Dagur - 22.09.1932, Síða 3

Dagur - 22.09.1932, Síða 3
151 DÁGUR 38. tbi. Gagniræðaskóiamál Norðlendinga fyrir 30 árum. (Framh.). Þá er frumvarpið kom þangað, tók nefndin i því þegar að hressa við hið hrjáða fósturbarn sitt. f breytingar-tillögu hækkaði hún heimavistir úr 24 upp í 45—55 og húsgerðarkostnað upp í 67 þús. kr. En nú skarst eini Reykvíking- urinn í nefndinni, Hannes Þor- steinsson, algerlega úr leik. Hann vildi samþykkja frumvarpið ó- breytt og ekki »hrekja« það lengur »milli deildanna«. Kenndi í því engrar ósamkvæmni. Hann skrif- aði í fyrstu »með fyrirvara« undir nefndarálit neöri deildar um mál- ið. Og hann gat þess í umræðun- um, að hann vildi helzt byrja með ‘heimavistarlausum skóla, sem áð- ur segir. En nú í þinglokin 1903 tekur að bera á enn meiri tvístr- ingi um tölu heimavista. Einn hinn atkvæðamesti sam-flokksmað- ur Stefáns skólameistara, Skúli Thoroddsen, sem þá bjó rétt hjá Reykjavík, á Bessastöðum, flytur breytingartillögu um að þær séu 35—40. Hinn mikli andstæðingur Skúla, Hannes Hafstein, þingmað- ur Eyfirðinga, svarar þeirri tillögu með nýrr-i breytingar-tillögu um, að heimavistir séu 45—50. Sú til- laga fór miðja leið milli efri deild- ar og neðri deildar, enda var hún samþykkt. Kvað Stefán Stefáns- son tillögu Hannesar Hafsteins gerða til enn meira samkomulags við efri deild. Hefir Stefán unað því illa, að verða að slaka nokkuð til við efri deild. »Nefndinni hér í deild hefði verið kærast að halda fast við fyrri tillögu sína um, að heimavistirnar skyldu vera 60—• 70«, segir hann.1) En til sam- komulags fór nefndin hér lengra engóðu hófi gegndi«.2) VarStefán þess fullvís, að skólinn myndi þeg- ar full-skipaður, þótt ætluð væru þar rúm handa 100 nemendum,1) sem hann varð skemmtilega sann- spár að. Hér reyndist menningar- trú og bjartsýni raunsærra og réttsærra heldur en svartsýni og vantrú á vaxandi menning og menntaþörf íslenzks æskulýðs. Samþykkt var og í neðri deild sú tillaga, að hækka féð til skóla- hússins upp í 67 þús. kr. Nú hefði mátt búast við, að efri deild hefði ekki átt meira við frumvarpið, heldur látið svo búið standa. En slíku var ekki að heilsa. Menntamálanefnd hennar flutti breytingar-tillögu um fækk- un heimavista ofan í 35—40, með öðrum orðum um 10 rúm, og um lækkun húsgerðarkostnaðar úr 67 þús. kr. í 60 þús. kr., og var hvort- tveggja samþykkt. Hér eru það því ekki nema 7 þús. kr., sem ber í milli. Fyrir þessar 7 þúsundir króna vildi nefndin stefna málinu til sameinaðs þings. En slíkt var sama sem að stofna málinu í hættu, þvf að þá voru ekki nema i) Alþt. 1903, B. d. 887* ») Alþt. 1903, B. d. 885, tveir sólarhringar til þinglausna. Skýrara sést, hve sparnaðurinn var lítill, ef þess er gætt, að fjár- lögin fyrir árin 1904 ogl905áætla tekjur landssjóðs rúmlega V/2 million króna. Hér fylgdi Júlíus Havsteen samnefndarmönnum sínum að máli. En hefði hann stutt slíkar tillögur, ef hann hefði þá verið amtmaður á Norður- landi ? En þessa athugasemd má fyrir hvern mun eigi misskilja. Mér er mjög fjarri skapi að gera hinu látna prúðmenni nokkrar getsakir í þessu efni. En sannfæring vor og áhugaefni eru, oss ósjálfrátt og óafvitandi, löngum komin undir stað og stund. Vér erum allir hreppa-»pólitíkusar«, ef vér ann- ars fáumst nokkuð við nokkra »pólitík«. Eftirver og »col- lega« Júlíusar Havsteens nyrðra, Páli Briem, var og áreiðanlega annara um skólann nú heldur en fyrir 13—14 árum, er hann var málflutningsmaður í Reykjavík. Þá barðist hann fyrir því á al- þingi 1889, með því kappi, sem honum var lagið, að flytja hann til Reykjavíkur. Nú studdi hann að því, að hann' væri efldur með heimavistum á Akureyri. En bæta ber því við, að nú var hagur og hylli skólans í öðru horfi heldur en 1889. Það var 24. ágúst, sem efri deild samþykkti frumvarpið með 35— 40 heimavistum. Voru horfur nú eigi sem beztar á að breyta frum- varpinu, eins og það kom frá efri deild. Samt var ekki í það horft, að freista slíks. En svo vandlega var þess gætt, að tefla frumvarp- inu ekki í tvísýnu, með slíkri til- lögu, að slíks eru víst fá dæmi í sögu alþingis. Nú fór frumvarpið í sameinað þing. »Forvígismenn skólans höfðu þá vaðið fyrir neð- an sig og fengu 18 þingmenn til að gerast flutningsmenn að breyt- ingartillögu, sem kom málinu í þolanlegt horf, svo að þar með var meiri hlutinn tryggður«, reit »Norðurland« í gagnrýndargrein um meðferð alþingis á þessu máli'. Og blaðið bætir við: »En ekki þorðu þeir að reisa bogann hærra en svo, að fjárveitingin var látin vera 67 þús. kr. og heimavistimar 45—50«. (»Norðurland« III. 1903, 7. blað). Með slíku ákvæði var frumvarp- inu kippt í sama horf, sem það var samþykkt í við eina umræðu i neðri deild. Fremstir á blaði við flutning þessarar tillögu voru þeir Hannes Hafstein og Stefán Stefánsson. Var það lán skóla vors, að Hannes Hafsteinvarnúþingmaður Eyfirð- inga.1) Tveir Reykvíkingar voru í flokki átjánmenninganna, er fluttu breytingartillöguna í sam- einuðu þingi, Jón Magnússon, gamall prófdómandi Möðruvalla- skóla, og Björn Kristjánsson. Tillögurnar voru samþykktar f Stefán kvað hann verið hafa sér »fyllilega sammála um fyrirkomu- lag skólans« (»Norðurland« 2. apríl 1904). sameinuðu þingi, hin fyrri, um hækkun upp í 67 þús. kr., með 19 atkvæðum gegn 11, og hin síðari, um fjölgun heimavista upp í 45— 50, með 20 atkv. gegn 12.1) En rás atburða og örlaga er stundum skrýtin. Menntamála- nefnd efri deildar 1903 var skóla vorum hin óþarfasta, er hún af þrálátu kappi barðist fyrir fækk- un heimavista. Henni tókst að fækka þeim um 20 rúm. En þessi sama virðulega nefnd vann skóla vorum einnig óbeinlínis hið mesta þarfa-verk. Fyrir tillögur hennar og atgerðir vann skólinn þar lang- þráðan sigur, sem í raun réttri hafði verið barizt fyrir um 20 ár, og Hjaltalín átti upptök að, þó að hugmyndin verði, að mestu, að teljast eldri. Og þeim sigri var þannig háttað, að hann varð menningarsigur og menntabót. Sambandið milli skólanna var lítt eður ekki nefnt á þessu þingi, ekki fremur en á seinasta þingi. En menntamálanefnd efri deildar flutti nú aftur þingsályktunar-til- lögu seinasta þings um, að skorað væri á stjórnina að minnka stór- kostlega kennslu í gömlu málun- um, hætta algerlega við latneskan stíl og fækka »að mun« kennslu- stundum í latínu, en auka í þess stað kennslu í móðurmálinu, nýju málunum (einkum ensku) og eðl- isfræði. Var tillagan, að kalla, samhl j óða þingsályktunar-tillögu auka-þingsins 1902 (smbr. 35. tbl. »Dags«). Var Jón Jakobsson framsögumaður hennar. Horfði nú sigurvænlegar á en nokkru sinni áður um framgang máls þessa, er rætt hafði verið um á alþingi síð- astliðin 12 ár (síðan 1891). Nú var hægrimannastjórnin danska fallin, landið að fá innlenda stjórn, og loks hafði ríkisþingið danska þá samþykkt, að bæta skyldi einni deild, þriðju deildinni (»den tredje Retning«), sem kölluð var, í stú- dentaskóla-kerfi Dana. Var það einmitt svipað fyrirkomulag og al- þingi 1897 hafði hugsað sér. Upp áf einskonar gagnfræðadeild tók við menntadeild (»Gymnasium«), þar sem engin gríska var kennd, en latína aftur að nokkru, en miklu minna en áður. Gat Jón Jakobsson þess, að nefndin ætlað- ist til, að svipað fyrirkomulag yrði hér. Var tillagan samþykkt í einu hljóði í efri deild. Hallgrímur biskup Sveinsson mælti nú einnig með tillögunni. Hann hafði' áður verið slíkri breytingu mótfallinn, af því að hann var þess »full- viss«, að Dönum myndi »mótfallið, að vér íslendingar, hin fámenna og afskekkta þjóð, höldum okkar eigin menntunarleið og gerumst forkólfar í því að afnema hina klassisku menntun«, eins og hann komst að orði á alþingi 1897 (Alþt. 1897, A., d. 240). En nú var stórkostleg skerðing klass- iskrar menntunar orðin að lögum með Dönum. Og virtist honum þá ekki ísjárvert, að vér íslend- ingar vorpuðum forntungunum, !) Alþt. 1903 A, d, 612, smbr. C., bls. 842. að mestu, fyrir borð. Eftirver Hallgríms biskups, ÞórliaUur Bjamarson, gat þess í neðri deild, að oft hefði það verið sagt okkur íslendingum »til hnjóðs«, að vér »dependeruðum af þeim dönsku«. »í þetta sinn er oss ánægja að gera það, í þessu lærða skóla máli«, bætti hann við.1) Tillagan var, pieð lítils háttar breytingu, samþykkt í einu hljóði í neðri deild. Var nú komið svo, að forn- tungurnar áttu engan formælanda á alþingi. Nú sat enginn Halldór Friðriksson á þingbekkjum til að halda fyrir þær hlífiskildi, eins og 10 árum áðui’, á alþingi 1893, þá er Jón Jakobsson hóf leiðangur gegn þeim. Brottvísun forntungnanna úr latínuskólanum og gagnfræða- skólalögin norðlenzku urðu því samferða á alþingi 1903. Frumvarpið um gagnfræða- skóla á Akureyri hlaut konunglega staðfesting 10. nóv. 1903 (nr. 38). Frh. Sigurður Guðmundsson. o fessi ágæta söngkona, sem veitt taefir Akureyrarbúum svo margar gleðistundir, er nú á förum úr bænum til Reykjavíkur, þar sem hún taefir meira starfssvið en hér. Pótt við öll hljótum að sakna hennar, verður það að teljast vel farið, að hún fær þar viðfangsefni, og þó eigi fullnægjandi, því að gáfur hennar vísa henni hiklaust til sætis í háborg sðnglistarinnar, og þar væri hún llkleg til að gera þjóð sinni hina mestu sæmd. Ef til vill verður henni fært síðar raeir áð halda áfram sönglistarnámi t. d. f Pýzkalandi eða ítaliu. Sfðastliðið föstudagskvöld hélt hún hljómleika, og aftur á sunnu- daginn (kveðjuhljómleika). Staðfesti hún þar enn betur en áður, að hún á allt það hrós skilið, er hún hefir fengið hér. Hún nær tökum á öllum viðfangsefnum, og þó er lifsgleðin og sólskinið það, er hún túlkar best af öiiu. Rðdd hennar virðist vera að aukast að hljómmagni, og var, t. d. f »Ave Maria«, afarmikil. Er það auðvitað góður kostur, þótt aðrir kostir, sem ungfrú Jóhanna hefir til að bera, séu enn meira virði: mýkt raddarinnar, blæfegurð og leikni, en þó einkum skilningur hennar og hjartahlýja, er söngur hennar túlkar svo vel. Frú Porbjörg Halldórs frá Höfnum lék undir á báðum þessum hljóm- Ieikum. Er óhætt að fullyrða, að enginn hefir leikið hér jafn vei undir, síðan Kurt Haeser var hér, en hann er bezti undirleikari, sem heyrst hefir á fslandi. Hér er eigi rúm til að gera grein fyrir viðfangsefnum, en af nýjum lögum mun >Hirðinginn« eftir Karl Ó. Runólfsson bafa vakið einna mesta eftirtekt. Úskell Snorrason. *) Albt. 1903, B. d. 911.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.