Dagur - 06.11.1930, Síða 4
116
DAGUR
60. tbl.
•••••••
Lux sápuspænir skemma ekki
hina viðkvæmustu silkisokka.
kUA
Hinn upprunalegi fíngerði vefnaður verð-
ur þvældur og ljótur, sé hann ekki þveginn
á réttan hátt. Sé LUX notað, halda sokkarnir
hinu upprunalega útliti og gljáa, hinir fín-
gerðu þræðir skemmast ekki þótt þvegnir
séu mörgum sinnum. — LUX er algerlega
skaðlaust, sökum hinna fíngerðu efna sem
í því eru. Eigið ekki á hættu að nota
önnur efni, sem skaðleg áhrif hafa á hinn
fíngerða vefnað.
L U X.
WLX 202-160
LEVER BROTHERS LIMITED. PORT SUNLIGHT, ENGLANO
’Qfréttir.
Úveitt prestaköll. Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið hefir falið biskupi að auglýsa
á venjulegan hátt þau prestaköll, sem laus
eru, önnur en Þingvallaprestakall. Hin aug-
lýstu prestaköll eru Reykholt, Breiðabóls-
staður á Skógarströnd, Staðarhólsþing í
Dalssýslu, Brjánslækur, Breiðabólsstaður í
Vesturhópi, Grenjaðarstaðir, Þingmúli og
Stóranúpsprestakall.
Háflug. Sigurður Jónsson flugmaður flaug
17. f. m. í Veiðibjöllunni í 11, þús. feta
hæð yfir Reykjavík. Er þetta hæsta flug,
sem flogið hefir verið hér á landi. Flug-
maðurinn var þrjá stundarfjórðnnga á leið-
inni upp, en einn stundarfjórðung niður.
Tólf stiga frost var i þessari hæð. Farþeg-
ar voru fjórir.
Kosinn VÍBSlUÖÍSkUP. Prestar í Skálholts-
biskupsdæmi hafa nýlega kjörið vígslu-
biskup í stað Valdemars sál. Briem, 64
neyttu atkvæðisréttar. Úrslit urðu þau, að
síra Sigurður P. Sívertsen prófessor hlaut
kosningu með 33 atkv. Síra Guðm. Einars-
son á Mosfelli fékk 10 atkv., síra Porsteinn
Briem 9, síra Bjarni Jónsson dómkirkju-
prestur 8 atkv. og nokkrir 1 atkv.
Jón Steingrímsson bæjarfógetafulltrúi er
settur sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýslu. Hann fór suður með íslandi fyr-
ir síðustu helgi. Er hann þó væntanlegur
hingað til bæjarins aftur í desembar og
dvelur þá hér um stundarsakir.
Bæjarstjörnarfundur var haidinn á þriðju-
daginn var. Frumvarp til fjárhagsáætlunar
1931 var þar til 1. umræðu og vísað til
2. umræðu. Frumvarpið gerir ráð fyrir að
niðurjöfnun útsvara verði tæp 213 þús. kr.
AIls nemur tekju- og gjaldaupphæð hvoru
megin 384,530 kr.
Kosnir voru fjórir menn í niðurjöfnunar-
nefnd fyrir árið 1931. Kosningu hlutu:
Böðvar Bjarkan, Halldór Friðjónsson, Hall-
grímur Daviðsson, Axel Kristjánsson. Til
vara: Brynjólfur Sveinsson, Stéinþór Guð-
mundsson, Jakob Karlsson, Einar Gunnars-
son. — Þá voru kosnir 3 menn til að
standa fyrir manntalinu 2. dés. n. k. ásamt
bæjarstjóra og sóknarpresti. Kosnir voru:
Dr. Kristinn Guðmundsson, Jón Guðmunds-
son timburm. og Vigfús Friðriksson mynda-
smlður.
með stjðrnu í enni,
3 — 4 vetra gömul,
er í óskilum í Nesi
í Aðaldal, sfðan um mitt sumar.
Hefir eigi handsamast fyrir styggð.
Hross þetta sást á Peistareykjum
snemma í sumar. Réttur eigandi
vitji hennar sem fyrst til undirrit-
aðs gegn borgun áfallins kostnaðar
og auglýsingar þessarar.
Nesi 3L okt. 1930.
STEINGR. BALDVINSSON.
*
P il s n e r
2ezt. — Ódýrast.
Innlent.
\
Haustmöf fyrir ungmennafélaga verður
háð hér á Akureyri 8. og 9. þ. m. að til-
hlutun Ungmennasambands Eyjafjarðar og
U. M. F. A. Hefst það í Skjaldborg kl.
4 e. h. á Laugardag.
A mótiuu verða einkum fræðandi fyrir-
lestrar ög umræðufundir, ennfremur kvik-
myndasýning og önnur skemtiatriði. Fyrir-
lestra flytja: Séra Friðrik Rafnar, Sigfús
Halldórs frá Höfnum, skólastj., Snorri Sig-
fússon skólastj., Friðgeir H. Berg og Jón
Rögnvaldsson garðyrkjumaður.
Allir innan U. M. F. í. fá aðgang að
mótinu. Enn fremur gestir þeirra, meðan
húsrúm leyfir.
Ungmennafélagar ættu að nota þetta
sérstaka tækifæii og sækja fyrirlestrana.
Gagniræöaskólinn nýi var settur á laugar-
daginn var. Aðsókn að skólanum er mjög
mlkilj
• ••- • • • •-•• • • • •• •• § • •••• • • •• •••••• •••• •• •-•-
m STYÍTiR VETRARKVRLDIN
(0
8
ll
að sitja yfir ilmandi kaffibolla; en þá
þarf kaffið líka að vera gott.
• Notið því eingöngu
CÖ
<o
cö
-M
w
„S0LEYAR“-KAFF1Ð ^
— brent og malað — í gulu pökkunum.
\
I heildsölu hjá:
l.Bryn/olfsson & Kvaran
\
AFHENOING
úr frystihúsi okkar fer aðeins fram á
þriðjudögum og laugardögum
frá kl. 9 f. h. til kl. 4 e. h.
Kaupfélag Eyfirðinga.
TILKYNNING.
Lann 30. f. m. framkvæmdi notarius publicus á Akureyri útdrátt
á skuldabréfum stúknanna Isafold-Fjallkonan nr. 1 og Brynju nr. 99
í húseigninni »Skjaldborg« við Hafnarstræti og voru útdregin þessi:
Úr 1. flokki Nr. 10—17—19 og 23.
— 2. — — 6—8—9—13—21—52—58—65—69 og 95.
— 3, — — 9-10—22—27—29-49—59—69-93—110
—120—124—130—138 og 141.
Bréf þessi verða greidd við sýningu eftir 1. Desember n.k. af
undirrituðum, ásamt áföllnum vöxtum af skuldabréfum stúknanna.
Akureyri 1. November 1930.
____________GUÐBJÖRN BJÖRNSSON,
ALFA-LAVAL 1878—1928.
í 50 ár hafa ALFA-LAVAL skilvindur verið beztu og vönd-
uðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum.
ALFA-LAVAL verksmiðjurnar hafa altaf
verið á undan öðrum verksmiðjum með ný-
ungar og endurbætur, enda hafa Alfa-Laval
skilvindurnar hlotið yfir 1300 heiðursverðlaun
og fyrstu verðlaun, auk annara verðlauna.
Reynslan, sem fengin er við smíði á yfir
3,500,000 Alfa-Laval skilvindum, tryggir það
að A L F A-L A V A L verði framvegis öll-
um öðrum skilvindum fremri að gerð og
gæðum.
Mjólkurbú og bændur, sem vilja eignast vandaðar vélar til
mjólkurvinslu, kaupa hiklaust Alfa-Laval mjaltavélar, skilvindur,
strokka, smjörhnoðara og aðrar Alfa-Laval vélar.
Samband isl. samvinnufélaga.
VÍgdíS MarteÍnSdÓttÍr andaðist á Landa-
kotsspítala í Reykjavík 15. oktober síðastl.
eftir þunga legu og var banamein hennar
meinsemd í höfðinu. Foreldrar hennar
voru Marteimi Halldórsson á Lundar-
brekku í Bárðardal og kona hans Kristín
Jónsdóttir, Jónssonar prests í Reykjahlíð.
Ólst Vigdís upp hjá þeim, en dvaldist
eftir það, lengst æfinnar með Kristbjörgu
systur sinni, ekkju Sigurðar ráðherra í
Yzta-Felli. Vigdís var vel gefin og vel að
sér, kvenna högust, prúð í öllu hátterni og
mjög vinföst. Mun enginn hafa annað en
alt drengilegt og gott af henni að segja.
ÚR hefir fundist á veginum út
Kræklingahlfð. Geymt hjá Stefáni
Árnasyni á Kífsá.
Kítti
nýkomið.
Xaupfélag Eyfirðinga.
Gamla búðin.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 6
Prentsmiðja Odds Björnaso&ar,