Dagur - 27.11.1930, Blaðsíða 1

Dagur - 27.11.1930, Blaðsíða 1
D AOUR Kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Ámi Jóhanns- son í Kaupfélagi Eyfirö- inga. • •• •• • XIII. ár •í Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talsimi 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. Akureyri, 27. Nóvember 1930. 63. tbl. Úfnir í skapi. íhaldsblöðin eru auðsjáanlega heldur úfin í skapi um þessar mundir. Ofsi þeirra beinist nú að- allega að fjármálaráðherranum, en dómsmálaraðherranum sýnast þau hafa gleymt í sviþinn. Ekki þarf mikla skarpskyggni til þess að ráða í ástæðuna fyrir ofsa- reiði þessara málgagna í garð fjár- málaráðherrans. Pau hafa i lengstu lög vonað að landstjórninni myndi ekki takast að nota 12 milj. kr, lánsheimildina, sízt með þeim kjör- um, sem nú eru kunn orðin, þau hafa vonað, að rógsiðja þeirra um lánstraustsleysi landsins og sökkv- andi skuldafen islenzka ríkisins myndi bera þann árangur, að lán- taka með viðunanlegum kjörum reyndist ókleif. Að vísu mun hafa slegið fölskva á þessar lítt drengí- iegu vonir eftir útkomu Jóns Þor- lákssonar og eftir að hann rétti Morgunblaðinu hinn eftirminnilega snoppung, sem áður hefir verið getið hér i blaðinu, þar sem hann lét Mbl. eta ofan í sig allan róginn um lánstraust iandsins. En vonirnar munu þó ekki hafa brostið til fulls fyr en fregnin kom um, að lánið væri tekið með þeim kjörum, sem nú eru kunn orðin. En þar sem lántaka þessi heyrir sérstaklega undir fjármálaráðherra, láta hinir vonsviknu menn reiði sína koma niður á honum. Blöð íhaldsflokksins eru við og við að minnast á 12 milj. kr. lán- tökuna; einstaklega lúpuleg og óupplitsdjörf stama þau því fram, að meiri ljómi hafi nú verið yfir enska láninu hans Magnúsar síns Ouðmundssonar 1921 heldur en þessari síðustu lántöku. Raunveru- legir vextir af enska láninu 1921 voru allt að 10%, en af þessu láni líklega tæplega ö%, þegar allt er reiknað. Ekki er það nú beinlínis aðgengilegt fyrir íhaldsblöðin að færa almenningi reikningslegar sann- anir fyrir því, að talan 10 sé lægri en talan 6; það er þó ennþá fjær öllu viti en að segja að 5 sinnum 19 séu 85, eins og Jón Porl. hélt fram hér um árið. Sannast þar, að J, P. er meiri reikningsmaður en sumir aðrir flokksbræður hans. Við samanburð lánanna 1921 og 1930 gleyma menn því heldurekki, að í fyrra skiftið voru tolltekjur landsins settar að veði fyrir láninu eins og hvert skuldabréf þess sannar, en fyrir síðara láninu er engin trygging sett í tekjustofnum ríkisins né öðru. Hve mikill Ijómi stafar af veðsetning tollteknanna er almenn- ingi örðið sæmilega Ijóst. Eitt er það, sem íhaldsblöðin forðast að minnast á í samahburði lánanna, og það er þetta: Lán Magn. Guðm. var tekið til 30 ára. En ef það yrði greitt upp fyr en lánstíminn væri útrunninn, var íslenzka rikið skuldbundið til að greiða eftirstöðvarnar af láninu með 3% álagningu. Það á með öðrum orðum að refsa fslendingum fyrir það að borga skuld sína fyr en hún fellur öll í gjalddaga. Nýtekið lán er aftur á móti tekið til 40 ára, það er afborgunarlaust fyrstu 5 árin, en að 10 árum liðn- um má endurgreiða það ailt með nafnverði eða án þess að um nokkra álagning sé að ræða. Þegar alls þessa er gætt, hlýtur hverjum manni að liggja í augum uppi að mikinn ijóma leggur af 12 milj. kr. láninu, þegar það er borið saman við hina illræmdu lántöku M. O. 1921. Sá Ijómi sker ritstjóra íhaldsblaðanna illa í augun. Þess vegna eru þeir úfnir í skapi og ill- yrtir i garð fjármálaráðherrans, ------o------ ,Verkamaðurinn‘ og S. I. S. í síðasta blaði var frá því skýrt í fréttaklausu, að Samb. ísl. sam- vinnufélaga hefði ákveðið að láta gærurotunarverksmiðju sína hér í bæ starfa í vetur, en hefði ekki séð sér fært að greiðít meira en 200 kr. mánaðarkaup, ef það ætti að sleppa skaðlaust. Sambandið hafði því um tvo vegi að velja, annaðhvort að senda gær- urnar óunnar út úr landinu, eða þá að láta vinna þær hér innaniands. Sambandinu mátti i rauninni alveg á sama standa hvor leiðin væri farin að því leyti, að engin hagnað- arvon var að því fyrir það, að gærurnar væru unnar hér, en þó valdi það þá leið eingöngu með það fyrir augum að réftara væri að gefa fslenzkum verkamönnum kost á að njóta arðsins af vinnunni, heldur en að hann flyttist út úr iandinu. Nú er það komið í ljós, að ein- hverjir af forkólfum Verkamannafé- lags Akureyrar ná ekki upp i nef sér af reiði yfir því, að S. í. S. skyldi stofna til þessa atvinnufyrir- tækis hér í bænum. Þeir gera þá kröfu til Sambandsins, að það skaði sig sjálf á þessari starfsemi með því að borga hærra kaup en fyrir- tækið þolir. Kemur þetta Ijóst fram í >Verkamanninum« síðastl. laugar- dag, þar sem Sambandinu eru valin ýms hrakyrði, svo sem það, >að S. í. S. sé nú orðið eitt af illræmdustu atvinnurekendum landsins, sem leggi sig niður við að níðast á örfáum fátækum verkamönnum* o. s. frv. Svo að blað verkamanna telur Samb. ísl. samvinnufél. iliræmdann niðino fyrir það eitt að hafa stuðlað að því að nokkur þúsund króna vinnulaun héldust kyr í landinu og rynnu til fátækra verkamanna á Ak- ureyri. Annað hefir það ekki til saka unnið, því þó Verkam. sé að flagga með því, að S. í. S. hafi >brotið« kauptaxta verkamanna, þá er það ekki annað en þvættingur. Eða hvenær hefir S. í. S. undirgeng- ist það að borga kauptaxta verka- manna? Vitanlega aldrei, og úr því svo er, hefir það ekkert brotið. Eins og frá var skýrt í síðasta blaði Dags, hefir það komið i Ijós, að nokkrir þeirra, er þykjast bera hag fátækra verkamanna fyrir brjósti, hafa reynt að æsa þá til að stöðva vinnuna í umræddri verksmiðju með ofbeldi. Þessu hefir þó ekki orðið framgengt enn. En það er víst alveg reiðilaust af hálfu Sambandsins þó að þetta yrði framkvæmt. Það hefir eins og áður er sagt enga hagnað- arvon af því að vinnunni sé haldið áfram, býst aðeins við að sleppa skaðlaust með því kaupgjaldi, sem núergreitt. Stöðvun vinnunnarhefði þvf það eitt í för með sér að svifta nokkra fátæka verkamenn atvinnu yfir harðasta tíma ársins. Allir rétt- sýnir menn hljóta að telja slikt of- beldisverk mjög vafasaman velgern- ing í garð fátækra verkamanna. >Verkamaðurinn« skopastað því, að >Dag dreymi« um það, að S. í. S. >gleypi landið í framtíðinni*. Þetta, að »gleypa landið« á auðvit- að skiljast svo að Dagur vænti þess, að allir landsmenn verði í kaupfé- lögum, er tímar líða. Sýnilega er það Vm. ömurleg tilhugsun ef >draumur Dags« skyldi rætast. ------o----- Eyðsluskuldir. >íslendingur« heldur þvi fram, að lánið, sem nú er tekið hjá Hambros bank, komi að Iitlum notum, því >lánið gengur að miklu leyti upp í eyðslu núverandi stjórnar«, segir blaðið. Með »eyðslu< á hið hátt- virta íhaldsmálgagn auðvitað við það, að fénu sé varið til einskis- verðra hluta. Nú er það vitanlegt til hvers Iánsfénu verður varið. Mikill hluti þess gengur til Búnaðarbank- ans, allmikið einnig til Landsbankans og nokkuð til síldarverksmiðju ríkis- ins á Siglufirði. Þessar þrjár stofn- anir eiga að njóta lánsfjárins og standa jafnframt straum af því. Allar þessar stofnanir starfa i þágu og til stuðnings atvinnuvegum lands- ins. Hvað meinar þá íhaldsblaðið með því, að féð gangi til >eyðslu núverandi stjórnar?* Það hlýtur að eiga að skiljast svo, að núverandi stjórn styðji atvinnuvegi landsins með fjárframlögum. Sú viðurkenning er góð út af fyrir sig. En íeyðslu- hjali »ísl.« felst meira en þetta. f þvi felst einnig það, að fjárframlög til stuðnings og eflingar atvinnu- vegunum sé illa varið, sé eytt til ónýtis, sé eytt í gagnslausa hluti. Sé þetta ekki íhaldshugsunarháttur, kristalstær ihaldslífsskoðun, þá er ekkert íhald til í heiminum. Ekki situr það vel á blöðum íhaldsins að tala um eyðsluskuldir, því þar hitta þeir sína eigin menn. Nálega allar þær skuldir, sem ríkið verður nú að standa straum af, eru eftirstöðvar af fjármálaóreiðu frá þeim tímum, er Magnús Ouðmunds- son var fjármálaráðherra. Og 12 miljón kr. lántakan nú er afleiðing af fjármálasukki braskara fhalds- flokksins, er sökktu 20 — 30 miljón- um af fé bankanna, svo að þeirra sáust-engar menjar. -------o------- Kjöt og kolkrabbi. Eitt skærasta gáfnaljós »Verka- mannsins«, er nefnist J. E. K., ræðir um kjöt- og kolkrabbasölu Kaup- félags Eyfirðinga og fer svofeldum orðum um kjötsöluna: »Kjötið hefir það félag selt hér í bæinn, á hverju hausti, fyrir mikið hærra verð en fáanlegt hefir verið fyrir það á erlendum markaði*. Einu hefir J. E. K. gleymt í Sam- bandi við þessa fullyrðingu sína, sem þó skiftir allmiklu. Hann hefir alveg gleymt að færa rök fyrir stað- hæfingu sinni. Þar sem J, E. K. þykist vera ná- kunnugur kjötverði á erlendum og innlendum markaði, skal hér með skorað á hann að skýra tafar- laust frá eftirgreindum atriðum: 1. Hvað hefir kjöt það, sem K. E. A. hefir haft til sölumeðferðar, /

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.