Dagur - 04.09.1930, Blaðsíða 2
176
DAGUR
50. tbl.
mrn K ifVfVfffffffffffffffl Þakjárn 111. U Og 2B. mm tm HK HK
m Slétt jám. •5 •5 AáW
m m w* Þakhryggir. •€88 •S •5
m* Nýkomið í •5 •m
Kaupfélag Eyfirðinga. •S
WAmummmmmm
My ndastof an
Gránufélagsgötu 21 er opin alla
daga frá kl. 10 — 6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
inn á tún annars manns; en þau
segja, að prófastur hafi haft hina
>mestu sæmd< af þessu. Af því má
nokkuð marka siðferðisástandið á
bænum þeim, þegar rán hins ríka
á hendur hinum fátæka er talið til
sæmdarverka og kristilegra athafna.
--------------0-----
Marga mun reka minni til þess,
að það var aðalmálgagn íhalds-
flokksins, sem varð fyrst til þess
að benda opinberlega á það í vet-
ur, að Lárus Jónsson læknir væri
3. innlendi sérfræðingurinn í sál-
sýkisfræðum. Gumaði þá Mbl.
mikið af þekkingu L. J. og taldi
hann svo snjallan, að hann þyrfti
ekki annað en að sjá sjúkling í
svip og tala við hann nokkur orð,
til þess að komast að raun um í
hvaða deild í geðveikrahæli hann
ætti heima. Á þenna hátt talaði
málgagn íhaldsmanna á meðan
þeir héldu að hægt myndi að hafa
gagn af L. J. við kviksetningartil-
raunina á dómsmálaráðherra.
Þetta vopn snerist að vísu óþægi-
lega í höndum þeirra, er á héldu,
því L. J. sendi Mbl. ákveðin mót-
mæli gegn ósannindum, er blaðið
hafði flutt um skoðun Lárusar á
heilsufari dómsmálaráðherrans.
En Mbl. brást þeirri drengskapar-
skyldu að birta mótmælin, svo að
það varð að útvega þeim rúm í
öðru blaði.
Mbl. lýsti átakanlega þeim
hörmungum, er dunið hefðu yfir
sjúklingana á Nýja Kleppi, þegar
þeir hefðu verið sviftir sérfræði-
legrí læknishjálp við brottför
Helga Tómassonar þaðan. Það
hefði því mátt ætla að Mbl.-liðinu
hefði geðjast það vel og glaðst af,
þegar heilbrigðisstjórninni tókst
að fá þríðja sérfræðinginn að
Kleppi. En raunin varð öll önnur.
Kom þá í ljós, að umhyggja Mbl.
fyrir sjúklingunum hafði verið
uppgerð ein og hræsni. Fylgifisk-
ar blaðsins gerðu alt, er í þeirra
valdi stóð, til þess að hindra það,
að sjúklingarnir fengju að njóta
hjálpar og aðstoðar eina innlenda
sérfræðingsins, er um var að gera
eins og málum þá var komið.
Þegar Mbl.-liðið sá að því hafði
mistekizt að svifta sjúklingana á
Nýja Kleppi allri læknishjálp, tók
það til þeirra ráða í gremju sinni
að ofsækja nýja lækninn á allar
lundir og hefur það haldið rógi
sínum um Lárus Jónsson slita-
laust áfram allt til þessa dags.
Meðal annars hefir Mbl. fullyrt,
að hann hafi verið rekinn vegna
drykkjuskapar af þeim spítölum,
er hann vann við erlendis og Mbl.-
menn hafa látið drýgindalega yfir
því, að þeir hefðu aflað sér vott-
orða erlendis frá um þessi efni.
Væri sumum af stéttarbræðrum
Lárusar Jónssonar vel trúandi til
þess drengskaparbragðs að reyna
að grafa upp einhverjar gamlár
syndir L. J. með aðstoð erlendra
manna, til þess. að hampa þeim
framan í almenning hér heima.
Framkoma þeirra í öðrum efnum
gerir það ekki ótrúlegt. En skjóta
mundi mega að þessum snuðrur-
um um lífernishátt L. J. því, er
eitt sinn var sagt um skinhelga
vandlætara: »Sá yðar, sem er
syndlaus, kasti fyrsta steininum«.
Lárus Jónsson læknir hefir ekki
haft skap til að þegja með öllu
við dylgjum og persónulegum á-
rásum Mbl. á sig. í Tímanum 16.
f. m. tekur hann til máls. Þar seg-
ii hann meðal annars:
»Dr. Helgi Tómasson fór nýlega
utan á Læknafund í Noregi — að
sögn sem fulltrúi Læknafélags ís-
lands.
Hann notar tækifærið til þess
að láta norsk blöð, Tidens Tegn og
Aftenposten, birta langt viðtal við
sig, þar sem hann segir fullum
stöfum, að eg hafi verið rekinn af
spítölum í Danmörku vegna
drykkjuskapar, enda þótt hann
viti, að þetta eru tilhæfulaus ó-
sannindi. — Tilgangurinn er sýni-
lega aðeins sá að rægja mig bæði
hér heima og erlendis og koma ó-
orði a spítalann. — Hefði þó mátt
búast við að dr. Helgi teldi sig
hafinn upp yfir slíka lítilmensku«.
Eftir að L. J. hefir lýst brott-
AUGLÝSING
UM
FRAMBOÐ Á KOLUM.
Mentaskólinn á Akureyri óskar framboðs á 80—100 sinál.
kola — pólsk kol »Rober« áskilin — og 20 smálestum »kokes«.
Kolin og »kokes«ið sé á staðnum eigi síðar en 1. okt. og séu
afhent eftir þörfum. Námuvottorð sé sýnt, áður en byrjuð eraf-
hending. — Framboðum sé skilað á skrifstofu skólans laugar-
daginn 6. september næstkomandi kl. 1 e. h.
Ennfremur er óskað framboðs á flutningi á kolum til skól-
ans og séu kolin jafnan heimflutt eftir þörfum. Peim framboð-
um sé skilað á sama stað og sömu stundu sem fyr segir.
Lægsta heildarboð verður tekið
Mentaskólanum á Akureyri, 28. ágúst 1930.
Sigurður Guðmundsson.
Fluttur.
«
Hefi flutt vinnustofu mína í Ráðhústorg 1 (beint
á móti Landsbankanum). Inngangur í hornið.
Guðjón Bernharðsson,
gullsmiður.
rekstrarummæli dr. Helga og Mbl.
»tilhæfulaus ósannindi« birtir
hann máli sínu til sönnunar tvö
vottorð frá geðveikraspítalanum í
Middelfart, sem hann vann við 1
15 mánuði, og ennfremur vottorð
frá Karli Jónssyni lækni, sem
vann samtímis L. J. í 6 mánuði á
spítala í Danmörku. Afsanna öll
þessi vottorð rógburðarfleipur
Morgunblaðsmanna.
En þrátt fyrir það þó búið sé
að reka ósannindin til baka á
þenna hátt, er lítill eða enginn
vafi á því að Mbl.-menn munu
halda áfram ofsóknum sínum og
rógi um Lárus Jónsson lækni.
------o------
Álíavita-spíriius verður
manni að bana.
Fyrir síðustu helgi vildi það til
á Siglufirði, að nokkrir menn á
gufuskipinu »Iho« tóku spiritus
af áttavita og drukku; alls voru
það 9 menn, sem talið er að liafi
bragðað eitrið. En bæði mun vera
að þeir hafi drukkið misjafnlega
og að þol manna gagnvart verk-
unum eitursins sé misjafnt, því 3
af mönnunum veiktust hættulega
og einn þeirra dó eftir 30 kl.st.;
hinum varð lítið eða ekki meint
við. Hinir tveir, sem veiktust,
voru fluttir á sjúkrahúsið og tókst
lækninum að bjarga lífi þeirra, og
mátti þó að sögn ekki tæpara
standa. — Maðurinn, sem dó, hét
Jón Johnsen og átti heima í Rvík.
Sagt er að hið lögskipaða eitur-
merki hafi vantað á áttavitann,
er slíkt vitanlega trassaskapur af
þeim, er þar eiga hlut að máli, en
getur þó naumast talizt nein af-
sökun fyrir þá, sem lögðu sér eitr-
iioirriiaour
tek að mér slátrun
sauðfjár í haust.
Zophonfas Jónasson,
Norðurgötu 19.
fyrir sláturfé nýkomin.
Kauptélag Evfirðinga
Járn- og Glervöru-deildin.
Járn-rúmin
marg-eftirspurðu eru komin aftur.
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og Glervöru-deildin.
ið til munns. — Allir vita að ræki-
lega hefir verið auglýst að lögboð-
ið er að áttavita-spiritus væri
drepandi eitur, og er það gert til
þess að engum geti komið til hug-
ar að leggja sér hann til munns.
Hið sama ætti auðvitað að eiga sér
stað með brenzlusprítt og allan
annan vínanda, sem notaður er til
iðnaðarþarfa,þar sem það er ekk-
ert launungarmál að þeir siðferð-
islegu aumingjar eru margir, sem
nota slíkan vínanda til drykkjar.
óskandi væri, að þetta slys á
Siglufirði yrði slíkum mönnum æ-
varandi viðvörun, því það verður
að teljast sérstök tilviljun, að ekki
hlauzt enn yerra af.
-------0--------