Dagur - 16.10.1930, Blaðsíða 3
57. tbl.
DAGUR
203
* * * * * » ♦ • » «»«« » » t « • • •
Barnaskólinn
á Akureyri verður settur Laugardaginn 18. þ. m. Við sama
tækifæri fer fram vígsla hins nýreista skólahúss. Athöfnin
hefst kl. 2 e. h.
Ætlast er til, að öll börn, sem skólann sækja, verði viðstödd,
auk þeirra foreldra og annarra borgara í bænum, sem þess óska.
Skólanefnd og skólast/dri.
jörðin Grímsnes 'l GrýtUtoÉÉfiflpÍ
er til kaups og ábúðar á næsta vori. Jörðin gefur af sér í með-
alári 250 hesta heys, innan girðingar, mest taða. lbúðarhús úr
timbri 10X15 al. Kjallari og tvær hæðir, járnvarið á þrjá vegu.
Peningshús fyrir 100 fjár og 3 kýr. Töluverð sjáfarhús eru á
jörðinni. — Góð og nærtæk mótekja. — Ibúðarhúsið er hitað
upp frá miðstöðvarvél.
Lysthafendur snúi sér til
Halldórs Jónssonar Hafnarstræti 102 Akureyri
og eiganda jarðarinnar,
Jóns Halldórssonar Grímsnesi.
ALFA-LAVAL 1878—1928.
í 50 ár hafa ALFA-LAVAL skilvindur verið beztu og vönd-
uðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum.
ALFA-LAVAL verksmiðjurnar hafa altaf
verið á undan öðrum verksmiðjum með ný-
ungar og endurbætur, enda hafa Alfa-Laval
skilvindurnar hlotið yfir 1300 heiðursverðlaun
og fyrstu verðlaun, auk annara verðlauna.
Reynslan, sem fengin er við smíði á yfir
3,500,000 Alfa-Laval skilvindum, tryggir það
að A L F A-L A V A L verði framvegis öll-
um öðrum skilvindum fremri að gerð og
gæðum. *
Mjólkurbú og bændur, sem vilja eignast vandaðar vélar til
mjólkurvinslu, kaupa hiklaust Alfa-Laval mjaltavélar, skilvindur,
strokka, smjörhnoðara og aðrar Alfa-Laval vélar.
Samband isl. samvinnufélaga.
varasjóð, en greiddi allan arð sinn
út sem launauppbót.
Er hér gott dæmi þess, hve rétt
rök og reikningslegar sannanirgeta
snúist öfugt i höfðum þeirra manna,
sem hafa féngið almenna dómgreind
sína ruglaöa af ofsa og æsingum.
Ef hin reikningslegu rök í þessu
máli eru skoðuð hlutdrægnislaust
og skynsamlega, virðast þau að
vísu sýna það, að einhverja litla
launahækkun ætti verksmiðjan að
geta þolað. En hitt er óhrekjanlegt,
að þær launakröfur, sem sumt af
starfsfólkinu hefir nú gert, vænt-
anlega eftir áeggjan skammsýnna
foringja, eru á engu viti bygðar,
miðað við einmitt þau reiknings-
legu rök, sem foringjarnir töldu ó-
yggjandi sönnun fyrir réttmæti
þeirra.
Kunnugur. .
-------0-------
Tilkynning um ráð-
stafanir til slysavarna.
Dómsmálaráðherrann hefir sent
forstjóra skipaútgerðar ríkisins svo-
hljóðanda bréf dags. 1. okt. 1930:
»Vegna þeirrar miklu hættu, sem
fiskimenn eru undirorpnir, er stunda
fiskiveiðar á litlum bátum að vetri
til, frá veiðistöðvum, sem slæmar
eða engar hafnir hafa, og bátarnir
því oft þarfnast hjálpar, ef snögg-
lega gerir vont veður, hefir ráðu-
neytið ákveðið, að halda uppi í
sambandi við skrifstofu yðar, björg-
unarstarfsemi þann g, að veiðistöðv-
ar, sem óska aðstoðar, geti náð f
yður eða þann, sem þér setjið fyrir
yður, á nóttu sem degi, og mun
ráðuneytið fara þess á leit við stjórn
landssímans að hlutast til um, að
nætursímasamband verði við þær
veiðistöðvar, sem þér álítið mesta
þörf að ná tik
Að sjálfsögðu má ekki i þessu
sambandi ómaka stöðvarstjórana í
umræddum verstöðvum utan síma-
tíma, nema um slysavarnamál sé
að ræða.
(sign.) Jónas Jónsson.«
f tilefni af ofanrituðu bréfi til-
kynnist hér með, að fregnum og
tilkynningum viðvíkjandi slysum
eða yfirvofandi slysahættu á sjó,
hvar sem er við land, verður eftir-
leiðis veitt viðtaka í skrifstofu skipa-
útgerðar ríkisins. Arnarhváli, símar:
2305, 1567, 1957 — utan skrifstofu-
tíma og að nóttu tii f síma 1957.
Æskilegt er að ekki sé dregið
lengi að tilkynna ef báta vantar í
vondu veðri og ástæða þykir að
óttast um þá, svo hægt sé að koma
þeim til aðstoðar, eftir því sem
föng eru á. Jafnframt er þess vænst,
að hlutaðeigendur láti strax vita, ef
fréttist til báta sem vantað hefir óg
tilkyntir hafa verið til skrifstofunnar.
Nætursfmasamband mun bráðlega
komast á við allar hættulegustu
veiðistöðvarnar og verður það þá
nánar auglýst.
Skipaúfgerö ríkisins.
Reykjavík 3. október 1Q30,
Pálmi Loftsson.
*••••*•• • •i
Islenzkar bœkur
til
Svíþjóðar og Noregs.
Bækur á íslenzku eru frekar sjald-
séðar á erlendum bókamarkaði, hafa
þær hingað til verið næstum ófáan-
legar í bókaverzlunum, meira að
segja meðal frændþjóða okkar hér
á Norðurlöndumí Reyndar var hægt
að fá flestar útkomnar bækur í hin-
um stærri bókasöfnum í Kaupmanna-
höfn éins og t. d. Kgl. safninu og
Háskólasafniuu, sömuleiðis mun
vera talsvert til af íslenzkum bók-
um í Ríkisbókasafninu í Árósum. I
Gautaborg og Stokkhólmi hefir að
þessu verið fremur litið af fslenzk-
um nútímabókum f hinum stóru
söfnum þar. Ef til vill hefir þeim
fjölgað eitthvað þetta ár — um það
er mér ekki kunnugt, og eg hefi
heldur ekki haft tækifæri til að kynna
mér, hvernig þessu er varið á bóka-
söfnum í hinum stærri bæjum í
Noregi. En hvernig sem því er
háttað, þá eru söfn þau, er hér hef-
ir verið bent á, aðallega fyrir fræði-
menn, og almenningur veit naum-
ast af, þótt fslenzkar bækur séu
þar til.
Pað ætti að vera auðskilið mál,
að það gæti haft talsverða menn-
ingarlega þýðingu fyrir okkur ís-
lendinga og andleg viðskifti okkar
við frændþjóðirnar, að íslenzkar nú-
timabókmentir væru til sýnis og sölu
í bókaverzlunum í helztu bæjum
Norðurlanda, jafnvel þótt gera megi
ráð fyrir að fjárhagslegur ábati af
slíkri sölu yrði fremur lítill. Pað
verður því að teljast gott, að máli
þessu hefir þegar verið hreyft og
hrundið lítið eitt áleiðis.
Síðastliðið vor skrifaði sænsk kona,
sem hér er búsett, tveimur bóka-
verzlunum í Svíþjóð, N. J. GumpertS
Bokhandels A. B. í Gautaborg og c. E.
Fritzes Kngl. Hof-bokhandel í Stokkhólmi.
gáfu þær báðar góð svör og tjáðu
sig fúsar til að taka við íslenzkum
bókum til sölu og halda sýningar
á þeim í gluggum sínum við og við.
Afleiðingin varð sú að héðan af
landi voru sendar nokkrar bækur
til beggja þessara verzlana. Um
söluárangur, hvort hann enn hefir
orðið nokkur, er mér ókunnugt; en
bækurnar voru til sýnis á báðum
stöðunum, og hefir sjónarvottur sagt
mér að hin íslenzka gluggasýning
hjá Gumperts i Gautaborg hafi ver-
ið mjög smekkleg og bókunum til
sóma. Gera má ráð fyrir að hið
sama hafi átt sér stað í Stokkhólmi,
þó eg hafi ekki haft fregnir af því.
Nú síðast hefir landi okkar, Krist-
mann Guðmundsson, skáid leitað
fyrir sér um sölu íslenzkra bóka í
Noregi; og hefir hann fengið áreið-
anlega og vel þekta bókaverzlun í
Oslo til að taka bækurnar að sér
og hafa þær til sýnis og sölu gegn
30% sölulaunum.
Skal isl. bókaúfgelendum og öðrum,
sem áhuga kynnu að hafa fyrir
þessu, bent á þetta, og ef þeir vildu
sinna því, þá eru þeir beðnir að
snúa sér til þeirra tveggja bókaverzl-
ana í Svíþjóð, sem þegar hafa ver-
ið nefndar, og I Noregi til Johan
Grunt Tanum Bokhandel. Oslo - ogsenda
þeim bækur - eða fá upplýsingar
um skilmálana.
Önnur íslenzk blöð, sem þetta
sjá, eru vinsamlegast beðin aðgeta
um það, svo að það geti komið
sem flestum íslenzkum bóksölum
og útgefendum fyrir augu.
Virðingarfylst
AkureyrL 9. okt. 1930.
Fr. Asmundsson Brekkan.
------0--------
Fr éttir.
Kvöldskemfun, eina mikia, ætlar söngfél.
Oeysir að halda næstkomandi laugardags-
kvöld kl. 9 f Samkomuhúsi bæjarins. Par
verður til skemtunar: Oeysir syngur; Davíð
skáld Stefánsson frá Fagraskógi flytur er-
indi; Qunnar Sigurgeirsson spilar f gegn-
um hátalara plötur þær, sem Geysir, Karla-
kór K. F. U. M. og Landskórinn sungu
inn í Rvík í sumar og svo verður dansað.
Öáliardægur. í gærkvöldi andaðist hér á
spítalanum Eiríkur Helgason bóndi á
Dvergsstöðum f Eyjafirði. Banamein hans
var innvortis blæðing. Eirikur sál. var
miðaldra maður,
mr KARLMANNSUR tapað-
ist fyrra sunnudag á veginum frá
Glerárbrúnni út á þinghús Glæsi-
bæjarhrepps. Finnandi vinsamlega
beðinn að skilaþvítil Sesselju Eld-
járn, Brekkugötu 9, gegn fundar-
launum.
af öllum stærðum og
gerðum.
Dánardægur. Á laugardaginn var andað-
ist að heimili sínu við Eyrarlandsveg hér
í bæ ungfrú Magnea Kristjánsdóttir Helga-
sonar, eftir langa legu á Kristneshæli og
síðan heima. Hún var aðeins 19 ára göm-
u), vönduð og vel látin stúlka á allan hátt.
Steindór Stoindórsson náttúrufræðingur
verður kennari við Mentaskólann á Akur-
eyri í vetur.