Dagur - 22.09.1932, Page 4
152
DAGUK
38. tbl.
teufí 1. október
I il U T~ 9 á Sigurhæðum.
Vinnustoðvun
Sláturhús K. E. A. tók til starfa
að þessu sinni á föstudaginn var.
Kaup starfsfólksins hafði verið sett
á timann 90—110 au. fyrir karl-
menn, en kaup kvenna 55—60 au.
Var það sett þannig með hliðsjón
af horfum um afurðasöluna. Hafði
starfsfólkið fallizt á að vinna fyrir
þetta kaup. En eftir að vinnan var
hafin, tók brátt að bera á óánægju
sumra starfsmanna við slátrunina.
Leituðu þeir til Verkamannafélags
Akureyrar um að fá kaupið hækkað.
Alaugardagskvöldið hélt stjórn Vm.-
félagsins fund með sláturhúsfólkinu
og næsta dag var ákveðið á félags-
fundi að stöðva vinnu á húsinu.
Var síðan stöðvunin framkvæmd
kl. 1 á mánudaginn á meðan á
samningum stóó milli stjórnar K:
E. A. og stjórnar Verkamannafé-
lagsins. Bauðst stjórn K. E. A. til
að hækka kaupið nokkuð, en þvi
tiiboði var hatnað. Héldu þá samn-
ingaumleitanir áfram og komst loks
á samkomulag á mánudagskvöldið.
Var aðalatriði deilunnar leyst á þann
hátt, að félagið greiði öllum félags-
bundnum karlmönnum i verkiýðs-
félögunum kr. 1.25 á klst., svo og
þeim mönnum öðrum, sem rota,
rista fyrir, flá og taka innan úr;
iágmarkskaup annara fulivinnandi
karlmanna verði kr. 1.10 á klst. og
kvenna 70 au.
Engum dyist að þetta kaup er
of hátt, þegar miðað er við það
verð, sem nú fæst fyrir sláturfjár-
afurðir, En truflun og langvarandi
stöðvun á rekstri sláturhússins,
myndi þó hafa haft enn meira tjón
i för með sér fyrir fjáreigendur, en
hið ósanngjarnlega háa kaup, sem
nú verður að greiða.
----o----
F rétíir.
KJÖTUPPBÓT. K. E. A. hefir nú
fært í reikninga manna uppbót á bezta
kjöti sem lagt var inn á sláturhúsi fé-
lagsins á Akureyri haustið 1931, 10
aura á hvert kíló. — Hafa bændur þá
fengið 65 aura fyrir kíló af príma kjöti
árið sem leið. — Markaðshorfur á
frystu kjöti í Englandi eru nú álíka og
í fyrra. Ættu bændur því að varast að
selja kjöt sitt mjög ódýrt. ,
Esja leggur af stað i atrandferð 24, þ.m.
og fer þá frá Rvík vestur og norður um
land.
Samninoar kváðu hafa tekizt milli fa-
lenzku sendimannanna, Jóns Árnasonar
og Ólafs Thors, og fulitrúa Norðmanna
um kjöttollsmálið og fiskiveiðar Norð-
manna hér við land. En hvernig þeir
samningar eru, verður ekki gert uppskátt,
fyr en sendimennlrnir eru komnir heim til
Reykjavíkur, en þeirra er heim von um
nsstu helgi.
Kvöldskemmtun heflr Kvenfélagið Hlíf
kl, 8 V* annað kvöld, til ágóða fyrir starf-
semi sina. Eins og kunnugt er, starfar fé-
lagið að þvi að koma sem fyrst upp sum-
arheimili fyrir veikluð börn. Með þyi að
ixkja skemmtunlna, atyðja menn gott
milcfnl,
OáaardæQUr. Siðastl. laugardagsnótt and-
aðist hér í bænum Margrét jónsdóttir móð-
ir Ouðmuudar Ólafssonar byggingameistara,
89 ára gömul. — Hinn 14. þ. m. andaðist
ekkjan Júliana Flóventsdóttir frá Orýtu í
Eyjafirði, móðir Jóns Þorleifssonar bónda
þar og þeirra systkina. Hún var 76 ára
gömul. — Þi er og nýlátin hér í bænum
húsfrú Lilja Jóhannsdóttir, kona Jóns Tóm-
assonar frá Orund.
Fastur kenna/ri við alþýðuskólann á
Reykjum í Hrútafirði er Þóroddur Guð-
mundsson frá Sandi ráðinn.
Námsskeið það, er getið var í síðasta
blaði, hefst eftir komu Dettifoss hing-
að. Skólastjóri barnaskólans biður þá
kennara hér í bænum, sem æskja þess
að taka þátt í námsskeiðinu, að hafa tal
af sér strax eftir komu skipsins.
Látin er hér í bænum Salvör Níels-
dóttir, kona Ágústar Jónssonar og móð-
ir Ólafs Ágústssonar húsgagnasmiðs.
Víffsla fór fram á brú yfir Þverá í
Rangárvallasýslu 21. f. m. Brúarvígsl-
una framkvæmdi Þorsteinn Briem ráð-
herra. Er brú þessi byggð samkvæmt
lögum frá síðasta þingi um samgöngu-
bætur og fyrirhleðslur á vatnasvæði
Þverár og Markarfljóts. Brúin sjálf er
um 170 m. á lengd og er byggð bæði úr
járni og tré. Mannvirki þetta er talið
að mimi kosta um 75 þús. kr. Rangæ-
ingar hafa lagt fram að láni allan
byggingarkostnaðinn.
Ennfremur er nú unnið að smíði á
brú yfir Affallið; verður sú brú 100 m.
á lengd og verður væntanlega lokið í
þessum mánuði.
Búnaðarmálaatj&ra-staðan hefir verið
auglýst laus til umsóknar. Er umsókn-
arfrestur til 15. des. næstk., en staðan
veitist frá áramótum.
Þorgeir Jónsson cand. theol. hefir
verið settur skólastjóri við Reykjaskóla
í Hrútafirði.
Síldaraflinn á öllu landinu var um
fyrri helgi orðinn 247 þús. tunnur,
þar af 131% þús. tn. saltsíld og 115%
þús. tn. sérverkuð síld. Er það 35 þús.
tunnum meira en á sama tíma í fyrra.
Auk þess er búið að setja í bræðslu 526
þús. hl. og er það 40 þús. hl. minna en
á sama tíma í fyrra.
Slra Benjamín Kristjánsson og kona
hans komu heim til Reykjavíkur með
Dr. Alexandrine í síðustu viku. Síra
Benjamín er annar umsækjandi um
Grundarþing.
Helgi Schiöth, sonur Axels Schiöth
brauðgerðarmeistara, er nýlega kominn
heim frá Ameríku.
Skólnefndir Iðnaðarmannafélagsins
og Gagnfræðaskóla Akureyrar hafa
komið sér saman um að slitið skuli sam-
bandi skólanna komandi vetur og hefir
bæjarstjórn fallizt á það. Er þetta tal-
inn nokkur fjársparnaður fyrir bæinn.
Gagnfræðaskólinn starfar þó í vetur £
húsakynnum Iðnaðarmannafélagsins.
Síra Knútwr Amgrxmsson á Húsavík
hefir sagt af sér prestskap og er flutt-
ur til Reykjavíkur. Verður hann kenn-
ari við Gagníræðaskóla Reykvíkinga i
vetur.
Oritannia prjónavélar
eru þrautreyndar að gæðum og endingu.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Guðbrandur Magnússon forstjóri á-
fengisverzlunar ríkisins hefir dvalið hér
í bænum undanfarna daga, en lagði af
stað áleiðis suður í morgun.
Heyskap mun nú nær allstaðar lokið
hér um slóðir og er heyfengur manna
almennt með langmesta móti og nýting
á útheyi sæmileg og víða góð. Aftur á
móti hröktust töður nokkuð víða meira
og minna.
Látinn er á sjúkrahúsi í Khöfn Ágúst
Flygenring fyrv. alþingismaður, Lík
hans verður brennt og leifarnar fluttar
heim.
Ágúst Flygenring var fæddur 17. apr.
1865 á Fiskilæk í Borgarfirði og var
því 67 ára að aldri. Hann lærði sjó-
mannafræði og tók próf í henni í
Noregi 1891; var hann síðan skipstjóri
á þilskipum í allmörg ár, en gerðist síð-
an kaupmaður og útgerðarmaður í
Hafnarfirði. Árið 1907 var hann kosinn
í milliþinganefnd í skattamálum og
1911 £ milliþinganefnd um fjármál
landsins. Hann var konungkjörinn
þingmaður frá 1905 til 1912 og 1. þing-
maður Gullbringu- og Kjósarsýslu 1924
—1925. ' j
Skozka sauðféð, er flutt var inn til
sláturfjárbóta £ vor, hefir verið haft i
Þerney i sumar og hafzt þar vel við. Er
nú verið að flytja það norður að Hall-
dórsstöðum i Laxárdal, þar sem það
verður undir umsjón Hallgrims Þor-
bergssonar fjárræktarfræðings.
Grammofónplötur. Aiiar
nýjustu harmonikuplöturnar eftir
Oellin og Borgstrðm nýkomnar. —
Einnig eftir Comedian Harmonist,
De fire o. m. fl. Jdn Quðmann.
AÐALFUNDUR verður hald-
inn að Skiðastöðum sunnudag-
inn 2. okt. 1932 kl. 2 e. h.
Mætið til jarðabótavinnu n.k.
sunnudag og takið spaða með
að heiman.
Stjórnin.
merktur nafninu
»Pormóður€, tap-
aðist í gær á göt-
um bæjarins. Skilist á bæjarfógeta-
krifsstofuna.
Munið, að
NIÐURSUÐUDÓSIR
er enn sem fyr
beztaðkaupa hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga,
Járn- og glervörudeildin.
hefi eg til sölu 14. og 15. okt.
Baldvin Sigvaldason.
Fimmtíu ára minningarhátíð Flens-
borgarskólans verður haldin í Hafnar-
firði um næstu mánaðamót.
•*—---o
sumarbær eða
snemmbær.
Árni Jóhannsson K.E.A. visar á.
Sumarkvæði.
Ljómar sunna, landið grær,
lofnarsöngva þröstur yrkir.
Um fjöll og dali blíður blær
blæs, og svalar, skellihlær.
Elfa og lækur iða tær.
Angan sumars veika styrkir.
Ljómar sunna, landið grær,
lofnarsöngva þröstur yrkir.
Eg er til, að fara á fjöll,
frelsis njóta bjarta daga.
Jafnt um sand og jöklamjöll
jónum hleypa skeiðin öll.
Bláar lindir, býsnir, tröll
bíða i skjóli heiðadraga.
Eg er til að fara á fjöll,
frelsis njóta bjarta daga.
Skyldi Laugu langa til
líka að fara þessa vegi?
Eg sem kann á öllu skil,
elska og kyssi um næturbill
Á öræfum er ekkert þil
unnendur sem skilja megi.
Skyldi Laugu langa til
lika að fara þessa vegi?
s. Kr. h.
Leir-
krukkurnar
margeftirspurðu,
eru nú komnar aftur.
Járn- og glervörudeildin.
Bifreiða-
fjaðrir ..
J nykomnar
af öllum tegundum.
Mikil verðlœkkun.
Járn- og glervörudeild.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal, Gilsbakkaveg 5.
"L ..... """...........‘ ' ' ...."'J
Prentsmiðja Odds Björnsaonar.