Dagur - 04.05.1932, Page 2
70
/
DAGUR
18. tbl.
BfHfiwiffiwfiifyiffii
i eimkol a
W M1
W kosta aðeitis kr. 38.00 smálestin. Hi
w *m
5« Kaupfélag Eyfirðinga.
W NB
wiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiia
Og til vara:
Davíð Jónsson, Kroppi.
Jón Melstað, Hallgilsstöðum.
Árni Jóhannsson, Akureyri.
Bergsteinn Kolbeinsson, Leifsst.
....-O" - ■■
Peir sem hafa hlustað á útvarpið
munu hafa heyrt læknana próf.
Ouðm. Hannesson, dr. Ounnlaug
Claessen og dósent Niels Dungal
flytja hvert erindið öðru fróðlegra
um hin afar þýðingarmiklu fjörefni
eða vitaminefni fæðunnar. Til við-
bótar þeirri fræðslu er menn þar
hafa fengið, meðal annars um hlut-
deild mataræðisins í upptökum tann-
átu og beinkramar skai eg skýra
frá merkilegum nýjungum um þessi
efni. Las eg þetta f ensku iækna-
tímariti sem eg fékk með siðustu
skipum (Brit. med. Journal 1Q. marz
1932).
Frú Mellanby (kona læknis sem
er nafnkenndur fyrir vitaminrann-
sóknir) hefir siðustu 10 ár athugað
áhrif mataræðis á tennur og þroska
þeirra f dýrum og mönnum.
Tilraunir er hún gerði á hvolp-
um leiddu í Ijós að tennur þeirra
þroskuðust illa og óreglulega ef
fjörefni það sem kallast vitamin 0.
vantaði i fæðuna. Ennfremur olli
það einnig vanþroska tannanna og
tilhneigingu til ígerða í gómnum.
Frú Mellanby og læknirinn Lee
Pattison reyndu nú með svipuðum
tilraunum á börnum að koma í veg
fyrir tannskemmdir með þvi að sjá
þeim fyrir nógum A. og D. vitamin-
efnum daglega og það gátu þau
hæglega með þvi að gefa börnun-
um ákveðinn skamt af þorskalýsi,
þvi i þvi eru bæði þessi vitamin-
efni. Varð reyndin brátt sú að lýs-
ið hafði greinileg áhrif til að tefja
fyrir og stöðva tannátu barnanna
ekki siður en hvolpanna.
Jafnframt þessu tóku þau eftir þvi
að tannátan ágjörðist á ný ef hafra-
mjöli var aukið við venjulegt fæði.
Aðrir læknar höfðu áður veitt
þvi eptirtekt, að tannáta á börnum
stöðvaðist ef þau fengu sykurveikra-
fæði, sem er aðallega kjöt, fiskur,
feitmeti og egg en svo að segja
brauðlaust og sykurlaust.
Petta kom frú Mellanby og Patti-
lon til að reyna á börnunum fæði,
sem var sneytt kornméti en i stað-
inn gáfu þau þeim nóg af kartöfl-
um, margskonar grænmeti, nóga
mjólk og nokkuð af sykri, en eink-
um rfflegan skamt af ávöxtum. Með
þessu fæði fengu þau í ofanálag
skeið af góðu þorskalýsi daglega.
Börnin sem þetta fæði fengu
voru alls 22 og öll á aldrinum 5 —
6 ára, og bjuggu þau við þennan
kost eingöngu í 6 mánuði.
Við iðulega, vandlega rannsókn
kom í Ijós að allar tannskemmdir,
sem voru fyrir hættu algjörlega,
engar nýjar skemmdir komu fram
og ðll tannpína hætti.
Athuguð voru einnig börn á
svipuðu reki jafnlangan tima. Pau
fengu hinsvegar fæði eins og geng-
ur og gjörist á Englandi en með
nokkuð stærri skamti af haframjðls-
réttum. Hjá þeim fundust að jafn-
aði 5 tennur skemmdar i hverju
barni og þær skemmdir héldu áfram.
Úr annari átt og nokkuð óvænt,
bárust nýlega fréttir af athugunum,
sem komu algjðrlega heim við of-
annefndar skýringar á orsök tann-
pinunnar og tannveiki mannanna.
Langt úti i Atlantshafi, suður af
St. Helena eða vestur af Kap-ný-
lendunni er ey ein lítil, sem heitir
Tristan da Cunha. Parna er brim-
ótt mjðg og koma þangað sjaldan
skip, eða varla oftar en einu sinni
á ári. Eyjarskeggjar eru um 160
og allir afkomendur brezkra og
hollenzkra sjómanna. — Peir hafa
aldrei notað tannbursta, en tennur
þeirra mega heita algjörlega ó-
skemmdar. Skipslæknir á ensku her-
skipi og tannlæknir frá Kap ný-
lendunni fóru þangað og athuguðu
vandlega alla ibúana og aðgættu
sérstaklega hverja tönn í skoltum
þeirra. Peir sannfærðust um, að
hvergi i veröldu mundi finnast hóp-
ur hvítra manna i nokkru byggðar-
lagi, jafn tannheill. Auk þess var
ekki í neinu barni þar að finna
nein beinkramareinkenni.
ÖII helztu sérkenni í lífi Tristans-
búa er nú það, að þeir eru af
náttúruskilyrðum neyddir til að lifa
kornmetislausir. Arið 1885 komst
rottan þar á land og hafa þær síð-
an algjörlega meinað íbúunum alla
kornyrkju. Eyjarskeggjar lifa sfðan
nær eingðngu á jarðeplum, fiski,
mjólk og eggjum. Peir líða engan
skort og þrífast vel á þessu fæði
og vissulega hafa þeir komist hjá
tannskemmdura.
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum nær og fjær, að maður-
inn minn, Jón Sigurðsson smiður, lézt á sjúkrahúsinu á Akureyri, 25;
april s.l. — Jarðarförin er ákveðin mánudaginn 9. þ. m., og hefst kl. 1
e. h., með húskveðju á heimili okkar, Hafnarstræti 106.
Akureyri 3. maí 1932.
Guðný Jóhannsdóttir.
ÞVOIÐ
SILKINÆRFÖTIN
úrLUX
Sje LUX ávalt hand-
bært, hefur maður
endalausan for'Sa af
nýjum nærfötum. J'ví
ein dýfa 1 hi'S hreina
LUX-lö'Sur endur-
nýjar og hreinsar
silkiflíkumar sem
j?jer klæddust í dag
og á morgun getiÖ
J>jer aftur fari'S í pær
sem spánýjar væm.
LUX
heldur
flíkunum
enn lengur
nýjum
Litlir pakkar 0.30
Stórir pakkar 0.60
M-LX 372-047A IC LEVER BROTHERS LIMITED, PORT SONLIGHT, ENGLAND
Hér er þvi að ræða um náttúr-
lega mataræðistilhögun býsna við-
tæka, en á takmörkuðu og einangr-
uðu svæði, og kemur reynslan þar
merkilega vel heim við árangur til-
raunanna, sem að ofan er getið um.
Pessi tiðindi koma okkur íslend-
ingum til að lita á okkar eigin tann-
pinusðgu. Hún er i rauninni ekki
mikið eldri en það sem nær minni
okkar elztu manna. Og þegar eg
lit í skýrslur eins af fyrirrennurum
mínum f læknisembætti Akureyrar-
héraðs þ. e. Jóns Finsens, sem var
hér læknir á tímabilinu 1856 — 1867,
þá sá hann ólíkt minna af tannveiki
en nú tiðkast. — Hérað hans náði
þá yfir bæði Eyjafjarðar- og Ping-
eyjarsýslur og þar að aukivarhann
settur i Múlasýslum (1860 — 1866).
Hann skráði alla sjúklinga sem
leituðu hans og segir hann að alls
hafi leitað sin 152 sjúklingar með
tannveiki, meðan hann var hér og
þætti það ekki mikjð nú á tfmum.
Honum þótti þetta þó vera furðu
mikið, þvi i ungdómi hans og eldri
manna þekktist veikin varla. Hann
kennir kaffinu um og að menn
bryðji kandfs með heitu kaffinu.
En hann getur þess ekki, sem lík-
lega var þýðingarmeira, en það var
að kornraetisneyzla v«r óðum að
færast i vöxt, frá þvf sem áður
hafði verið. Öldum saman höfðu
landsbúar i raun réttri lifað við
mjög svipaða fæðu og íbúarnir á
Tristan da Cunha, nema þeir átu
lítið eða ekkert af kartöflum. Og
öllum læknum kemur nú saman um
að harðfiskurinn hafi verið allri
fæðu hollari til styrktar og stæling-
ar tönnum auk þess sem hann var
helzti undirstöðumaturinn og ein-
hver hollasti sem völ var á. —
Af því sem nú er ritað, skal eng-
inn halda að nauðsynlegt sé að
hafna ðllum kornmat vegna tann-
anna og hætta t. d. alveg að eta
hafragraut, sem er orðinn þjóðrétt-
ur. Pað gildir annað um börn senl
eru að vaxa og taka tennur, en
fullorðna, sem eru vel tenntir. En
til þess að allir geti orðið það, er
nauðsynlegt að hafa hemil á brauð-
áti barna, sérstaklega þó sætabrauðs-
áti. Hinsvegar er vist, að hollast
væri okkur, að auka að mun jarð-
eplarækt t landi voru, svo að allir
nytu þeirra hlunninda á degihverj-
um. Ennfremur eigum vér sem allra
fyrst að stefna að þvf að nota vorn
mikla jarðhita til að rækta við ÖIl
þau aldini og allar þær tegundir
grænmetis, sem við nú kaupura
dýrura dómum frá útiöndura. -