Dagur - 01.09.1932, Page 4
140
DXGUR
35. tbl,
Páll amtmaður Briem mælti
aftur eindregið með heimavistun-
um. Sýnir það menning og — mér
liggur við að segja — vísindaleg
vinnubrögð amtmanns, að hann
leitar vitnisburðar erlendrar
reynslu um uppeldisgildi þeirra,
eftir því sem slíks var kostur á
Akureyri. Kvaðst hann ætla þau
réttan dóm um slíkt, þessi orð í
Brockhaus Konversations-lexicon
1898: »Heimavistar-uppeldið hefir
sína yfirburði, einkanlega að því
er snertir einfalda lífernishætti
og reglusemi, jafnleika og strang-
leika, aga og venju á skipulegt
samlíf. Aftur á móti vantar það
hin fjörgandi, siðbætandi og lag-
andi áhrif familíulífsins, auk þess
sem það leggur tálmanir ívegfyrir
heppilegan þroska á sérkenniseðli
jiemendanna«. Kvað amtmaður ó-
kostanna einkum gæta, þar sem
nemendur ælust upp í slíkum
skóla frá barnæsku. Hér kæmi
nemendur gamlir í skóla, hjá því
sem erlendis gerðist, og skólaárið
væri stutt. í>ví virtist sér kostir
þeirra ókostunum yfirsterkari.
í heimavistarskóla, sem nú
væri á döfinni á Akureyri,
gæti »eigi verið að tala um
reglulegt uppeldi (o: eins
og í samskonar skólum utan-
lands), en nemendur verða að
stunda nám sitt á ákveðnum tíma,
koma á ákveðnum tíma til mál-
tíða, hafa reglulegan svefntíma,
forðast ólæti, skarkala, nautn á-
fengra drykkja, tóbaksreykingar
o. s. frv. — Fyrir það virðist ein-
ungis geta verið gott fyrir ung-
linga að komast undir dálítinn
aga, svo að þeir læri að hlýða,
vera reglusamir og taka nauðsyn-
legt tillit til annarrac.1) Þennan
þátt heimavista í uppeldi skól-
anna láðist skólamanniúum
Hjaltalín að gagnrýna og gaum-
gæfa.
Fiamh.
Sigurður Guðmundsson.
■ —
* •. . - . i
Fr éttir.
Siglufjarðarkirkja hin nýja var vígð
síðastl. sunnudag af biskupi landsins,
dr. Jóni Helgasyni. Nokkrir prestar
voru viðstaddir vígsluathöfnina og mik-
ill mannfjöldi annar, sem kirkjan ekki
rúmaði allany pó stór sé. í vígsluræð-
unni lét biskup þess getið, að Siglu-
fjarðarkirkja hin nýja væri veglegasta.
guðshús á landi hér.
Jarðarför Guðmundar Skarphéðins-
sonar skólastjóra fór fram á Siglufirði
á mánudaginn var að viðstöddu miklu
fjölmenni. Er það fyrsta jarðarför, er
fer fram frá hinni nýju kirkju þar.
Itæður yfir hinum látna fluttu sóknar-
presturinn, síra Bjarni Þorsteinsson,
og síra Sigurður Einarsson úr Reykja-
vík. Ennfremur einn leikmaður, Héðinn
Valdimarsson, alþm.
Taugaveilci hefir að nýju komið upp
á bænum Skriðu í Hörgárdal
i) Alþt. 1903 CT, bls. 261,
Söngskemmtun.
Gunnar Pálsson frá Staðarhóli
hér í bænum söng í Nýja-Bíó í
gærkveldi við góða aðsókn, eftir
því sem gerist nú á tímum, og þó
enn betri orðstír. Gunnar hefir
fallega rödd og mikla og beitir
henni vel. Var söng hans tekið
með dynjandi lófaklappi, og mikl-
um fögnuði, og varð hann að end-
urtaka mörg lögin. Einkum þótti
mikið til koma meðferðar hans á
»Consider and hear me«, éftir
Wpoler, »Vesti la giubba«, eftir
Leoncavallo, »Questa o quella«,
eftir Verdi, og »Eg gleymi því
aldrei«, eftir Kaldalóns; öll þessi
lög varð söngmaðurinn að endur-
taka og enn fleiri. Af þekktum
lögum, eftir íslenzka tónsmiði,
söng hann: »Eyjafjörður«, eftir
H. Helgason, »Kveldriður«, eftir
Kaldalóns, »Gígjan«, eftir Sigfús
Einarsson og »Kveðja«, eftir Þór-
arin Guðmundsson.
Frú Else Pálsson, kona söngvar-
ans, aðstoðaði hann við hljóð-
færið.
Gunnar Pálsson er fyrir skömmu
heim kominn frá Ameríku eftir
langa dvöl þar. Vonandi á hann
eftir að skemmta bæjarbúum
mörgum sinnum með söng sínum,
ef hann ílendist hér.
70 ára afmxlis Akureyr.akaupstaðar
var minnzt með samkomu í ráðhúsi
bæjarins að kvöldi 29. f. m. Voru þar
samankomnir eldri og yngri bæjarfull-
trúar og nokkrir aðrir bæjarbúar, alls
um 40 manns. Fór þar frarn tedrykkja
og voru margar ræður fluttar. Heilla-
óskaskeyti bárust bænum frá Siglu-
fjarðarkaupstað, Vestmannaeyjum og
Húsavík. i
100 ára öldungur. Hinn 7. þ. m. (á
miðvikudaginn kemur) á Kristján Ás-
mundsson í Víðigerði í Hrafnagils-
hreppi 100 ára afmæli. Þrátt fyrir
þenna háa aldur hefir hann enn ferli-
vist, en sjón hans og heyrn er nokkuð
tekin að daprast. Kristján hefir ætíð
verið vinsæll maður og vel latinn. Hann
var elztur sinna systkina og er nú einn
þeira á lífi. Bróðir hans var Ásmundur
»fótalausi«, er fór til Ameríku.
Kristján Ásmundsson hefir lengi dvalið
í Víðigerði á vegum dóttur sinnar og
dóttursonar, Hannesar Kristj anssonar
bónda þar.
Allir hinir mörgu kunningjar og vin-
ir Kristjáns í Víðigerði munu óska
þess, að honum megi hlotnast friðsamt
og rólegt æfikvöld.
Slysfarir. Átta ára gamall drengur í
Reykjavík beið bana af bílslysi í síð-
ustu viku.
Maður í Vestmannaeyjum, Einar
Magnússon að nafni, beið bana af
sprengingu í vélaverkstæði þar í síðustu
viku. Klofnaði höfuðið á manninum og
þakið tók af verksmiðjunni, er spreng-
ingin varð.
Átbræður varð 26. f. m. Árni Krist-
jánsson, faðir Kristján's kaupmanns
hér í bæ og Guðmundar bæjarpósts.
Þrátt fyrir aldurinn er Árni enn «rn
yel og léttur í spori.
Gainfræðaskóli Akureyrar
verður settur laugardaginn 15. október.
Umsóknir til beggja deilda, gagnfræða- og iðndeildar,
verða að vera komnar undirrituðum í hendur fyrir 1. október.
frá Hiuni
skólastjóri.
Oddeyrargötu 38, Akureyri.
• ___________________
Lögtak.
Samkvæmt kröfu bæjargjaldkerans á Akureyri, verða ógreidd gjðld til
bæjar- og hafnarsjóðs Akureyrarkaupstaðar tekin lögtaki á kostnað
skuldara, ef þau verða ekki greidd innan 8 daga frá birtingu þessarar
auglýsingar. —
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyrarkaupstaðar 19. ágúst 1932.
Guðbrandur \ Isberg.
settur.
TILBOÐ
óskast um flutning á mjólk og mjólkurvörum til kaupenda okkar
í Akureyrarbæ, frá 4 október n. k. og til jafnlengdar næsta ár.
Tilboðin má gera á tvennan hátt; bæðí um allan fiutninginn
í bæinn, eða einungis »/3 hiuta hans.
Allar nánari upplýsingar þessu viðkomandi gefum við þeim,
er tilboð vilja gera. Tilboðunum sé skilað á skrifstofu okkar fyrir
þann 20. þ. m.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Mjólkursamlagið.
Sakamálsrannsókn fyrirskipaði fyrv.
dómsmálaráðherra út af gjaldþroti
Gísla Johnsen kaupmanns í Vestmanna-
eyjum. Dómur er fallinn í undirrétti og
er Gísli Johnsen sekur fundinn um
rangt bókhald og ívilnanir til handa
einum lánardrottni sínum. Var hann
dæmdur í 45 daga venjulega fangelsis-
vist. Endurskoðandi bókhaldsins, Man-
cher, var einnig dæmdur í 15 daga
fangelsi, en sá dómur er skilorðsbund-
inn.
Gísli Johnsen áfrýjar dómnum til
hæstaréttar.
Til Noregs fóru um 20. f. m. þeir Jón
Árnason framkvæmdastjóri og Ólafur
Thors alþm., til þess að halda áfram
samningagerð við fulltrúa norsku
stjómarinnai'.
Dánardægwr. Ung stúlka hér í bæn-
um, Kristín Valdimarsdóttir, andaðist,
að afstöðnum bamsburði, síðastl.
sunnudagsnótt. Barnið fæddist and-
vana. Hin látna var unnusta Jakobs
Þorsteinssonar bóksala, Jónssonar. Er
þungur harmur kveðinn að þessum
unga manni.
Skólastjóri barnaskólans á Siglufirði
er settur til eins árs Friðrik Hjartar
skólastjóri á Suðureyri. Er Friðrik einn
af fremri skólamönnum hér á landi á
því sviði, er hann starfar, áhugasaraUr
og vel að sér. ...
TT* t^tt\ óskast til leigu
T BTJt) 1. október.
Jón Friðriksson,
Þingvallastræti 6.
i Va, 'A og Vt líteri
baukum.
Skóverzlun Péturs H. Lárussonar.
vantar á sveita-
heimili. Upplýs-
ingar hjáÁrnaJóhannssyni K.E.A.
»fi Allt með islenskum skipum!
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 5.
Prentsraiðja ödds Bjömssohar.