Dagur - 11.06.1931, Blaðsíða 1

Dagur - 11.06.1931, Blaðsíða 1
D AOUR temur ót & hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talsimi lli. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- ■on í Kaupfélagi Eyfirö- inga. • ••••• - Uppsögn, bundin við áia- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XIV Akureyri, 11. júní 1931. j 31. tbl. Reykjavik á að fá 11 þíngmenn, Akureyri engan. í samningum milli íhaldsmanna og jafnaðarmanna, sem Héðinn Valdimarsson vill ekki skýra frá, af því þeir séu leyndarmál milli' flokkanna, var gert ráð fyrir að Reykjavík fengi 9 þingmenn minnst, þegar kjördæmabyltingin kæmist á. Nú hefir Magnús Jóns- son lýst yfir því á fundi í Reykja- vík, að hún skuli fá 11 þingmenn, ef hans flokkur fái að ráða. Er ekki loku fyrir það skotið að sú tala fari enn hækkandi í hugum Reykjavíkur-burgeisanna; er því sýnilegt að hverju þeir stefna: Þeir ætla, ef þeir fá aðstöðu til þess, að draga valdið yfir þjóð- málunum til Reykjavíkur á kostn- að annara landshluta, sveita og kaupstaða. Þar næst vár það atriði í samn- ingunum, að skifta öllu landinu utan Reykjavíkur niður í 5 stór kjördæmi; þannig átti að steypa saman í eitt kjördæmi öllu svæð- inu frá Geirólfsgnúp og austur á Tjörnes, eða Stranda-, Húna- vatns-, Skagaf jarðar-,. Eyjaf jarð- ar- og Suður-Þingeyjarsýslum að meðtaldri Akureyri. Akureyri á með öðrum orðum að hverfa úr sögunni sem sérstakt, sjálfstætt kjördæmi. Hvernig mundu íbúar höfuð- staðar Norðurlands kunna þessu? Getur Akureyri fellt sig við það, að niður falli réttur hennar í framtíðinni til þess að senda sinn eiginn fulltrúa, einn eða fleiri, til Alþingis? Hvaða Akureyrarbúar eru það, sem gera sig ánægða með að verða þannig lítill hlekkur í stórri keðju og hafa engan á- kvörðunarrétt um val þingmanna, til þess að gæta hagsmuna bæjar- ins? Nú er Akureyri og öðrum kjör- dæmum utan Reykjavíkur boðið upp á það af íhaldsflokknum að veita frambjóðendum hans fylgi og kjósendur beðnir að greiða þeim atkvæði, svo að þeir nái þingsetu. En hvert á svo aðaler- indið að vera á þing? Það er í því fólgið að taka réttinn frá núver- andi kjördæmum til þess að mega framvegis velja sér þingmenn að eigin vilja og veita þeim umboð til þess að koma fram á Alþingi sem fulltrúar þeirra. Um þetta eru forvígismenn jafnaðarmanna og kommúnista íhaldsmönnum sammála. Allir kalla þeir það réttláta kjördæmaskijmn, að Ak- ureyri hætti að kjósa sér sinn eiginn þingmann og vald Reykja- víkur eflist, en vald og réttur Ak- ureyrar rýrni. Með framboði frá þessum þremur flokkum er mælt við kjósendur á Akureyri á þessa leið: Viljið þið vera svo góðir að kjósa okkur á þing, svo að við getum tekið af ykkur réttinn til þess að kjósa ykkar eiginn þing- mann framvegis? Það væri gaman að sjá framan í þann kjósanda hér í bæ, sem upphátt svaraði þessari spurn- ingu játandi. Slík óhæfa getur ekki orðið framin nema í einrúmi og þegar aðrir sjá ekki til. Það er aðeins einn af frambjóð- endum hér í bæ, sem er því and- vígur að þessi réttur verði tekinn af kjósendum á Akureyri, sem er því andvígur að Akureyri verði lögð niður sem kjördæmi og að þingmönnum Reykjavíkur verði fjölgað upp í 11. Aðeins einn frambjóðandinn telur það rang- látt, að Reykjavík fái 11 þing- menn, en Akureyri engan. Það er frambjóðandi Framsóknar doktor Kristinn Guðmundsson. -----0---- Peir konunokjðrnu.. Fyrir 16 árum var konungkjör þingmanna afnumið með nýrri stjórnarskrá og landskjör sett í staðinn. Þó að í hinni konungkjörnu sveit fyrri tíma væru ýmsir sæmdarmenn á marga lund, var það lið yfirleitt miður þokkað af landsmönnum fyrir afskifti sín af opinberum málum, þóttu þeir konungkjörnu löngum lítið þjóð- hollir og lingerðir gagnvart út- útlenda valdinu. Flestir munu líta svo á, að kon- ungkjörnir alþingismenn sé nú orðið aðeins sögulegt atriði, bund- ið við liðna tíma og með öllu úrelt skipulag, sem engum dytti í hug að horfið yrði að aftur. Um þetta hefir þó önnur reynd orðið. Þegar umboð aílra þjóðkjörinna þingmanna var niður fallið með þingrofinu í apríl sl., gat enginn nema kjósendur landsins veitt umboðin aftur lögum samkvæmt. Engu að síður snúa 17 íhaldsmenn og 5 jafnaðarmenn sér til kon- ungs og fara þess á leit, að hann veiti þeim þingmennskuumboð þegar í stað og gangi fram hjá réttum hlutaðeigendum, kjósend- um landsins. Þess er með öðrum orðum kraf- izt, að 22 umboðslausir menn séu allir gerðir að konungkjörnum þingmönnum. í fyrsta lagi var hér farið fram á, að konungur ryfi stjórnskipun- arlög landsins, og þó höfðu allir þessir fyrv. þingmenn unnið eið að stjórnarskránni. í öðru lagi var með þessu stung- ið upp á, að horfið yrði að löngu afnumdu og úreltu skipulagi, og það svo greinilega að hin konung- kjörna sveit átti að vera nær fer- falt mannfleiri en í gamla daga, eða meiri hluti af tölu alþingis- manna. Sú stefna, sem beinist að því að hverfa aftur að afnumdu og úr- eltu skipulagi — hún nefnist aft- urhald.sstefna (Reaktion). Hún gengur lengra aftur á bak en í- haldsstefna (Konservatisme). »Sjálfstæðismennirnir« í gæsa- löppunum eiga því ekki einu sinni skilið að kallast íhaldsmenn; eftir síðustu atburði er þeirra rétta nafn aftivrhaldsmenn. Að réttu lagi ætti því »Sjálf- stæðis«-flokkurinn — hann nefnd- ist næst áður íhaldsflokkur, þar áður Borgaraflokkur, þar áður Sparnaðarbandalag, þar áður Kosningabandalag o. s. frv. — enn að breyta um nafn og kalla sig afturhaldsflokk. Þegar það brást að koma á fót 22 manna konungkjörinni sveit, þá ætluðu hinir umboðslausu að gera sig sjálfkjörna og -veita sér umboðin sjálfir. Allir vita hvernig það endaði. Foringjar afturhalds- og byltingarmanna tilkynntu há- tíðlega, að Gunnar nokkur frá Selalæk hefði tortímt öllum stór- um áformum. Ævintýri' hinna væntanlegu konungkjörnu var á enda kljáð, hin fyrirhugaða st j órnarbylting af turhaldsmann- anna var að engu orðin, en hvort- tveggja þetta varð aðhlátursefni landshornanna á milli. Nú gengur dómur þjóðarinnar yfir afturhaldsmennina, sem ætl- uðu að verða konungkjörnir. Næstu kosiiingar, Nú standa kosningar til Alþing- is fyrir dyrum. Undirbúningur undir kosningabardagann er þeg- ar haf^nn af öllum flokkum fyrir alllöngu, en hörðust verður sókn- in á kjördegi. Það er afar áríðandi fyrir alla kjósendur að athuga vel atburð- ina á stjórnmálasviðinu, áður en þeir festa atkvæði sitt. Ef allir málavextir eru skoðaðir af kjós- anda og hann kýs síðan eftir beztu sannfæringu, að vel rann- sökuðu máli, er ekki hægt að segja að hann kjósi blindandi. En fari hann aðeins eftir blindri flokkstrú, án þekkingar á mál- efnum þjóðarinnar, er varla hægt að segja að hann noti rétt sinn vansalaust við kosningarborðið. Þessar kosningar, sem nú standa fyrir dyrum, eru án efa þær mikilverðustu, sem enn hafa farið fram á þessu landi, og þess- vegna aldrei nauðsynlegra fyrir alla en nú, að nota kosningarrétt sinn þannig, að hann verði landi og lýð til gagns og hamingju. Mun eg síðar drepa á það, hvers vegna kosningarnar séu svona þýðingar- miklar í þetta skipti. Bardaginn við kosningarnar verður aðallega á milli tveggja flokka. Að vísu leggja fjórir flokkar til orustu, en aðeins tveimur kemur til hugar að ná hreinum meirihluta við kosning- arnar. Annar er íhaldsflokkurinn, sem uppnefndi sig fyrir stuttu »Sjálf- stæðisflokk« (til að dylja innræti sitt!). Það er flokkur kaupmanna, embættis- og stórútgerðarmanna eða yfirleitt hinna efnaðri í þjóð- félaginu. Það er flokkur þeirra manna, sem hafa nóg fyrir sig að leggja. Verkalýðurinn hefir með vinnu sinni, skapað þeim lífsþæg- indin og komið peningavaldinu í hendur þeirra. Það eru menn sem kæra sig ekkert um alþjóðarfram- farir, en vilja sitja rólegir í dún- hreiðrum sínum og láta þræla mikið fyrir sig, fyrir litla borgun. Þessir menn, sem byggja upp áð- urnefndan flokk, vilja veita pen- ingastraumi landsins að sjónum, en láta landbúnaðinn svelta. Þetta er aðalstefna þeirra. Hinn flokk- urinn er Framsóknarflokkuri'nn, flokkur bænda og samvinnu- manna og yfirleitt allra þeirra, sem bera hag alþjóðar fyrir

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.