Dagur - 10.09.1931, Side 1

Dagur - 10.09.1931, Side 1
D AGUR tamur út á hverjum fimtu- dep. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir £ júlí. Gjaldkeri: Ámi Jóhanns- lon I Kaupfélagi Eyfirfr- inga. Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 8. Talsimi 118. ” Uppsögn, bundin við ára< mót, sé komin til af- greiðslumanna fyrir 1. dss. .............................................. XIV. ár. T Akureyri, 10. september 1931. 44. tbl. Hérmeð tilkynnist, að 1. þ. m. andaðist að heimili sínu hér í bæn- um Jón Jónsson (rá Bændagerði. — jarðarförin er ákveðin mánudaginn 14. sept. n. k. og hefst með húskveðju á heimilinu, Oddeyrargðtu 10, kl. 1 e.h. Að henni lokinni verður Ifkið flutt til greftrunar að Lögmannshlíð sama dag. Aðstandendurnir. Kjötsalan. Markaðshorfur vœnkast. F*að er siðvenja erlendis, að op- inber verðskráning landbúnaðaraf- urða fari fram við og við. Jafnaðar- lega er þessi verðskráning nokkru lægri en heildsöluverð hinna skráðu vara. T, d. má nefna, að skráning á dðnsku smjöri hefir verið 6 au. lægri á kg. en heildsöluverðið. Eins og kunnugt er, hefir verðfall á land- búnaðarafurðum verið geysi mikið erlendis á undanförnum tímum. T. d. var verðskráning á fleski ekki alls fyrir löngu komin niður í 72 au. á kg. og skráning á smjöri niður í 1.82 kr„ en nú á siðustu tímum hefir orðið nokkur breyting & þessu til hins betra, og það svo, að skráning á smjöri var, síðast er fréttist, stigin upp í 2,12 kr. og skráning á fleski upp í 1 kr. Hvort hér er um varanlega verðhækkun að ræða, eða skyndisveiflu einungis, verður reynzlan að leiða f Ijós, en vfst er um það, að danskir bændur horfa nú nokkru vonglaðari fram á veginn, en meðan skráningin var sem lægst. Jafnaðarlega er litið svo á.að verð- skráning flesksins sé nokkuð ábyggi- legur grundvöllur undir almennum kjötsöluhorfum. Lágt eða fallandi verð á fleski bendir til óvænlegs kjötmarkaðs yfirleitt. Stígandi verð á fleski ber vott um vænkandi sölu- horfur á öðru kjöti. Fleskverðið er þannig talinn einskonar kjötmark- aðsviti á hverjum tíma. íslenzkir kjötframleiðendur hafa verið og eru mjög uggandi um sölu á þessari framleiðslu sinni í ár, og það ekki að ástæðulausu. Hin hækkandi verðskráning flesks- ins, sem getið er hér að framan, ætti að geta gefið mönnum vonir um að eitthvað kunni að rætast betur úr með sölu þessarar framleiðslu en vænzt hefir verið hingað til. Þó er alltaf hyggilegt að gera sér ekki of bjartar vonir, en bíða átekta. En hér kemur annað til greina, sem bendir i sömu átt með vænk- andi kjötsöluhorfur. í sjálfu mark- aðslandi frosna kjötsins, Englandi, hefir nýlega farið fram skráning á þeirri vöru.ogerhún nokkru hærri en áður hefir vcrið. Ber þannig enn að sama brunni með það, að leyfilegt sé að ætla, að kjötsöluhorfurnar séu að fara batnandi. A ofangreindar staðreyndir utan úr verzlunarheiminum virðist rétt að benda kjötframleiðendum. Á þess- um tímum ættu þeir að varast að leyfa verzlunarbröskurum að smeygja sér inn i kjötsöluna, til þess að valda þar truflunum og skipulags- glundroða. ----o---- NauðsvnjamaL Fátt hefir staðið meira f vegifyr- ir aukinni túnarækt hjá bændum undanfarið, en vöntun á áburði. Ymsir dugnaðarmenn í bændastétt- inni hafa klifið þritugan hamarinn til að brjóta land til nýræktar, en þá hefir jafnan, fram undir þenna tíma, viljað stranda á þvf skerinu, að áburð hefir skort til að koma landinu f fulla rækt. Eftir stjórnarskiftin 1927 hefir þetta þó breyfzt til batnaðar fyrir aðgerðir Framsóknarstjórnarinnar, eins og svo margt annað er snert- ir landbúnaðinn. Rikið hefir nú tekið að sér einka- sölu á tilbúnum áburði og gert ráðstafanir til að lækka verð á hon- um, meðal annars með því, að greiða flutningskostnað áburðarins bæði á skipunum og jafnvel frá kaupstöðunum inn í sveitir. Petta, meðal margra annara ráðstafana Framsóknarflokksins, hefir orðið til þess, að víða hafa tún og brotið land aukist á 4 sfðustu árum um helming eða meira en áður hafði verið á þúsund árum. Að sama skapi hefir notkun tilbúins áburðar margfaldast á þessum árum. En þessi miklu innkaup á tilbúnum á- burði kosta talsvert fé, sem allt fer út úr landinu. Nú er kreppa öf heim allan, og allar þjóðir keppast við að flytja sem minnst inn og búa sem best að sínu til að verjast krepp- unni. Petta þurfum við að gera svo sem framast er unt. Eitt af því, sem við ættum að hætta að láta fé fyrirútúr landinu, ertilbúinn áburð- ur. Enginn skilji þó orð mfn svo að eg vilji láta notkun tilbúins á- burðar minnka í landinu, heldur þarf hún þvert á móti að vaxa ennþá meira. En við eifluni að framleiða ábuiðinn í landinu sjálfu, þvf eg hygg, að við stöndum þar sæmilega vel að vígi. Við höfum jötunafl foss- anna til að knýja áfram áburðarverk- smiðjurnar. Ekki vantar andrúms- loftið hér, sem að 3I* hlutum er köfnunarefni (N— Nitrogenium). Við höfum líka nóg kalk (Ca™ Calsium) og eru þá upptalin þau hráefni, sem til þess þarf að framleiða köfnunar- efnisáburð f kalksamböndum, t. d. kalksaltpétur (Ca (N03)2) o. fl. teg- undir kalkköfnunarefnis; en það er einmitt köfnunarefnið, sem tilfinn- anlegast vantar vfða hér á landi í jarðveginn. Af þessu er auðsætt að ekkert er því tif fyrirstöðu, frá nátt- úrunnar hendi, að framleiða köfn- unarefnisáburð hér á landi. Hvað snertir fosforsýru og kalíáburð þá er framleiðsla á þeim tegundum erfiðari hér vegna hráefnaskorts, en þá er þess að gæta, að beinamjöl úr fiskbeinum getur mikið bætt úr fosforsýruskorti jarðvegsins. Hér er talsvert framleitt af beinamjöli úr hertum ósöltum fiskbeinum og þyrfti að rannsaka áburðargildi þess og gera bændum fært að nota það meir en verið hefir. T. d. væri hægðarleikur að láta síldarverksmiðju ríkisins mala fiskbetn að vorinu og láta svo bændur fá mjölið með sannvirði; þetta mundi líka skapa nokkra atvinnu og verðmæti úr beinunum. Eins og nú er ástatt í landinu virðist í fljótu bragði ekki vera tilfinnanleg þðrf á innlendri áburðarframleiðslu, bændur fá á- burðinn fremur ódýran utanlands frá, eins og eg hefi getið hér að ofan. En auk þess, sem það er ó- hagstætt á kreppuárum, að flytja inn þær vörur, sem má framleiða i land- inu sjálfu, þá ber þess að gæta að á ófriðarlfmum er oft aíls ekkki hægt að llytia áburð til landsins vegna siglingateppu. Ef t. d. heimsstrið bæri að hönd- um, sem búast má við þá og þeg- ar, hvað yrði þá um alla þánýrækt sem komin er i landinu á síðustu árum? Hún mundi brátt eyðileggj- ast af áburðarskorti, er ekki væri hægt að flytja inn áburð vegna siglingateppu. Pá væri líka of seint að byrja á áburðarframleiðslu, enda óvíst að vélar fengjust þá til slíks nema með afarkostum. Ekkert er okkur meir áriðandi á komandi ár- um, en að tryggja sem bezt land- búnaðinn á öllum sviðum, svo að hann verði fær um að fleyta þjóðar- skútunni yfir kreppurnar og rétta öðrum atvinnuvegum hjálparhðnd er að þeim kreppir. Til þess að þetta geti orðið, má ekki horfa i neinn kostnað. Ein sú bezta bak- tryggiiíg, sem landbúnaðurinn get- ur eignast, er skynsamlega rekin innlend áburðarframleiðsla. Pað fé, sem í það væri varið, lenti líka inn i landinu sjálfu og væri þá hægt að skaffa mðrgum atvinnu, sem nú ganga atvinnulausir. Ef til vill mætti lika verja nokkru af fé, sem Alþingi veitir nú tii atvinnubóta, i vinnu- iaun handa verkamönnum við stofn- un slíks fyrirtækis og væru þá tvær flugur slegnar i einu höggi. Við Framsóknarmenn viljum láta þunga- miðju þjóðlifsins halda áfram að vera i sveitum landsins. Til þess að það geti orðið þarf á allan hátt að gera landbúnaðinn tryggan, svo hann geti skapað lifsskilyrði fyrir sem flesta i sveitunum. Þess vegna eigum við helzt að hefjast handa á næsta vori og koma á stofn verksmiðju til að framleiða tilbúinn áburð. Það er lifsnauðsyn fyrir landbúnaðinn i framtiðinni. P. t. Akureyri 16. ágústl931. Jón Horman Jónasson frá Hróarsdal. o Heimskringla frá 1. júlí þ. á. skýr- ir svo frá: »Blað frá Humboldt, Sask., fer svofeldum orðum um söng landa vors, Sigurðar Skagfields, sem nú er að syngja þar um slóðir: »Það var söngur, sem þess var virði að hlýða á«. »Eg þreytist ai- drei á að hlýða á slíkan söngvara<; »hann er annar McCormack«. »Eg teldi ekki eftir mér að ferðast 100 milur til að heyra hann syngja*. »Bezti söngur, sem eg hefi nokkru sinni heyrt«. Þessi og því um lik voru ummæli á vörum manna hér, eftir að hafa hlýtt í fyrsta skifti á Mr. Sig. Skagfield syngja. En það var á árssamkomu, sem haldin var á St. Peters College Humboldt. Á söngskránni voru nokkur lög spil- uð af College Orchestrunni og mjög mikið og fjölbreytt úrval einsöngva, sungin af hinum fræga fsienzka tenórsöngvara.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.