Dagur - 23.10.1930, Blaðsíða 2

Dagur - 23.10.1930, Blaðsíða 2
206 DAGUR 58. tbl. • • § •• ••§ • •••• • « Hfffiifffffflliifffflfifs ™* Emaileraðar vörur, mislitar, af ýmsum tegundum og litum: Katlar, Kaffikönnur, Fötur, Krakka- diskar og könnur, saltskrín ofl. Meira úrval í öllum eldhúsvarningi, en nokkurstaðar annarstaðar. Kaupfélag Eyfirðinga. garnla búðin. Biiiiiiiiiiiiiiiiiimiiai M y njá a s t o f a n Gránufélagsgötu 21 er opin alla daga frá kl. 10—6. Guðr. Funch-Rasmussen. anum i Reykjavík, er þá hafði verið settur á stofn fyrir 17 árum, og þá var enn notaður. Petta skólahús var notað handa bænum, þangað til nýr barnaskóli var reistur fyrir 30 árum. Á Oddeyri var haldinn sérstakur skóli frá árinu 1882 og fram undir aldamót. Var í þann tíma rígur nokkur á milli bæjarhlutanna. Pað var þó flestra, ef ekki allra, manna mál, að Jóhannes Halldórsson væri starfi sínu ágætlega vaxinn, bæði að mannkostum, þekkingu og fram- úrskarandi lagni um aga og kenslu. Undir aldamótinn þótti barna- skólinn orðinn of lítill og óhentugur. Var þá ráðist í að reisa nýtt hús handa skólanum undir brekkunni, fyrir sunnan og neðan Barð. Smíðin hófst 1898, og skólahúsið var full- gert haustið 1900 og vígt 19. októbermánaðar af Klemenz Jóns- syni, þáverandi bæjarfógeta. Pað eru því nákvæmlega 30 ár liðin í dag, frá því er flutt var i það skólahús, sem nú samsvarar ekki lengur kröfum tímans. Húsið er að vísu traust, en var orðið altof þröngt og í flestum greinum ófullnægjandi. Pað var því eigi af fordild, heldur af brýnni þörf, að vakið var máls á því fyrir fimm árum í skólanefnd af þáverandi forstöðumanni skólans, að vinda yrði bráðan bug að því að reisa nýtt skólahús. Skólanefnd félst 'á tillögu skólastjóra. Málinu var haldið vakandi, fé lagt fram nokkur ár í byggingarsjóð, lán trygt með ábyrgð ríkisins, og ber að minnast þess þakksamlega við þetta tækifæri, teikningar fengnar hjá húsameistara pg verkið loks hafið vorið 1929 með því að grafa fyrir grunni, en smiðirnir tóku til starfa 13. júlí síðastliðið ár. Unnið hefir verið vel og vasklega hér. Hátt ber húsið, vítt er til veggja, bjart er inni, breiðir gangar, hátt til lofts og vel séð fyrir hreinu og hressandi lofti inn í skólastofurnar, betur séð fyrir hollustu kennara og nemenda en í flestum öðrum skól- um á landi hér. Rúmt er kringum skólann og í ráði hið fyrsta að fá honum stóran leikvöll. Góð er út- sýn hér af brekkubrún yfir þann hluta bæjarins, sem nú er í örust- um vexti. Fagurt er um að litast héðan um hauður og haf. Fjarri stendur skóiinn skarkala götuum- ferðarinnar, en þó hér um bil miðjum bænum. Erfitt kalla sumir hér upp að ganga af alfaraleið, en vel má minnast þess, að holt er að temja meyjum og sveinum snemma að vera brekkusækin, ekki einungis í óeiginlegum, heldur einn- ig í eiginlegum skilningi. Bæjarstjórinn hefir þegar afhent skólahús þetta skólanefnd, til stjórn- ar og varðveizlu, fyrir hönd bæjar- félagsins. Um leið og eg tek við húsinu, í umboði skólanefndarinnar, leyfi eg mér að þakka stjórnarvðld- um bæjarins fyrir þessa prýðilegu uppeldisstofnun, sem vandað er til, eftir beztu föngum. Eg þakka kenslu- málastjórninni og húsameistara rík- isins fyrir margskonar hjálp og leið- beiningar, smiðunum fyrir vandað og traust smíði og verkamönnum þeim, sem með orku sinna handa hafa rísa látið þessa veglegu höll og gert úr garði, eins og hún nú er. Miklu átaki er lokið. Nýr, sterk- ur þáttur er snúinn í framförum Akureyrar. Með samhug og sam- tökum borgaranna í bænum er verk- ið til lykta leitt. Nú mæna allra augu á yður, þér kennendur vors gamla skóla í þessu nýja rausnarranni. Skólastjóri og kennarar taka hér við kenslu, stjórn og varðveizlu barna í þessum nýju sölum. Eg óska yður til hamingju með þessi nýju salakynni. Fyrir hönd skólanefndarinnar býð eg hinn nýja skólastjóra velkominn til starfa og alla kennara skólans, eldri og yngri. Eg býð börnin, sem hér eiga að læra og mannast, velkomin i þetta nýja hús. Við treystum því, að kennarar skólans geri meira heldur en að láta börnin læra lektíur í fræðibók- um, og er þó öðru nær en gera vilji eg lítið úr því. Pað er áríðandi, að gera börnin hluttakandi f hald- góðri þekkingu, leggja kapp á að læra alt það vel, sem lesið er, en fara heldur yfir minna. Pað verður að kenna börnunum að nema, ekki einungis fyrir skólann, heldur einn- ig og sérstaklega fyrir lífið.—Börn- in eiga að læra að gegna skyldum sinum, og í þeim efnum má engin grið gefa. Pað eru svik við börnin • ♦••• og það eru svik við þjóðfélagið að taka vetlingatökum á því, þegar þau flýja frá kalli skyldunnar. Kærulaus kennari er átumein þjóðfélagsins. Við þekkjum flesta kennara skólans og að góðu einu. Suma hina nýju þekkjum við lítið, en von- um, að reynslan leiði í Ijós, að við höfum borið gæfu til að velja góða menn og konur, sem aldrei bregð- ast sinni háleitu skyldu. í þessum skólastofum er bjart, hlýtt og rúmgott Kennið börnunum að finna Drottins ástúðaryl í sólargeislunum. Úr öllum höfuðáttum leggur birt- una inn í þennan skóla. Látið börn- unum það vera lærdómsefni, og kennið þeim að bregða birtu skyn- seminnar yfir hvert mál, frá öllum hliðum. Traust og bjargfast stendur þetta hús hér. Sjáið, hve mikilsvert það er, að byggja líf sitt á því bjargi, sem aldrei fær bifast. Munið, kenn- endur, að innræta börnunum, hve miklu það skiftir, að traustið geti verið gagnkvæmt í mannlegu félagi: Að eg geti óhultur og öruggur treyst þér og að þú getir jafnöruggur treyst mér. Temjið þörnunum ríka ábyrgð- artilfinningu. Verið þess minnugir, að það er ástin á mönnunum, náttúrunni og um fram alt á höfundi lífsins, sem bregður birtu yfir alt. Skólahús þetta er reist með ærn- um kostnaði og með miklum erf- iðismunum fyrir okkar iitla bæjar- félag. En undir vernd og leiðsögn góðra kennara eru miklir ávextir, gulli betri, vísir í vaxandi mann- gildi komandi kynslóðar. Pér foreldrar og vandamenn barn anna ! Undir ykkur er einnig komið, og ekki að litlu leyti, að giftusamlega takist til um starf þessa skóla. Ef heim- ilin toga í á móti skólanum, fer allur góður árangur skólastarfsins for- görðum, en ef þau styðja með ráð- um og dáð gott starf skólans, er stýrt í gæfuhöfn. Kæru börn! Petta hús er reist handa ykkur. Allt er hér nýtt, fágað og prýtt. Öllu þessuerykkur trúað fyrir. Pessi skóli er ykkar heimili að hálfu leyti um nokkurra ára skeið æfinnar. Stjórn skólans og allir vinir ykkar og vandamenn vænta þess, að þið gangið vel um hér, forðist að skemma það, sem ykkur er fengið til varðveizlu. — Ver- ið hlýðin kennurum ykkar og pruð í framgöngu við þá og alla, innan skóla og utan, og þið munuð afla ykkur vináttu þeirra og hylli. Hjálp- ið þið, sem eruð stálpuð, hinum sem eru ung og veikburðas Takið aldrei þátt í þeim Ijóta leik að nið- ast á lítilmagnanum. — Segið jafn- an satt, verið iðjusöm og góðviljuð öllum; þá getið þið kvatt hvern dag með góðri samvizku, og þið verðið farsæl, bæði þessa heims og annars. Fyrir rúmum þrjátíu árum orti eitt af góðskáldum okkar kvæði við vígslu barnaskóla suður á landi. Eg tek mér í munn eitt eiindi þess við þetta tækifæri og bið ykkur öll að biðja með mér hins sama: »Hér, þar námsins fyrstu fræin falla ! ungan hugarreit, geisla, dögg og gróðrarblæinn, Ouð, frá þínum himni veit«, Með ósk um, að svo megi verða, lýsi eg yfir þvi, fyrir hönd skóla- nefndar Akureyrar, að hús þetta er fullgert og vígt til þess að vera barnaskóli Akureyrarkaupstaðar. Að vígsluræðu B. T. lokinni flutti skólastjóri Snorri Sigfússon skóla- setningarræðu sína. Á eftir hverri ræðu söng flokkur skólameyja sálma undir stjórn Ás- kels Snorrasonar söngkennara. --------------o------ Mannfjöldi á Islandi i árslok 1929. Eftirfarandi yfirlit sýnir mann- fjöldann á öllu landinu um síðustu áramót. Er farið eftir manntali prest- anna, nema í Reykjavík, Hafnarfirði og Vestmannaeyjum eftir bæjar- manntölunum þar. í Reykjavík tek- ur lögreglustjóri * manntalið, en í Hafnarfirði og Vestmannaeyjum bæjarstjóri. Til samanburðar er sett- ur mannfjöldinn næstu tvö ár á undan og við aðalmanntalið 1920. Kaupstaðir: 1920 1927 1928 1929' Reykjavík . .-. 17679 24304 25217 26428 Hafnarfjörður . 2366 3158 3351 3412 ísafjörður . . . 1980 2189 2267 2333 Siglufjörður . . 1159 1668 1760 1900 Akureyri .... 2575 3156 3348 3613 Seyðisfjörður . 871 981 939 957 Nes í Norðfirði — — — 1103 Vestmannaeyjar 2426 3370 3331 3369 Samtals 29056 38826 40213 43115 Sýsiur: Oullbringu- og Kjósarsýsla. . . 4278 4372 4549 4763 Borgarfj.sýsla . 2479 2521 2517 2578 Mýrasýsla . . . 1880 1823 1805 1795 Snæfellsnessýsla 3889 3642 3638 3615 Dalasýsla . . . 1854 1764 1737 1691 Barðastr. sýsla . 3314 3261 3250 3231 ísafjarðarsýsla . 6327 5973 5861 5746 Strandasýsla . . 1776 1790 1815 1821 Húnavatnssýsla 4273 4101 4089 4019 Skagafj.sýsla. . 4357 4077 4067 3995 Eyjafjarðarsýsla 5001 5205 5226 5233 Þingeyjarsýsla s .5535 5590 5627 5653 N.-Múlasýsla . 2963 2966 2953 2909 Suður-Múlasýsla 5222 5676 5681 4500 Austur- Skaftafellssýsla 1158 1120 1139 1151 Vestur- Skaftafellssýsla 1818 1824 1824 1813 Rángárvallasýsla 3801 3648 3669 3642 Árnessýsla . . . 5709 5138 5152 5080 Samtals 65634 64491 64599 63235 Alt landið 94690 103317 104812 106350 Samkvæmt þessu hefir fólkinu á landinu fjölgað síðastliðið ár um 1538 manns eða um 1,5' prc. og er það mikil fjölgun, enda þótt hún sé ekki alveg eins mikil og árin 1925-1927. Samkvæmt manntalsskýslunum hefur fólkinu í kaupstöðunum fjölg- að um 2902 manns, en nokkuð af þeirri fjölgun stafar af því, að Nes í Norðfirði bættist við í tölu kaup- staðanna árið 1929. Ef mannfjöld- inn þar er talinn með kaupstöðum líka 1928, þá hefur aukningin ekki verið nema 1797 eða 4,3 prc., en í sýslunum hefir fúlkinu fækkað um 259 manns (um 0,4 prc.), ef Nes í Norðfirði er ekki talið með. Öll mannfjölgunin lendir þannig á kaup- stöðunum og þá aðallega í Reykja- vík. Fólkinu þar hefur fjölgað síð- astliðið ár um 1211 eðaum4,8prQ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.