Dagur - 15.09.1932, Blaðsíða 4
148
Dánardægur. Látnir eru í Reykjavík
Gísli Isleifsson fyrv. sýslumaður og
skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu
og Hannes Blöndal skáld, báðir þjóð-
kunnir menn.
Frú Hólmfríður Jóhannsdóttir kona
Sigvalda Þorsteinssonar kaupmanns
andaðist að heimili sínu hér á Akureyri
um hádegisbilið síðastl. föstudag. Hún
var fríðleiks- og atgerfiskona, en farin
að heilsu síðustu árin. Hún varð 54 ára
gömul.
Hinn 7. þ. m. andaðist hér í bænum
öldungurinn Steingrímur Jónsson fyrv.
skipstjóri, hálf-níræður að aldri. Síð-
ustu ár æfi sinnar var hann blindur. %
Kristján Ásmundsson í Víðigerði, sem
varð 100 ára 7. þ. m., datt óg meiddi
sig daginn fyrir afmælisdaginn og verð-
ur nú að liggja rúmfastur.
Kaupfélag Eyfirdingá byrjar slátrun
gauðfjár í sláturhúsi sínu hér á staðn-
um á morgun.
Lestramámsskeið fyrir barnakennara
er áformað að halda hér í barnaskólan-
um, ef nægileg þátttaka fæst, frá 22. þ.
m. til 6. eða 8. okt., eða um hálfsmán-
aðar tíma. Kennarinn er Sigurður Sig-
urðsson frá ísafirði, er kynnt hefir sér
rækilega nýtízkuaðferðir við lestrar-
kennslu barna erlendis, sem þykja gef-
ast mjög vel og taka langt fram gömlu
aðferðinni. Ættu þeir, er leggja fyrir
sig smábarnakennslu, að nota þetta
tækifæri.
Dáinn er nýlega Snæbjörn Sigurgeirs-
son, bak'ari á Sauðárkróki, maður á
góðum aldri, frá konu og fimm börnum.
Svafa Stefánsdóttir, frá Skógum á
Þelamörk, hefir af kennslumálastjórn-
inni verið sett sem kennari við barna-
skóla Akureyrar frá 1. n. m., um eitt
ár.
Halldór Halldórsson, stúdent frá ísa-
firði, hefir verið ráðinn kennari í
bamaskólanum í vetur, í stað Þorsteins
M. Jónssonar, er ekki getur kennt sem
stendur vegna heilsubrests.
Taugaveiki hefir stungið sér niður á
allmörgum heimilum í ólafsfirði í sum-
ar. Þrír hásetar af vélskipinu Sjö-
stjarnan hafa tekið þessa veiki, og er
talið víst að þeir hafi sýkzt í Ólafs-
firði; höfðu þeir neytt þar mjólkur frá
taugaveikisheimili. Þeir eru einangraðir
hér á sóttvamarhúsinu.
»Alt Heidelbergx ætlar söngfélagið
Geysir að leika í vetur, í tilefni af tíu
ára afmæli þess, sem er nú í vetur.
Hefir leikur þessi náð dæmalausri hylli
hvervetna, þar sem hann hefir sýndur
verið, enda ánægjulegur og fagur, full-
ur af söng glaðra og áhyggjulausra
stúdenta, og þó einnig alvarlegur og
tragiskur með köflum. Er nú æft af
kappi undir leiðsögn hr. Ágústar Kvar-
an, sem sjálfur mun leika eitt aðalhlut-
verkið, enda áður leikið sama hlutverk
í Reykjavík við mikið lof. Öll karl-
mannshlutverkin eru leikin af meðlim-
um Geysis, en með kvenhlutverkin fara
þær frúmar Regína Þórðardóttir, Sig-
urjóna Jakobsdóttir og Svafa Jóns-
dóttir.
Búizt er við að opinberar leiksýning-
ar hefjist um miðjan næsta mánuð.
Mjög er vandað til alls undirbúnings,
leiktjöld öll ný, máluð af málarameiat”
ara Vigfúsi Jónssyni, og annar útbún-
aður eftír þvf.
DAGUR
37. tW.
f Frábarnaskólanum
Peir, sem óska eftir að fá undanþágu frá skólagöngu fyrir
verður selt á morgun börn sín i vetur, skili umsóknum fyrir 20. sept. n. k. Skóla-
og framvegis alla slátur- st,óri veitir umsóknunum móttöku.
tíðina í sláturhúsi okkar Akureyri 9. sePt. 1932.
við Sjávargötu. Skólanefndin.
í
11 sem hirða vill kýr
rldnrti°gmíóika.vantar
mig næstkomandi
vetur frá 1. október. Sömuleiðis vil
eg ráða vetrarstúlku.
KRISTJAN SIOURÐSSON kennari
Dagverðareyri.
Mjög ódýr íbúð,
með 3 herbergjum, eldhúsi, búri
og góðri kjallarageymslu, til leigu
i innbænum frá 1. okt. n.k. ^ y g
Vil selja 60 hesta af góðri töðu,
með vægu verði.
Bernh. Stefánsson
Pverá.
Tímabær kýr óskast til kaups nú
á þessu hausti.
Upplýsingar hjá Á. Jóh, IK. E. A.
Ellistyrkur.
Umsóknum um ellistyrk ber
að skila á skrifstofu mína fyrir
lok þessa mánaðar.
Akureyri 13. sept. 1932.
Bœjarstjórinn.
fáum við á næstunni
með vöruskipi, sem
er nú á leiðinni hing-
að frá Rússlandi.
Verðið lækkar
stórkostlega.
*§* Allt með islenskuin skipum! ■fi
Innflutnings- og gjaldeyrisnefnd hef-
ir nú tekið við störfum innflutnings-
nefndar þeirrar, sem ríkisstjómin skip-
aði, og gjaldeyrisnefndar bankanna.
Hefir hin nýja nefnd með höndum þau
störf, sem báðar hinar nefndirnar höfðu
áður. 1 nýjú nefndinni eiga sæti: L.
Kaaber bankastjóri, tilnefndur af
Landsbankanum, Jón Baldvinsson
bankastjóri tilnefndur af Útvegsbank-
anum, Bjöm ólafsson stórkaupm. og
Svavar Guðmundsson fulltrúi, tilnefndv
ir af rfkisstjórninni.
Brunabófafélag Islands
vekur athyggli vdtryggienda á:
1. Að frá 15. oktöber n. k. verða húseignir i öllum kauptún-
um og kaupstöðum utan Reykjavíkur vátryggðar fyrir fullt
virðingarverði
2. Að frá sama ttma getur félagið tekið lausafjártryggingar
(að undanteknum verzlunarvörum) húseigenda i sömu kaup-
túnum og kaupstöðum einnig fyrir fullt verð.
3. Að frá sama tíma getur félagið tekið í brunatryggingu
fasteignir og lausafé utan kauptúna og kaupstaða fyrir fullt
virðingarverð.
4. Að vátryggingar eru hvergi hagkvœmari eða ódýrari en í
félaginu.
Menn snúi sér til umboðsmanna félagsins í kauptúnum og
kaupstöðum eða iil aðalskrifstofunnar í Reykjavik.
Heiðruðu húsfreyjur!
Nú þurfið þér ekki lengur að kaupa gamlan kaffi-
bæti, sem mettaður er vatni, því að nú getið þér dag-
Lega fengið ný-tilbúinn kaffibæti þar sem er
kaffibgstisduftið „FREYJA“,
sem inniheldur öll ilmefni kaffibætisins óskert, án þess
í það sé Iátið nokkurt vatn, til að binda ilmefnin —
þess þarf ekki með þar sem kaffibætisduftið er
aðeins selt ný-tilbúið.
Biðjið því kaupfélag yðar, eða kaupmann, um
nýja kaffibœiisduftið „FREYJA“.
ALFA LAVAL
A. B. Separator i Stokkhólmi er eitt af þeim fyrirtækjum Svfa,ger mest
og bezt hefir stutt að því að gera sænskan iðnað heimsfrægan.
í meira en hálfa öld hafa ALFA LAVAL vélarnar verið viður-
kenndar sem beztu Og vönduðustu skilvindúrnar á heimsmarkaðinum, enda
hefir verksmiðjan hlotið yfir 1300 FYRSTU VERÐLAUN.
Reynslan, sem fengizt hefir við að smfða meira en 4.000.000 Alfa-
Laval skilvindur, er notuð út i æsar til þess að knýja fram nýjar og
verðmætar endurbætur. Hið nýjasta á þessu sviði er:
Algerlega ryðfríar skilkarlsskálar
og algerlega sjálfvirk smurning.
Vér höfum þessar tegundir af hinum nýju endurbættu ALFA LAVAL
skilvindum á boðstólum:
Alfa Laval No. 20 skiiur 60 Utra á klukkustund
— 21 - 100 - - -»-
- 22 - 150 - -
-»- - 23 — 525 - - -»—>
Varist að kaupa lélegar skilvindur. — Biðjið um
ALFA LAYAL.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Ritatjórí: Ingimar Eydal, Frentaíniöja Odds BjömBoaar,