Dagur - 20.04.1932, Side 2
62
16. tbl.
O S T A R.
Jafnt nú, sem að undanförnu, seljum við MYSUOST,
MERKUROST og GOUDAOST, sem viðurkenndir eru
um allt land fyrir gæði. — Enginn áskurður er hollari
eða Ijúffengari en ostar frá Mjólkursamlagi K. E. A. -
- AL-INNLEND FRAMLEIÐSLA; -
I heildsölu hjá Mjólkursamlagi K. E. A.
{ smásöiu í Kjötbúð K. E. A.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Mjólkursamlagið.
iiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiii
verja því til styrktar andlegri menn-
ingu I landinu af þvi tægi, sem nú-
tímafólk telur sig hafa þörf fyrir,
svo sem til skóla, bókasafna og
annarar fræðslustarfsemi úti um
landið. Er nægur timi til að átta
sig á því. Fyrst er að samþykkja
þessa titlögu og siðan lögin, sem
æskt er eftir með henni. En jafnvel
eftir að lögin eru gengin í gildi, er
langt f land til fullra framkvæmda,
með þvi að prestsembættin verða
að sjálfsögðu ekki lögð niður fyrr
en jafnóðum og þau losna. Koma
þau þannig af sjálfu sér mjúklega
niður á gömlu og íhaldssömu fólki*
sem helzt má gera ráð fyrir, að
kunni illa þessari breytingu.
byggingu, sem það hafi sótt eftir
að ná f.
Ekki er um að villast að Morg-
unbl. er að segja frá þessu i þeim
tilgangi að koma þeirri trú inn í
lesendur sfna, að Sambandið stand-
ist kaupmönnum ekki snúning f
samkeppninni.
Framkvæmdastjóri Samb., Aðal-
steinn Kristinsson, sannar með
vottorðum í Tímanum 9. þ. m., að
þessar frásögur Mbl. séu upplogn-
ar og að enginn flugufótur sé fyrir
þeim.
Hann sannar, að Samb. keypti
sjálft inn alit efni, sem i húsið átti
að nægja samkv. útreikningi verk-
fræðings. Bygging hússins var síð-
an tekin fyrir ákvæðisverð, og sá
byggingarmeistarinn sér hag i þvi
að kaupa efni til byggingariunar hjá
Samb., af því að hann fékk það ó-
dýrast þar.
Þess skal getið, að villa kom fram
f útreikningi verkfræðingsins, svo að
steypustyrktarjárn það, er Samb.
hafði keypt inn, nægði ekki í húsið.
Var þá það, er á vantaði, keypt að
verzlunum í Reykjavík. Um þetta
atriði segir A, K.:
>Skal eg fræða t Mbl. á því, að
eftir að eg hafði fengið þessar verzl-
anir, sem járnið er keypt af, til að
lækka verðið um 10—12°/o, þá var
járnið þó um 28% dýrara en það,
er Sambandið sjálft keypti inn. —
Munu þessar verzlanir þó vera full-
komlega samkeppnisfærar við aðrar
slíkar heildsöluverzlanir bæjarins.*
Að lokum sannar svo Aðalsteinn
Kristinsson, að Samband ísl. sam-
vinnufélaga gerði lægsta tilboð í
efni til verkamannabústaða, og var
því tilboði auðvitað tekið.
Pessar upplognu sögusagnir Mbl.
um Samb. ísl. samvinnufélaga, sem
birtar eru í atvinnurógsskyni, hafa
orsakað það, að upplýst hefir verið
að Sambandið er ekki aðeins sam-
keppnisfært gagnvart öðrum heild-
söluverzlunum, heldur selur það
jafnvel vöru um 40% ódýrara en
keppinautar þess.
Sumarfagnað
heldur U. M. F. A., í Samkomuhúsi
bæjarins, 1. sumardag, kl. 8>/ae. h.
Erindi flytur séra Sigurður Stefáns-
son, >Geysir* syngur nokkur lög,
þá verður gamanleikurinn >Upp til
Selja< leikinn og að endingu stig-
mn dans,
(Niðurl.).
Par er gert ráð fyrir, að nafngiftir
og hjónavígslur fari fram sem ein-
föld skrásetning hjá veraldlegum
valdsmanni, með öllu seremonfu-
laust, og ekki er ætlazt til, að kostn-
aðurinn við það verði meiri en svo,
að hann borgi aðeins bækurnar og
hina sáralitiu fyrirhöfn. Ætlazt er
til, að skrásetning við útfarir verði
þessu svipuð og jafnframt er heldur
ýtt undir það, að útfarir verði sem
viðhafnarminnstar, sem ekki er van-
þörf á. Hér í Reykjavik kostarútför,
sem talin er íburðarlaus, 600—800
kr., en margar útfarir fara hér fram,
sem kosta þúsundir króna, Breiðast
nú slíkir ósiðir út um landið. Einnig
er stutt að þvf, að stöður manna i
kirkjugörðum við jarðsetningar verði
lagðar niður. Er það fyrst og fremst
heiibrigðismál, svo mörgum sem
það hefir orðið að heilsutjóni og
jafnvel fjörtjóni. Pá er likbrennsla
tekin fram yfir jarðsetningu og gert
ráð fyrir, að lík séu fremur brennd
en grafin, þar sem bálstofum hefir
verið komið upp. En rétt þykir að
taka hið fyllsta tillit til tilfinninga
manna í þessum sökum, svo að
hverjum sé frjálst að kjósa þá útför
og útfararsiði fyrir sjálfan sig og
venzlafólk sitt, er hann fellir sig
bezt við.
Eg leyni þvi ekki, að þessi tillaga
er borin fram af þeirri sannfæringu,
að kirkjan hér á landi sé hnignandi
stofnun og að skylt sé að haga
sér eftir því, með því að fækka við
hana starfsmönnum, er þeir sitja
orðið unnvörpum auðum höndum,
en bakandi ríkissjóði ærin útgjöld.
Engu að síður ættu þeir, sern
trú hafa á framtíð kirkjunnar, að
hugsa sig vel um, áður en þeir
leggjast hér á móti. Ef kirkjan á
hlutverk að vinna, mundi þá ekki
hollara fyrir hana að fækka starfs-
mönnum sínum svo, að þeir hafi
ærið að starfa, en vanda að sama
skapi meira til þeirra og búa betur
að þeim? Engum ætti að vera það
ástand, sem nú er, meira hneyksl-
unarefni en vinum kirkjunnar.
Hér verður ekki um það rætt,
hvernig réttast muni að verja fé
þvf, sem við það sparaðist, ef prests-
embættum yrði fækkað, svo sera
hér er stungið upp á. Pvf hefir verið
hreyft, að bezt væri viðeigandi að
Talanditölur
Eftfrgfjafirnar í íslandsbanka.
Eftirfarandi skrá er um helztu
eftirgjafirnar af skuldunum við ís-
landsbanka, eins og þær voru reikn-
aðar, er Utvegsbankinn tók við
þrotabúinu. Tölurnar teknar eftir
skýrslu, sem gerð hefir verið um
þetta efni.
kr.
Geo Copland & Co.. . 2546060.51
Helgi Zoéga & Co. . . 1988524.77
Andrés Ouðmundsson. 57966.57
Carl Sæmundsson &Co. 179611.52
Gunnar Sigurðsson frá
Selalæk.............. 132679.02
Ólafur Daviðsson
Hafnarfirði ,*.... 428448.72
Sigurjón Pétursson og
Einar Pétursson ; . . 75837.14
M/B Ulfur 35301.79
Sveinn Jónsson......... 70797.33
Porst. Jónsson . . . . » 261888.11
Ásgeir Pétursson .... 201714.27
Vínlandið ........ 13004269
H/F Stefnir............. 208827.02
Pétur P. J. Gunnarsson 61749.32
Jón Björnsson 8t Co. . 244004.85
H/F Bifröst í Borgarnesi 65000.00
Páll H. Gíslason .... 32865.28
Ólöf Benediktsdóttir . . 101672.35
Sveinn Jónsson......... 70077.92
H/F Kakali............... 23416.28
Nathan & Olsen .... 250519.15
H/F Eggert Ólafsson . 574495.66
K.f. Ingólfur............ 52503.57
Stefán Th. Jónsson . . 1671514.46
Jéns B. Waage.......... 37016.19
Snorri Jónsson......... 112797.91
Friðrik Wathne......... 203634.78
Bjarni Benediktss. & Co. 93000.00
Hálfdán Hálfdánarsson. /238967.75
H/F Andvari á Sólbakka 988194.18
Bræðurnir Proppé . . . 436353.87
Loftur Loftsson . . . , 194935.37
Hannes B. Stephensen . 466104.43
Geo Copland............... 734551.58
Sæmundur Halldórsson 729354.67
Útgerðarfélagið Pingeyri 60800.00
Gísli J. Johnsen .... 1043843.10
Alls hafði þá verið afskrifað af
útistandandi skuldum bankans
kr. 18588693.86.
íhaldsmenn deila fast á núverandi
rfkisstjórn fyrir að hafa notað um-
framtekjur ríkissjóðs f góðærinu til
að skapa varanlegar framfarir f
landinu.
Pegar slikar ádeilur um ógætilega
meðferð ríkisfjár koma úr þeirri átt,
er eðlilegast að spyrja. Hvernig hefir
fhaldið sjálft stjórnað fjármálum
rikis og þjóðar. Er þvf trúanda til
að gæta meiri hagsýni, meiri gætni,
og meiri samvizkusemi en Fram-
sóknarstjórnin hefir gjört.
Pað hefir verið sýnt fram á það
oft og síðast nú f dag hér i blað-
inu, að hinar fyrstu rikisskuldir, sem
um munaði, mynduðust i stjórnartíð
íhaldsmanna, þegar þeir voru fjár-
málaráðherrar Björn Kristjánsson,
Sig. Eggerz og Magnús Guðmunds-
son, að af þessum gömlu skuldum
frá ihaldstímanum hafa verið af-
borgaðar rúml. 5 miljónir króna í
stjórnartíð Framsóknarflokksins*
Og hér að ofan tala skýru máli
tölurnar um það, hverskonar þjóð-
argifta það er að fela íhaldinu fjár-
málastjórn fyrir aimenning.
íslandsbanki var rikissjúður íiiaidsins,
einnig eftir að það hverf úr stjórn-
arráðshúsinu.
Tölurnar hér að framan koma
harla mikið við hverjum fslendingi.
Hver þeirra um sig hefir haft nokk-
ur áhrif t— gegnum tilsvarandi
hækkandi vexti og rikisframlög til
bankanna — á verðið á lífsnauð-
synjum þess mikla meirihluta þjóð-
arinnar, sem engar eftirgjafir, fær.
En þær hafa líka annað gildi nú
sem stendur, þvf að þær eru með-
mæiin, sem ihaldið leggur fram
fyrir þjóðina, þegar það vill fá að
taka við ríkissjóðnum aftur.
Peningarnir úr fslandsbanka hurfu
ekki f ræktun, samgðngubætur eða
alþýðuskóla. Pað er satt. Par getur
íhaldið djarft úr hópi talað.
Pað hefir varið peningunum á
annan veg.
Stefán Th. Jónsson hefir fengið
eftirgefna upphæð sera er álika
mikil og öll lán úr Byggingar- og
landnámssjóði.
Sæmundur Halldórsson hefir
fengið andvirði útvarpsstöðvarinnar
nýju.
Fyrir þá fjárfúlgu, sem fslands-
banki rétti að Ólafi Daviðssyni f
Hafnarfirði, hefði verið hægt að
borga Arnarhvol og Reykjajarðirnar
í Ölfusi.
Stefán Th. Jónsson hefir fengið
sem svarar verði Síldarverksmiðj-
unnar á Siglufirði og 250 þús. betur.
Upphæðin sem Gísli Johnsen og
Proppébræður fengu er álfka mikil
og allur jarðabótastyrkurinn 1927
-30.
Copland hefir fengið 300 þús. kr.
meira en sem svarar öllum vöru
tolli og verðtolli, sem inn kom f
rfkissjóð árið 1931.
Lesendurnir geta haldið saman-
burðinum áfram.
Meðferð flokka og ríkisstjórna i
fjármunum þjóðarinnar geta og
hljóta alltaf að orka tvímælis f ein-
hverjum atriðum. Um það þarf ekki
að deila, Enn óskar þjóðin að
stjórnarhættir íslandsbanka færist
inn yfir ríkissjóðinn. Ef svo væri
ætti fhaldið að taka völdin.
Tímlniu
' 0-- '