Dagur - 22.09.1932, Side 2
150
DAGUR
38. tbl.
SSfflfllfflffffftiHfffSfSg
r viour
Pölsku eimkol
fáum við um næstu mánaðamót. Verða seld á
aðeins 36 krónur smálestin meðan á uppskipun
stendur.
Pantið í tíma.
Kaupfélag Eyfirðinga.
æftiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiP
Myndastofan
Qránufélagsgötu 21 er opin alla
daga frí kl. 10—6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
Hinn 14. þ.m. andaðist móðir
okkar, Júlíana Flóventsdóttir frá
Grýtu. — Jarðarför hennar fer
fram að Munkaþverá föstudag-
inn 23. þ.m. og hefst kl. 12 á
hádegi.
Börn hinnar látnu.
En það er öllum vitanlegt að fagur-
gali íhaldsmanna gagnvart núver-
andi forsætisráðherra er einungis
sprottinn af heimskulegri von, sem
þeir ala f brjósti um það, að Ásgeir
Asgeirsson og einhverjir fleiri þing-
menn Framsóknarflokksins muni
s v f k j a stefnu hokksins og ganga
á mála hjá íhaldinu. Jón Porláksson
hafði reiknað það út, að hvernig
sem færi um kjördæmsskipunina,
þá kæmist íhaldið aldrei f meiri
hluta, og eina björgunin væri því
sú, ef hægt væri að fá nokkra
Framsóknarmenn til þess að svikja
flokk sinn og ganga undir roerki
fhaldsstefnunnar. Eru þessar bolla-
leggingar J. Þ. og fleðulæti ihalds-
blaðanna við Á. Á: einhver sú allra
ógeðslega móðgun, sem hægt var
að sýna Framsóknarmönnum.
>íslendingurc heimtar, að Fram-
sóknarblöðin sýni Magnúsi Quðm.
hlutleysi á þann hátt að leggja
blessun sfna yfir öll axarsköft M.Q.
Framsóknarblöðin geta ekki sóma
sins vegna orðið við þessari kröfu.
Pau munu þvi héreftir sem hingað
til telja sér skylt að benda þjóðinni
á axarskaftasmíði M. Q. með fullri
einurð og algerlega hræsnislaust.
I kjÖrí við þingmannskosninguna t
Reykjavík í haust verður Sigurjón Á. Ólafs-
son, formaður Sjómannafélagg Reykjavíkur,
og er hann boðinn fram af Alþýðuflokkn-
um, en af hendi kommúniata verður boð-
inn fram Brynjólfur Bjarnason, ritstjóri
Verklýðsblaðsins. Heyrzt hefir, að óeining
sé í íhaldsflokknum um það, hvaða mann
flokkurinn skuli bjóða fram. Var reynt að
fá samkomulag um Sigurð Eggerz, en það
fór allt út um þúfur. Fullyrt er, að helzt
sé nú f ráði að flokkurinn bjóði fram
þétur Halldórsson bóksala,
Landhelgisgœzlan
og „snattferðirnaru.
Eitt af þvf, sem íhaldsmenn þótt-
ust ætla að bæta, ef þeir fengju að
riða, var landhelgisgæzlan ; sérstak-
lega kváðust þeir mundu taka ræki-
iega fyrir kverkarnar á >snattferðun-
umc, er þeir svo kölluðu. Magnús
Quðmundsson hefir nú fengið þetta
mál i sínar hendur. Og hvernig
hafa efndirnar orðið? Ekki hefir
hann tekið fyrir kverkar >snattferð-
annac. Fyrir skömmu var minnzt
hér f blaðinu á eina slíka ferð, er
farin var að hans undirlagi. >ís-
lendingurc færir fram vörn fyrir
M. Q. og segir, að Óðinn hafi ekki
farið nema >lítinn krókc, sem ekki
hafi munað mikið um! Blaðinu
finnst ekki mikið til um þó farin
hafi verið þessi eina >snattferð«,
sfðan M. Q. fékk umráð yfir varð-
skipunum, en >snattferðirnar« munu
nú hafa verið fleiri, T. d. var Óðinn
að >snattac með Svein Benediktsson
f sumar og þannig mætti fleira til
tina. Er þessa ekki getiðhér vegna
þess að nokkuð sé athugavert við
þessar »snattferðir undir stjórn M.
G,, heldur vegna hins, að íhalds-
menn tóku munninn svo futlan út
af hinu sama f stjórnartíð Jónasar
Jónssonar.
Magnús Quðmundsson hefir ekki
tekið fyrir kverkarnar á >snattferð-
unumc, sem fordæmdar voru af
íhaldsmönnum, en hann hefir tekið
fyrir kverkarnar á öðru, sem er
meira um vert, og það er land-
helgisgæzlan sjálf. Tvö
varðskipin hafa verið bundin við
hafnargarðinn f Reykjavfk i sumar,
og annað þeirra, Ægir, hefir verið
langduglegast að verja landhelgina
að undanförnu. Pessi ráðsmennska
M. Q. minnir á atburð, er skeði
fyrir Iðngu. Pað var á dögum Iðn-
aðarstofnananna f Reykjavík. Verzl-
unarfélag það, er þá hafði umráð yfir
stofnununum, rak einn starfsmann-
inn burtu fyrir það, að hann af-
kastaði of miklu við vinnuna.
g* ísl. segir, að það sé Jónasi að
kenna að tvö af varðskipunum séu
bundin við hafnargarðinn i Reykja-
vfk! Hann hafi verið búinn að þur-
ausa landhelgissjóðinn. Ekki er
þetta annað en reykur og rangmæli,
enda stendur landhelgissjóður ekki
einn undir kostnaðinum við strand
varnirnar, þvf rfkissjóður leggur þar
fé f móti. Pað sýnist Ifka einkenni-
Jarðarför tengdamóður og móður okkar, Margrétar Jónsdótt-
ur Reykjalins, fer fram Mánudaginn 26. þ. m. og byrjar kl. 1
eftir hádegi, með húskveðju á heimili okkar, Brekkugötu 29.
Svanfríður /ónsdóttir. Guðmundur Ólafsson.
Pað tilkynnist vinum og vandamönnum að jarðarfðr okkar ástkæru
eiginkúnu, móður og tengdamóður, Lilju Jóhannsdóttur, sem andaðist
að heimili sínu, Munkaþverárstræti 16, þann 16. þ.m. fer fram að Qrund
laugardaginn þ. 24. þ, m. kl. 12 á hádegi.
Fjölskyldan.
leg sparnaðarráðstöfun, að Ægir sé
bundinn við hafnargarð, en Óðinn
látinn annast strandvarnir, þegar
litið er til þess, að mismunur á
brennslukostnaði Óðins og Ægis
var fyrir 2 sl. ár 50 þús. kr., hvað
olfan til Ægis kostaði minna en
kolin fyrir Óðin. — ísl. bætir þvl
við, að það sé Ifka Jónasar sök, að
Esja sé látin halda kyrru fyrir. Hann
hafi búið svö í haginn með óstjórn
sinni. Tíl þess að sýna hvað þetta
er á miklum rökum byggt, skal á
það bent, að árið 1927 fór Esja
15 hringferðir með 609 viðkomum,
og var þá reksturshalli hennar 225
þús. kr., en 1931 voru hringferðir
Esju 20 með 641 viðkomu og
reksturshalli þá 179 þús. kr.
Pó þykir ísl. fyrst kasta tólfunum
er Dagur segir: >Siðan hefir Iftið
borið á varðskipunum á þeim vett-
vangi, er þau eiga sérstaklega að
starfa á, og mun veiðiþjófunum
vera slfk ráðstöfun mjög geðþekkc.
— Petta kallar ísl. >alvarlega að-
dróttun í garð M. Q.c. En hvað er
rangt við. þessi ummæli ? ís). viður-
kennir, >að tvö varðskipanna, >Ægirc
og >Pórc, hafi nú um tfma legið
bundin við hafnargarðinn i Reykja-
vfkc. Auðsætt er, að á meðan svo
standa sakir, geta skipin ekki sinnt
landhelgisgæzlu. Hítt liggur líka i
augum uppi, að veiðiþjófarnir kæra
sig ekki mikið um landhelgisgæzlu.
Hvi skyldu þeir óska eftir þvf að
vera staðnir að verki, hljóta sektir
og verða að láta af hðndum afla
og veiðarfæri? Auðvitað væri þeim
kærast að öll varðskipin væru allan
ársins hring bundinn við hafnar-
garðinn f Reykjavík. Um það efast
enginn. Dagur hefir þvf ekki skýrt
frá öðru en ómótmælanlegum stað-
reyndum. Hitt skiftir engu máli, þó
að >íslendingur« haldi því fram, að
sannleikurinn sé alvarleg aðdróttun
i garð Magnúsar Ouðmundssonar.
-----o------
Staka.
Dottar nóttin, dylur þrá,
dreymir Ijós i álit> ,
Kvöld og morgun kvíslast d,
kœrleiks geislaymali:
, V s. E.
------------- ------------------
Skátasveitin .FJálkai/ eínlr til kvöld-
skemmtunar ntwtk. sunnudag. Meðal
skemmtiatriða verður erindi, söngur og
gamanleikur. Einnig sýnir barnahópur
vikivakadansa og flokkur úr L. F. A. sýnir
leikiimi undir stjórn Magnúsar Fétursionar.
Haldlaus vörn.
»íslendingur« hefir tekið sér fyrir
hendur að verja stjórnarathafnir
Magnúsar Quðmundssonar. Blaðið
segir, að það hafi verið Ásgeir for-
sætisráðherra, en ekki M. Q., sem
heimtað hafi skjölin viðvikjandi
sakamálsrannsókn á hendur banka-
stjórum íslandsbanka upp f stjórnar-
ráð og stöðvað þar með rannsókn-
ina. Víst er um það, að krafan um
endurheimt skjalanna kom frá dóms-
málaráðuneytinu, en ekki frá fjár-
málaráðuneytinu, en tæplega fer fsl.
að neifa því, að M. Q. sé dóms-
málaráðherra.
ísl. viðurkennir það, að rfkis-
brauðgerðin hafi selt framleiðslu
sína ódýrara en önnur brauðgerðar-
hús f Reykjavfk, en eigi að sfður
hafi M. Q. ákveðið að leggja hana
niður, af þvf að á ríkisbrauðgerðinni
hafi verið rekstrarhalli. Petta eru til-
hæfulaus ósannindi. Pað var fremur
hagur en halli af rekstrinum. Ætti
ísl. að gæta þess að ganga ekki
svo langt í vörnum fyrir M. Q., að
af hijótist sannleikshalli á rekatri
blaðsins.
ísl. spyr, því Degi sé svo um-
hugað um að ekki fáist >hreint
borð< f reikningum Pórsútgerðar-
innar. Par til er þvf að svara, að
Degi er ekki kunnugt um neitt ó-
hreint borð í því falli. Vigfús Ein-
arsson skrifsíofustjóri og Jón Qrfms-
son bankaritari voru að fullu búnir
að ganga frá endurskoðun þessara
reikninga. Yfirskoðun sú, er M. Q.
lætur nú framkvæma, er því ekkert
annað en óþörf eyðsla á fé, án heim-
ildar frá Aipinoi. Og þar sem ísl. gefur
i skyn, að ekki hafi fengizt »hreint
borð« með endurskoðun þeirra V.
E. og J. Q., þá er þar ekki um
annað að ræða en aðdróttun um,
að þeir hafi ekki verið starfi sfnu
vaxnir.
Öll er vðrn >fslendings« fyrir
M. O. á eina lund: Hún er hald-
laus.
Misjafnt lmfast þeir að.
Daginn eftir að Verkamannafé-
lag Akureyrar, með aðstoð Verk-
lýðsfélags Glerárþorps, stöðvaði
vinnu í sláturhúsi K. E. A., til
þess að fá kaupið hækkað, ákvað
verklýðsfélagið í Glerárþorpi, að
kaup við framskipun í Krossanesi
skyldi lækka um 30 au. á klukku-
stund, úr 140 au. niður í 110 aura,
Annarsvegar eiga f hlut fátækir,
íslenzkir bændur, hinsvegar útlent
auðfélag.