Dagur - 29.10.1931, Side 2

Dagur - 29.10.1931, Side 2
198 ÐXXrOB 51. tbl. BHIHHIIHmHBIllHíi ,MASONITE‘ ' er ómissandi við allar húsabyggingar. IHart »Masonite« í skilrúmsveggi. [ Hálfhart —»— undir gólfdúka. Lint —»— til einangrunar innan á útveggi. H Sendið fyrirspurnir og vér munurp senda yður um hæl bækling um notkun og meðferð þessa efnis. Kaupfélag Eyfirðinga. Ðyggingavörudeildin. HiiiliiillllllllllllllllÍ My ndastof an Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga frá kl. 10—6. Guðr. Funcfi-Rasmussen. verið eins mikil og hún hefir mest veriðásíðariárum (um 16 af þúsundi), þá yrði sú fjölgun ekki nema um 1700 manns. Hefði þá afgangurinn, um 600 manns, átt að flytjast inn i landið umfram þá, sem út úr þvi hafa fiutzt. En það er harlaósenni- legt. Liklega iækkar talan eitthvað dálitið við nánari rannsókn (tvítain- ing), en annars er talan við aðai- manntalið æfinlega hærra heldur en við ársmanntölin, þvi að þau eru ekki eins nákvæm og eitthvað af mannfjöidanum fellur þar undan. Virðist þetta einkum eiga sér stað í kaupstöðunum, en lítið sem ekki í sveitunum. Einkuin virðist fjölg- unin vera tortryggilega mikil á Ak- ureyri og er ekki ólíklegt, að það stafi að nokkru af þvi, að vantað hafi þar inn í ársmanntalið áður. Á síðastliónum 10 árum, eða siðan næsta aðalmanntal á undan fór fram, hefir mannfjöldinn sam- kvæmt bráðabirgðayfirlitinu vaxið um 13954 manns, eða 14.7%. Sam- svarar það þvi, að árieg fjölgun hafi verið að meðaltali 1.38% þessi 10 ár. Er það töluvert meiri fjölgun heldur en á undanförnum áratugum. 1910—20 var árieg fjölgun að með- aitali 1.06%, 1901-10.0.91%, 1890 —1901 0.92% og milii 1880—90 fækkaði fólkinu (vegna Vesturheims- ferða). Öll fjöigun landsmanna á þessum 10 árum hefir lent hjá kaupstöðun- um 8, sem nú eru, og meira tii, þvi að i sýslunum hefir fólkinu fækkað um rúml. 2000 manns (nái. 3V3%). Pó hefir orðið nokkur mannfjölgun i 6 sýslum (Oullöringu- og Kjósarsýslu, Borgarfjarðarsýsiu, Strandasýslu, Eyjafjarðarsýslu og Suður Múlasýslu). í einni af þessum sýslum, Oullbringu- og Kjósarsýslu, hefir fjöigunin jafnvel verið töluvert mikil, um 900 manns (eða yfir 20°/o). En við nánari athugun sést, að mestöll fjölgunin kemur á verziunar- staðina Skildinganes og Keflavík (um 760 manns). í Borgarfjarðar- sýslu hefir fjölgunin verið rúml. 8% eða um 200 manns. EníAkra- nesverzlunarstað hefir fjölgað um 340 manns, svo að annarsstaðar i sýslunni hefir orðið ntannfækkun; f hinum sýslunum hefir fjðlgunin orðið mjög lítil (undir 4%) og mun mest stafa frá verzlunarstöðum. í 12 sýslum hefir orðið mannfækkun á síðasta áratug, tiltölulega mest i Árnessýslu, um 800 manns (14%), en þar næst i ísafjarðarsýslu og Dalasýslu (12%) og Húnavatns- sýslu (10%). f kaupstöðunum hefir fólkinu fjðlgað um 16 þús. manns á sið- astliðnum áratug, % af þessari mannfjölgun hefir lent á Reykjavik, en þriðjungurinn á hinum kaup- stöðunum 7. í samanburði við mannfjöldann, sem fyrir var við byrjun tímabilsins, hefir mannfjöig- unin verið mjög mikil í þeim öllum, nema Seyðisfirði. Mannfjðldi i verzlunarstöðum méð yfir 300 ibúa var talinn sem hér segir: Keflavík......................828 Skildinganes..................522 Akranes 1270 Borgarnes....................<418 Sandur........................550 Ólafsvik......................440 Stykkishólmur <<,,,. 642 Patreksfjörður ...... 606 Bíldudalut............: . 323 Pingeyri í Dýrafirði .... 360 Flateyri i Önundarfirði . . . 327 Suðureyri i Súgandafirði . . 356 Boiungarvik................. 688 Hnifsdalur....................380 Blönduós......................324 Sauðárkrókur..................775 Ólafsfjörður..................539 Hrísey . . ...................318 Húsavík ........ 889 Eskifjörður...................748 Búðareyri i Reyðarfirði . . . 311 Búðir í Fáskrúðsfirði . . . 630 Stokkseyri ....... 521 Eyrarbakki............i . 600 fbúum þessara verzlunarstaða hef- ir fjölgað alls um 2045 á áratugnum 1920—30. Pessir verzlunarstaðir eru allir taldir með sýslunum, en samt hefir ibúum sýslnanna fækkað um rúmlega 2000 manns á áratugnum. Hefir þvi fólkinu fækkað um rúm- lega 4000 manns í sveitunum, þegar stærri verzlunarstaðirnir (með yfir 300 ibúa) eru ekki taldir með. Hagtfðindi. ■ -.0 Minningarorð. Látinn er 10. þ. m. að Mýri i Bárðardal, Karl Friðriksson, hátt á áttræðisaldri. Pingeyingur að ætt og fóstursonur héraðshöfðingjans Sig- urðar Ouðnasonar að Ljósavatni. Karl var kvæntur Pálinu dóttur Jóns Benediktssonar á Stóruvöllum, bjuggu þau hjón þar lengi og var Karl oft kendur við þann bæ. Er Páfína dáin fyrir 2 árum. Mér verður að renna hugan- um til þess, að næstliðin missiri hafa látist 2 aldurhnignar konur í Bárðardal, sem á mínum bernsku- og unglingsárum veittu forstöðu einhverjum stærstu og umsvifamestu heimilum sveitarinnar, mikilsmetnar atgjörfiskonur, að nú, að entu starfi hefir eigi þótt ómaksins vert að minnast þeirra einu orði f norð- lenzku blöðunum; hygg eg þó margt skráð sem síður skyldi. — Hefi eg hér í huga Páiínu konu Karls og Jakobinu konu Jónasar á Lundar- brekku. — Pykir mér eigi hlýða að sama þögn riki um minningu Karls. Margt breytist frá fyrstu sýn, menn og mannaverk. Karl var eigi mikill fyrir mann að sjá, smár vexti og eigi talinn fríðleiksmaður, af þeim er litið þektu hann, en kunn- ugum fanst jafnvel hið gagnstæða og vist er ura það að fjölmargt var ánægjulegt i fari mannsins. Hann var fjörmaður, leiftursnar f hreyfingum en þó nettur í fram- göngu og. viðmótsþýður, skarp- greindur, skýr og ákveðinn i máli og orðhagur, .srniður góður og lék hvert verk í hendi, skrifaði prýðilega rithönd og raddmaður ágætur. Kímni var honum iagin og létt og óþvingað spaug. Pótti gott með honum að vera og vinsæll var hann um fram flesta menn. Mikill >selskapsmaður«, sem svo er kallað á yngri árum, og hneigður mjög til vins, eins og fleiri i þá daga, en aidrei vissi eg miklu skeika um snyrtimensku hans, þrátt fyrir það. Ekki var Karl af almannarómi EFNAGERDAR-VHRUR eru þekktar um allt land, vörugæði og verðlag viðurkennt af öllum sem reynt hafa íslendingar 1 Kaupiö íslenzkar vörur. Umboðsmaður vor á Akureyri ér Eggert Stefánsson Brekkugötu 12. — Sími 270. H|f Efnagerð Reykjavíkur. settur á bekk með miklum búmönn- um, þótti mörgum honum græðast minna fé en efni stóðu til. Ekki deili eg um það, en bendi á hitt, er eg sannast veit. Hann var vand- ur að virðingu sinni, sem meðal annars kom fram í því, að hann fór vel með sína jörð, vel með sínar skepnur og vel með það fóik, sem hjá honum vann. Var skiiamaður, er galt hverjum sitt og meira þó. Mat meira en eigin hagsmuni vel- liðan smælingja og einstæðinga. Skylduómegð var ekki mikil á þeim hjónum, Karli og Pálfnu, þvf þau áttu aðeins einn dreng, Jón, sem nú býr á Mýri. Annan dreng fóstruðu þau upp og komu til mennta, Karl Finnbogason nú skólastjóra á Seyðisfirði. Margt gamalmenna og umkomu- lausra barna átti athvarf og dvðldu árum saman á heimilinu, var á orði haft, nærgætnin, kurteisin og hlýjan, sem Karl miðlaði þessu fólki Jafningjar Karls urðu þess varir að lundin var óþolin og að honum var vandgert til hæfis. Störf hans öll voru drengileg, hvort heldur þau voru unnin f þágu heimilisins eða sveitarinnar. 18. okt, 1931. Þorl. Maiteinsson. ---—O------- Simskeyti* (Frá FB). Rvík 27. okt, London: Almennar þingkosning- ar fara framídag. Kosningabardag- inn harðari en nokkru sinni áður. Búist er við meiri þátttöku en dæmi eru tii við fyrri kosningar. Kosn- ingahorfurnar taldar þannig, að þjóðstjórnin vinni. Frambjóðendur eru alls 1293, þar af 62 konur. Fyrstu úrslit væntanleg í kvöld. Tollverðirnir hér f Reykjavik fundu sjö hálfflöskur af whisky f Botnfu i fyrrakvöld. skipsþernan befir játað að vinið væri eign sín. Hefir hún hlotið 200 kr. sekt. Olsen veitingamaður á hótel Gott Ijós.—— Góð vinna. iltpÉ!) ; nvy, 1 Mj£&.: — aukin framleiðsla ’ — meiri gæði — minni eyðsla — færri slys Látið sérfræðinga koma fyrir hinum rétta Ijósaútbúnaði

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.