Dagur - 04.09.1930, Blaðsíða 4
178
DAGUR
50. tbl.
Bíúkaðir ofnar
fást með góðu verði í
Kaupfélagi Eyfirðinga.
F réttir.
Að sunnan komu í bifreiðum hingað
til bæjarins á laugardagskvöldið dóms-
málaráðherra Jónas Jónsson, fræðslu-
málastjóri Ásgeir Ásgeirsson, húsa-
meistari ríkisins Guðjón Samúelsson og
forstöðumaður áfengisverzlunar ríkis-
ins Guðbrandur Magnússon. Hafa þeir
dvalið hér síðan.
t flugvél kom í fyrradag að sunnan
síra Jón Sveinsson ásamt fylgdarsveini
sínum. Hafa þeir stutta dvöl hér í
bænum og hverfa skjótt suður aftur.
Loksins hefir brugðið til þurks síð-
ustu dagana. Vonast menn eftir að á
því verði framhald og er mál til komið
að tíðarfar breytist til batnaðar. Nú
um langa hríð hefir enginn heybaggi
náðst með sæmilegri verkun.
Síldarbræðsluverksmiðja ríkisíns á
Siglufirði verður vígð á morgun. Vígsl-
una framkvæmir 2. þingm. Eyf. Bern-
liarð Stefánsson, en ekki dómsmálaráð-
herra eins og getið var til í síðasta
blaði.
Theódór Lilliendalil símritari fór til
Beykjavíkur með síðustu ferð Nova. Er
hann ráðinn starfsmaður við einkasölu
ríkisins á útvarpstækjum og á að hafa
umsjón með kaupum á þeim.
Látinn er nýlega hér í bænum Ólafur
Árnason beykis Jónatanssonar, ungl-
ingspiltur prúður og vel látinn. Hann
dó úr berklaveiki.
Sigurður Kristinsson forstjóri er hér
á ferð. Fór hann austur á Langanes
fyrir nokkru og kom þaðan hingað tii
bæjarins um síðustu helgi. Hann fer
suður nú með íslandi.
Þingkosningwr eru nýlega afstaðnar í
Kanada. Conservativi flokkurinn stór-
sigraði. Alls hafa conservativar hlotið
137 þingsæti, eða 29 Sæti í hreinan
meirihluta. Áður fór líberali flokkurinn
með völd undir forustu King forsætis-
ráðherra. Liberalstjórnin hafði á síð-
asta þingi aðeins eitt sæti í meirihluta,
en conservativar höfðu þá 90 þingsæti.
Hafa þeir því unnið 47 þingsæti i þess-
um kosningum. Er nú Kingstjórnin því
fallin, en Bennett, foringi andstæðing-
anna, hefir myndað stjórn.
Sala á klæðaverksmiðjunni Gefjun
mun mega telja að hafi verið ákveðin í
fyrradag, þó ekki sé enn gengið form-
lega frá samningum. Kaupandinn er
Samband ísl. samvinnufélaga. Kaup-
verðið er 200 kr. hver 100 kr. hlutur í
verksmiðjufélaginu. Hlutafjárupphæðin
er alls yfir 120 þús. kr. og verður þá
kaupverðið alls upp undir milj. kr. 1
samningsuppkastinu er gert ráð fyrir
að helmingur kaupverðsins borgist út
í janúar n. k., en hinn helmingurinn
með jöfnum afborgunum á næstu 15 ár-
um og 5% vöxtum. Afhending verk-
smiðjunnar fer fram í þessum mánuði,
ef úr kaupum verður, en til þess að þau
séu fullkomlega formleg, vantar endan-
legt samþykki stjórnar S. 1. S.
> • • •«»«»»»««»««t>mmm
Lappohreyfingin
Og
f r i ðarstarf se m i n.
Fyrir tæpum mánuði hóf Friðar-
samband noirænna kennara (Nor-
diske Læreres Fredsforbund) aðai-
fund sinn á Lahti lýðháskóla í Finn-
landi, á meðan fundurinn stóð yfir
ritaði einn þeirra, er sóttu hann, eftir-
farandi grein í »Politiken«, sýnir hún
dável, með hverjum augum Lappo-
menn líta á friðarstarfsemina í heim-
inum:
»Pessa dagana heldur Friðarsam-
band norrænna kennara mót og
námskeið á Lahti lýðháskóla í Finn-
landi. í tilefni af því bauð ritstjóri
friðarblaðsins, »Frid pá jorden*, full-
trúana, sem mættir voru frá öðrum
Norðurlöndum, velkomna til Finn-
lands í blaði sínu; og um leið
benti hann á öfugstreymi það, sem
á sér stað á stjórnmálasviðinu hér
(í Finnlandi).
Ritstjóri og útgefandi blaðsins er
ungur prestur, Stenwall að nafni, á
hann heima i bænum Nárpes í
Austur-botni og hefir starfað þar
fyrir friðarhreyfinguna í 8 ár. Pegar
hann hóf starfsemi sína á þessum
slóðum var friðarhreyfingin með
öllu óþekt þar, en nú eru 6 tals-
vert öflug friðarfélög starfandi í
Austur-botni.
Orein ritstjórans gaf Lappo-mönn-
um tilefni til að stefna fólki úr ná-
grenninu saman á einskonar leyni-
fund í Nárpes; og létu þeir þar
samþykkja tillögu um að fundur-
inn krefðist þess, að bann yrði lagt
fyrir útkomu blaðslns »Frid pá
jorden« og sömuleiðis að öll friðar-
starfsemi í landinu yrði bönnuð,
þar sem slik starfsemi væri til síór
tjóns fyrir föðurlandið og hervarnir pess.
Auðsjáanlega halda þessir menn,
að friðarhreyfingin, sem heimtar:
»Leggið vopnin niður«, sé til tjóns
fyrir hina fámennu finsku þjóð.
Dæmi til slíkrar heimsku, mun vart
vera hægt að finna.
Síra Stenwall brá þegar við og
boðaði til fundar um málið. Sýnir
það út af fyrir sig, að maðurinn
er hugdjarfur og hefir brennandi
trú á máiefninu, því eins og ástandið
er, getur hann ekkert vitað um
hvaða framtíð ef til vill bíður hans.
Til þess að sýna friðarvinunum
í Austurbotni samúð og verða þeim
að einhverju leyti til stuðnings,
sendi fundurinn á Lahti þeim svo-
hljóðandi skeyti:
»Meðlimir friðarsambands norr-
ænna kennara, mættir á aðaifundi
fyrir hönd félaganna í Danmörk,
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hafa
með undrun og sorg heyrt um
samþykt þá, er gerð var á borgara-
funpi í Nárpes þ. 26. júlí. Pessi
samþykt verður ekki skilin öðruvísi
ensem bein hótun gegn friðarstarf-
seminni í Finnlandi, hinu sænska
blaði hennar »Frid pá jorden* og
ritstjóra blaðsins, síra Stenwall. —■
Aðalfundurinn bendir á að starfsemi
sú, er Stenwall hefir staðið fyrir í
þágu friðarhreyfingarinnar, er einn
liður í hinni miklu alþjóðastarfsemi,
sem Pjóðabandalagið stendur að
ásamt hinum vfðtæku alþjóðasam-
+\fi t
VIM gerir hlutina skín-
andi fagra. Notið það
allsstaðar í húsum yðar
til að hreinsa hvítmálaða
vegg' og linoleum-gólf-
dúka, til að hreinsa og
fága málningu og gler-
ung, til að gera potta og
pönnur, skálar og baðker
skínandi fögur.
X-V 4 1-108
LEVER BROTIIERS LIMITED, PORT SUNLIGHT, ENGI.ANn
Heimavist Gagnfræðaskolans
óskar tilboða um sölu á ca. 80 lítrum mjólkur á dag á vetri
komandi. — Tilboðin sendist heimavistarstjóra Stefáni Egilssyni,
Oagnfræðaskólanum, fyrir 20. september næstkomandi.
tökum. Fundurinn ákveður þvi í
einu hljóða, að votía síra Stenwall
þakklæti sitt og virðingu fyrir unnin
störf í þágu friðarins, og það'er
sannfæring vor, að ofsókn gegn
slíkri starfsemi feli í sér afneitun
þeirrar menningarstarfsemi nútím-
ans, sém mestan lífskraft hefir í sér
fólginn og beztu lofar fyrir fram-
tíðina«.
Pað lýsir allvel ástandinu eins og
það er í Finnlandi núna, að allir
friðarvinir eru skoðaðir sem komm-
unistar; alt, sem ekki er með Lappo,
er talið rautt.
Pað er erfitt að skilja, að menn-
ingarþjóð skuli geta þolað það, að
alþjóða-mannúðarhreyfing, sæti slíkri
meðferð; en það lítur út fyrir, að
þar sem Lappo er annarsvegar, geti
menn búist við þvi ótrúlega«.
----------------o
StmskeytL
(Frá FB)
Rvík. 2. sept.
Varahlutirnir í Súluna náðu ekki
hingað með Max Pemberton, en
koma með næstu skipsferð.
París: Flugmennirnir Costes og
Bellonte lögðu af stað í gær í flug-
ferð til Newyork.
Varsjá: Æsingar eru víða í Pól-
landi gegn þjóðverjum út af því,
að þeir krefjist breytinga á austur-
landamærum.
Talmyndasýningar hófust í Reykja-
vík í gær.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 6.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Aöalstræti 15.
Prentsmiðja Odds Bjömssoniur.
vantar mig frál.okt.
Jóhanna Pór,
Norðurgötu 3.
Halldóra Halldórsdóttir
ddin 21. júli 1930.
Móðurkveðja.
Að sjá þig nú dána, það særir mig hart,
en sælunnar ann þér at hjarta.
At mönnum þú einasta athvarfið varst,
áhyggjur mínar og sorgir þú barst.
Að líða upp til himins í Ijósanna veldi
voru laun þín á æfinnar kveldi.
Pú varst í anda svo hugprúð og hraust,
þótt holdið af veikindum þjáðist.
Þú sagðist á Alföður setja þitt traust
og sólar hans náðar og kærleika nautst,
Án mínnar hjálpar þó stundum þú stríddir,
stundirnar þolgæði prýddir.
Er leit eg þitt slðasta svefnhöfga mók
þá særðist mitt hjarta af trega.
Eg grátbað til himins, það huggun mér jók.
Honum sé lof, sem að gaf þig og tók.
Fljótt rénnur timaglas stopulla stunda,
stutt er að bíða samfunda.
Margur vill sýna mér samúð — en katt
samt finst mér húsið mítt tóma;
frá störfum er heim kem, þá stílar mér alt
að stundlega lífið sé hverfult og valt.
Hjartað mitt saknaðar heltekur þráin
— æ — hún er mér horfin og dáin.
En altaf eg kærleik og almátt hans finn,
sem ekkjuna huggaði forðum
og gaf henni lifandi soninn sinn,
svo mun á himninum frelsari minn
gefa mér, dóttir, þig dýrðinni skréyffa,
úr dauða í ljósengil breytta.
------e ■■