Dagur - 23.10.1930, Blaðsíða 1
DAGUR
(cemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Gjaldkeri: Ámi Jóhanns-
son í Kaupfélagi Eyfirð-
inga.
Afgreiðslan
er hjá Jóni Þ. Þ6r,
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XIII. ár.
Akureyri, 23. Október 1930.
58. tbl.
eTi í Iwmda 5)acp.
Eins og kunnugt er, hefi eg nú
um tveggja ára skeið starfað við
Dag, sem annar ritstjóri blaðsins;
nú hætti eg því starfi og flyt
burtu héðan úr bænmn. Eg vil því
nota tækifærið til, í þessu blaði, að
votta öllum aðstandendum og vin-
um blaðsins fjær og nær þakklæti
fyrir þessi ár, sem eg hefi staðið
í þjónnstu þess. Blaðinu áma eg
hins bezta gengis í framtíðinni, og
það er von mín og vissa, að sam-
verkamaður minn, Ingimar Eydal,
sem nú tekur aftur við því að
fulhi, muni gera það svo úr garði,
að allir megi vel við una. Eg vona
að blaðinu megi auðnast að inna
hlutverk sitt af hendi í hmu opin-
bera lifi landsins æ betur og bet-
ur, eftir því sem stundir liða.
Hugheilar kveðjur sendi eg öll-
um þeim, sem hafa auðsýnt mér
samúð og hlýjan hug í starfi mínu
við blaðið; en sérstaklega finn eg
ástæðu til að þalcka samstarfs-
manni minum við blaðið fyrir
góða samvinnu, sömuleiðis stjórn
útgáfufélagS Dags og síðast en
ekki sizt Oddi Bjömssyni prent-
smiðjustjóra og ölhi starfsfólki
hans, sem unnið hefir að preribun
blaðsins, fyrir þá lipurð og þann
velvilja, sem jafnan hefir mætt
mér í prentsmiðjunni.
Akureyri 17. okt. 1930.
áanumctsoon cBtc-ftfian.
Eins og að ofam, greinir, er Frið-
rik Á. Brekkan hættur ritstjórn
Dags. Hann hefir lilotið kennara-
stöðu við Gagnfræðaskóla Reykja-
víkur og fór áleiðis suður með
Drottningunni síðastl. sunnudag,.
til þess að taka við starfi sinu þar.
Fjölskylda hans flytur þó ekki
suður i bráð. — Um leið og F. Á.
B. hverfur frá ritstjóminni, flyt
eg honum, fyrir hönd útgáfufé-
lags Dags og eigi síður fyrir mina
eigin hönd, beztu þakkir fyrir
starf hans við blaðið tvö síðastl.
ár. Samsta/rf okkar um þetta
tveggja ára skeið hefir jafnan
verið hið ánægjulegasta. óska eg,
að honum megi sem bezt vegna i
hinum nýja verkahring sínum.
3n<j.vmoí. átydof.
Hið nýja barnaskóiahús var vígt
til notkunar á laugardaginn var. Að
vígsluathðfninni lokinni var skólinn
settur af hinum nýja skólastjóra
Snorra Sigfússyni. Mikið fjölmenni
var viðstatt athöfn þessa.
Athðfnin hófst með því, að bsej-
arstjóri afhenti fyrir hönd bæjar-
stjórnarinnar skólanefndinni skólann
til umráða með ræðu. Var aðalefni
úr ræðu hans sem hér segir:
Laust eftir 1923 var farið að tala
um nauðsyn byggingar nýs barna-
skóla fyrir bæinn. Árið 1925 var
byrjað að leggja fé til hliðar í bygg-
ingarsjóð hins væntanlega skóla-
húss, enda var þá búið að greiða
gamla barnaskólann upp, svo að
hann átti sig sjálfur. Byggingarsjóð-
urinn var við byrjun þessa árs orð-
inn um 73 þús. kr. Veturinn 1929
er samþykt að reisa nýjan skóla og
4. maf sama ár samþykt að hefja
undirbúning verksins eftir teikning-
um og lýsingum húsameistara rikis-
ins og B. Oröndals verkfræðings.
Skólahúsið er að stærð 22,31 m.
að lengd og 18,76 m. á breidd auk
forstofubyggingar. Húsið er tvær
hæðir á kjallara, með háu risi. Pað
er alt bygt úr steinsteypu. A neðri
hæð eru 4 kenslustofur, tvær kenn-
arastofur og áhaldastofa; á efri hæð
5 kennslustofur og auk þess áhalda-
herbergi. Ábáðum þessum hæðum
eru breiðir gangar eftir endilöngu
húsinu og stofurnar til beggja hliða.
Á rishæð er hátíða- og söngsal-
ur, handavinnusalur, skólaeldhús,
geymsla og gangur. í kjallara er
íbúð umsjónarmanns, handavinnu-
stofa, bað, geymsla, vanhús og
gangur.
Aðalverkið hafa framkvæmt bygg-
ingameistararnir Einar Jóhannsson
og Jón Ouðmundsson fyrir 186,200
kr. K. E. A. hefir séð um hita- og
skolpveitur og kostaði það 16,780
kr. Vigfús Jónsson málari tók að
sér málningu alla fyrir 9,850 kr.-, og
Indriði Helgason raffræðingur hefir
lagt raftaugarnar, sem kostaði 1,495
kr. Ólafur Ágústsson húsgagna-
smiður hefir smlðað mikið af inn-
anstokksmunum I skólann, svo
sem 150 skólaborð og tilsvarandi
stóla.
Eru nú aðalútgjaldaupphæðirnar
nefndar. En allur kostnaður, þegar
alt er talið með, bæði utan húss og
innan, nfemur sem næst 265 þúi. kr.
Til framkvæmdar þessu verki var
i febrúar 1929 tekið danskt lán að
upphæð 100 þús. danskar krónur
og þar að auki var hægt að greiða
með reiðupeningum úr byggingar-
sjóði 73 þús. ísh krónur. Vantaði
þá 70—80 þús. kr. til að standast
kostnaðinn, sem ekki hafa verið
fengin föst lán fyrir.
Gamli barnaskólinn var bygður
fyrir 30 árum og kostaði um 8
þús kr. Hann var fyrir 120 börn.
Mannfjöldi hér I bæ var þá um
1000. Byggingarkostnaður á hvert
barn var þá um 70 kr.
Þessi nýji skóli er fyrir 270 börn.
íbúatala I bænum er nú alt að 4
þús. Byggingarkóstnaður á hvert
barnernú alt að 1000 kr. F*ó mun
þessi skóli vera mjög ódýr í sam-
anburði við nýja barnaskólann I
Reykjavík, sem sagt er að kosti um
2000 kr. á hvert barn.
En ennþá vantar tilfinnanlega af
byggingunni eins og hún var fyrir-
huguð. Gert er ráð fyrir að húsið
verði síðar lengt til suðurs um
14,65 m. og að sú viðbót verði
með 8 — 10 kenslustofum. Og enn-
fremur er eftir að byggja álmii
austur frá norðurenda hússins að
stærð 31,10x10,9 m. í þeirri álmu
á að vera leikfimisalur, sundskáli,
bað o. fl. Á þessari viðbót er brýn
þörf, ekki aðeins skólans vegna,
heldur og vegna almenns iþróttalífs
í bænum. v
Bæjarstjóri endaði ræðu sína á
þessa leið:
»Að svo mæltu afhendi eg fyrir
hönd bæjarstjórnarinnar skólanefnd-
inni skólann til umráða, með ósk
um að þeir, sem við hann starfa
og fyrir stofnuninni eiga að sjá,
megi gera það með framfarahug
ásamt skynsamlegri gætni og með
velvilja og skilningi tii alls og allra
þeirra, sem að skólanum koma og
til hans þurfa að sækja«.
F*á tók formaður skólanefndar-
innar, Brynleifur Tobiasson, til máls
og las upp svöhljóðandi símskeyti:
»Beztu hamingjuóskir í tilefni af
vígslu hins veglega skólahúss.
Megi vígsla skólans halda áfram
um ókomin ár með ágætu starfi
skólastjóra, kennara og barna.
Fræðslumálastjóri*.
Að þvf loknu flutti hann vlgslu-
ræðuna.
Rœða Brynleifs Tobiassonar.
Kæru samborgarar!
Við komum hér saman I dag, til
þess að fagna þvf, að nýtt skóla-
hús er reist og fullgert, stærra,
vandaðra og á allan hátt varanlegra
Innilegt þakklæti votta eg
öllum, er sýndu mér hluttekningu
við andlát og jarðarför Magneu
dóttur minnar.
Akureyri 21; Október 1930.
Kristján Helgason.
og fullkomnara en þau hús voru,
sem hingað til hafa verið notuð
handa börnum Akureyrarbæjar sem
kenslustofnanir. Petta veglega hús
er sýnilegur vottur þeirrar ræktar,
sem stjórn bæjarins vill láta leggja
við uppeldi barnanna. Pað á að
vera tákn þess, að bærinn vilji af
alhug varðveita og ávaxta dýrmæt-
asta fjársjóðinn, sem okkur er trúað
fyrir, æskuiýðinn I bæjarfélaginu.
Fyrirrennarar okkar í bænum
þektu einnig sinn vitjunartíma í
þessum efnum. Pað þykir hlýða,
um leið og þessi nýi skóli, steini
storkinn, er vígður til þess að vera
hof æskunnar og háborg, að rifja
upp í fáum dráttum sögu barna-
skólans á Akureyri.
Pað var árið 1865 eða fyrir rétt-
um 65 árum, að mætur maður hér
á staðnum, B. A. Steincke, danskur
verzlunarstjóri danskrar verzlunar,
stakk upp á því að reisa barnaskóla
fyrir. bæinn, en þeirri uppástungu
var ekki sint í bili. Fágætt var það,
að útlendir forstjórar danskra sel-
stöðuverzlana gerðust frumkvöðlar
menningarmála á íslandi, en þessi
merkismaður var Akureyrarbæ giftu-
samleg undantekning, ásamt með
Gudmann stórkaupmanni, sem gaf
bænum spítala, en vafalaust átti
Steincke einnig frumkvæðið að
þeirri nauðsynja framkvæmd.
Árið 1870 kom tillaga Steincke til
framkvæmda. Barnaskóli var stofn-
aður, og varð Jóhannes Halldórssön,
kandidat í guðfræði, forstöðumaður
hans og einkakennari. Var skólinn
stofnaður að tilhlutun bæjarstjórnar,
og fékk hann fyrst húsrúm í gömlu
lyfjabúðinni inn á Akureyri og því
næst í húsi Jóhannesar fyrir utan
Búðargilslækinn, að norðvestan-
verðu, þar' sem Magnús úrsmiður
bjó fjöldamörg ár. Rætt var um að
fá sérstakt barnaskólahús árið 1871
og kosin 5 manna nefnd til að at-
huga það mál, en ekkert varð úr
framkvæmdum f bráð. Loks keypti
bærinn verzlunarhús J. G. Havsteen,
arftaka elztu verzlunarinnar á Akur-
eyri, og bjó þar út 3 stórar kenslu-
stofur og vel bjartar. Pað var árið
1877. Voru þær skólastofur miklu
bjartari og rúmbetri en I barnaskóP