru Mentaskólinn í Rvík — auðvitað með hinu góða, gamla íhalds sieifarlagi — og Háskólinn, til útungunar »íhalds-sérfræði«. Á menningar- og mentastofnanir fyrir alþýðu var ekki minst. — En ræðu- maður hugsaði sér að sanna ágæti íhaldsflokksias með þvi að bezt mentuðu (1) stéttirnar, embættis- mannastéttin og verzlunarmanna- stéttin fyltu þann flokk. J. J. kvað það hafa verið einkar vel til fallið, einkum þar sem 50 ára afmælishátíð Oagnfræðaskólans á Akureyri nú stæði fyrir dyrum, að íhaldsmönnum hafði hugkvæmst að senda þetta eintak úr Menta- skólanum í Reykjavik hingað norð- ur, til þess að sanna það áþreifan- Iega, að engin vanþörf hefði verið á að hér kæmist á fót mentastofn- un, sem einnig útskrifaði stúdenta og gæti hamlað upp á móti ástand- inu ejns og það hefði verið í Menta- skólanum syðra, — Pá vék hann að Hæstarétti og Fimtardómsfrum- varpinu, og sýndi rækilega fram á ýmsa yfirburði þess frumvarps fram yfir núverandi skipulag. Taldi hann rneðal annars sjálfsagðar endur- bætur að nema burtu lokun Hæsta- réttar, en láta þar fara fram opin- berar atkvæðagreiðslur eins og nú tíðkast víða, m. a. í Noregi; enn- fremur að eins og skipulagið er nú er hægt að fella þá dómendur, » sem skipaðir eru til að dæma, þeg- ar svo býður við að horfa. Auð- vitað fælist fhaldið Fimtardómsnafn- ið, það vili heldur nafn frá niðurlæg- ingartímum þjóðarinnar, sem auk þess er málfræðiiega rangt, en nafn frá frelsistímanum. — Fór hann svo nokkrum orðum um óskeikul- leika »sérfræðinnarc, sem virðist vera nokkursskonar trúaratriði með- al Mbl.-liðsins, og nefndi í því sambandi hið skemtilega »héramál« Ouðm. Hannessonar, óbilgjörnu klöppina á Skeiðunum og Skjáif- andafljótsbrúna, sem enn hangir á öðrum bakka fljótsins — alt saman Ijós vottur um »óskeikulleika« is- Ienzkrar »sérfræði«. Haraldur Ouðmundsson fór nokkr- um orðum um geðveikismálið, kvaðst hann hafa einlægustu sam- úð með dómsmálaráðherranum í því máli, og taldi árás þá er hann hafði orðið fyrir, hina ósæmileg- ustu, sem með orðum yrði lýst, en hann vildi minna kjósendur á, að þeir létu ekki samúð sína villa sér sýn, svo að þeir greiddu ráðherr- anum atkvæði, vegna geðveikis- rógsins, því hér bæri aðeins aðlíta á hann sem frambjóðanda Fram- sóknarflokksins. Jón Porláksson tók enn til máls, og snerist ræða, hans aðallega um að verja »mentamá!aráðunaut« sinn, enda var þess full þörf, þvi að margur mun hafa hugsað sem svo, að úr því þessi maður hefði betur vit á mentamálum þjóðarinnar, en J. P., þá mundi vera eitthvað skrítið við hugmyndir J. P. sjálfs um þau mál. Haraldur Ouðm. hélt nú lokaræðu sína og þakkaði fyrir gott hljóð — og af hálfu íhaldsmanna talaði Sig- urður Hlíðar. Fór hann nokkrum orðum um hversu erfitt það væri að stríða við dómsmálaráðherra og Framsóknarflokkinn. Pað þýddi ekk- ert að ráðast á hann, því allar varnir snerust óðara f sókn i höndum hans—hefði þetta komið glögglega fram undir umræðunum, og væri það hin venjulega aðferð Fram- sóknarflokksins og Framsóknarblað- anna (megum vér vel við una slík ummæli frá hreinskiinum andstæð- >ng). J. J. þakkaði nú fyrir hina góðu fundarsókn, og þá athygli og þann áhuga sem fundarmenn hefðu sýnt. Benti hann á, að þetta væri hinn mesti fundaleiðangur, sem farinn hefði verið hér á landi, en áhuginn um fundarsókn hefði ávalt og allstað- ar verið hinn sami, þrátt fyrir ýmsa örðugleika, virtist sér það vera gleðilegt tákn um vakningu meðal þjóðarinnar. Traustsyfirlýsingar og samúðarskeyti, sem að sér hefði drifið frá þúsundum manna hvaðan- æfa af landinu, væru alt eins mikið traustsyfirlýsingar til Framsóknar- flokksins, til stefnu hans og starf- semi, því að Framsóknarflokkurinn héldi áfram að vera til í landinu, þótt svo bæri til að sín misti við, hann stæði ekki né félli með neinum einstökum manni. Að síðustu þakk- aði hann öðrum ræðumönnum fyrir þátttökuna í umræðunum; og fund- inum var slitið kl. 2 um nóttina. Pó að þetta sé nú orðið nokkuð Iangt mál, þá er það eins og gefur að skilja aðeins ófullkominn útdrátt- ur úr því sem gerðist á fundinum, en rúmsins vegna hefir ekki verið hægt að rekja hinar einstöku ræður til hlítan — En það er augljóst að fundarboðandi átti mjög miklum vinsældum að fagna meðal fundar- manna og að þær jukust við hverja ræðu sem hann hélt. — Mikið fanst og mörgum til um fyrsta frambjóð- anda A-Iistans — og þá auðvitað fyrst og fremst flokksmönnum hans — og var það maklegt, þvíað hann er bæði skemtilegur og skötulegur ræðumaður, og prúður í framkomu. Minstan byr hafði íhaldið — og var það að vonum. * * * Af fundi Jóns Porlákssonar á föstudagskvöldið er fremur fátt að segja. Pegar fundurinn hófst mun hafa verið komið alt að því 200 manns í húsið. Enginn Framsóknar- manna mætti á fundinum ollu því ýmsar orsakir, en þó einkum hinn óheppilegi timi, kvöldið fyrir skóla- hátíðina,- sem gerði það ókleift fyrir marga eða fiesta málsvara flokksins að mæta; aftur á móti komu þar nokkrir Jafnaðarmenn, og meðal þeirra fyrsti frambjóðandi A-Iistans. J. P. lýsti því yfir í byrjun fundar- ins, að hann mundi taka sjálfum sér ræðutíma, eins og hann vildi og þyrfti, en siðan skamta hinum flokkunum ræðutíma. H. O. mót- mælti þessu, kvað það ójafnrétti og undir þeim kringumstæðum mundi hann ekki taka þátt í umræðunum, einkum þar sem fyrirsjáanlegt væri að fundartíminn gæti orðið svo tak- markaður, að lítill sem enginn tími yrði til andsvara, þar eð J. P. ætlaði sér að fara með skipi sama kvöldið, sagði hann,að á þennan fund yrði að líta, sem flokksfund J. P. og væri ekki ástæða til fyrir sig eða sína flokksmenn að sitja hann. Að svo mæltu gekk Haraldur og aðrir Jafnaðarmenn af fundi; en J. P. sat eftir og boðaði eitthvað um 100 manns fagnaðarerindið. — Sagt er að auk hans hafi tekið til máls Lárus Thorarensen og Sigurður Hliðar. — Fór Jón leiðar sinnar með »Drottningunni« um kvöldið og var fullyrt, að hann hefði unað sinum hlut all illa. - ■ 0 —---- Á vídavangi. »Níðingsverk« nefnir »íslendingur« það, er dóms- málaráðherra vék dr. Helga Tómas- syni frá stöðu sinni. Aftur á móti ver blaðið í líf og blóð þá fram- komu H. T. að vaða inn í hús dómsmálaráðherra óbeðinn og kveða upp yfir honum geðveikisdóm í á- heyrn konu hans. »ísl.« segir að ekki hafi heyrst að kona J. J. hafi beðið nokkurn heilsuhnekki við heimsóknina; en er það H. T. að þakka? Er ekki hans gerð sú sama fyrir því, þó konan hafi reynst nógu sterk til að þola þetta, sem »ísl.« veit auðvitað ekkert um ? Ef einhver miðaði byssu á ritstjóra »ísl.« og hleypti skoti af, en hitti ekki, væri þá sá hinn sami sýkn saka fyrir það? Annars er óhugsandi að nokkur maður haldi því fram af sannfær- ingu, að H. T. gæti verið í þjón- ustu ríkisins og undirmaður J. J. eftir hina hneykslanlegu framkomu hans og eftir að hann hafði gerst verkfæri í höndum sér verrimanna. Enda mun H. T. aldrei hafa búist við því sjálfur, það sýnir umleitun hans eftir atvinnu annarsstaðar. En hafi H. T. í raun og veru viljað sitja áfram í stöðunni, þá er það vottur þess, að hann hafi sjálfur haft »grun« um að dómur sinn hafi verið rángur, því tæplega er honum ætlandi að sækjast mjög fast eftir því að vera undirmaður brjálaðs manns að hans dómi. Rjúpuflokkur. Einn ræðumaður íhaldsflokksins hefir haldið því fram, að nafnaskifti flokksins væru hliðstæð litaskiftum rjúpunnan Rjúpan skifti um lit, til þess að geta betur varist óvinum sínum. Flokkurinn varpaði á sama hátt á sig ýmsum litbrigðum, til þess að verjast andstæðingum sínum. Finst þá mörgum viðeigandi eftir þessa skýringu, að flokkurinn skifti enn um nafn og nefni sig Rjúpuflokk.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.