Dagur - 16.07.1931, Page 3
36. tbl.
DAGUR
139
Fyrir mína hðnd, barna minna
og annara vandamanna, þakka eg
innilega öllum, nær og fjær, sem
veittu aðstoð og sýndu hluttekningu
við andlát og jarðarför konunnar
minnar.
Siglufirði 13. júlí 1931.
Sigurður Egilsson.
Söderbiom erkibiskup var mikils-
háttar vísindamaður, og kveður mest
að rannsóknum hans og ritum um
sögu trúarbragðanna. Svo er sagt,
að föður hans, sem var prestur,
hafi ekki þótt sonur sinn liklegur í
æsku til mikilla afreka, en það fór
á aðra leið. Dó gamli maðurinn
hjá syni sínum f Uppsala biskups-
garði.
Vísindamennska Söderblom's er
að vísu að ágætum höfð, en það
sem sérstaklega hefir aflað honum
frægðar og frama er skörungsskap-
ur hans um forustu til einingar
og bræðralags meðal kristinna kirkju-
deilda. Hefir engum manni orðið
jafn mikið ágengt sem honum í þeim
efnumi Pað sem gerði hann að
slíkum fóringja var máttugur og
hrífandi persónuleiki, frábær lær-
dómur, sálrænn skilningur ásamt
með fágætu hleypidómaleysi i kirkju-
legum efnum og óviðjafnanlegur
áhugi, bjartsýni og óvenjumikið
starfsþrek. Takmark hans var öflug
og bróðurieg samvinna allra krist-
inna kirkjudeilda, til siðbóta gjör-
völiu mannkyni og til bættra kjara
smælingjanna. Hann þreyttist aldrei
á því að brýna fyrir klerkum og
kennidómi, að hlutverk þeirra væri
að gera mannlífið bjart og fagurt.
Taldi hann klerkum skylt að taka
mikinn þátt í félagsmálastarfsemi
þjóðanna. Rígurinn milii kirkjudeild-
anna ætti að hverfa. Trúarbragða-
kerfin væri ekkert aðalatriði.
Árið 1925 var kirkjuþingið mikla
haldið í Stokkhólmi. Sóttu þaðfull-
trúar allra kristinna kirkjudeilda,
nema rómversk-kaþólsku kirkjunnar.
Petta þing var verk Söderblom’s.
Samvinnan milli fulltrúa kirkjudeiid-
anna, er þarna tóku þátt hundruðum
saman í þinghaldi, undir forustu
Söderblom’s, var hin ákjósanlegasta.
En Svíanna mikli höfuðprestur gætti
þess vandiega að ganga á snið
öll trúbragðaleg og pólitísk ágrein-
ingsefni. Hann lagði áherzlu á, að
það væri miklu fleira, sem væri
sameiginlegt, heldur en hitt, sem
sundur dreifði. Og á þeim grund-
velli starfaði þetta kirkjunnar þinga-
þing með farsællegum árangri. ísinn
var brotinn. Samvinna hafin með
fjarskyldum þjóðum og kirkjudeild-
um, sem áður höfðu iöngum litið
hornauga hver til annarar, sakir
kenningakrits og hleypidóma.
í heimalandi sínu var S. mjög
mikils virtur. Átti hann mikinn þátt
í hinni merkilegu ungkirkjuhreyf-
ingu Svia og var mikið lesinn og
vinsæll rithöfundur. — Hann var
ræðuskörungur mikill og mælti jafn
vel á þýzka, franska sem enska
tungu.
Einn af allra mestu mönnum ver-
aldarinnar er með Söderblom til
moldar genginn,
b.
Nátturufrœðing’urinn nefnist
rit eitt, sem Ouðmundur G. Bárð-
arson og Árni Friðriksson byrjuðu
að gefa út fyrir nokkru síðan. Er
svo tii ætlast að út komi af því
minnst 12 arkir á ári, eða sem svarar
einni örk á mánuði, og kostar hver
örk 50 aura eða 6 kr. árgangurinn.
í tímariti þessu eru birtar smá-
greinar við alþýðuhæfi um ýms efni
í dýrafræði, grasafræði, jarðfræði,
landafræði, eðlisfræði, efnafræði,
stjðrnufræði og öðrum greinum
náttúrufræðinnar. I hverri örk eru
og fleiri eða færri myndir efninu til
skýringar. Útgefendur segjast láta
prenta ritið í 2000 eintökum og að
öli þessi eintök þurfi að seljast til
þess að útgáfan geti borið sig og
ritið verði gert sæmilega úr garði.
— Flestir íslenzkir náttúrufræðingar
hafa Iofað að skrifa greinar í ritið,
til þess að efni þess gæti orðið
sem fjölbreyttast.
Af Náttúrufræðingnum eru hingað
komin 5 fyrstu arkarheftin ogflytja
þau margvíslegan og skemmtilegan
fróðleik. Má þar nefna ritgerð um
helíum, aðra um köiiyulæmar, um búskap
náttúrunnar I sjónum, selatárið á Húnaflða
1918, konuríki meðal liskanna, frá Heklu og
Hekluhraunum og margt fieira.
Almenningur ætti sízt að Iáta
undir höfuð leggjast að afla sér
þekkingar í náttúrufræði, þegar þess
er kostur á jafnauðveldan hátt og
nú gefst færi á. Kaupið þvf Nátt-
úrufræðinginn og lesið hann kost-
gæfilega ykkur til menningarauka
og ánægju,
-----o-----
Um stúdenta frá
Akureyrarskóla.
Memitamálaráðið veitir á ári
hverju fjórum stúdentum styrk
til náms erlendis. Að þessu sinni
hlutu tveir stúdentar héðan styrk
þennan, Sigurður Þórarinsson frá
Hofi í Vopnafirði, til náttúru-
fræðináms, og Jón Magnússon
frá Sveinsstöðum í Þingi, til
sænsku náms og sænskra bók-
mennta í Stokkhólmi. Annar
þeirra stúdenta frá Reykjavíkur-
skóla, er styrkinn fékk, var Eð-
varð Árnason frá Akureyri. Hann
stundaði nám hér í Akureyrar-
skóla fimm vetur, en var aðeins
síðasta veturinn í Reykjavíkur-
skóla. Hann ætlar að leggja stund
á símaverkfræði.
Tveir stúdentar héðan urðu
styrks aðnjótandi úr Snorrasjóði,
Ármann Halldórsson frá fsafirði,
til heimspekináms, og Geir Jón-
asson á Akureyri, til sagnfræði-
náms í Oslo.
Ingólfur Davíðsson stud. mag.
frá Hámundarstöðum hefir ný-
lega lokið fyrsta hluta magister-
prófs við háskólann í Kaup-
mannahöfn, í eðlisfræði og efna-
fræði, með mjög hárri fyrstu
einkunn. Nýtur hann styrks í
sumar úr Menningarsjóði til
rannsókna hér á landi.
Sláttur er nú allvíða í byrjun hér um
sveitir. Qrassprettu miðar vel áfram þar
sem jörð er ekkl ikemmd. Verði hagstæð
tíð og nýting heyja góð, getur betur úr
rætzt með heyskapinn en á horfðiit um
tíma,
G ram mofón pIötu r
söngplötur eftir frægustu söngvara heimsins, svo sem: Caruso, Chaliapine,
Hislop, Gigli, Schipa o. fl. Ennfr. ísl. söngvarana: S. Birkis og Pétur
Jónsson o, fl. Fiðluplötur spilaðar af Kreisler, Elman, Heifetz, Marteau,
Johan Nielsen, 12 ára undrabarninu, Menuhin o. fl. Pianosolo-plötur
spilaðar af Backhaus, Cortot, Paderewski, Pachman o. fl. Orkesterplðtur,
meðal annars: »Syrpa af íslenzkum þjóðlögum< safnað og raddsett af
Emil Thoroddsen. Orgel- Cello- og kórplötur, þar á meðal plötur sungnar
af hinum heimsfræga Don-Kósakkakór, sem talinn er meðal frægustu
karlakóra heimsins. Nýjustu dansplötur. Væntanlegar með Dr. Alexandrine
í næstu viku hinar bráðskemtilégu plötur sungnar af Comédia Harmonists
(Quintet). Harmonikuplötur eftir Gellin og Borgström o. fl. Ennfremur
allar nýju íslenzku Columbiaplöturnar. — GRAMMOFÓNAR í miklu úr-
vali, nýkomnir. Ferðafónar frá kr. 65.00 til kr. 145.00. Borðfónar á 145.00
— 175.00 og skápfónar á kr. 300.00. Grammofónverk, tónarmar, diskar,
hljóðdósir, sjálfstopparar, sem má setja á alla fóna. Orammofónnálar.
Hljóðfæraverzlun Ounnars Sigurgeirssonar.
Vikuskýrslur
um slldarleitina frd Flugfélaginu.
I.
Dagana 30. júní til 4. júlí flaug
Súlan síldarflug samtals um 7
tíma um svæðið frá Vestfjörðum
til Skjálfandaflóa. Leitað var á
vestanverðum Húnaflóa norður
með Ströndum, á Skagagrunni,
Skagafirði inn fyrir Drangey og
Málmey, á Eyjafirði og Skjálf-
anda til Húsavíkur. Yfir nokkuð
af svæðinu var flogið oftsinnis.
Engin síld sást enda leitarveður
fremur óhagstætt og tvo síðustu
dagana varð ekkert flogið vegna
veðurs. Skip hafa ekki orðið vör
síldar nema eitt skip veiddi um
300 tunnur á Húnaflóa.
'iá-
n.
Vikuna 5. til 11. júlí flaug Súl- >
an síldarflug 4 daga, samtals um
9 tíma, yfir svæðið frá Húnaflóa
til Eyjafjarðar og þar á meðal
margsinnis milli Akureyrar og
Siglufjarðar. Einnig var flogið út
til þess að athuga erlend veiði-
skip. Síld sást á þessum stöðum:
Undir landi hjá Sölvabakka á
Húnafirði, 10 sjóm. norður af
Skaga, á Haganesvík, undan Dala-
tá og út af Siglufirði; ennfremur
út af ólafsfirði og inni á Eyja-
firði fyrir norðan Hrísey. Flesta
dagana var veður fremur óhent-
ugt til sildarleitar og þrjá dagana
varð ekkert flogið vegna veðurs.
Mörg skip farin til veiða og hafa
aflað vel.
o
Spekingurinn heimskunni, Leo
Tolstoy, segir á einum stað í ritum
sínum, að hamingjuleysi mannanna
komi ekki fyrst og fremst af því,
að þeir vanræki hið nauðsynlega,
heldur miklu fremur af hinu, að
þeir gjöri það sem sé óþarft. Mér
virðast þessi orð spekingsins óvíða
sannast eins átakanlega eins og f
viðhorfi mannkynsins til eiturnautn-
anna.
Sú var tiðin að lítt þótti sæmandi
meðalsnotrum mönnum, að skifta
sér af slíkum málum, en þó er nú
svo langt komið, að barátta er hafin
um heim alian, bæði með lagaboð-
Foto for og efter Brugen
af Hebe Haarcssens. — Dcnne Herrc, 57 Aar, va*
skaldct i ovcr 10 Aar, men en kort Kur med Hebegav
ham nyt, tæt Haar, uden »graa Stænk«.
— Áttesteret vidnefast af Myndighederne. —
Hebevædsken er en Fond af lægekraftige Urteessen*
ser, som ved relativ Samvirke gor Haarbunden sund,
fjemer Haarfcdt og Skæl. standser Haartab og bevlrke*
ny, kraftig Vækst.
Skaldede benytter den forste
Hebe Haaressens, 3»dobbelt stxrk, Kr. 6,00
Hebe do., plus 50 pCt. Antigraat. » 5,00
Hebe Antigraat, mod graa Haar, » 4,00
Hebe Queen, Damcrnes Yndling. » 4,00
Hebe Haartinktur. fin Special . » 3.00
y Hebe Normal, Bornehaarvand, • 2,00
Hebe Champoo. antiseDtisk. dt. Pk. » 0.25
AUe i store Flasker. Faas overalt. Skriv til
HEBE FABRIKKER, Kabenhavn N.
um og frjálsri starfsemi, á móti sum-
um tegundum eiturnautna, t. d.
áfengi og opiumnautn. En éin er
sú tegund eiturnautna, sem nú á
20. öidinni fer sigurför um allan
heim og á sér dýrkendur jafnt í
hreysi sem höllum, það er tóbaks-
nautnin. En hér mun fara enn sem
fyr, að lítt þyki eyðandi hugsun á
slíka smámuni, ekki sizt nú þegar
»stóru málin*, stjórnmálin — fylla
hvers manns hug. En hvað er stórt
og hvað er smátt? Einmitt ramm-
vitlaust mat á þvi er meginorsök
flestra þeirra óheilla, sem við látum
apast að bæði i einstaklingslifinu
og því opinbera. Úr hinum mörgu
þráöum, er okkur virðast svo nauða-
ómerkilegir, er sá mikli þáttur slung-
inn, sem við í dagiegu tali nefnum
»lífið«, hvort sem er einstaklinga
eða heilla þjóða. Eiturnautnirnar eru
ein tegund slíkra þráða, sem hvorki
gjöra lífið sterkara eða veita því
meira gildi, heidur hið gagnstæða,
og með fullri virðingn fyrir »stóru
málunumc ætla eg að verja örfáum
línum til að minnast á eina tegund
þessara nautna, tóbaksnautnina, jafn-
vel þótt sumir haldi þvi fram að
enga þýðingu hafi að berjast á
móti þessu, siik hefir skoðun manna
ætíð verið, þegar byrjað hefir verið
á að venja menn frá einhverri villi-
mennsku.
En það, sém kemur mér sérstak-
lega til að rita þessar Iínur, er hin
sívaxandi tóbaksnotkun barna og
unglinga. Fyrir mér er þetta þvf
fyrst og fremst uppeldislegt vanda-
og alvörumál. Tóbaksnotkun er
blettur villimennsku á mannkyninu
og þessvegna til skammar. En þegar
hún hefir hertekið börnin og ungl-
ingana, er hún orðin að alheims-
böli eins og reynt mun verða að
sýna fram á,
(Framh.).
Hmnes J. Magnússoru