Dagur - 27.11.1930, Blaðsíða 2

Dagur - 27.11.1930, Blaðsíða 2
226 DAGTJR 63. tbl. mmmrnmmrmfmm m* *S «• At r I rr i H *■ kvenna og barna. - Skóhlifar barna, unglinga, kvenna og karla. — Gúmmískór af öllum stærðum mjó og breið tá. - GúmmíSlÍ0Vél allar stærðir, barna og kvenstíg- vél í svörtum, brúnum og »beige« lit. Karlmanna-vinnuslígvél brún og svört, með gúmmí botnum. Kaupfélag Eyfirðinga. Vefnaðarvörudeildin. Myndastofan Qránufélagsgötu 21 er opin alla daga frá kl. 10 — 6. Guðr. Funch-Rasmussen. selst á erlendum markaði á und- anförnum árum? 2. Hvað hefir söluverð kjötsins verið hér í bæinn? 3. Hvaða verð hafa kjötframleið- endur fengið fyrir þessa vöru í reikninga sína? 4. Hvað mikill kostnaður legst á hvert kílógr. af kjötinu? 5. Hve mikils virði telur J. E. K. þau hlunnindi innlendra kaup- enda að mega velja það bezta úr kjötinu? Ef J. E. K. er svo kunnugur þessu máli, sem hann lætur, og ráða má af fullyrðingu hans, ætti honum að verða hægðarleikur að svara skýrt og rétt ofangreindum spurningum og sanna þann veg mál sitt. En skyldi nú fara svo að gáfna- ljós »Verkamannsins« gæti engu svarað, eða þá tómum þvættingi, þá brennimerkir það sjálft sig í hóp framhleypinna flóna, sem engir geta tekið mark á. Pá gerir J. E. K. sig að »hirting- arvendi syndugs manns* og ber það á K. E. A,, að það hsfi »arð- rænt« sjómenn fyrir tveimur árum með því að kaupa af þeim kolkrabba, sem ella hefði orðið þeim með öllu verðlaus, og greiða fyrir hann það verð, sem sjómennirnir voru mjög ánægðir með. »Arðránið« er þá í því fólgið að bjarga miklu verðmæti frá því að verða ónýtt og stuðla á þann veg að því, að þeir, sem framleiddu þessa vöru, fengju mjög há dag laun fyrir vinnu sína. Félagið réðist í kaup þessi í mikilli óvissu, en svo fóru þó leikar, að það hagnað- ist á kaupunum. Sá hagnaður er auðsýnilega sár »fleinn í holdi« þessa nýja postula »Verkamanns- ins«. Fyrir síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar beitti »Verkamaðurinn« kol- krabba þessum á kosningaöngul sinn og vænti sér góðs fengs af. Kosningaúrslitin sýndu, hvernig sú beita reyndist. Er það .því fremur ónærgætnislegt af J. E. K. að vera að ýfa upp gömul sár frá kosninga- ósigri »Verkamannsins« í vetur. J. E. K, gerir ráð fyrir því, að verkamenn þessa bæjar þoli ekki öllu lengur kúgun Kaupfélags Ey- firðinga, »því svo lengi má kúga, að út brjótist eldur um síðir«, segir hann. Hvað hann á við með útbroti eldsins, er ekki gott að segja. Er hann að minna verkamenn á það, að þeir geti lagt eld að húsum K. E. A. og brennt eignir þess? Að vísu skiftir ekki miklu hvað hann meinar með orðskvaldri sínu, því lítill spámaður mun hann talinn í föðurlandi sinu — ríkr verkamanna. -------o------ Á víðavangi. Stórbændur. í »Verkamanninum« var Samband íslenzkra samvinnufélaga nýlega kali- að »söluhringur stórbænda«. Eins og kunnugt er, myndast S. f. S. af sameinuðum kaupfélögum í landinu, en þau eru aftur að meira leyti mynduð af þúsundum bænda víða um land. Kunnugt er að fjöldinn af þeim voru fátækir smábændur, þegar þeir gerðust kaupfélagsmenn. En nú eru þeir, eftir frásögn »Verka- mannsins« orðnir að sfóriiænduni. Er þetta fagur vitnisburður um starf- semi kaupfélaganna og á Kaupfélag Eyfirðinga að sjálfsögðu bróður- partinn af þessu lofi í »Verkamann- ihum«. »islendingur« hælir landstjórninni fyrir það, hvað hún hafi góðan skilning á hljóm- leikjum. Er þetta mælt í sambandi við tal blaðsins um Hvanneyrarfjósið og kýrnar þar. »ísl.« má hér úr flokki tala. Eitt sinn lét góðkunnur söngmaður til sín heyra hér á Ak- ureyri, og lýsti ritstjóri »fsl.« því þá yfir í blaði sínu, að hann hefði orðið langhrifnastur af meðferð söngmannsins á lagi, sem ekki var sungið. Ef einhver auður bás er til í Hvanneyrarfjósinu, ætti ritstjóri »ísl.« að fá að sitja fyrir honum, því geta má nærri að svo »musi- kalskur« maður myndi kunna að meta hljómleika Hvanneyrarkúnna. árás á Hæsfarétt. íhaldsblöðin halda því fram, að bæjarfógetamálið hafi eingöngu byggst á pólitískri ofsókn af hendi dómsmálaráðherrans. Nú dæmdi Hæstiréttur Jóh. Jóh. til að greiða allan málskostnað. Samkvæmt frá- sögn blaðanna hetir því rétturinn úrskurðað, að sá, sem fyrir ofsókn- um verður, eigi sjálfur að greiða kostnað þann, sem ofsóknunum eru samfara. -----»—.... (Niðurl,). Pað er sízt að undra að sýnis- bækur enskra bókmenta eru að bæt- ast í bókaflokk þann, sem prentað- ur er með framburðarmerkjum Craigies. Prófessor Potter hefir lát- ið bók þá, er hann nefnir English Verse for Foreign Students og er aiveg nýprentuð, sigla f kjölfar hinnar. í kvæðasafn þetta er tekið mikið úr hinurft gömlu sígildu höfundum, en einnig margt eftir nútíðarskáldin. Pað er sérstaklega tilgangur Potters með bók þessari að leggja nemend- um upp í hendurnar valin ljóð, sem til þess séu fallin að læra þau ut- anbókar. Pað er skoðun hans (og þess ber að gæta að hann byggir á langri og viðtækri eigin reynslu), að sá sem lærir að fara upphátt með skáldskap á erlendu máli með tilhlýðilegri athygli á þýðingarblæ- brigðum orðanna, muni varðveita málið sem lifandi tungu, jafnvel þó að langir tímar líði svo, að hann fái ekkert tækifæri til að nota það, þar sem á hinn bóginn sá, sem að- eins les það og talar, muni eftir skamman tíma vera farinn að segja frá því, að eitt sinn hafi hann talað málið liðugt, en nú sé alt gleymt og grafið. »Meðan nemandinn getur farið með utanbókar tuttugu af Ijóðunum í þessari bók«, segirPotter, »þarf hann ekki að óttast að hætta sé á því, að enska hans ryðgi«. Óvíða mundi meiri þörf á að geta »geymt« málið á þennan hátt en í afskekktu sveitunum á íslandi. Eftir tilmælum bæði kennara og nemenda víðsvegar um heim hefir Potter einnig samið orðabók, sem nýlega er komin út og sem sýnir framburðinn með merkjum Craigies. Hún er byggð á hinni svo-kölluðu Pocket Oxford Dictionary eftir F. o. og H. W. Fowler, en sú bók er, eins og menn vita, unnin upp úr stóru Oxford-orðabókinni. Yfir höfuð hef- ir höfundurinn stuðst við allar hin- ar frægu bækur af þeirri »orðabók- arætt*. (The Concise Oxford Dicfionary, fl Oictionary of Modern English og The King’s English.) í þessari orðabók sinni, sem hann kaiiar English Vocabulary for For- eign Students, hefir hann lagt aðalá- herzmna á það, að vera í senn Ijós og nákvæmur, og hann hefir ekki létið neitt ógert til þess að gera er- lendum nemendum sem hægast fyrir, enda mun bókin vafalaust reynast þeim mjög gagnleg fyrstu námsárin. Orðin eru aðallega valin eftir þörf- um þeirra, sem nota þær bækur, sem hér um ræðir. Skýr ngarnar eru á ensku, en stundum einnig á þýzku og frönsku, auk þess sem notaðar eru til skýringar setningar og tals- hættir þegar svo þykir henta. En sjálfsagður hlutur er það, að þegar nemandinn er kominn svo langt, að hann geti fyrir alvöru farið að lesa enskar bækur, á hann að hafa Hérmeð tilkinnist vinum og vandamönnum, að systursonur minn, Karl M. Árdal, andaðist 26. þ. m. Jarðarförin er ákveðin laugar- daginn 6. des. og hefst með húskveðju á heimili hins látna, Aðalstræti 24. Akureyri 27. nóv. 1930. Steinþór P. Árdal. aðrahvora Oxford orðabókina, Pocket eða Concise, við hendina. Textar þeir, er eg mun nota í morguntímunum, verða þannig Eng- lish Reading Made Easy og Kennslubók í ensku, en í kvöldtímunum verður Everyday English for Foreign Students lögð til grundvallar. f báðum tilfellum verður farið út fyrir svið kennslu- bókanna, bæði með stuttum við- ræðum og á þann hátt að lesnir verða kaflar eftir enska og ameríska höfunda. Verður sá lestur að nokkru leyti upp úr English Verse for Foreign Students og mun tilkynt fyrirfram, þegar þörf þykir, hvað lesið verði. Ánægja sú og gagn, sém áheyr- endur kunna að hafa af útvarps- tímunum í ensku i vetur, verður að býsna miklu leyti undir því komið, hvað þeir leggja sjálfir til þessarar merkilegu fræðslutilraunar íslenzkra stjórnarvalda. Eg er þess fulltrúa, að hver sá, er leggur fram samvinnu sína með því að nota af alúð þau hjálpaitæki, sem eg hefi sagt frá hér að ofan, muni ekki að árangurs- lausu hlusta i enskutímunum. Kjaerstine Mathiesen. -------o------ S íms keyti. (Frá FB.) Rvík 23. nóv. Verklýðsráðstefna hefir staðið hér yfir i fjóra daga og lauk henni í gær. Á ráðstefnunni kom fram til- laga um að stofna verklýðssamband, er væri óháð öllum pólitiskum flokkum. Tillaga þessi var felld með 39 fulltrúaatkvæðum gegn 13 atkv. - Önnur tillaga kom fram, sem lýsti megnri óánægju yfir ritstjórn og útgáfu Verklýðsblaðsins, er svo nefnist. Sú tillaga var samþykkt með 38 atkvæðum gegn 13 atkv. Helsingfors: Prír menn hafa ver- ið dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir brottnám kommúnistaþing- manna í júli í sumar. Auk þess hafa ellefu aðrir verið dæmdir til mis- munandi Iangrar fangelsisvistar. Rvík 26. nóv. Innflutt í október fyrir 4.044.490. 00 kr. þar aftilRvíkur 3.014.487 kr. Félag botnvörpuskipaeigenda hef- ir ákveðið að gangast fyrir stofnun sambands meðal atvianurekenda um land allt i þeim tilgangi að auka samvinnuna og félagsþroska at- vinnurekenda og tryggja vinnufrið- inn. Sambandsþing Alþýðuflokksins hófst í gær. Hamborg: Eimskipið Luisa Lean- harelt strandaði við strönd Pýska- lands. Skipshöfnin, sem var 30 manns, fórst öll.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.