Dagur - 21.01.1932, Blaðsíða 1

Dagur - 21.01.1932, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- *on í Kaupfél. Eyfirðinga. Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XV ár. Akureyri, 21. janúar 1932. 3. tbl. Jarðarför Hinriks B. Péturssonar trésmiðs fer fram laugardag- inn 23. þ. m. og hefst með húskveðju að heimili hins látna, Gránufélagsgötu 33, kl. 1 e. h. Börn og tengdadœtur. Eiðaskóli. Skýrsla um Alþýðuskólann á Eiðum skólaárið 1930—1931 hefir Degi borizt fyrir nokkru. f efri deild voru 15 nemendur, en 21 í yngri deild. Kerinaraskifti urðu á þá leið, að Hólmfríður Árnadóttir og Guðgeir Jóhannsson hættu störfum við skólann, en í stað þeirra voru þeir Eiríkur stúdent Magnússon frá Akureyri og Þór- arinn guðfræðikandidat Þórarins- son frá Valþjófsstað settir kenn- arar við skólann. Kennslugreinar voru: islenzka, íslandssaga, mann- kynssaga, trúarbrögð, stærðfræði, eðlisfræði, grasafræði, dýrafræði, heilsufræði, landafræði, félags- fræði, danska, enska, teiknun, söngur, leikfimi, hannyrðir. Auk þessa flutti skólastjórinn 1—2 er- indi á viku um trúarbrögð, lífs- skoðanir og menningu fyrir báðar deildir sameiginlega. Til fyrirlestranámskeiðs við skólann var stofnað snemma í febrúar. Þrátt fyrir það að illfært var um sveitina vegna snjóa, sóttu hátt á annað hundrað manns að Eiðum þessa dagana. Voru mörg erindi flutt á námsskeiði þessu um margvísleg efni. Ennfremur var námsgestum skemmt með söng, upplestri, gamanleikjum o. fl. Allir nemendur eldri deildar skólans tóku burtfararpróf. Hlutu 12 þeirra 1. einkunn, þar af 4 á- gætiseinkunn, en 3 aðra einkunn. Á þingi 1930 var veitt fé til nýrrar vatnsleiðslu í skólann og var að henni unnið og verkinu lok- ið á síðastl. sumri. Var þetta hin mesta nauðsyn, því að ónógt neyzluvatn og erfiðleikar í sam- bandi við það hefir bagað skólann í mörg undanfarin ár. En ennþá skortir rafmagn til ljósa og suðu í skólanum. Fæðiskostnaður pilta varð að þessu sinni kr. 1,96 á dag, en stúlkna kr. 1,72. Málfundafélag skólans starfaði eins og áður. Á fundunum voru rædd ýms mál, svo sem skólamál, bindindismál, um skemmtanir, fornbókmenntir íslendinga o. fl. Félagið gaf út blað, er nefnist Helgi Ásbjarnarson, og var það lesið upp á sunnudagsfundum. Skemmtanir ýmiskonar höfðu menn í skólanum, svo sem dans, vikivaka, fimleikaæfingar, glím- ur og knattspyrnu. Skólalífið virð- ist hafa verið hið ánægjulegasta á allan hátt, enda mun leitun á jafn fögru og skemmtilegu heim- ilislífi eins og þar sem skóla- stjórahjónin á Eiðum eiga húsum að ráða. Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir úr Reykjavík dvaldi um tíma á Eiðum þenna vetur og flutti þar nokkur erindi. Hefir hún skrifað grein í eitt sunnanblaðanna um veru sína þar og kynni þau, er hún hafði af skólanum. Segir þar meðal annars: »Skólastjórinn á Eiðum er nú síra Jakob Kristinsson; hygg eg að óhætt sé að segja, að honum hafi tekizt á þeim þremur árum, sem hann hefir haft skólastjórn- ina á hendi, að ávinna sér hylli Héraðsbúa og elsku nemenda sinna. Varð eg þessa mjög vör í vetur vegna þess að til orða kom, að hann segði af sér skólastjórn- inni, og eg var einmitt á ferðalagi um sveitina á þeim tíma, sem það kvisaðist fyrst og heyrði því mik- ið um það talað. Var sorg manna almenn yfir því, ef skólinn ætti nú svo fljótt að missa hans við og fleiri en einn bónda heyrði eg segja, að þá létu þeir ekki börn sín í skólann fyrst um sinn. En þegar talað er um skólastjórn síra Jakobs, þá má ekki gleyma því, hve ágæta og sér samhenta konu hann á, þar sem Helga Jónsdóttir er. Hún er svo yfirlætislaus, að vel getur verið, að ókunnugir taki ekki eftir því í fyrstu, hversu mjög starfs hennar og áhrifa gæt- ir í skólanum og öllu skólalífinu. Áður en hún giftist, var hún skólahjúkrunarkona, kemur sú þekking hennar sér vel á Eiðum, þar sem svo langt er til læknis, enda er ráða hennar leitað ekki eingöngu af skólafólkinu á Eiðum, heldur einnig af mörgum ná^ grannanum«. Um skólalífið segir frú Aðal- björg meðal annars: »Skólalífið á Eiðum er afar frjálslegt. Virtist mér mest ein- kenna það ástúð og hreinskilni, bæði á milli nemenda og kennara. Það var ekki verið að fela neitt og það virtist vera gengið að því vísu, að allir væru fullir af vel- vild hver til annars...« Þar sem slíkur andi, sem hér er lýst, ríkir í skóla eða á heimili, þar er allt með feldu og á réttum kili, hvað sem öllum prófeinkunn- um líður. Skammt norðan við Eiða er all- stórt stöðuvatn. í því er hólmi einn örskammt frá vesturbakka þess. Þar er skógargróður marg- breytilegur, mikill og fagur. Þeg- ar út í Eiðahólma kemur, angar að vitum manns skógarilmur og blómskraut hrífur augað. Þægi- legt fuglakvak berst að eyrum ut- an af vatninu. Þarna er einn dýrð- legasti staður til sumardvalar, sem hægt er að hugsa sér. Bros- andi náttúran býður þar aðkomu- manninum faðm sinn, ljúf og ást- úðleg. Skógurinn veitir ágætt skjól gegn næðingum. Eiðahólmi ætti það skilið, að ítarlegri lýsing væri af honum rituð, en hér eru tök á. En því er hann nefndur í þessu sambandi, að allir þeir, sem menntun .og menningu unna, munu óska þess einhuga, að Al- þýðuskólinn á Eiðum megi verða vermireitur fyrir andlegan gróð- ur i sálum þeirra æskumanna, sem þangað leita, að sá sálargróður verði hliðstæður gróðrinum og fegurðinni í ríki náttúrunnar i Eiðahólma. -----o------ Að utan. Ritstjóri »Dags« hefir farið þess á leit við mig, að ég flytti lesendum blaðs- ins erlendar fréttir, eftir því sem færi gefst. Er þessi grein upphaf þeirra frétta. Sigfús Halldórs frá Höfnum. * * * Fréttaritari New York stór- blaðsins Herald Tribune, sá er bú- settur er í Berlín, lýsir mjög átak- anlega ástandinu í Þýzkalandi, í grein, ritaðri skömmu fyrir jólin. Þrettán ár eru nú liðin síðan Þjóðverjar losuðu sig við keisar- ann og áhangendur hans; gjör- breyttu um stjórnskipulag í þeirri von, að sigurvegararnir, fjand- menn þeirra, myndu gefa þeim grið og frið gegn sæmilegum og sanngjörnum skilmálum. En eftir að hafa notið Versalafriðarins í þrettán ár, ofan á ófriðarhörm- ungarnar, er ástandið verra í Þýzkalandi en það hefir verið síð- an 1806, eftir orustuna við Jena, eða jafnvel síðan að þrjátíu ára stríðið geysaði yfir landið. Um miðjan nóvember voru 4.600.000 atvinnulausir samkvæmt opinberum skýrslum og haft eft- ir Dr. Brúning, ríkiskanzlara, að hann búizt jafnvel við 7.000.000 atvinnuleysingjum fyrir vetrarlok. Strætin í Berlín eru troðfull af mönnum og konum, er reyna að selja eldspýtur eða skóþvengi, til þess að ná í nokkra aura fyrir mat, ef það þá ekki blátt áfram betlar. Aðrir slangra um húsa- garða, syngjandi eða með ein- hverja hljóðfærisnefnu, í von um að brjóstgóðir húsabúar fleygi í þá fáeinum koparhlunkum. Fall- byssuvagnar þjóta iðulega um strætin, ekki til þess að bæla nið- ur eitthvert minniháttar upp- hlaupið, þótt þau séu daglegir viðburðir, heldur til þess að safna gömlmn og slitnotuðum fataræfl- um handa aumustu allsleysingj- unum. Kauphöllin hefir lengst af lok- uð verið síðan í júlímánuði. Þrátt fyrir það og síauknar söluhöml- ur á útlendum gjaldeyri, hefir gullið flætt til útlanda svo að gull- forði ríkisbankans (Reichsbank) var í nóv. kominn niður í 27% í stað 40%, er hann mátti minnstur vera, samkv. fyrirmælumlaganna. Kaup hefir farið sílækkandi, enda hefir fjárm.ráðgjafarnefnd sú, er ríkisstjórnin skipaði sér til að- stoðar haldið hvern fundinn á fætur öðrum fyrir luktum dyrum til þess að ráðgast um hvernig færast sé að lækka í einu kaup og vöruverð, svo að Þýzkaland fái haldið því meti, er þjóðin hefir sett undanfarið í útflutningi af- urða. Kjnúið hvössum spora nauð- synjarinnar á því að ná í sem mest af erlendum gjaldeyri, hefir Þýzkaland með þessu meti skák- að bæði Bretlandi og Bandaríkj- unum, er til skamms tíma hafa mest flutt út af iðnaðarvarningi og öðrum afurðum. Fyrstu tíu mánuði ársins sem leið var verzl- unarjöfnuður Þjóðverja þeim í hag svo að nam 2,358,000,000 mörkum. Af þeirri gífurlegu upp- hæð færði októbermánuður þeim í

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.