Dagur - 01.09.1932, Blaðsíða 3

Dagur - 01.09.1932, Blaðsíða 3
35. tbl. D'AGUR 139 r Trjágarðurinn i tiriið. Gagnfræðaskólamal ---- Norðlendinga fyrir 30 árum. Rétt við steinlagt stræti stofnar háir rísa. Bera blöð og greinar blómguð tré, sem anga. Þögull þróast gróður þrunginn kraíti og lífi, mælir sinu máli, menn sem þó ei heyra. Benda hátt og heilla huga vegfaranda. Skynja yl og unna einkum sólarljósi. Klæðast skrúði í skini, skugga enga hræðast. Andinn formið fagra fyllir. Lífið glæðist. Hátt á jfrænum greinum glaður þröstur syngur. Nýtur þarna næðis, náttúruna lofar. Sínu lífi sinnir sálin efni háða. Flýgur, finnur hreiður fuglinn jörðu bundinn. Ljúfur blærinn blöðin bærir, reyniviðar. Björk af beinum reyni blíðu atlot þiggur. Ljósálfar sér leika ljúfir millum trjánna, fagna fegurð yfir, frjálsir lífsins njóta. Hausti hrímið fylgir. Hnignar jarðar gróðri. Allt má lúta lögum lífs og náttúrunnar. Blöðin blómin fella, burtu feykir vindur. Veittu áður angan yfir torg og stræti. Leynist líf í stofni, liljur þó að falli fyrir frosti og hríðum. Fannir rótum skýla. Standa birkistofnar, stríð við vinda heyja. Minnast, sumars sakna, sólar-yls og blíðu. Sumarfuglar syngja sárum, klökkum rómi. Feigur fótum treður fölnað lauf í dauða. Andi úr læðing leysist, líf þótt bindist dróma. Flytur óm og angan yfir landamærin. í ágústmánuði 1932. Sigfús Elíasson. ■■■_) "*|‘ ~ ~~ Helztu vandamál íslands hafa sfðan á landnámstfð verið þessi: Fólksfæð landsins, fjárkreppa og óstjórn. Hverjar eru helztu orsakir þeirra, fyr og nú, og hvaða vegir, ef nokkrir, eru landsmönnum fserir og enn opnir til að ráða við- unanlega fram úr þeim, af sjálfs- dáðum, innan fárra ára? spurull. Framh. Enn mælti Stefán kennari ein- dregið með, að skólinn yrði sam- skóli (d: að þar mættu nema saman konur og karlar). Hann sá á því enga meinbugi. Hann komst, meðal annars, svo að orði: »Ein mótbáran gegn því (d: að meyjar og sveinar sæki sama skóla) er sú, að örðugt mundi verða að gæta góðs siðferðis í skólanura. Það sýnir sig, að þessir menn látast ekki þekkja manneðlið né taka tillit til reynslunnar. Vér vitum, að til sveita lifa og vinna karlar og konur saman og sofa f sama herberginu; en fyrir sliku geri eg ekki ráð i skólanum, þótt eg annars sjái ekkert á móti þvf, að svo væri. Vér vitum það og, að það er langt frá því, að siðferði sé lakara f sveitum en f kaupstöðum, þar sem karlar og konur eru meir aðgreind. Reynslan er fyrir þvf, að sundurstfunin gerir siðferðið verra, en bætir það ekki. — Eg játa, að það þarf góða stjórn á samskóla, en hennar þarf með f hvaða skóla sem er.«>) Talar Stefán hér frjáls- mannlega og djarfmannlega, hispurs- laust og teprulaust. Magnúsi landshöfðingja Stephen- sen leizt ekki eins vel á þetta sam- býli námsvéina og námsmeyja, enda var hann nú nokkuð við ald- ur. Hann svaraði þannig, méðal annarra orða, hinum frjálslynda kenniföður frá Norðurlandi: »Eg geri ráðfyrir, að konum muni ekki verða synjað um heimavist f skól- anum. — — Eg er að vfsu sjálf- sagt ekki eins kunnugur manneðl- inu eins og h. 2. þm. Skagf. (St. St.); en þó er eg hræddur um, að ef piltar og stúlkur eiga að lesa saman f undirbúningstfmum í sömu herbergjum, þá muni fara svo, að piltarnir muni horfa fullt svo mikið á stúlkurnar sem í bækurnar. Aftur á móti er eg ekki svo hræddur um, að lausaleiksbörn muni verða fleiri eftir en áður; vér tslendingar erum nú einu sinni kunnir að þvf, að eiga þau tiltölulega fleiri en flestar aðrar þjóðir.*2) Tíllagan var öll samþykkt og af- greidd til landshöfðingja sem þings- ályktun frá neðri deild. Stefán skólameistari hreyfði ekki á þessu þingi sambandi hins fyrir- hugaða Akureyrarskóla við Iatínu- skólann; Hann minntist ekki heldur á að stofna þar til framhaldsnáms fyrir stúdentaefni og vék ekki að þvf einu orði, að þar mætti braut- skrá stúdenta, eins og hann hélt fram i ,NorðurIands‘greinum sfnum (sjá 34. tbl. »Dags«). Fyrst varð að koma skólanum undir húsþak. Þá er viðunandi húsnæði var fengið, var timabært að ræða um réttindi hans og kennslugréinir. En á þessu þingi var þó óbeinlínis búið í hag- inn fyrir slíkt samband, t. d. með þeirri samþykkt þingsályktunartillögu neðri deiidar, að skólinn yrði þriggja ára skóli. Enn fremur var á þessu þingi samþykkt í báðum deildum tillaga frá flokksbræðrum Stefáns ■) Alþt. 1902, B. d. 471. 2) Alþt, 1902, B. d, 475t Við þökkum innilega öllum þeim, nær og fjær, sem auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, frú Steinunnar Jónsdóttur frá Mælifelli. Akureyri, 30. ágúst 1932. Börnin. skólameistara, þeim séra Sigurði Jenssyni'og Kristjáni Jónssyni, þar sem skorað var á stjórnina að breyta reglugerð lærða skólans og afnema þar grisku-kennslu með öilu, minnka latínukennslu og auka í þess stað kennslu i nýju málunum (einkum ensku og dðnsku) og eðlisfræði. Er með þessu svipað samþykkt og í Iagafrumvarpinu 1897 og þings- ályktunartillögu alþingis 1899. En hér er ekkert minnst á sambandið milli skólanna. Þá er báðar þessar tillögur voru komnar i framkvæmd, var ogleikur einn fyrir stjórnina að tengja skólana saman, eins og bar- izt var fyrir á undanförnum árum. Það er stundum góð stjórnmálaiist, eigi síður en það er góð Ijóðlist, að láta ekki stefnumið sitt berlega i ljós. II. Möðruvallaskóli var nú fluttur til Akureyrar haustið 1902, ekki lögum samkvæmt, heldur braut nauðsyn hér lög. Var kennt í barnaskólanum frá kl. 3—8 síð- degis. Hefir slíkt á ýmsan hátt verið óhagstætt, bæði nemendum og kennurum. Næst gerist það í skólamáli voru, að leitað er umsagnar skóla- meistara og samkennenda hans um ályktun aukaþings, er áður er skýrt frá. Það hefir áður verið gefið í skyn, að Hjaltalín hafi verið heimavistum mótfallinn. Hann minnist á það í fyr-getnu bréfi 9. maí ’02 til Stefáns Stef- ánssonar: »Þú stingur upp á því að hafa heimavistir í þessum nýja skóla. Því er eg alveg mótfallinn, og hefi eg nægar ástæður móti því. Þó skal eg ekki tilfæra hér aðra en þá, að eg þykist alveg viss um, að þingið fæst aldrei til að veita það stórfé, sem til þess þarf að láta 100 nemendur hafa hús- næði, hita og ljós og svo að kosta alla þá umsjón, sem því verður samfara«.-------»Þó að þið leggið báðir saman, þið Páll,1) þá fáið þið ekki því framgengt«. Eftir orðanna hljóðan varð Hjaltalín sannspár um þetta. En í raun réttri ganga honum hér þunglega spádómarnir, enda spáði hann eft- ir ósk sinni. í tillogum kennar- anna 30. okt. 1902 um fyrirkomu- lag gagnfræðaskólans ritar hann ágreiningsatriði við samkennend- ur sína, þá Halldó» Briem og Stefán Stefánsson. Kveðst hann vera verða þeirrar skoðunar, »af 22 ára reynslu, að heimavistir sé alls ekki heppilegar«. Farast hon- um svo orð um þetta mikilvæga efni: »Þar sem heimavistir eru, verður ekki hjá því komizt, að talsvert haft sé á daglegu frelsi manna, og kemur það sér illa við vaxna menn, einkum þá, er hafa *) Páll amtmaður Briem. Öllum þeim, sem á einn eða annan hátt auðsýndu okkur að- stoð og hluttekningu, við jarðar- för Guðmundar Halldórssonar, vottum við alúðarfyllstu þakkir. Aðstandendur. að öllu leyti átt að sjá fyrir sér sjálfir og ráða sér sjálfir, en ein- mitt allur þorri nemenda, er sóttu til Möðruvallaskólans, voru af þessu tæi, og líkindi eru til, að líkt verði framvegis. Mér er það kunnugra en nokkrum öðrum og miklu betur en meðkennendum mínum, að slíkt band, sem þurftí að vera á heimavistarpiltum á Möðruvöllum, leiddi oft til alvar- legs sundurþykkis, milli skóla- stjóra og nemenda, sem stundum hafði talsverð áhrif á námið og gott samkomulag milli skólastjóra og piltanna. Og þó að margir nem- endur hafi síðar kannazt við, að þetta hafi verið ófyrirsynju, þá hafði það talsverða þýðingu, með- an á því stóð. Einnig kvörtuðu ýmsir piltar yfir því, að ónæði og skarkali væri oft svo mikill á Möðruvöllum, að það hindraði nám sitt, og kváðust mundu nema betur, ef þeir væru út af fyrir sig. Hins vegar er það eigi svo lítið þroskunarmeðal fyrir unga menn að eiga að sjá fyrir sér sjálfir. Margur maður hefir lítt orðið að manni, meðan allt var lagt upp í hendur honum, og*hann þurfti enga stjórn að hafa á sjálfum sér né fyrirhyggju fyrir lífi sínu, heldur önnuðust það aðrir fyrir hann, svo að hann var í nokkurs- konar reifum vafður og gat ekki hreyft sig. Og þetta kölluðu menn uppeldi! Að binda fjöruga æsku- menn á klafa ætla eg, að sé hið versta uppeldi, sem menn geta gefið þeim. Menntun, og meina eg með því að gjöra manninn að manni, þróast ekki, svo að til nytja verði, nema í frelsi, og eigi síður við það, að sá, er menntast vill, hefir við nokkra örðugleika að berjast. Þetta er nú mitt álit á uppeldis- gildi heimavista, sem sumir þeir, er litla eða enga reynslu hafa, gjöra svo mikið úr« —. Að öðru leyti voru þeir kennar- arnir þrír, Hjaltalin, Halldór Briem og Stefán Stefánsson, sam- dóma um þá þrjá liðu tillögunnar, að skólinn tæki 80—100 nemend- ur, að skólinn verði jafnt fyrir konur og karla, og námstiminn verði þrír vetur, og mæltu ein- dregið með öllum þessum ákvæð- um.1) J) Bréfabók Hjaltalíns, bls. 174—181.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.