Dagur - 04.12.1930, Blaðsíða 4
234
IMttJUR
04 tbl.
Fréttir.
Fullveldisdagurinn. Fym íorgöngu stú-
dentafélags Akureyrar var fullveldis ís-
lands minnst í Samkomuhúsinu i. þ. m.
Ræður fluttu tveir af kennurum Mennta-
skólans, þeir Brynleifur Tobiasson og Stein-
dór Steindórsson, en þriðju ræðuna flutti
Davíð skáld Stefánsson. Sagðist þeim öll-
um vel og var gerður hinn prýðilegasti
rómur að máli þeirra, Ræðurnar voru frem-
ur stuttar, en snjallar, og tóku til samans
nálægt einni klukkustund, — Lúðrasveitin
Hekla spilaði nokkur lög bæði á undan
og eftir ræðuhöldunum og fórst það vel.
Var samkoma þessi hin ánægjulegasta.
Aðsókn bæjarbúa var dágóð, en nokkuð
mun það hafa dregið úr henni að ofsarok
af suðvestri var þenna dag.
Bókasafn guðspekistúkunnar hér i bænum
verður framvégis opið til útlána fyrir
almenning á miðvikudögum frá kl. 6—8
síðdegis. Bókaútlán annast Sigurgeirjóns-
son Spítalaveg 15, þar heima.
Hákon VII. Noregskonungur átti 25 ára
ríkisafmæli 25. f. m. Var þá mikið um
hátfðahöld í Noregi, einkum í Oslo.
Fjárhagsáætlanir hafnarinnar, rafveitunn-
ar og vatnsveitunnar fyrir 1931 voru til
1. umræðu á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í fyrradag. Niðurstöðutölur hafnar-
sjóðs, tekju- og gjaldamegin, voru 104
þús, kr„ rafveitunnar 128.500 kr. ogvatns-
veitunnar 34.500 kr.
Brunar. Bærinn Fagraneskot í Reykjadal
brann til kaldra kolanýlega. Einnigbrann
kjötreykingarhús í Garði í Aðaldal um
sömu mundir og brann þar inni eitthvað
af kjöti.
0------
Tárin eitruð,
Enskur liffræðingur hefir gert þá
uppgötvun, að tár séu eitruð. Engin
mannhætta segir hann þó að stafi
af þeim, heldur séu það sýklar og
bakteríur, sem þau drepi. Sé tára-
vökvinn svo baneitraður fyrir þess-
ar- smáverur, að enda þijtt hann sé
þynntur út 40 þúsund sinnum,
eyðileggi hann sýklana. Segir hann
að eitur þetta gagnsýri allan líkama
mannsins og sé hin öflugasta vörn
gegn allskonar sjúkdómshættu.
Heppin kaup.
Barnakennari nokkur f Sviþjóð
varð fyrir þvi slysi ekki alls fyrir
löngu að velta um koli blekbyttunni
sinni, er hann sat við heimavinnu.
Blekið ataðist út um allt vestið hans
og kom það sér bagalega, þvf að
kennarinn var bláfátækur og mátti
varla sjá af aurunum fyrir nýtt vesti.
Samt fór hann i fatabúð og keypti
þar gamalt vesti af nýdánum kaup-
manni fyrir nokkra auta. Næsta dag,
þegar hann ætlaði að fara að klæða
sig í véstið, finnst honum það vera
einhvernvéginn skritið i bakið og
fer með það til konu sinnar. Hún
sprettir upp saumnum og finnur
þá sér ti! mikillar undrunar umslag
í millifóðrinu og innan i því 15
þúsund krónur í reiðupeningum.
Snéru hjónin sér nú til lögmanns
og báðu hann að koma sér i sam-
band við erfingja kaupmanns þessa,
og urðu þeir svo glaðir yfir arfinum
og ráðvendni barnakennarans, að
þeir bórguðu honum 4 þúsund kr.
i fundarlaun.
Búfjártryggingar.
Samkvæmt lögum nr. 28, 7. maí 1928, um búfjártryggingar
hefir ráðuneytið mælt svo fyrir, að frá 1. janúar 1931 og þangað
til öðruvísi verður ákveðið, skuli ársiðgjöld, fyrir hverja búfjár-
tegund vera sá hundraðshluti af virðingarverði gripanna sem
hér segir:
Fyrir kýr lv2 af hundraði.
— naut 1/2 —
— stóðhesta v* —
— hrúta 9 —
Þetta birtist hérmeð til leiðbeiningar öllum þeim, sem hlut
eiga að máli.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 15. nóvbr. 1930.
Tryggvi Þórhallsson.
Vigfús Einarsson.
ALFA-LAVAL 1878—1928.
í 50 ár hafa ALFA-LAVAL skilvindur verið beztu og vönd-
uðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum.
ALFA-LAVAL verksmiðjurnar hafa altaf
verið á undan öðrum verksmiðjum ’með ný-
ungar og endurbætur, enda hafa Alfa-Laval
skilvindurnar hlotið yfir 1300 heiðursverðlaun
og fyrstu verðlaun, auk annara verðlauna.
Reynslan, sem fengin er við smíði á yfir
3,500,000 Alfa-Laval skilvindum, tryggir það
að A L F A-L A V A L verði framvegis öll-
um öðrum skilvindum fremri að gerð og
gæðum.
Mjólkurbú og bændur, sem vilja eignast vandaðar vélar til
mjólkurvinslu, kaupa hiklaust Alfa-Laval mjaltavélar, skilvindur,
strokka, smjörhnoðara og aðrar Alfa-Laval vélar.
Samband isl. samvinnufélaga.
JÖrðíil Tunga
S íms keyti.
(Frá FB)
Rvík 30. nóv.
Sambandsþing Alþýðuflokksins
samþykkti í gær, að sambandsstjórn-
ina skipi 17 menn; forseti, varafor-
seti og 7 aðrir skulu vera búsettir
í Reykjavík og auk þess tveir i
hverjum landsfjórðungi. Meðal þeirra,
sem kosnir voru í sambandsstjórn-
ina í Reykjavík, voru Jón Baldvins-
son (forseti), Héðinn Valdimarsson
(varafors.), Haraldur Ouðmundsson,
Stefán Jóhann, Sigurjón Olafsson,
Ólafur Friðriksson.
Fyrir Norðurland voru kosnir
Erlingur Friðjónsson og Ouðmund-
Skarphéðinsson og til vara Halldór
Friðjónsson. Meðal annara i stjórn-
inni eru Finnur Jónsson á ísafirði,
Jónas Guðmundsson á Norðfirði og
Emil Jónsson í Hafnarfirði. Enginn
kommúnisti var kosinn í sambands-
stjórnina, og munu fæstir þeirra
hafa verið á fundi, er kosning fór
fram. Morgunblaðið segir, að komm-
únistar muni hafa verið á sérstökum
fundi að stofna kommúnistasam-
band um land allt.
Kolanámueigendur í Rínarbyggð-
um og Westpfalen hafa sagt upp
launasamningum frá árarnótum.
íhaldsmenn hafa unnið sigur í
tveimur aukakosningum, sem ný-
lega hafa farið fram í Bretlandi.
Stjórnin í Austurríki hefir beðist
lausnar.
Rvík 30. nóv.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt
á sambandsþingi Alþýðuflokksins
með 43 atkv. gegn 1:
>10. sambandsþing Alþýðusam-
bandsins telur ástæður þær, sem
verið hafa fyrir hlutleysi Alþýðu-
flokksins við núverandi ríkisstjórn,
ekki lengur fyrir hendi<.
Rvík 2, des.
Otto Sverdrup er látinn.
Aðfaranótt 1. des. var fárviðri í
Skaftafellssýslu. Símastöðin á Flögu
í Skaftártungu brann þá nótt til
kaldra kola. Eldingu laust niður í
skiftiborðið og klauf það. Húsið
stóð þegar i Ijósum loga, og fólk
komst nauðulega út og missti allt
sitt innanhúss óvátryggt. Húsið var
vátryggt. Skeði þetta um miðja nótt
í ofvióri. Húsið, sem brann, var 8
ára gamalt, að nokkru leyti úr timbri,
en sumpart úr steinsteypu.
------o-------
Fornleifafundur.
Sænskur fornfræðingur íAmeríku
hefir í fjallahéruðunum i Austur-
Peru fundið greftrunarstaði, sem
hann telur engan vafa á að stafi frá
eldri tíð en Inka-menningin. Eru
það fjölmargar grafhvelfingar, er
geyma múmíur löngu liðinna kyn-
slóða, vefnað og ýmsa muni aðra,
er varðveizt hafa þarna ágætlega
sökum rnikilla þurviðra á þessum
slóðum. Til þess að komast þarna
að, varð að brjótast yfir illfæra
fjallgarða Mið-Andesfjallanna, og í
snarbrattri fjallshlið voru grafhellar
þessir hundruðum saman, byggðir
úr kalksteinsbjörgum, með þremur
og upp i tiu múmíum hver.
í Fnjóskadal fæst til kaups og
ábúðar í næstu fardögum.
Tungu 25. nóv. 1930.
Sigtryggur Jónatansson.
Jarðræktarfélag Akureyrar hefir
til sölu Lúðvíksherfi með tœki-
fœrisveroi.
JÓN J. JÓNATANSSON.
hússins Fagrastræti 1
er til sölu og laust til
ábúðar 14. maí.
Benedikt Pétursson.
íeÉífli
Næstl. sumar ts2i£?
rauð hryssa tvævetur, ómörkuð með
gráleita blesu, Hver sem kynni verða
var við hryssu þessa, bið ég gera
mér aðvart.
Hranastöðura 25: nóvember 1930.'
Pétur Ólafsson.
Alþýöusambandspingínii lauk kl. 12 á
laugardagskvöldið var og hafði þá staðið
yfir s daga.
Jörðin Steindyr
i Grýtubakkahreppi er til leigu eða
sölu nú þegar, og laus til ábúðar f
næstu fardögum.
Semja ber við undirritaðan eig-
anda jarðarinnar, sem gefur allar
nánari upplýsingar.
Fagrabæ 25; nóvember 1930.
Sigurður Benidiktsson.
B. B.
(Brödrene Brauns)
Rjól
Og
Munntóbak
er BEZT. — í heildsölu hjá
Tóbaksverzlun IslandsM.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 6.
Prexitsmiðja Odds Bjömssonar.