Dagur - 05.02.1931, Qupperneq 4
20
DAGUB
5. tbl.
Fréttir.
a.
Geysissönffur. Söngfélagið Geysir hélt
samsöng í Nýja-Bíó síðastl. föstudags-
kvöld. Allir textarnir voru íslenzkir og
er það sízt að lasta.
Almannarómur var, að félaginu hefði
aldrei tekizt eins vel og í þetta sinn og
er þá mikið sagt, því Geysir hefir áður
átt miklum vinsældum að fagna og það
að maklegleikum. Söngflokkui-inn er
sýnilega að taka sífeldum framförum.
Var söngurinn í þetta skifti söngstjór-
anum og söngflokknum til mikils sóma.
Aðsókn var svo mikil, að margir urðu
að standa.
Flokkurinn endurtók söngskemtim
sína á laugardagskvöldið í Samkomu-
húsinu, og var aðsókn enn hin bezta,
og söngurinn sízt síðri en fyrra kvöldið.
Flest lögin varð Geysir að endurtaka-
Ný lög voru hér á ferðinni, sem ekki
hafa áður heyrzt á þessum slóðum, svo
sem úr Alþingishátíðarljóðum Davíðs
Stefánssonar.
Vonandi getur Geysir sem oftast lát-
ið til sín heyra, því það er óblandin á-
nægja að hlusta á söng hans.
. Dánardægur. Á föstudagsmorguninn
var andaðist hér á spítalanum ungfrú
Inger Bjarkan eftir þunga legu. Bana-
meinið talið blóðeitrun út frá innvortis
meinsemd. — Inger var dóttir Böðvars
Bjarkans lögmanns og konu hans frú
Kristínar. Hún var aðeins 23 ára göm-
ul, gáfuð og glæsileg stúlka. Þó það sé
gömul saga, að dauðinn svifti burt efn-
isfólki í blóma lífsins, þá er hún ávalt
jafnný og sár fyrir aðstandendur. —
»Fyrst deyr í haga rauðust rós«, kvað
Jónas.
Bruni á Borðeyri. Að morgni hins 28.
f. m. brann hús Verzlunarfélags Hrút-
firðinga á Borðeyri til kaldra kola,
Nokkru af vörum og helztu verzlunar-
bókum tókst að bjarga. Eignir félags-
ins voru vátryggðar, en verzlunarstjór-
inn, sem bjó á efri hæð hússins, missti
allt sitt óvátryggt. Þriggja ára dreng-
ur, sonur verzlunarstjórans, var hætt
kominn.
Fullvíst er, að skipið Ulv, sem getið
var í síðasta blaði, hefir farizt. Hefir
rekið úr skipinu á Þaralátursfjörum á
Ströndum. Þeir fjórir íslendingar, sem
voru með skipinu, voru þessir: Ólafur
Guðmundsson fiskimatsmaður úr Rvík,
er hafði umsjón með farminum, Hregg-
viður Þorsteinsson kaupmaður á Siglu-
firði, Aage Larsen, bróðir Gunnars
Larsen bókhaldara hjá Kaupfél. Eyf.
og Jón Kristjánsson vélstjóri sonarson-
ur síra Jóns heitins Þorsteinssonar á
Möðruvöllum. Tveir hinir síðastnefndu
eiga mæður hér í bænum, báðir ó-
kvæntir.
Skipið var leiguskip Kveldúlfsfélags-
ins.
Flugfélag fslands hélt aðalfund sinn
31. f. m. Gaf þá formaður félagsins
skýrslu og kvað fjárhaginn þröngan.
Flugvélar félagsins kvað hann hafa
flogið 62000 km. síðasta sumar með á
9. hundrað Islendinga.
Reglulegar flugferðir beggja flug-
vélanna er ætlast til að byrji 1. maí.
1 stjórn voru kosnir: Alexander Jó-
hannesson, Magnús Blöndal, Pétur
Halldórsson og Magnús Torfason; 6.
maður í stjórninni er Pálmi Loftsson,
sem fer með umboð ríkisins fyrir hluta-
fé þess.
Landsmálafundir hafa verið haldnir
á ýmsum stöðum að undanförnu. 1
Borgarnesi var einn slíkur fundur
haldinn 30. f. m., stóð hann yfir í 12
tíma, frá kl. 3 e. h. til kl. 3 e. miðn.
Helztu ræðumenn voru: þingmaður
kjördæmisins, Bjarni Ásgeirss., og Gísli
Guðmundsson ritstjóri, en af stjórnar-
andstæðingum Pétur Ottesen. Aðalum-
ræðuefnið voru fjármálin og fram-
kvæmdir í landbúnaðarmálum.
I Ólafsvík var annar fundur nýlega.
Þar var dómsmálaráðherra mættur, en
þingmaður kjördæmisins, Halldór
Steinsson, lét ekki sjá sig. Á þeim
fundi var samþykkt traustsyfirlýsing
til stjórnarinnar mótatkvæðalaust.
Þingmálafundur á Hvammstanga
lýsti ánægju sinni yfir fjármálastjórn-
inni með yfirgnæfandi meiri hluta at-
kvæða.
Á landsmálafundi í Norður-lsafjarð-
arsýslu, þar sem mættir voru kjömir
fulltrúar, kom fram vantraustsyfirlýs-
ing á stjómina, en var felld með rök-
studdri dagskrá.
Ólafur Thors hélt nýlega fund í Sand-
gerði og annan í Keflavík. 1 Sandgerði
talaði Ólafur á annan klukkutíma, en
litlar umræður urðu og engin tillaga
samþykkt. Á Keflavíkurfundinum voru
mættir um 300 manns. Var þar borin
fram vantraustsyfirlýsing á stjórnina
og samþykkt mótatkvæðalaust.
Skrásetning atvinnulausra manna fór
nýlega fram í Reykjavík. Alls létu skrá
sig 530 menn. Þrátt fyrir atvinnuleys-
ið hafa menn ekki leitað á náðir bæj-
arins venju fremur svo heitið geti, en
þó eru kjör verkamanna^talin með erf-
iðara móti.
Landsspítalinn. Um síðustu helgi
hofðu 74 sjúklingar verið teknir inn á
spítalann, frá því að hann tók til
starfa, og voru þá 52 sjúklingar á
spítalanum. Spítalinn starfar í 5 deild-
um.
Togari frá Hull strandaði fyrir fá-
um dögum við Leirhöfn á Melrakka-
sléttu. Skrúfa skipsins' er brotin.
Menntaskólinn í Reykjavík. 1 einum
bekk skólans gaus upp óánægja yfir
því, að piltum hafði verið fyrirskipað
að gera franska stíla. Neituðu ein-
hverjir þeirra að leysa það verk af
hendi. Endaði 'með því að bekknum var
vísað úr skóla um stundarsakir. Upp
úr þessu varð allsherjar verkfall meðal
skólapilta einn til tvo daga. En brátt
lauk verkfallinu og sættir komust á
eins og sjá má á skeyti hér í blaðinu.
Verkamamiafélag Akureyrar á aldar-
fjórðungsafmæli á morgun. Er það
elzta verklýðsfélag á Norðurlandi. Fé-
lagar þess stofna til afmælisfagnaðar.
5>Alþýðumaðurinn« getur þess í sam-
bandi við 25 ára afmæli félagsins, »að
hagur verkafólks muni hvergi eins
jafngóður í nokkrum bæ í landinu, eins
og hér á Akureyrk. Mun þetta rétt
vera og er vel farið.
Samskot til ekkju Arngríms Jónsson-
ar: M. S. 10 kr. Þ. S. 5 kr. N. N. 10 kr.
Alls 25 kr.
Ofanrituð upphæð er afhent Degi.
Hverjir vilja, bæta við?
Hinn 28. jan. síðastl. framkvæmdi notarius publicus á Akureyri útdrátt
á skuldabréfum samkvæmt skilmálum um 6°/o lán bæjarsjóðs Akureyrar
til raforku fyrir bæinn.
Þessi bréf voru dregin út:
Litra A. nr. 91, 96, 106, 113, 133, 136.
Litra B. nr. 61, 66, 72, 80, 127.
Litra C. nr. 20, 32, 33, 62,70.
Skuldabréf þessi verða greidd gegn afhendingu þeirra 1. júlí n, k. á
skrifstofu bæjarins.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 31. janúar 1931.
Jón Sveinsson.
¥
Frá og með föstudeginum 6. þ. m. verður útbú
Búnaðarbankans á Akureyxi opið daglega frá
kl. 2—4 e. h.
Akureyri 4. febrúar 1931.
Bernh. Stefánsson.
ALFA-LAVAL 1878—1928.
í 50 ár hafa ALFA-LAVAL skilvindur verið beztu og vönd-
uðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum.
ALFA-LAVAL verksmiðjurnar hafa altaf
verið á undan öðrum verksmiðjum með ný-
ungar og endurbætur, enda hafa Alfa-Laval
skilvindurnar hlotið yfir 1300 heiðursverðlaun
og fyrstu verðlaun, auk annara verðlauna.
Reynslan, sem fengin er við smíði á yfir
3,500,000 Alfa-Laval skilvindum, tryggir það
að A L F A-L A V A L verði framvegis öll-
um öðrum skilvindum fremri að gerð og
gæðum.
Mjólkurbú og bændur, sem vilja eignast vandaðar vélar til
mjólkurvinslu, kaupa hiklaust Alfa-Laval mjaltavélar, skilvindur,
strokka, smjörhnoðara og aðrar Alfa-Laval vélar.
Samband isl. samvinnufélaga.
Simskeyti.
(Frá FB.)
Rvík 3. febr.
Afarmikill iandskjálfti gekk yfir
Nýja-Sjáland á þriðjudagsmorguninn
og stóð yfir í tvær stundir. Borg-
irnar Napier og Oisborne eru eyði-
iagðar að kalla. Óvíst, hve margir
hafa farizt. ,
Sættir hafa komizt á í Mennta-
skólanum og deilunni þar lokið.
Hafa nemendur lofað að beita ekki
samtökum gegn kennslu eða reglu-
gerð, nema þeir yrðu órétti beittir.
— Kennarafundur áleit fjarstæðu,
að kennarar beiti nemendur órétti,
en þar sem nemendur hafi lofað
að fullnægja settum skilyrðum, ákvað
kennarafundur að telja málið útkljáð.
í skólahúsið í Reykholtí er 'búið að
leiða vatn úr hvernum Skriflu eftir
farvegi þeim, er Snorri Sturluson lét
gera fyrir 700 árum. Stendur sá far-
yegur óhaggaður exm.
mitt er: Hamarskorið
hægra, tvístýft fr. vinstra
Isak Sigurgeirsson
Hóli Kelduhverfi.
Pólitur
nýkominn.
öler og járnvörudeildo
Fundur í U. M. F. A. verður haldinn
á venjulegum stað og tíma þriðjudag-
inn 10. febr; kl. 8% e. h.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 5.
Prentsmiðja Odds Bjönuwomaf.