Dagur - 07.04.1932, Blaðsíða 4

Dagur - 07.04.1932, Blaðsíða 4
56 DXGtJB 14. tbl. Eldhúsumræiur hófust í neðri deild Alþingis á mánu- daginn var. Magnús Guðmundsson gekk fyrstur fram á vígvöliinn. Áias- aði hann stjórninni og Framsóknar- fiokknum í heild fyrir fjáreyðsiu og varði lðngum tima í að teija upp margvísiegar framkvæmdir síðustu ára, en gafst þó ioks upp við það, þvi sú taining væri nær ótæmandi; Ekki vildi hann að rikið ætti nein flutningstæki tii eigin þarfa, hvorki bíla, hesta eða skip, og stór synd var það einnig að hans dómi, að rfkið léti reisa hús fyrir skrifstofur sinar, heidur ætti ailt slíkt að ieigj- ast hjá einstökum mönnum. Hinar nýju aiþýðuskólastofnanir voru mik- ill þyrnir i augum íhaidsmannsins, sömuleiðis vinnuhælið á Litla-Hrauni og yfir höfuð öll menningarviðleitni slðustu ára. Svo smásmuglegur gerðist M. G., að bann kvartaði yfir þvi að verkamönnum þeim, er unnu við byggingu siidarbræðslu- stöðvarinnar á Siglufirði, hefði verið haldin ofurlítil veizia að verkinu loknu, og hefði dómsmálaráðherr- ann meira að segja komið þangað með fáeina bændur úr Eyjafirði. Héðinn Valdimarsson taiaði af hendi Alþýðuflokksins og taldi eina bjargráðið út úr kreppunni vera að koma á því skipulagi, er jafnaðar- menn halda fram. Jafnframt vottaði hann bændum ást sína og holiustu. Af hendi Framsóknar töluðu ailir ráðherrarnir. Tryggvi Pórhallsson benti á, að hollusta Héðins tii bænda hefði komið fram i þvi, að bann hefði nýlega gert tilraun í þá átt að fá eyðilagt bálfrar miijón kr. verð- mæti i frystu kjöti, er flutt hefði verið til Englands, og nú boðaði þessi sami þingmaður verkfall jafn- aðarmanna á Alþingi, er væri i þvi fólgið, að þeir ætiuðu að bindra afgreiðslu fjáriaga og ailan nauð- synlegan tekjuauka; á þann hátt hugsaði hann um hagsmuni hinnar vinnandi stéttar í landinui Og ioks væri Héðinn farinn að skora á fhaldsmenn að hefja samúðarverkfall. Jónas Jónsson dómsmáiaráðherra tók ræðu Magnúsar Guðmundsson- ar til meðferðar, Sýndi hann með skörpum og óvéfengjaniegum rök- um fram á hið vilita fjársukk ibaids- manna i sambandi við íslandsbanka, þar sem 20 miljónir kr. runnu út i sandinn svo að þeirra sáust engin merki. Eftir slíkt dæmalaust fjársukk og óreiðu undir handarjaðri ihalds- ins, kvað ráðherrann þurfa furðu mikil brjóstheilmdi ihaldsmanna til að bera fram ávitur fyrir það, að fé hefði verið varið til ræktunar, húsabygginga, vega, brúa og skóla og annara slíkra nytsamlegra fram- kvæmda. Ásgeir Asgeirsson fjármálaráð- herra talaði að sjálfsögðu um fjár- hag rikissjóðsins bæði fyr og síðar og borfurnar fram undan. Sýndi hann fram á, hviilkt óráð það væri að rýra tekjustofna þá, er rikissjóð- urinn hvilir nú á. Ólafur Thors sýndi i langri ræðu fram á það ófremdarástand, er þau fyrirtæki, sem ihaldsmenn eiga eink- um yfir að ráða, væru nú komin i. Ræddi hann þar einkum um togaraút- FÁ VERÐLAUN í PENINCUM ÚT I HOND Krónur IOO Krónui: AUK ÞESS ERU 50 VERÐLAUN, N HVER: 3 STK. «/LUX HANDSÁPU. RINSO ÞÚ HLITUR AÐ HAFA TOMSTUND STRAX I DAG TIL AÐ SKRIFA TÖLURNAR Á RINSO MIÐANN. VINNA MÁTT ÞÚ VERÐLAUNIN. Leg'Su út í keppnina. Ekki er annar vandinn en setja tölustaf fyrir framan hvem Rinso kostinn, í peirri rötS sem pú álítur a'ð peir eigi a'Ö vera. Þjer finnst t.d. a'ö „ Leysist upp í köldu vatni “ sje besti kosturinn og ,, Drjúgt í notkun" sá næsti. Ef svo skyldi vera, pá setur pú „i“ og „2“ fyrir framan pessar setningar og tölusetur svo hina kostina áfram, eins og pjer finnst a'Ö raöa eigi peim. Eina ákvæ'Öi'ð er pa'ö, a'ð þú verður að senda framhliðina af litlum cða stórum Rinso þakka með hverjum miða. Senda má eins marga seðla og vill. Fyrir bragðiö getur pú kannske fengið einhver pessi verðlaun: VERÐLAUN 50 Krónur ÞVÆR AN NUNINGS I- SEÐILLINN Nafn.. 10 RINSO KOSTIR TÖLUSETJIÐ ÞÁ EFTIR YFIRBURÐUM (a) Heldur líninu drifhvítu (b) Drjúgt í notkun (c) Einfalt l notkun (d) Alt nugg ónauðsynlegt (e) Skemmir ekki hendurnar (f) Hreinn þvotturinn ilmar yndislega (g) Einhlítt til allra þvotta (h) SkaSar ekki þvottinn (f) Leysist upp í köldu vatni (j) Sparar vinnu TÖLURNAR HJER Legg hjer innan f (stóra) (litla) framhlið af Rinso pakka HeímiUsfang... Framleiðendur go.fa endanlegann úrskurð. Engurn fyrirspurnum um samkeppnina verður svarað, Klippið þenna mióa af og sendið hann tii ðASGEIR SIGURÐSSON. REYKJAVIK, PÓSTHÓLF 498 M-R.W48A IC R. S. HUDSON LIMITED, LIVERPOOL, ENGLAND CHEVRDLET1931. Lítið KEYRÐ Chevrolet vðrubifreið, model 1931, með stálhúsi, er til sölu. Upplýsingar gefur Þór O. Björnsson K.E. A. Höfum til: V írnet í fiskreiíi. Samband isl. samvinnufélaga. gerðina. Sannaði hann, að þó hagur ríkissjóðsins væri nú heidur tæpur, þá gengi íhaldsmönnum sfzt betur með sín fyrirtæki. Næsta dag héit svo umræðunum áfram og töluðu þá Magnús Jóns- son, Magnús Guðmundsson, Ól. Thors, Haraldur, Héðinn og allir ráðherrarnir. Bar þá margt á góma, en eigi verður frá því skýrt að sinni. Umræðunni var lokið þennadag. Ritstjóri: Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 6. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Höfum til: ILFA LAVAL liiteigti - oi niÉa. Samb. ísl. samvinnufélaga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.