Dagur - 04.05.1932, Side 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr.. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga
Afgreiðslan
er hjá Jóni Þ. Þ6r,
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri, 4, maí 1932,
Vegna hins afarmikla verðfalls
á afurðum hafa skuldir félags-
manna hækkað mjög á árinu og
voru þær um síðustu áramót rösk
ein miljón króna, þegar skuldir
útibúsins á Dalvík eru meðtaldar.
En innieign félagsmanna í reikn-
ingum, Stofnsjóði og Innlánsdeild
vbru á sama tíma 1352 þús. kr.
eða að miklum mun hærri en
skuldirnar. Þrátt fyrir hina miklu
aukningu á útistandandi skuldum,
hefir hagur félagsins út á viö
batnað á árinu, þar sem skuldir
þess hafa minnkað um 54 þús. kr.
Sýnir ekkert betur, hve félagið er
fjárhagslega sterkt, en þetta, að
á sama tíma sem skuldir félags-
manna við félagið aukast að stór-
um mun, þá grynnir það á sínum
eigin skuldum. Þetta kann ein-
hverjum að þykja torskilið, en
skýringin liggur í því, að vöru-
þirgðir félagsins voru miklu
minni við síðustu áramót en í árs-
lok 1930 og minni peningar í
sjóði, svo og í hinni miklu aukn-
ingu sjóða á árinu, sem nemur um
}/4 úr miljón kr.
í þessu sambandi er vert að
geta þess, að eftir verðhrunið
mikla 1920 skulduðu félagsmenn
við félagið um 700 þús. kr., þegar
útbúið á Dalvík er talið með. Eft-
ir verðfall síðustu tíma eru skuld-
irnar um 300 þús. kr. hærri. En
siðan 1922 hefir tala félagsmanna
tvöfaldast. Tvöfalt fleiri menn
standa nú undir nálega þriðjungi
hærri skuldum. í fyrra skiftið
voru innstæður manna í Stofn-
sjóði 40% af skuldaupphæðinni,
nú 60%. Fyrri skuldirnar voru
nálega eingöngu eyðsluskuldir,
ekkert varanlegt verðmæti kom á
móti þeim. Að baki nýju skuldun-
um er mikið af ræktuðu landi og
varanlegum byggingum. Þó að
skuldir þær, sem hér um ræðir,
séu mikið og óviðráðanlegt böl, þá
má ekki líta þær dekkri augum en
vera ber.
Þrátt fyrir það, sem hér er
fram talið um skuldirnar, var
fundurinn einhuga um að gera
þyrfti sem öruggastar ráðstafanir
þeirra vegna, til þess að félagið
biði sem minnstan hnekki af
þeim. Árið 1922 gerði aðalfundur
félagsins sérstakar ráðstafanir
um innheimtu þeirra skulda, er
þá höfðu myndast. Voru þær
teknar út úr hinni árlegu reikn-
ingsveltu einstaklinganna og fé-
lagsstjórninni falið að sjá um
innheimtu þeirra á þann hátt, er
hún teldi hagfeldastan. Sömu leið
fór aðalfundurinn nú. Árið 1922
ákvað aðalfundur félagsins að
leggja varasjóð þann, er þá var
til, til hliðar og nefna hann
Tryggingarsjóð. Skyldi hann
mæta þeim áföllum, er félagið
kynni að verða fyrir af tapi
þeirra skulda, sem þá voru mynd-
aðar. Innheimta þessara »gömlu
skulda« hefir nú farið á þann veg,
að eftir stóðu um síðustu áramót
um 19 þús. kr. af hinni upphaf-
legu 700 þús. kr. skuldaupphæð,
og hafði upphæðin minnkað um
5 þús. kr. á síðasta ári. En Trygg-
ingarsjóðurinn hafði á þessu 10
ára skeiði hækkað að verulegum
mun.
Aðalfundurinn í ár samþykkti,
að Tryggingarsjóðurinn skyldi
ekki aðeins vera til tryggingar
gömlu skuldunum, heldur skyldi
hann einnig mæta því tapi, er
verða kynni af nýju skuldunum.
Jafnframt samþykkti fundurinn,
að allt að 50% af gjaldi af við-
skiftaveltu, sem ber að færa til
Varasjóðs eða í aðra óskiftilega
Árið 1931.
sjóði, skyldi færa í Tryggingar-
sjóð, þangað til öðruvísi yrði á-
kveðið. Á þenna hátt var sjóðnum
séð fyrir auknum tekjum árlega.
Tillaga stjórnarinnar um að út-
hluta skyldi til félagsmanna 10%
af ágóðaskyldri vöruúttekt þeirra
yfir árið var samþykkt. Jafn-
framt samþykkt að yfirfæra eftir-
stöðvarnar til næsta árs.
Alls hafði félagið selt vörur inn-
anlands árið 1931 fyrir 3882 þús.
kr. Var það um 400 þús. kr.
minna en næsta ár á undan. í sölu
þessari er ekki meðtalin innan-
landssala sláturfjárafurða frá
sláturhúsi félagsins, né sala
frystisíldar frá frystihúsinu.
Innlendar vörur teknar til sölu-
meðferðar tvö sl. ár voru sem hér
segir:
Árið 1930.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Aðalfundur félagsins var hald-
inn í Samkomuhúsinu á Akur-
eyri dagana 29. og 30. apríl síð-
astl. Fundarstjóri var kosinn
Björn Jóhannsson bóndi á Lauga-
landi, en varafundarstjóra til-
nefndi hann Hólmgeir Þorsteins-
son bónda á Hrafnagili. Ritarar
fundarins voru þeir Ármann Sig-
urðsson bóndi á Urðum og Pálmi
Þórðarson bóndi á Núpufelli. Á
fundinum voru mættir 99 fulltrú-
ar, stjórn félagsins, framkvæmda-
stjóri og endurskoðendur og
auk þess margir aðrir félags-
menn.
Framkvæmdastjóri lagði fram
endurskoðaða reikninga félagsins
fyrir síðasta ár og gerði jafn-
framt ítarlega grein fyrir rekstri
þess á árinu og hag þess við síð-
ustu áramót.
Innstæður í eftirtöldum sjóðum
félagsins voru sem hér segir,
taldar í heilum þúsundum:
f árslok 1930 1931 Vöxtur á árinu
Stofnsjóður 703 þús. kr. 820 þús. kr. 117 þús. kr.
Innlánsdeild 400 — — 402 — — 2 — —
Varasjóður 237 — — 301 — — 64 — —
Tryggingars j óður 50 — — 62 — — 12 — —
Fyrningarsjóður 116 — — 140 — — 24 — —
Byggingarsjóður 118 — — 125 — — 7 — —
Sambandsstof nsj. 126 — — 133 — — 7 — —
Skuldtryggingarsj. 8 — — 10 — — 2 — —
1758 þús. kr. 1993 þús. kr. 235 þús. kr.
Kg. Krónur. Kg. Krónur.
Fiskur 681,272 964,647
Kjöt 325401 164,612 380037 343,502
Gærur 78837 31,534 95916 62,345
Ull 16621 18,461 27680 34,419
Prjónles 13,252 4,245
Mjólk 1491401 284,439 1312681 297,480
Dúnn 1,060 1,422
Innlendar afurðir, að frádregn- »Fundurinn felur stjórn
um vörum, sem kjötbúðin hefir
keypt, hafa verið teknar til sölu-
meðferðar fyrir alls:
Árið 1931 kr. 1,194,633.
Árið 1930 kr. 1,708,060 kr.
Mismunurinn er rúmlega hálf
miljón.
Fasteignir félagsins á Akur-
eyri eru bókfærðar rúmlega 1
miljón kr., en fasteignir á Dalvík,
Grenivik, ólafsfirði, Litla-Ár-
skógssandi og Hrísey eru bók-
færðar fyrir rúm 120 þús. kr.
Meðal þeirra ályktana, er fund-
ins að gangast fyrir undirbúningi
stofnunar fiskiræktarfélaga í
Eyj afj arðarsýslu«.
Þá ákvað fundurinn eftir til-
lögu frá framkvæmdastjóra, að
meðan brauðgerð félagsins er rek-
in í núverandi leiguhúsi, skuli
arði þeim, sem verða kann af sölu
brauðgerðarvara til félagsmanna,
að helmingi úthlutað til þeirra í
hlutfalli við kaup hvers og eins,
en helmingurinn leggist í brauð-
gerðarhússbyggingarsj óð.
í þetta sinn gekk úr stjórn fé-
urinn samþykkti um framtíðar- .lagsins (Bernharð Stefánsson, og
starfsemi félagsins, voru þær, er
hér fara á eftir:
»Fundurinn telur þörf á að
skipulögð sé sala á garðávöxtum
félagsmanna og að eitt aðalskil-
yrði þess sé að komið sé upp full-
komnu húsi til geymslu garðá-
vaxta. Jafnframt ályktar fundur-
inn að skipa þriggja manna nefnd
til að rannsaka málið í samráði
við stjórn félagsins og felur henni
framkvæmdir, ef tiltækilegt þyk-
ir«.
í nefndina voru kosnir Aðal-
steinn Halldórsson, Kristján Sig-
urðsson kennari og Pálmi Þórðar-
son.
Ennfremur var samþykkt:
var hann endurkosinn. Þá var
Eiður Guðmundsson endurkosinn
í varastjórn. Ennfremur var
Stefán á Varðgjá endurkosinn 1.
endurskoðandi og 2. varaendur-
skoðandi, Þórarinn Eldjárn, einn-
ig endurkosinn.
Kosnir voru 7 fulltrúar til að
mæta á næsta aðalfundi Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga.
Þessir hlutu kosningu:
Vilhjálmur Þór, framkv.stjóri.
Sigtryggur Þorsteinsson, Ak.
Snorri Sigfússon, skólastjóri.
Hólmg. Þorsteinsson, Hrafnag.
Valdimar Pálsson, Möðruv.
Baldvin Jóhannsson, Dalvík.
Karl Amgrímsson, Veisu,