Dagur - 06.11.1930, Blaðsíða 2

Dagur - 06.11.1930, Blaðsíða 2
214 DAGUR 60. tbl. • • • • • • • £ SKAUTAR, mjög mikið úrval Q1 '2i* furu, hickory og ask, OlYlUlj, fyrir börn og fullorðna. Hjartanlegar þakkir fyrir samúð og vinarhug okkur auðsýndan við andlát og útför eiginmanns og föður okkar, Halldórs Ein- arssonar frá Skógum. Guðný Björnsdóttir. Björn Halldórsson. 1.u sem komu með »Novu«, seldust II, allir sama daginn og skipið kom. Hýjar birgðir koma með »Islandi« 24. þ. m. Kaupfélag Eyfirðinga. Gamla búðin. WMMmmmmmmm Myndastofan Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga frá kl. 10—6. Guðr. Funch-Rasmussen. vita mönnum, að pví aðeins eflir þessi fræða-inntaka þroska þess, að það geti »melt« hana sem kallað er, þ. e. a. s. að hin andlegu liffæri geti unnið úr þeim fróðleik, efni til endurnýjunar sálu þess og vaxtar, svo hún verði vitrari og starfhæfari. — Allur þroski í heimi efnis og anda er algjölega bundinn lögmáli lífs- orkunnar og háður mætti hennar til ummyndunar og eflingar. — — Nú er það mála sannast, að allmikiu fé og orku er eytt til þess að hlynna að og efla þroska barna og unglinga nú á dögum, og beina honum rétta leið. Köllum vér það uppéldi og iátum þá e. t. v. stund- um heyra því hugtaki til öll áhrif, sjálfráð og ósjálfráð, er menn sæta. Hefir lengi verið um það deiit, hvort meira megi sin til mótunar, upp- eldið eða ætternið, og eru menn sizt á eitt sáttir enn í dag. — Víst er það alkunna, að mikiis er um vert, að vera af góðu »bergi brot- inn«, en þó munu nú flestir upp- eldisfræðingar ásáttir um það, að undir uppeldinu sé að langmestu leyti komið, hvað úr hverju barni verður. En sé það rétt, sem tæplega verður á móti mælt, að framtíð ein- staklinga og þjóða, alls mannkyns,' sé háð svo mjög uppeldinu, þá er augljóst hve geypilega þýðingar- mikil uppeldismálin eru og öriaga- rík. Peim ætti því alstaðar og ávalt að skipa á hinn æðsta bekkinn, enda eru þau í eðli sínu mál allra mála og skyldi slíkt jafnan muna. Að vísu hefir náttúran sjálf lagt uppeldisskylduna foreldrunum á herðar, og vafalaust er hún þar líka náttúrlegust, en þó eru ýmsar á- stæður því valdandi, að þá skyldu er flestum foreldrum nú á dögum um megn að rækja svo sem samtíð krefst, og hefir því hið opinbera vald hlaupið undir baggann og tek- ið að sér að hafa meiri og minni áhrif á uppeldi hvers barns, með því að skylda það tii skólagöngu um ákveðið árabil. í því augnámiði rísa nú af grunni skólabyggingar í tugatali í landi voru, og æskja menn sér og vænta mikils árangurs af kostnaði þeim og erfiði öllu. Pví verður heldur ekki með rökum neit- að, að mikið hefur áunnist síðan skólaskyldan var í lög leidd, hvað uppfræðslu alla snertir, enda hefur fræðslustarfsemin verið mikil í barnaskólunum. Hitt kynni að mega draga í efa, að alhliða þroski hafi þar eftir farið. Peir, sem sniðu íslenzku barna- skólunum stakkinn, með lögum og reglugerðum, hafa sjáanlega haft það fyrir augum, að barnaskólarnir yrðu litlir lærðir skólar, einskonar vasaútgáfa Lærðaskólans eða gagn- fræðaskólanna. Pessvegna hafa þeir frá upphafi verfð svo að segja fjötr- aðir námsviðjum, með þung próf stöðugt vofandi yfir höfðinu. Og kennslubækurnar: samanþjappaður fróðleikur, þur og strembinn, stagl- samur og leiðinlega saman settur, — eitur í barna beinum. Pað skal þó játað, að kennslubækur hafa verið samdar við barna hæfi í sumum námsgreinum hin síðustu ár, til mikils gagns og gleði, en illa hefir sumstaðar gengið, að fá þær teknar inn i skólana, og á einstöku stað eru þær enn utan dyra. — Svona hefir þetta verið og þannig gengið. Yfirboðarar skólanna og aðstand- endur velflestir hafa krafist mikils náms, mikillar kunnáttu og fróðleiks af börnunum, og kennararnir stað- ið kófsveittir við hið ógurlega erfiði, að troða miklum fróðleik í litla kolla og með öllu óþroskaðar sálir. Peir hafa orðið að horfa upp á þá hrygðarstaðreynd, að sjá hvernig langmestur hluti þessa erfiðis fór að fOrgörðum, hvernig þeir, sem miðlungi eða miður voru gefnir (og þeir verða vanalega flestir), fölnuðu upp í þessari vonlausu baráttu við staglið, mistu allan áhuga á námi og ánægju af skólavist og urðu þeirri stund fegnastir er þeireygðu hvergi bók eða blað nálægt sér. Með þessu ber þó ekki að gera lítið úr sjálfum fróðleiknum eða fróðleiksþörfinni, heldur hinni mis- skildu leið til að afla hans. Og sú þunga ásökunaralda er nú risin á hendur barnaskólunum, að fólkið lesi minna en áður, hafi síður ánægju af bókum og sé þollaust og vilja- lítið við að afla sér fróðleiks af sjálfs- dáðum. Vitanlega kemur hér margt til greina, sem barnaskólarnir eiga enga sök á, en sárgrætilegt er samt ef í ásökuninni skyldi felast eitthvert sannleikskorn, — sem vonandi ekki er. - Pað má vitanlega enginn láta sér til hugar koma, hvaða ráðum og aðferðum sem beitt yrði, að hægt sé að gera öli börn bókhneigð og námfús. Náttúran sjálf setur þar allajafna allskýr takmörk. Hitt mætti segja, að ákjósanlegt væri að barna- skólarnir og aðstandendur ailir skiidu til hlýtar hve afaráríðandi það er að laða börn til náms, glæða námsþrána og láta þau fara vel með bækur, sem fræðandi, skemtilega vini. — Hið mikla nám í barnaskólunum hefur ekki, því miður, borið hinn ákjósanlega, uppeldislega árangur. Til þess hefir verið of mikið f börn- in borið af þurru námi, til ofmikils mælst af skilningi þeirra og minni. Pau hafa því ekki getað tileinkað sér nema iítinn hluta þess, og síðan engan botn fundið i öllu skólastarf- inu. Hitt hefir verið ofmjög látið sitja á haka, að æfa saman hug og hönd barnanna, glæða tilfinninga- og viljalíf þeirra, viljafestu og þraut- seigju við það, sem þau skildu og fengu fang á, því það er mála sann- ast, að viljinn dregur jafnan hálft hlassið. Hann skyldi því glæða og efla til allra góðra hluta. — Eitt af góðskáldum vorum, St. O. St. kveð- ur svo: Á lifandi dauða hvað einkenni er í auðveldum hendingum sagt get eg þér: Að kólna’ ekkí í frosti né klökkna við yl — að kunna ekki Iengur að hlakkatil. M. ö. o.: Sá sem ekki finnnr til andiegrar hlýju og unaðar eða leitar efíir því, óg sá sem ekkert tilhlökk- unarefnið á í sál sinni, hann er and- lega dauður að dómi skáidsins. Til- finningaleysið, kuldinn og kæruleys- ið leyða af sér siðspjöll og frið- spjöll og koma öllu á kaldan kiaka. Hófleg rækt tifinningalífsins skyldi því hvergi á haka sitja í neinum skóla, allra sízt í barnaskóla, þar sem svo Iengi býr að fyrstu gerð. »Pví sjálft hugvitið, pekkingin hjaðnar sem blekking, sé hjarlað ei með sem undir slær«. Við höfum vissulega lagt ekki svo litla rækt við höfuðiö, en hjartanu má ei gleyma. (Frh.). ------o-------. Simskeyti. (Frá FB) Rvík. 3. nóv. Ægir kom í gær með togarann Surprise, sem var tekinn að land- helgisveiðum. Málið var tekið til rannsóknar í dag. Moskva: Ráðstjórnin hefir hafið rannsókn yfir fjölda manna vegna ásakana um sviksamlega vörusölu. 55 menn bíða dóms og fá vafaiaust þunga refsingu, þar sem ráðstjórn- in telur hina seku til gagnbyltingar- manna. Rvík 4. nóv. Rio dejaneiro: Vargas hefir tekið við forstöðunni til bráðabirgða. Washington: Kosningar til þjóð- þingsins fara fram i Bandaríkjunum f dag. Kosningabaráttan er harðari en nokkru sinni áður, síðan heims- styrjöldinni lauk. Surprise fékk 12,500 kr; sekt og afli og veiðarfæri gert upptækt. Skipstjórinn áfrýjaði dómnum. Sjð Sauðnaut komu með Lyru í dag. Fimm þeirra voru flutt austur að Ounnarsholti, en tvö í Skorradal. Aflasala eftirtaldra skipa hefir ver- ið sem hér segir, talið í sterlings- pundum: Pemberton 946, Tryggvi 914, Baldur 833, Maí 630, Skalla- grímur 789' Ver 668, Andri 824. Fyrsta nóvember voru skrásettir atvinnulausir í Reykjavík 95 menn. Rvík. 5. nóv. Bráðabirgðaúrslit kosninganna í Bandaríkjunum benda á stórkost- legan kosningasigur Demokrata; hafa þeir sennilega fengið meiri- hluta i fulftrúadeildinni. Samkvæmt tilkynningu frá út- yarpsstjóra má gera ráð fyrir, að útvarpsstöðin taki til starfa um næstu mánaðamót, en ef engar sérstakar hindranir komi fyrir, fái útvarpsnot- endur að heyra til stöðvarinnar um miðbik þessa mánaðar. --------o------- Stórblaðið »Manitoba Free Press« í Vinnipeg, sendi tíðindakonu, Vest- ur-tslenska, er Alla Johnson heitir, á Alþingishátíðina sl. sumar, frá- sögnina birti blaðið 2. ágúst sl. og fara hér á eftir smákaflar ílauslegri þýðingu: íMannfjöldi sá er kominn var saman á Pingvöllum dagana 26. — 27, og 28. júní, varð ekki tölum talinn, en eftir ágizkunum hefir hann num- ið frá 30 — 40 þúsundum. Aldrei síðan á hinum fornu Iýðveldisdög- um munu vellirnir hafa verið vett- vangur jafn stórkostlegs gleðskap- ar og veizludýrðar, og aldrei í sög- unni hefir þvílíkur mannfjöldi ver- ið þar saman kominn. - Vagga lýðveldisins forna, á Ping- völlum, er rúmgóð og víð; þess var líka full þörf, þvf í þetta skifti mátti með sanni segja að staðurinn væri bókstaflega talað, sængurstað- ur tuga þúsunda. — — Tjaldborg hafði relst verið á Völl- unum, og í henni hafðist mefri hluti gestanna við. Frá suðri tif norðurs náði tjaldborg þessi yfir 2 mílur vegar, enskar. í tjaldborginni var sérstakur part- ur ætlaður til viðskifta og athafna- lífs þá þrjá daga sem hátíðin stóð. Par voru veitingahús, banki, póst- hús, símastöð og bifreiðastöð, auk ýmissa fleiri smærri búða. Par var einnig reistur pallur, þar sem söng- flokkar sungu, íþróttamenn og fim- leikaflokkar léku iistir sínar; og sömuleiðis var þar dansað. Eins og nærri má geta hafði all- ur þessi umbúnaður kostað mikln

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.