Dagur - 03.03.1932, Blaðsíða 3
9. tbl.
DAGUR
35
Tvær íbúðir
og herbergi fyrir einhleypa til leigu
á bezta stað i bænum.
Ingimundur Árnason.
finninga; verður þar að gæta hófs.
Hreinn söng sinn hluta söngskrár-
innar á mðrgum köflum vel, og
»duettarnir» eftirB. O. tókustprýði-
lega hjá þeim báðum, einkum var
sá fyrri afbrigðavel sunginn. »Duett-
inn< eftir Verdi, úr »La Traviata«,
var síðasta lagið á söngskránni og
það langvandasamasta i meðferð.
Hefir það lag oft heyrzt í grammó-
fón sungið af heimsfrægum söngv-
urum, og vakti það því forvitni; Þar
náði Jóhanna sér verulega niðri.
>KoIoraturinn< í sðng hennar var
með ágætum, en aftur á móti tókst
mótsöngvara hennar ekki fyllilega
að halda sinu hlutverki uppi, vant-
aði nægilega söngleikni til þess,
Samt sem áður var mjög áhrifamik-
ið að heyra lag þetta.
Tvö aukalög voru sungin og
mörg voru lögin endurtekin. Fyrir
margra hiuta sakir var söngskemmt-
un þeirra Jóhönnu og Hreins ein-
hver hin allra merkiiegasta, er hér
hefir verið kostur á um langt skeið.
Og vafalaust fá þau húsfylli, ef þau
láta til sin heyra aftur. Pað eiga þau
bæði skilið.
Frú Porbjðrg Halldórs var við
hljóðfærið, og er leikni hennar á
þvi sviði alkunn.
Óheyrandi.
-----0------
Ekki handbœrir.
>(slendingur< er nú með öllu
horfinn frá að halda þvf fram, að
sjóðeignir K. E. A, séu minni en
þær hafa verið taldar fram i Degi,
þó að blaðinu hafi áður farist svo
orð, að Dagur sæi sjóði þessa með
gleraugum, er >stækki jafnan tals-
vert«.
Prátt fyrir þetta segir »ísl« að það
sé »hréin og klár lygi«, að hann
hafi nokkurntíma haldið þvi fram
eða gefið það i skyn, að sjóðeignir
kaupfélagsins væru minni en Dagur
befir skýrt frá. En hvað átti blaðið
þá við með stækkandi gleraugum, ef
það er ekki að gefa þetta i skyn?
»ísl.« segist hafaáttvið það, »að
sjóðirnir væru ekki handbært fé«.
Dálagleg skýring 1 Hvernig áttu sjóð-
irnir að stækka i augum nokkurs
manns fyrir það?
En hvað meinar þá »ísl«. með
þvi, að sjóðirnir séu ekki handbært
fé? Sýnilega veit blaðið ekki, að úr
sjóðeignum þessum er iðulega greitt
fé eftir þar um settum reglum. Eða
getur ísl. bent á nokkurt dæmi þess
að staðið hafi á greiðsium úr sjóð-
um K. Eí A., þar sem reglugerðir
sjóðanna eða samþykktir félagsins
hafa mælt svo fyrir? Oeti blað
kaupmanna ekki bent á nokkurt
dæmi þessa, hvað er það þá að
blaðra um, áð sjóðirnir séu ekki
handbærir?
Látin er á Syðra-Laugalandi Þóra Árna-
dóttir, ekkja Jóhanns Helgasonar og móðir
Björna bónda þar og þeirra Bystklna. Htin
vwr hálfáttraeð að aldri,
Opið bréf
til ritstjóra »Alþýðublaðsins«.
Hr. ritstjóri!
Fimmtudaginn 31. des. s. 1. stendur
eftirfarandi klausa í blaði yðar:
»Sparnaðarráðstöfun ?
Blaðið »Dagur« á Akureyri flytur svo-
hljóðandi fréttir úr Grýtubakkahreppi:
íTrúIofun: Ungfrú Hólmfríður H. Björns-
dóttir, Nolli og Ingólfur Benediktsson^
Jarlsstöðum*.
Sennilega er þetta frétt sem hefir farið
óvart i blaðið núna, en átt að koma í því
1. apríl, því það væri meiri sparnaðarráð-
stöfunin, ef tveir menn opinberuðu i einu
með sömu stúlkunnic.
Eg get nú ekki annað en talað til yðar
nokkrum orðum um þessa yfirlýsingu, ef
hægt er að sfelja slíkum óþverra svo heið-
arlegt nafn, og fá að vita hvað meint er
með þessari klausu, þv! vitanlega er það
öllum heilvita mönnum hulið, en eg sé
þó ekki að annað geti verið markmið
þesiarar slúðursögu, en að svívirða okkur
Hólmfríði í augum almennings.
Þar sem mér skilst að þér berið ábyrgð
á Iesmáli blaðs yðar, og sem þér að lík-
indum kappkostið að hafa sem vandað-
ast, þá finnst mér eðlilegast að heimta
skýringar af yður, enda ekki hægt annað,
þar sem höfundur greinar þessarar felur
nafn sitt, eins og siður er þeirra, er lágt
liggja og vilja draga aðra nlður i skarnið
til sín.
Eg skýt nú til yðar nokkrum spurning-
um, sem eg skora á yður að veita svör
við opinberlega, ella verðið þér álitinn
lítill maður.
1. Eruð þér sjálfur höfundur að þessari
háfleygu klausu? Ef svo er ekki, hver er
þá svo greiðvikinn að láta yður í té svo
fróðlega blaðagrein?
2. Hver er hinn maðurinn, sem Hólm-
fríður Björnsdóttir hefir átt, — eða á —
að opinbera með?
3. Hvers eigum við H. B. að gjalda hjá
greinarhöf., svo að hann þykist knúður til
að svívirða okkur opinberlega, en er þó
slíkt bleyðimenni að hann þorir ekki að
birta nafn sitt, svo hægt sé að krefja hann
reikningsskapar gerða sinna?
Það kemur mér líka einkennilega fyrir
sjónir, að klausuhöfundur nefnir aðeins
1. april, en ekki hvort hann er liðinn eða
ókominn, svo enginn veit hvort hann á
við liðna eða ókomna tímann.
Annaðhvort er höfundur miður vel að
sér í íslenzkri greinargerð, eða hann álít-
ur, að 1. apríl komi ekki fyrir nema einu
sinni, meðan heimurinn stendur. En eftir
þvi að dæma hve tilþrifamikill hann er á
skeiðvelli ritsnilldarinnar, er ástæða til að
álíta hann meiri en lítinn gceöing, bæði
að efnisvali og meðferð málsins.
Eg býst við að klausuhöfundur ætlist til
að menn taki þessa »sparnaðarráðstöfun«
sér til fyrirmyndar. — En þar sem hann
kýs að fara Lyga-Marðar-leiðiua og vega
aftan að mönnum, er sýnilegt að honum
hefir virst sú bardagaaðferð hættuminni
og ódýrari en sú, sem heiðarlegir menn
berjast með. Að sjálfsögðu er sú »sparn-
aðarráðstöfun*, frá hans sjónarmiöi bæði
heiðarleg og í samræmi við þá erfiðu
heimskreppu, sem nú stendur yfir.
Annars virðist bvo sem þér, hr. ritstjóri,
séuð heldur spar á almennri kurteisi og
velsæmi heiðarlegs manns, er þér verðið
feginn að fylla f eyðurnar á blaðsnepli
þeim er þér veitið ritstjórn, með slíkum
pistlum.
Þér virðist heidur ekki vera vel kunnur
mannlegum tilfinningum, ef þér álítið að
hægt sé að Iíða það að farið sé smánar-
orðum um hjúskaparheit manns, af lygur-
um og slúðurberum.
Annars ætlaði eg mér ekki að gera
trúlofun mína að blaðamáli, þótt eg sé nú
tilneyddur, til að hnekkja þeim rógburði,
sem hér er á borð borinn.
Að endingu læt eg yður vita, að ef þér
ekki birtið fullnægjandi og skýr svör við
bréfi þessu ásamt afsökun á þessum
»sparnaðaiósannindum<, strax og bréf þetta
er komið á prent, mun eg stefna yður
fyrir vísvitandi rógburð og ósannindi upp
á saklaust fólk.
Jarlsstöðum, 10. febr. 1932.
Ingólfur Benediktsson^
O—r---
Verðmœti íslenzkra af-
urða, er út hafa verið
fluttar árið 1931.
rþriggja lampa Philipps-
viðtœki fyrir rafhlöð-
un og víxilstraum verða seld
með afborgunum.
Kaupfél. Eyfirðinga.
4 milj. kr. og má þvf búast við, að
bráðabirgðaupphæð innflutningsihs
fyrir sfðastU ár komist upp i 42
milj. kr. á næstu mánuðum. Yrði
þá innfiutningurinn 3V2 milj, kr.
lægri heldur en útflutningurinn. Við
endanlega upptalningu úr verzlunar-
skýrslunum hækka væntanlega báðir
þessir liðir, innflutningur og út-
flutningur, en mismunurinn þarf
ekki að breytast fyrir það.
(Ur Hagtíðindum),
..-.o----
Alþingi.
Saltfiskur verkaður . . kr. 20907850
—«— óverkaður . — 3822150
ísfiskur............. - 5442490
Freðfiskur.............— 23180
Sfld................ . - 4387160
Lax ...................- 15530
Lýsi...................- 1833910
Sfldarolfa.............— 1192350
Fiskmjðl...............- 1558790
Síldarmjöl.............— 1349000
Sundmagi...............— 109880
Hrogn, söltuð .... — 228460
->- ísuð.............- 7610
Kverksigar . . i . . . — 1820
Þorskhausar og bein . — 134130
Fiskroð................— 560
Æðardúnn...............- 92690
Hross ..... S .. . — 116150
Refir..................- 500
Fryst kjöt........... - 852870
Saltkjöt...............- 1192150
Oarnir, saltaðar . . » — 7650
-«— hreinsaðar i . — 109140
Smjör . . . ...........— 4830
Mör............. . . i . — 2610
Ull............. . . . . - 1178630
Prjónies ..... 1 . . — 14020
Oærur, saltaðar ... — 648120
—«— sútaðar ... — 29960
Refaskinn..............— 4300
Skinn, sðltuð . . . , . — 24910
-«- rotuð...........- 103770
-«— hert...............— 26030
Samtals kr. 45 423,200
Verðmæti útflutningsins siðastl.
ár hefir samkvæmt þessu orðið 45,4
milj. kr., en eftir samskonar skýrsl-
um nam útflutningurinn næsta ár
á undan 57,1 milj. kr. Hefir þá út-
flutningurinn síðastl. ár orðið 11,7
milj. kr. eða rúml. 20% lægri held-
ur en árið á undan. En væntanlega
hækka tölurnar fyrir bæði árin
nokkuð við endanlega upptalningu
í verzlunarskýrslunum.
Samkvæmt símskeytum lðgreglu-
stjóranna til stjórnarráðsins og af-
hentum skýrslum úr Rvík til Hag-
stofunnar hefir verðmæti innfluttrar
vöru numið árið 1931 38104925 kr.
En allar bráðabirgðaskýrslur um
innflutning eru enn ekki komnar.
Fyrstu mánuði ársins kemur æfin-
lega inn töluvert af skýrslum frá
fyrraári. f fyrra hækkaði þannig
bráðabirgðatalan fyrir árið 1930 frá
áramótum til aprílloka um nálega
f sfðustu viku var kosið i utan-
ríkismálanefnd i sameinuðu þingi.
Kosningu hlutu: Ásgeir Ásgeirsson,
Jón Porláksson, Magnús Torfason,
Ólafur Thors, Bjarni Ásgeirsson,
Einar Arnórssön, Jónas Porbergsson.
Auk þeirra frumvarpa, er áður
hefir verið getið, má nefna eftirfar-
andi:
Frv. um ábyrgð ríkisins á inn-
stæðufé Utvegsbankans. Pað frv. er
nú afgreitt sem lög frá þinginu, og
tók afgreiðsla þess aðeins eina
klukkustund f báðum deildum.
Magnús Jónsson flytur frv. um
skipulag kaupstaða og kauptúna,
ennfremur frv. um br. á þingsköpum
Alþingis á þá leið, að bætt verði
við hmar 7 nefndir, er fyrir eru,
8. nefndinni, sem nefnist iðnaðar-
nefnd. Sami þm. fiytur enn frv. um
prestakallasjóð.
Vilmundur Jónsson flytur frv. um
skipun læknishéraða o. fl. og,frv.
um lækningaleyfi o. fl.
Pá er fram komið frv,, er sam-
göngumálanefnd flytur um heimild
til atvinnumálaráðherra til að veita
flugfélagi í Bandaríkjunum leyfi til
bygginga flugstöðva hér á landi
með ýmsum skilyrðum»
f efri deild flytja þeir Jón Porl.,
Jón Baldvinsson og Pétur Magnús-
son frv. um breytingu á stjórnar-
skránni, er þeir ætlast til að sé
undirstaða breyttrar kjördæmaskip-
unar f landinu.
Alldlát. Á Sunnudaginn var andaðist Í
Reykjavik ungfrú Sigríður Jóhannesdóttir,
systir Haralds Hagans úrsmiðs í Reykjavík,
Vilhjálms Jóhannessonar hér i bæ og þeirra
systkina. Hafði hún legið þungt haldin
síðan í haust.
Mokafii er nú sagður úr ýmsum veiði-
stöðum, svo sera Véstmannaeyjum Akra-
nesi og viðar.
Búnaðarpinginu, sem staðið hefir yfír í
Reykjavík að undanförnu, lauk i fyrrakvöld.
Hafði það þá lokið 32 málum og auk þess
tekið fyrir eitthvað af málum, er engin á-
lyktun var gerð um.
Fiskipingi tslands, sem háð hefir verið
f Reykjavik siðustu vikurnár, mun Iokið í
dag.
Laoarfoss fór héðan f fyrrakvöld á vest-
urleið.