Dagur - 07.04.1932, Side 3
14. fbl.
DAGUR
55
áður en útvarpið kom til sögunnar.
En hvað mun þá vera nú, þegar
ekki þarf annað en að styðja á
hnapp heima hjá sér tii þess að fá
fullnægju sína af messugerðum og
meira en það, eða í hæsta lagi að
skreppa til næsta bæjar.
Mun óhætt að fullyrða, að engum
hefði dottið í hug, ef útvarpið hefði
verið til á undan pjestunum, að
reisa kirkjur og setja prédikara í
hverja sveit, er allir gátu með marg-
falt minni fyrirhöfn og tilkostnaði
hlýtt á gnægð prédikana frá einum
stað. Ekki fremur en mönnum dett-
ur nú í bug að gera ráðstafanir til,
að veðurfréttirnar séu kallaðar upp
f hverjum hreppi, jafnframt þvl, sem
veðurstofan hér í Reykjavík les þær
svo skilmerkilega í útvarpið, að
heyrist um allt iand.
(Framh.)
■■ ft ■ ■ ■'
Minningarorð.
Hinn 16. nóv. s.I. andaðist að
Skriðu í Hörgárdal, bóndinn þar,
Jón Steinberg Priðfinnsson. Bana-
mein hans var taugaveiki, eða af-
leiðingar hennar.
Steinberg heitinn var fæddur 31.
okt. 1901, og var þvf aðeins vel
þritugur að aldri, er dauða hans
bar svo sviplega að.
Hann var sonur hinna góðu og
velmetnu hjóna, Steinunnar Jóns-
dóttur og Friðfinns Pálssonar, er
mestallan sinn búskap bjuggu f
Skriðu. Var heimili þeirra hjóna hið
bezta, og viðar en héraðsfrægt fyrir
sæmd Og risnu.
Hlaut Steinberg, i föðurgarði,
ásamt systkinum sfnum — eldri
systur d. og yngri, eftirlifandi bróð-
ur — fyrirmyndar, prýðilegt uppeidi,
og báru þau systkini þess órækt
vitni siðan.
Faðir Steinbergs andaðist vorið
1917, en móðir hans hélt áfram
búskap. Pessa vetur stundaði hann
nám i gagnfræðaskólanum á Akur-
eyri — tók þaðan próf vorið 1918.—
Var annars heima með móður sinni.
Haustið 1922 ferðaðist hann þó tii
Danmerkur og dvaldi þar vetrarlangt
að búgarði nokkrum á Jótlandi, en
kom heim að vori og tók við bús-
forráðum. Bjó siðan með móður
sinni fram til ársins 1927, að hann
giftist Sumarrósu Snorradóttur, er
lifir mann sinn ásamt tveim börnum
þeirra.
Steinberg var röskur meðalmaður
að ölium vexti og svaraði sér vel,
vænn að yfirliti, stillilegur og góð-
mannlegur í framgöngu og bauð
hinn bezta þokka.
Hann var dugnaðarmaður til
verka, afkastamikill og fórst vel úr
hendi, enda mjög hugsunarsamur
um hvað eina, er hann þurfti að
sinna og athugull. Stóðu efni til að
hann yrði góður og dugandi bóndi.
En eigi var Steinberg miður gjör
að annari atgjörfi, því hann var
prýðilega greindur maður, fljótur
að nema, en þó sérstaklega skýr
um skilningsfar og rökvisi.
Að loknu gagnfræðanámi las hann
mikið, eftir þvi, er stundir unnust
til, og lagði sig eftir að læra ftar-
tegar, ýms þau fræði, er hann bafði
Eftir að biaðið var farið f prentvélina barst því eftir-
farandi sfmskeyti i sambandi við RINSO-auglýsinguna á
fjórðu síðu: íSamkeppninni verður lokið 10. mai, og
verður ekki tekið á móti seðlum eftir þann tfma, úrslitin verða siðar auglýst*.
ELDUR
getur grandað eigúm yðar, áður en varir, vátryggið þær því
hjá oss, meðan tími er til. Með því styðjið þið alíslenzkt vá-
tryggingarfélag og tryggið yður fljóta og góða afgreiðslu, ef
tjón ber að höndum.
H. f. Sjóvátryggingarfélag íslands.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA.
fengið undirstöðu í við skólanámið,
— einkum tungumál — og þó sér-
staklega móðurmálið. Var hann
smekkmaður mikill á málfar og stýl
og kunni líka sjálfur mjög vel með
að fara.
Skapgerð hans var heilli en al-
mennt gerist nú. Hann var jafn-
lyndur geðprýðismaður, glaður í
viðmóti en gáskalaus, og þó kým-
inn og smáglettinn i sinn hóp, en
svo góðlátlega og hófsamlega að
prýði var að, enda var tilfinninga-
næmi hans svo mikið og hreinn og
göfuglegur hugsunarháttur, að hann
gat ekki sært eða Iítillækkað aðra. —
Hann var einn af fáum, er dags-
daglega ræddi helzt um mál, en
ekki menn, allra sist til lasts. Sannur
drengur, vinum sfnum vænn og
vandamönnum ástúðlegur og um-
hyggjusamur. — Heiðruð sé göf-
ugs manns minning.
b.
<•
■ o ■ ■
Fréttir.
□ Rún 59324127 = Frl.-.
□ RÚN 59324128Va - Frl/.
fslenzka vikan. Fyrsta dag vikunnarvar
borið út hér um bæinn nýtt blað, að stærð
12 síður, sem gefið var út að tilhlutan
framkvæmdanefndar >íslenzku vikunnar*,
og bar blaðið sama nafn og vikan. —
hann dag voru tvær samkomur haidnar í
Samkomuhúsinu, önnur kl. 3 af verzlunar-
manna- og iðnaðarmannafélögunum, hin
að kvöldinu að tilhlutan íþróttafélagsins
Þór.
Á þriðjudaginn var sú tilbreyting höfð
i Barnaskóla Akureyrar, að kennarar skól-
ans fluttu stutt erindi í öllum deildum
hans um íslenzk efni, svo sem ræktun,
siglingar, móðurmálið, föt og fæði, iðnað,
fánann, ættjarðarást og þjóðrækni og góða
íslendinga. Var skólinn að innan skreyttur
íslenzkum fánum. Nokkrir gestir voru við-
staddir. Siðari hluta dags skrifuðu svo
börnin ritgerðir um íslenzk efni.
Þessa viku hefir mátt sjá mikið af marg-
breytilegri, íslenzkri framleiðslu í búðar-
gluggum hér í bæ.
Látínn er á Seyðisfirði Karl jónasson
fyrverandi spítalaráðsmaður þar, 67 ára
gamall. Hann var Þingeyingur að ætt,
prýðilega vel gefinn maður og listaskrifari.
Þá er nýlega látin í Rvík ungfrú Emma
Bebense héðan úr bænum.
Blaöið Lögrétta breytti um snið um síð-
ustu áramót og kemur nú út í timarits-
formi. Er 1. hefti hingað komið og er í
því margvíslegan og skemmtilegan fróð-
leik að finna;
Síðasta dag »íslenzku vikunnarc,
sunnudaginn 10. þ. m., efnir söngfélag-
ið >Geysir« til al-íslenzkrar söng-
skemmtunar í Nýja Bíó kl. 4. e. h.
Verða þar sungin 15 lög eftir íslenzka
lagasmiði og aðgangseyrir verður að-
eins 1 króna, til þess allir geti átt kost
á að njóta þessarar góðu skemmtunar.
Drukknun. Tveir menn féllu út úr bát
við Vestmannaeyjar í síðustu viku og
drukknuðu: Voru báðir ungir og efnilegir
menn.
Verkamaðurinn biður þess getið, að
höfundur greinarinnar um kembivélarnar
ð Húsavík, sem birtist i blaðinu, hafi ekki
verlö Arni Jónsson,
fást í
Lyfjabúðinni.
Dánarfregn. Jón Þ. Björnsson, skólastjóri
á Sauðárkróki, hefir orðið fyrir þeirri
miklu sorg, að missa konu sína, Geirlaugu
Jóhannesdóttur, 39 ára, frá 10 börnum.
Fimleikasýningar IL A. es kom UPP í
fimleikahús, þar sem þessir flokkar æfðu
af kappi undir sýningarnar. Fyrst horfði
eg á Jdrengina, kornunga og hreystilega.
Voru þeir merkilega langt komnir í leik-
fiminni, og má mikið vera ef þeir geta
ekki skemmt áhorfendum sínum rækilega.
— Þá komu stúlkurnar frægu. Eg hef oft
séð þær áður og oft dást að þeim, en þó
sá eg glöggt, að þeim hafði enn farið
fram og aldrei haft svo skemmtilegt >pro-
gram*. Það er dásamlegt að sjá hvað þær
eru orðnar þjálfaðar og eiga létt með að
hlýða hinum erfiðu skipunum stjórnand-
ans, sem er Hermann Stefánsson, eins og
áður. Útlendir íþróttamenn, sem séð hafa
flokkinn, hafa látið í Ijósi, að hann gæti
sýnt listir sínar hvar sem væri. — Þjóð-
dansana sá eg ekki, en eflaust er mjög gam-
an að þeim. Það eru 4 pör sem dansa í
litklæðum, sem eru sérstaklega búin til
fyrir þetta. — Mun margt manna koma í
Samkomuhúsið þetta kvöld, enda er hollt
að gleðjast með góðum. X.
Útvarpsnofendafélagið á Akureyri heldur
aðalfúnd sinn í Skjaldborg, sunnudaginn
10. þ m„ kl. 5 síðdegis. Dagskrá samkvæmt
félagslögunum. AUir velkomnir á fundinn.
Leikfélag Akureyrar gengst fyrir skemmt-
un í Samkomuhúsinu í kvöld. Verður þar
fluttur fyrirlestur um merkiiegt efni, sung-
in íslenzk lög og sýndur einn þáttur úr
Skugga-Sveini — Grasafjallið.
Úttar Rist, sonur Lárusar Rist, kennara
hér í bæ, andaðist í Reykjavík sl. sunnu-
dag eftir mjög stutta legu f máttleysis-
veikinni. Hann var aðeins tvítugur að
aldri og leit út fyrir að verða nýtur mað-
ur. Um allmörg ár dvaldi hann í Ameríku.
Horöanstórhríð var hér í fyrrinótt og
framan af deginum í gær og dreif niður
allmikla fönn; birti upp seinni hluta dagsins,
Skip. Dettifoss og ísland eru bæði
væntanleg hingað á næstunni. Nova kom
hingað í morgun að austan og frá útlöndum.
Eldtlúsumræöunum á mánudaginn og
þriðjudaginn var útvarpað,
Próf stendur nú yfir í Gagnfræðaskóla
Akureyrar.
ARSMANN
vantar á gott sveitaheimili. Upplýs-
ingar hjá Árna Jóhannssyni í K. E. A.
Tilkynning.
Föstud. 1. apríl 1932 framkvæmdi
not. publ. útdrátt á vinningum í
happdrætti Kvenfélags Hðrgdæla og
komu upp þessi númér:
00070, 00201, 00240, 00006, 00689,
00961. — Handhafar vitji vinning-
anna til undirritaðrar.
Pt. Akureyri 1. apríl 1932.
Anna Einarsdóttir
Auðbrekku.
Austfirðingamót
verður háð i Samkomuhúsi bæjar-
ins laugardaginn 9. apríl 1932, kl.
9 siðdegis stundvislega.
Þátttakendur geta verið allir þeir,
sem bornir eru eða uppaldir austan-
lands á svæðinu frá Gunnólfsvíkur-
fjalli til Hornafjarðar. Giftar og trú-
lofaðar persónur geta tekið með
sér eiginkonur, eiginmenn, unnustur,
unnusta og börn sin.
Til skemmtunar verður: Ræðu-
höld, söngur, músik og dillandi dans.
Veittverður: Kaffi, te, kökur o.fl.
Aðgöngumiðar að mótinu kosta
2 kr. fyrir hvern og verða þeir
seldir í þókaverzlun Rorsteins M.
jónssonar á laugardaginn.
Framkvœmdanefndin.
Býlið MÓLAND
í Glerárþorpi er til sölu og laust
til ábúðar á næsta vori. Góðir
borgunarskilmálar. — Semja ber við
undirritaðan.
Mólandi s. apríl 1932.
Árni Þórgrlmsson,