Dagur - 13.05.1931, Síða 3
21. tbl.
DAGUR
85
lán ofan, til þess að halda við
dýrtíðinni. At'nugun hefði verið gerð
á húsaleigunni í Rvík og hefði sú
athugun leitt það í Ijós, að unnt
myndi að lækka hana um 2 miljónir
kr. Væri rétt að farið í stjórn bæj-
armálanna, gætu útsvör á almenn-
ingi lækkað mikið. Foringjar verka-
manna hefðu tekið upp þá bardaga-
aðferð gegn þessu þjóðarmeini,
dýrtíðinni í Rvík, að krefjast hækkandi
kaupgjalds og látið þar við sitja, en
í raun og veru væri þetta engin
lækningútaf fyrir sig. Pessir menn
hefðu ekkert að þvf unnið að afla
verkalýðnum nauðsynjavara með
sannvirði. Að þessu ynnu samvinnu-
menn. Þeir hefðu t. d. keypt klæða-
verksmiðju og með því að skifta
við hana, myndu verkamenn geta
fengið allt að helmingi ódýrari fatn-
að en áður. Með því að taka upp
þann sið að láta varðskipin veiða
fisk í •frístundum sínum, gæti fisk-
verðið lækkað um helming og hefðu
veiðar björgunarskipsins verkað mjög
í þessa átt. (Framh).
----o----
Á vídavangi.
Dansinn í Hruna.
Pegar Sigurður Kristinsson varð
ráðherra á dögunum, skolaðist nafn-
ið í meðferðinni í kauptúni einu á
Vestfjörðum og varð úr nafnið Sig-
urður Kristjánsson. Nokkrar íhalds-
hræður i kauptúninu urðu glaðar
við og trúðu þeirri fjarstæðu, að
Sig. Kristjánsson fyrv. þjónn íhalds-
ins á tsafirði, en sem nú starfar við
ísafold, væri orðinn ráðherra. Höfðu
þessar ihaldssálir engan hemil á
gleði sinni út af þessari miklu upp-
hefð Sigurðar isfirska, slógu upp
veizlu mikilli sín á milli og dönsuðu
heila nótt. Næsta morgun vitnaðist
hið sanna, sem sé það að Sigurður
Kristjánsson væri enn í sömu nið-
urlægingunni og áður og engar
líkur væru fyrir, að hann kæmist
upp úr henni. Tóku þá hinir dans-
andi íhaldsmenn ógleði mikla, hættu
leiknum og voru hinir sneypuleg-
ustu.
Ekki batnar pað.
síslendingur* segir að Ólafur
Thors hafi ekki sagt, að Kaupfél.
Eyf. hafi fengið 300 þús. kr. lán
hjá Búnaðarbankanum, heldur hafi
hann látið svo um mælt, að pen-
ingarnir hafi »runnið« til félagsins
á þann hátt, að samvinnubændur
í Eyjafirði hafi fengið peninganaað
láni, og félagið á þann hátt notið
góðs af þeim; Samkvæmt þessu
liggur svívirðing sú, sem Ól. Thors
talaði um, í því, að bændur í sam-
vinnufélagi hafi fengið lán I Bún-
aðarbankanum. Peir eiga þá að hans
skoðun að vera útilokaðir frá því.
Hann sér eftir fénu til samvinnu-
bænda, eftir því sem >ísl.« segist
frá. Engum, sem til þekkir, mun
koma þessi túlkun »ísl.« á hugsun-
arhætti Ól. Th. á óvart.
Breytt veður i lotti.
íhaldsmenn hafa fram að þessu
látið blöð sín lýsa Tryggva Pór-
hallssyni sem vilja- og þreklausu
rolumenni, er væri leiksoppur í
höndum annara. Nú kveður mjög
við annan tón í herbúðum íhaldsins.
Nú er honum lýst þar sem einu
mesta ofurmenni, er veraldarsagan
hafi af að segja, Á þessum sterka
manni brotna nú hinar stoltu bylgjur
íhaldsins og breytast í máttlausa
froðu. Hann sparkar hinum óttaleg-
asta manni úr ráðherrastól og brýtur
allt — þar á meðal konunginn sjálfan
— undir járnsterkan einræðisvilja
sinn. — Eftir því sem íhaldsmönn-
um segist frá, eru slíkir afreksmenn
sem núverandi forsætisráðherra sjald-
gæfir. Mega foringjar íhaldsins,
ekki meiri menn en þeir eru fyrir
sér, »prísa sig sæla«, ef Tryggvi
Pórhallsson mer þá ekki alla með
tölu undir hæl sér þegar minnst
varir.
Getur ekki pagaö.
Pað er Ólafur Thors, sem ekki
getur þagað yfir leyndarmálum
flokks síns.
íhaldsmenn ætluðu að halda því
leyndu, að þeir hefðu gert samning
við Héðin Valdimarsson um stóru
kjördæmin, sem getið var í Degi
fyrir skömmu, þar sem tilætlunin
var að ræna sveitirnar alit að helm-
ingnum af þingfulltrúum þeirra. í
Skagafirði báru t. d. íhaldsmenn á
móti þvi á fundum þar, að nokkur
hæfa væri fyrir þessu. En á fundi
á Stórólfshvoli játaði Ólafur Thors,
að aðalatriði samninganna um kjör-
dæmaskipunina væru þau, sem áður
hefir verið frá skýit. Er mælt að
flokksbræður hans kunni honum
litla þökk fyrir að Ijósta þessu upp
og hafi mjög við orð, að hann geti
ekki þagað yfir neinu og þvaðri í
öllu.
flllt sannanlegt.
Siglfirðingur, blað íhaldsins á
Siglufirði, segir, að þó Jón Porláks-
son sé ekki eins mælskur og Tryggvi
Pórhallsson, þá geti Jón sannaö allt,
sem hann segi, líka það að frá 12.
júní til 4. júlí séu 12 dagar! Hvernig
sönnunin hljóðar, getur blaðið ekki
um.
Bardagi tíl eilítöar.
Óiafur Thors segir i Mbl. 29.
april, að >Sjálfstæðismenn< ætli að
berjast s>tileilítðar« fyrir því, að Tryggvi
Pórhallsson fari frá völdum. Pessi
ráðageró um »eilífðarbardaga« er
veigamikil sönnun fyrir því, að
»sjálfstæðismenn« telji Tryggva Pór-
hallsson allfastan i sessi. En fyrir-
kviðanlegur hlýtur þessi langi bar-
dagi að vera fyrir Ólaf Thors og
samherja hans.
------o------
S im s k ey í i.
(Frá FB).
Rvík 12. maí.
Miklar óeirðir hafa orðið á Spáni
síðan á sunnudag, vegna æsinga af
völdum kaþólskra; hefir múgurinn
brennt mörg Jesúítaklaustur og
kirkjur, en samkvæmt síðustu fregn-
um er kyrð að komast á aftur.
Khöfn: Leiðangursmennirnir Court-
auld og Watkins eru komnir heilu
og höldnu til Watkinscamp.
Norsk loftskeytafregn hermir, að
hjálparleiðangurinn, sem leitaði að
Orænlandsfaranum Wegener hafi
.......................••••••« .••••• ••••••••• .••••. .•••••••••••••••••••••._.«••.
* •• _•. •Z :•••••••••••• • •* * • * •*• ••••••••••••• •• • •• •
•••••* *•• ••••• ••••••••••••••• •••••• ••••••••• •••••• •••••••••••••••*•••••*•••*••••••
Karlmanna,
við peysuföt,
við kjólbúning,
á unglinga
langmest úrval í
BRAUNS VERZLUN.
Páli Sigurgeirsson.
••••••-••••*••••••••••••• •‘••••••••••••<
• •• • •Z *••■••••••■•• * ~
••••••••••••••«••••••••••••••••*• «
,•••••••••••••••• ••••
• •••• •••••• ••••
»•••••••••••••••,,••••
••••••••••* *• *•* •• •
• •••••••••••••••*•••••••••
sennilega farizt. Mjðg óttast menn
um afdrif Wegener sjálfs.
Oslo: Kolstad hefir myndað stjórn.
Útfluttar vörur í aprílmánuði nema
2,698,370 kr., en alls á árinu til
aprílloka 12,108,640 kr. — Aflinn
1. maí 219,201 þur skippund; fisk-
birgðir 214,805 skpd.
Sagt er, að efstu sæti Sjálfstæð-
islistans við Alþingiskosninguna
verði þannig skipuð: JakobMöller,
Einar Arnórsson, Magnús Jónsson,
sem sagður er vilja vera í 3. sæti.
Listinn mun verða birtur á morgun;
VerzL NORDIIRLAHl.
(Björn Björnsson frá Múla).
Sími 118. Símn.: Bangsi. Pósth. 42
Sezta
fermingar-
g/ofin
er góð
myndavéi
Fréttir.
ðll þau börn, sem aetla að verða í vor-
skóla Hannesar J. Magnússonar, mæti í
nýja barnaskólanum 20. þ. m. kl, 1 e. h.
Fimleikasýningu hafði Hermann Stefáns-
son leikfimiskennari í Samkomuhúsi bæjar-
ins í fyrrakvöld. 1 sambandi við sýning-
una flutti Sigurjón Pétursson frá Álafossi
fyrirlestur um likamsmenningu.
Gagniræðaskóla Akureyrar var siitið »íð-
asta laugardagskvöld. Upp í 2. bekk luku
33 nemendur prófi, en í iðndeildinni gengu
30 nemendur úndir próf og luku 9 þeirra
burtfararprófi. Tveir hinna síðasttöldu hlutu
verðlaun fyrir framúrskarandi góða úrlausn
á sérstökum prófefnum Þeir heita Aðai-
steinn Þórarinsson og Pétur Aðalsteinsson.
Skólastjórinn flutti langa ræðu um hiut-
verk alþýðuskóla og viðhorf menntamála
með þjóðinni.
í kjörstjórn við Alþingiskosningar voru
kosnir á bæjarstjórnarfundi í gær: Stein-
þór Guðmundsson, Tómas Björnsson og
Kristján Árnason. Auk þess voru 6 menn
kosnir í undirkjörstjórn og jafnframt sam-
þykkt að kjósa í 3 kjördeildum. í yfirkjör-
stjórn voru kosnir Hallgrímur Daviðsson
(með hiutkesti milli hans og Ingimars Ey-
dal) og Jakob Karisson; bæjarfógeti sjálf-
kjörinn,
Dánardægur. Christen Havsteen fyrrum
kaupstjóri er nýlátinn í Khöfn. Hann var
orðinn nokkuð við aldur.
Nýlátinn er á Oddeyri Kristján Jóhanns-
son fyrrum bóndi í Hörgárdal (oft kennd-
ur við Flögusel); roskinn maður, kvongaður.
Veöráttan er fremur köld. Snjó leysir
hægt úr fjöllum og tún grænka lítið enn.
0--------
&Cfils öl
drekka alllr gódlr
íslendingar.
Fæst alstaðar þar sem
öl er selt.
Gólf-lakk
á trégólf og linoleum-
dúka. — Margar teg-
undir.—Bezt og ódýrast.
Járri- og glervörudeildin.
HLJÚÐFÆRI ýmisleg,
grammofóna og jazz-
band, er bezt að kaupa
frá Ernst Reinh. Voigt
Markneukirchen 907 Þýzkaland. Verðskrár
ókeypis, sérstakar fyrir orgel og piano,