Dagur - 24.07.1930, Page 4
154
VXGVR
44. tbL
Fréttir.
Krossanesdeilan var til iykta Ieidd í
Reykjavík á laugardaginn var fyrir milli-
göngn sáttasemjara ríkisíns og samningar
undirskrifaðir. Höfðu þeirHoIdö í Krossa-
nesi og Enar Oigeirsson báðir farið suð-
ur. Tvö aðalatriði samninganná eru í því
falin, að norskir verkamenn hafi sama kaup
og íslenzkir og að menn innan Giæsibæj-
arhrepps hafi forréttindi til vinnu í Krossa-
nesi.
Skólanelnd hins fyrirhugaða Gagnfræða-
skóla Akureyrar var kosin á bæjarstjórn-
arfundi á þriðjudaginn var. Tiliaga kom
fram um að fela skólanefnd barnaskólans
yfirumsjón gagnfræðaskólans, en hún var
feld með 5 atkv. gegn 5. Hlutfallskosning
fór fram í nefndina og hlutu kosningu
Brynjólfur Sveinsson stúdent, Jón Stein-
grímsson bæjarfógetafulltrúi, Tómas Björns-
son kaupm. og Axel Kristjánsson kaupm.
Skólinn á taka til starfa í haust.
Lögreglumái. BæjarBtjóri kom fram með
tillögu á síðasta bæjarstjórnarfundi þess
efnis, að skorað væri á lögreglustjóra að
sjá um að ökuhraði bifreiða á götum
bæjarins væri ekki meiri en lög mæla fyrir,
og ennfremur að lögregluþjónar hér á
Akureyri væru sendir til Reykjavikur, til
þess að fullkomnast í starfi sínu. — Til-
lögunni var tekið vel í bæjarstjórn og var
því samþykt.
Dánardægur. Á mánudaginn var aridað-
ist að heimili sínu við Glerárgötu hér í
bæ ungfrú Halldóra Halldórsdóttir sauma-
kona, eftir langvarandi veikindi. Hún var
rúmlega fertug að aldri; vel gefin og
vönduð stúlka.
Þá er og nýlega látinn að Laxamýri í
Aðaldal Þorbergur Hallgrímsson faðir
Jóns bónda þar, Hallgríms bónda á Hall-
dórsstöðum í Laxárdal og Jónasar út-
varpsstjóra í Reykjavik. Hann var kominn
hátt á áttræðisaldur. Jarðarför hans fór
fram í gær að Einarsstöðum.
Síldarsöltun er byrjuð fyrir nokkrum
dögum; var um siðustu viku búið að salta
um 20 þús. tunnur á Siglufirði og við
Eyjafjörð. Síldin þykir mjög góð verzlun-
arvara.
Skjálfandalljótsbrúna átti að vigja á
sunnudaginn kemur. Forsætisráðherra var
í þann veginn að leggja af stað norður
til að framkvæma vigsluna, en settist aft-
ur vegna veikinda og fráfalls tengdaföð-
urs síns. Verður þvi vigslunni frestað um
stund.
brjár kennarastööur við Bamaskóia Ak-
ureyrar, ásamt skólastjórastöðunni, hafa
verið auglýstar til umsóknar í Lögbirtinga-
blaðinu. Umsóknarfrestur er til 20. ág.
Sampykt hefir verið í bæjarstjórn, eftir
tillögu fjárhagsnefndar, að bæjarstjóraskrif-
stofan verði hér eftir opin frá kl. 10—12
og kl. 1—5, nema á laugardögum til kl.
7, og að bæjarstjóri hafi tveggja stunda
fastan viðtalstima á degi hverjum, kl. 2—
4 e. h.
Hjónabönd: Ungfrú Sigríður Sveinbjarn-
ardóttir og Sveinbjörn Lárusson bifreiða-
stjórí, bæði til heimilis hér í bænum.
Ungfrú Sólveig Kristjánsdóttir héðan úr
bænum og jón Júliusson bóndi á Munka-
þverá.
Skip. Nova kom á mánudagsnóttina og
Brúarfoss næstu nótt. Bæði nkipln komu
«ustan um land frá litlöndum.
Hrífusköft og hrífuhausar
með alúmíníum tindum, fást hjá
Bened. Benediktssyni.
GERHVEITI,
ágæt sort, mjög ódýrt ef tekið erá
bryggju, væntanlegt rneð »Oullfoss«
1. ágúst n. k.
Sendið pantanir. sÍMI 234.
Akureyri 23, júlí 1930.
Bened. Benediktssoni
Elephanf
CIGARETTUR
(Fíllinn)
eru Ijúffengar
og kaldar.
Mest reyktu cigarettur
hér á Iandi.
Maltöl
B a j er sktöl
P i 1 s n e r
2ezt. — Ódýrast.
Innlent.
ENSKU
REYKTÓBAKS-
TEGUNDIRNAR
Richmond.
Waverley.
Glasgow.
Capstan.
Garrick
eru góðkunnar meðal reykend-
anna um land alt.
í heildsölu hjá
Tóbaksverzlun Islands.
Caroline-Resi-nefndin hefir ákveðið að
leita fyrir sér um sölu á húsi stofnunar-
innar og jafnframt að fá áætlun um kostn-
að við nýtt hús annarstaðar, reist í sama
tilgangi.
" 0..........
PONTIAC De Luxe 1930.
Pontiac-vélin er þegar búin að sýna, að
hún er einhver allra gangvissasta og endingar-
bezta bílvél, sem hér þekkist. Mörgum bílum með
þessari ágætu vél er þegar búið að aka um
60.000 kílometra, án þess að þurft hafi
að gera hið allra minsta við vélarnar, og enn
ganga þær hávaðalaust eins og nýjar og hafa
eigi tapað neinum krafti.
Yfirbyggingin á PONTIAC erúr hörðu
tré og stáli, en ekki úr stáli eingöngu eins og
notað er í flesta ódýra bíla, til að spara áþeim
stöðum, sem augað ekki sér. Tré og stál er um
þrefalt sterkara en stál eingöngu.
Afbragðsbifreiðin PONTIAC er bygðaf
General Motors.
Aðalumboðsmenn á íslandi:
JÓH. ÓL.AFSSON & CO. REYKJAVÍK.
Bifreiðarnar eru seldar í
Kaupfélagi Eyfirðinga.
ALFA-LAVAL 1878—1928.
í 50 ár hafa ALFA-LAVAL skilvindur verið beztu og vönd-
uðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum.
ALFA-LAVAL verksmiðjurnar hafa altaf
verið á undan öðrum verksmiðjum með ný-
ungar og endurbætur, enda hafa Alfa-Laval
skilvindurnar hlotið yfir 1300 heiðursverðlaun
og fyrstu verðlaun, auk annara verðlauna.
Reynslan, sem fengin er við smíði á yfir
3,500,000 Alfa-Laval skilvindum, tryggir það
að A L F A-L A V A L verði framvegis öll-
um öðrum skilvindum fremri að gerð og
gæðum.
Mjólkurbú og bændur, sem vilja eignast vandaðar vélar til
mjólkurvinslu, kaupa hiklaust Alfa-Laval mjaltavélar, skilvindur,
strokka, smjörhnoðara og aðrar Alfa-Laval vélar.
Samband isl. samvinnufélaga.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal. Friðrik Ásmundsson Brskkam.
Gilsbakkaveg 6. Aöalsfcrtsti 16.
Prentsmiðja Odds Björassonars