Dagur - 01.09.1932, Síða 2

Dagur - 01.09.1932, Síða 2
138 PXGUR 35. tbl. ... .i-i . fifffflffflfffiflllflSSII 11'I_!_ _1__ i Hvít og mislit léreft Tvisttau, fjölbreytt úrval Flónel, hvít og mislit Fóðurtau allskonar Þurkur og þurkudreglar Nærfatnaður, kvenna og karla Kaupfélag Eyfirðinga. Vefnaðarvðrudeiidin. fiiiiiiiiiÍiiiiiiiiiiliiS tíðindwwm, til að sanna, að hann hafi farið rétt með orð J. J., er alls ekki eftir J. J.. Ummælin, ef þau væru rétt höfð eftir, hlytu þá að vera prentuð í ræðu J. J. í þingtíð- indunum. En ræðan, sem MT. J. vitnar í, er eftir ólaf Thors! En það er svo sem ekkert und- arlegt, þó að hann falsi ummæli úr Alþingistíðindunum, maðurinn, sem skrifaði »Reykjavíkurbréfið« um ve;kindi Tryggva Þórhallsson- ar, sem birt var í Morgunblað- inu. »Tíminn«. ----o—— 1G. og ijutæktarlogii. »íslendingur« þakkar Magnúsi Guðmundssyni sérstaklega jarð- ræktarlögin og þá blessun, sem af þeim hafi' flotið. Rétt er það, að stjóm Búnaðarfélags íslands, sem hafði forgöngu í málinu, naut að- stoðar M. G. sem lögfræðilegs ráðunauts við samningu frum- varpsins, en lítið lagði hann til af efni frv., en þó ofurlitla ögn. Hann kom því sem sé inn í frv., sem nefnt hefir verið »dagsverka- frádráttur« og var í því innifalið, að enginn fengi styrk á fyrstu 10 dagsverkin, er hann léti vinna á ári hverju, fyrir hvem verkfæran karlmann. Varð þetta ákvæði M. G. brátt óvinsælt eins og kunnugt er og lauk með því, að það var fellt úr lögunum. Menn hafa því látið sér þau orð um munn fara, að það, sem Magnús Guðmunds- son hafi lagt til í jarðræktarlögin, hafi verið bæði illt og lítið. Þegar til kasta þingsins kom að veita fé til framkvæmda lögunum, var Tryggvi Þórhallsson kominn á þing og beitti sér fyrir því, að lög- in kæmu til framkvæmda, en það var því aðeins hægt að fé væri veitt til þess í fjárlögum. Jón Þorláksson var þá fjármálaráð- herra, og taldi hann »óforsvaran- legt að taka upp fjárveitingu í þessu skyni, nema samþykktir væru um leið nýir skattar. Sagði J. Þ., »að þessari nýjung í fjár- veitingum ætti að fylgja sú at- hugasemd, að hún kæmi því að- eins til framkvæmda, að nægilegt U væri til í ríkissjóði«. En fyrir ötula framgöngu Tryggva Þór- hallssonar náði þó fjárveitingin fram að ganga. íslendingur bendir réttilega á það, að þeir Þórarinn á Hjalta- bakka og Jón ólafsson hafi báðir sýnt sig velviljaða landbúnaðin- um, og tilheyri þeir þó báðir flokki Magn. Guðm og Jóns Þorl. Fyrr mættu nú vera ósköpin, en að eng- inn íhaldsmaður væri velviljaður landbúnaðinum. En þó að velvilji þessara tveggja manna kunni að vera mikill, þá er hann ekki næg- ur til að bregða ljóma yfir flokk- inn í heild sinni, þegar um afstöðu hans til landbúnaðarmálanna er að ræða. Þórarinn Jónsson sagði til dæmis, þegar jarðræktarlögin voru til umræðu á þingi, að brot- in væru lög á bændum, ef ekki væri veitt fé til að framkvæma lög, sem gengin væru í gildi. Var það eftirminnileg ofanígjöf til flokksmanna hans. ----o---- Tvær lántokur Magnús Guðmundsson tók ríkis- lán 1921, sællar minningar, og skýrði Jak. Möller það »óskapa- lánið«. Þetta Magnúsar-lán var að upphæð á 12. miljón kr. og varði hann því sem hér segir: Af því fór til að greiða ýmsar eyðsluskuldir ríkissjóðs hátt upp í 3 miljónir. Til Landsbankans fóru nærri tvær miljónir, en í íslands- banka nokkuð á sjöundu miljón. Að svo miklu leyti sem lánið fór ekki í eyðsluskuldir, veitti M. G. því í bankana, einkum íslands- banka, en hafði þó enga heimild til þess frá þinginu. En þá var ís- landsbanki að þrotum kominn vegna stórtapa, sem( hann hafði orðið fyrir af völdum útgerðar- og verzlunarmanna. Á Alþingi 1929 bar fjárhags- nefnd efri deildar fram frv. til laga um lánsheimild fyrir ríkis- stjórnina, og var það á þessa leið: 1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að taka handa ríkissjóði allt að 12,000,000 — tólf miljón króna — lán. 2. gr. Láni því, er 1. gr. getur, er stjórninni heimilt að verja eftir því, sem með þarf, samkv. ákvörð- unum eftirtaldra laga: Laga nr. 10, 15. apr. 1928, um Landsbanka íslands. Laga nr. 31, 7. maí 1928, um heimild handa ríkisstjóminni til ríki'srekstrar á útvarpi. Laga nr. 35, 7. maí 1928, um Byggingar- og landnámssjóð. Laga nr. 49, 7. maí 1928, um stofnun síldarbræðslustöðvar. Laga nr. 66, 7. maí 1928, um smíði og rekstur strandferðaskips. Laga nr. 60, 7. maí 1928, um heimild fyrir Landsbanka Islands til að gefa út nýja flokka banka- vaxtabréfa. Fjárlaga 1929, 23. gr. XIII. (til Þingvallavegar). Laga nr. 62, 28. nóv. 1919, um brúargerðir. Laga nr. 74, 28. nóv. 1919, um húsagerð ríkisins. Svo og laga þei'rra, sem sam- þykkt eru á Alþingi 1929, að því leyti sem þau fela í sér heimildir til lántöku. 3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Frv. þetta var samþykkt með samhljóða atkvæðum í báðum deildum þingsi'ns. Lán þetta var síðan tekið hjá Hambros Bank í London á árinu 1930 og því skift samkv. ofan- greindum lagaheimildum eins og frá var skýrt í þessu blaði 18. síð- asta mán. , Geta menn nú borið saman með- ferð þeirra tveggja ríkislána, sem hér hefir verið getið. Magnúsar- láninu 1921 var varið til þess að greiða eyðsluskuldir og í heimild- arleysi frá þingsins hálfu. Ham- brosbanka-láninu 1930 var varið samkvæmt lagaheimildum Alþing- is, »til þess að bæta landið og lífs- skilyrði þjóðarinnar«, eins og stendur í íslendingi, síðasta tölu- blaði. ------o----- Lýsing á Akureyri fyrir 80 árum. Þar eru nú heimilisfastir 230 manna; þar af 40 heimilisráðend- ur, þeirra á meðal fjórðungslækn- irinn, apótekarinn, 3 kaupmanna- fulltrúar, 1 borgari, 1 borgarainna, 1 veitingakona sem selur kaffi m. fl. og nokkrir sem þjóna að verzl- un, 1 prentari, 1 bókbindari, 4 gull- og silfursmiðir, 4 járnsmiðir, 5 tré- og húsasmiðir, 1 söðlasmið- ur, 1 múrari, 1 skóari, og enn nokkrir, sem með fram leggja stund á járn- og trésmíði, og hér um bil 60 börn ófermd. I bænum eru 33 timburhús og nokkur af timbri með torfþaki, auk annara, sem eru með veggjum og þaki af terfi, 1 prentsmiðja, en kirkja engin, bamaskóli enginn, gest- gjafahús ekkert. Næstliðið sumar öfluðu bæjarmenn 686 tunnur og 4 skeppur af jarðeplum og hér um bil 1800 hesta af heyi. Þar eru og 40 kýr, fátt eitt af sauðfé og hrossum. Þar eru 32 för, mest tveggja-manna og fáein stærri, Helztu atvinnuvegir bæjarmanna eru: verzlun, smíðar, heyskapur, jarðeplarækt, selaveiði, fiskiafli og síldarveiði. Meginbærinn liggur á sléttri sandeyri, sem er »Akur- eyri«, innst við Eyjafjörð vestan- verðan, hér um bil 18 fet yfir sjávarmál, þar sem hún er hæst. Fyrir ofan bæinn er brött brekka, eða hár bakki, — að meiri hlutan- um melur, en grasi vaxin, í hverj- um jarðeplagarðarnir liggja, — er skerst á einum stað sundur af gili miklu, rétt upp undan téðri eyri. Gil þetta er kallað búðargil, og nokkrir jarðeplagarðar eru þar líka, en út og fram undan bænum liggur Pollurinn, áður nefndur Hafsbót; hann líkist mest af öllu hringskornu, miklu stöðuvatni. Að norðanverðu takmarkast Pollurinn af svo nefndri Oddeyri, sem þeim megin, er að Pollinum veit, er 450 faðmar á lengd; þaðan, yfir álinn í austurlandið, sem er vestari hlið Vöðluheiðar, er hér um 500 faðma, og hver fjallshlíð liggur með Pollinum að austan; en að sunnanverðu: af mörgum gras- hólmum, sem hlutaðir eru í sund- ur af árkvíslum þeim, er Eyja- fjarðará skerst í, þar sem hún rennur til sjávar. Sunnanvert við Pollinn eru útgrynningar miklar, þegar lágsjávað er, og er svæði þetta kallað leira; en þar sem mætist Pollurinn og leiran, er hár og að kalla má þverhnýptur mar- bakki, helzt þá vestur eftir dreg- ur. Leirunni er einlægt að þoka út eftir. Þegar hásjávað er, er leiran öll í kafi. Lengdin á Pollinum, frá Oddeyri og inn að marbakka, er hér um 1000 faðma, en breiddin 960 faðma; en kauptúnið sjálft er hér um 600 faðmar að lengd, en breiddin sumstaðar svo lítil, að ekki verður höfð nema einsett húsaröð. Það liggur 65 mælistig- um og 40 mínútum fyrir norðan miðjarðarlínu, en 30 mælistigum og 44 mínútum fyrir vestan Kaup- mannahöfn. Eins og að ofan er ávikið, vant- ar bæinn kirkju, barnaskóla, spítala, gestgjafahús og ennfrem- ur byggingar- og túnstæði, bygg- ingarnefnd, vökumann, lögreglu- stjórn og kaupstaðarréttindi; en þó af öllu þessu er kirkjuvöntunin tilfinnanlegust, og því heldur, sem bæjarmenn þrem sinnum knúið hafa á náðar- og hjálpardyr hixm- ar dönsku stjómar, um gjöf eða lán, til viðbótar því, er sjálfir þeir af eigin efnum — margir meir af vilja en mætti — hafa viljað leggja í sölurnar, en jafnan fengið afsvar. Þess munu þó — því betur — færri dæmin, að þar, sem 230 manneskjur eru heimilisfastar og þar af 60 börn innan fermingar, fólksfjölgunin ár frá ári að fara í vöxt, auk hinna sem eru á næstu bæjum og annarstaðar að koma erinda sinna til bæjarins, skuli engin kirkja vera, og hvar þó jafnlangt er til kirkju sem frá Ak- ureyri að Hrafnagili. Norðri, febrúarblað, 1853. ----—o------

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.