Dagur - 08.09.1932, Blaðsíða 4

Dagur - 08.09.1932, Blaðsíða 4
144 PXEEB/ 36. tbl. Kristján Ásmundsson i Viðigerði tírœður. Jafnt og þétt á víðum vegi velta tímans renni-hjól. — Hæru-mjallað hausts á degi höfuð lýsir aftan-sól. Fagnar hópur gesta glaður, guðveig speglar bros og tár, þá hinn erni' öldurmaður á að baki hundrað ár. — Þá var bjart á ungri öldu, er hann barst á þetta svið. Fámenn þjóð á Fróni köldu frelsisradda heyrði nið. Hendur rétti vinur vini, vorhlýr gustur fór um lönd. Glóði mær í morgun-skini meitluð rúnum Tjörness strönd. Sumarblær í suðri vakinn sveipti þoku’ af brún og tind. Hugir hvessast, hörfar klakinn hlær í bergi sí-streym lind. — Tvítugur í tímans róti traustur stóð vor frægi Jón mitt í alda fleygi-fljóti, festi á veðurmerkjum sjón. Þú varst einn, sem eldinn dáðir, — afreksmannsins skap og þor. Þreyttust leikir hetjum háðir, hló við sveini þjóðlífs-vor. Merkt var skeiðið manni ungum manndómslund og frelsisþrá; treystust vöðvar tökum þungum, taugar stælti sóknin kná. Kúguð þjóð í köldu landi keppti fram um brattan stig; slíkri fylgdi vegsemd vandi: — vinna á og bæta sig, drýgja þrek til dala’ og stranda, dyggðum styrkja félags-band, standa í skilum, viðhorf vanda við sinn Guð og fósturland. Þín var lik og þjóðar senna — þolið stríð við efni smá, hlauzt því oft á köldu kenna, kaleik römmum bergja á. Traustum mark til sigurs setur svitadropa og vöku-fórn; — andspænis við ísa-vetur örugg var þín heimastjórn. Þín var nautn að sælu sveita, sumardraumi og vetrargljá; hirtir eigi lengra leita lukkukjara um fold né sjá. — Heilnæm angan heiðargrasa, himi'nblær við jökul-mót, gæðings skeið og veig í vasa var þér líf og heilsubót. — Austan berst úr Eyjarþingi eftir hundrað rasta skeið þel-hlý kveðja Þingeyingi þakkar-ör og trygg um leið. Fagnaðs-ljóð úr fjarlægð vekur fossa, hrauns og skóga sál. Eyjafjörður undir tekur. ástar-þökk og hylli-mál. Þér var veitt að lifa lengi, líða, njóta, unna, þrá, styðja að þjóðar gæfu-gengi, græða undir meir en slá. — Nú við kvöldblik efstu unna elli-reyndum sveitar-höld lýsi fögur friðar-sunna fram á næstu hundraðs-öld. 7. sept. 1932. Konráð Vilhjálmsson. •o Gagnfræðaskóli Akureyrar var stofnaður, eins og mönnum er kunnugt, með lögum nr. 48, 19 maí 1930. Þar með var lagður homsteinninn að helztu framtíðar- armenntastofnun Akureyrar. Skólinn tók til starfa þá um haustið, þann 1. nóvember. Skól- inn varð þá strax fyrir því happi, að honum völdust ágætir kenn- arar. Skólastjóri varð Sigfús Hall- dórs frá Höfnum, fyrv. ritstjóri annars aðalmálgagns íslendinga í Vesturheimi, Heimskringlu. Fast- ur kennari varð Jóhann Frímann, fyrv. skólastjóri Iðnskóla Akur- eyrar. Svo fyrir utan þessa 2 föstu kennara hafa verið stundakennar- ar nokkri'r, þar á meðal: Konráð Vilhjálmsson fræðimaður frá Hafralæk, frú Þorbjörg Halldórs frá Höfnum, Hermann Stefánsson íþróttakennari og Vigfús Jónsson málarameistari. Skólinn hefir haft húsakynni sín i húsi Iðnaðarmannafélags Akur- eyrar við Lundargötu, tvo síðastl. vetur. Þau húsakynni eru of lítil. 111 hitunartæki voru í húsinu fyrri veturinn, en sl. haust bætti Iðnað- armannafélagið úr því. Strax fyrsta veturinn var stofn- að innan skólans félag, sem hlaut nafnið Nemendasamband Gagn- fræðaskóla Akureyrar. Það hafði það markmið að tengja saman nemendur og kennara og svo að reyna að vinna eftir mætti að vel- gengni skólans á allan hátt. S. 1. vetur kom það upp dálitlu bóka- safni, sem það lét öllum nemend- um í té til afnota, endurgjalds- laust. Eins og skiljanlegt er, var það miklum vandkvæðum bundið, að koma upp þessu safni, þar sem félagið var algjörlega peninga- laust, er það hóf bókasafnsstarf- semi sína. Enda mun félagið hafa einhverjar skuldir á herðum vegna safnsins. Nemendasambandið gaf einnig út blað s. 1. vetur, er kallað var Neisti. Kom það út hálfsmánað- arlega og flutti allskyns fróðleik, greinar til skemmtilesturs o. m. fl. bæði í bundnu máli og ó- bundnu. Var þetta undantekning- arlítið allt ritað af nemendum sjálfum. í stjórn Nemendasam- bandsins eru nú sem stendur: Stefán J. Reykjalín (form.), Stef- án Jónsson (féhirðir) og Páll Helgason (ritari). Skólalífið hefir ætíð verið hið skemmtilegasta, félagslegasta og alúðlegasta, ekki sízt seinni vetur- inn, og mun það eflaust vera Nem- endasambandinu að þakka. M. a. hélt það skemmtun s. 1. vetur, inn- Höfum til: Handverkfæri allskonar og garðyrkjuverkfæri. Samband ísl.samvinnufél. Hafið þér reynt „FREYJU" kaffibætisduft? Ef ekki, þá kaupið einn pakka strax í dag. — Kaffibætisduftið »FREYJA« er selt í Nýlenduvörubúð K. E. A. og flestum öðr- um vel birgum matvöruverzlunum bæjarins. Allir, sem reynt hafa, Ijúka upp einum munni um, að það sé bezti kaffibætirinn, sem fáanlegur sé. ATHUQIÐ, að kaffibætisduftið er aðeins selt ný-tilbúið og nýkomið frá verksmiðjunni, sem er hér á Akureyri. — Hver pakki hefir að geyma */« kílo af hreinum ilmandi kaffibæti, sem ekkert vatn er látið í eða nokkurt annað efni til uppfyllingar. Verðið er aðeins 55 aura pakkinn. Mat 09 kaffi sel eg aðkomumönnum nú í sláturtiðinni. Konrdð Vilhjdlmsson Norðurpól. Herbergi til leigu í Ham- borg. Sími 165. Tek fé og hross til slátrunar f haust. Peir, sem ætla sér að fá slátrað hjá mér, ættu að tala við raig sem allra fyrst. Akureyri 4. september 1932. Zophónias M. Jónasson Eiðsvaliagötu 9. an skólans, þar sem smáleikur var sýndur og tókst ágætlega. Eins og fyrr er nefnt, hefir Gagnfræðaskólinn verið í Iðnaðar- mannafélagshúsinu, sem er alla- vega illt. Kennslustofur eru of litlar og fáar. Væri ekki úr vegi að farið yrði að hugsa um þak yfir þessa framtíðarmenntastofnun bæjarins. Akureyrarbær er að sönnu frem- ur illa staddur fjárhagslega, nú sem stendur, en það er áreiðan- legt, að því fé, sem bærinn veitir til Gagnfræðaskóla Akureyrar, er vel varið. Er því þess að vænta, að vilji og geta bæjarstjórnarinnar og allra bæjarbúa taki höndum saman til þess að hlynna sem bezt að þessari menntastofnun, svo að hún nái þeim tilgangi sínum að þroska og bæta æskulýð bæjari'ns. Á.&R. á kaffipokunum, tryggir yöur, að kaffið sé daglega nýbrent og nýmalað. Pessvegna skuluð þér altaf biðja kaupmann yðar um kaffi frá KdMi Minin. GJERUR i| HIUSTULL m tekið í viðskiptareikninga B| BflH °S gegn vörum. VERZLUN Kristjáns Sigurðssonar. fást hjá undirrituðum á næsta hausti, með sanngjörnu verði, mót greiðslu um leið og taðan er tekin. Syðri-Haga 30. ágúat 1932. Rósinkar Guðmundsson. Hægt að fá mig i síma í Fagraskóg. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentsmiðja Odds Bjömssonar. Síldarmjöl fyrirliggjandi í Kaupfélagi Eyfirðinga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.