Dagur - 03.11.1932, Síða 4
172
Ð'AGUR
43, tW.
M. G. hafi þá afhent Behrens bókina,
enda þótt það hlyti þá að vera ljóst að
Behrens var langsamlega gjaldþrota.
Peningum þessum eyddi Behrens síðan,
svo að þegar umráðamaður búsins,
herra cand jur. Ólafur Þorgrímsson,
fjekk að vita um þetta og náði í bók-
ina, voru aóeins í henni 2 krónur. Einn
af umbj. okkar, firmað Brödrene Juste-
sen í Köbenhavn, hefir krafist þess að
þetta atriði yrði rannsakað sjerstak-
lega fyrir lögreglurjettinum og verð
jeg því að beina þessari ósk firmans til
lögreglunnar. Firma þessu þykir það
sem sje ótrúlegt að bókin hafi verið af-
hent Behrens á þessum tíma og óskar
því að fá sem gleggstar upplýsingar um
þetta við lögreglurannsóknina. Ef til
vill finnur lögreglan ástæðu til að gera
mér aðvart er væntanleg rannsókn fer
fram, svo að jeg geti verið viðstaddur
prófinc.
u A
Siðasta íslendingi hefir orðið svo
mikið um birting kærunnar á
hendur M. G., sem Tíminn hefir
knúð fram, að »ísl.« kallar Tím-
ann »saurblað«.
íhaldsblöðin hafa rætt máls-
höfðunina gegn M. G. á þeim
grundvelli, að hún væri eingöngu
byggð á umræddri kæru í sam-
bandi við gjaldþrot C. Behrens.
En þetta mun vera mikill mis-
skilningur. Eæran frá skrifstofu
Péturs Magnússonar og Guð-
mundar ólafssonar er aðeins ein
af fleiri ástæðum fyrir því, að
réttvísin ákvað málssókn á hend-
ur Magnúsi Guðmundssyni. En
ofsareiði ihaldsblaðanna og ljótur
munnsöfnuður getur á engan hátt
bætt málstað M. G.
■ '■ o ‘y
R i t f r e g n.
Ræktunarmöguleikar íslands og ræktun pess.
Pessi tvö aðalskilyrði fyrir tilveru-
rétti vórum, sem eru borin og
barnfædd á binu kalda en sögurika
Islandi, koma mér í hug, sem aðal-
innihald fjögurra smárita, sem mér
bárust með pósti 9. þ. m., þá ný-
komnum hingað til Akureyrar eftir
ferð mína héðan til Reykjavikur og
þaðan til Hlíðarenda og Heklu,
dagana 29. sept. til 7. þ. m.
Nýnefnd smárit bera fyrirsagn-
irnar:
1. Ræktunarmál. Endurpr. úr Bún-
aðarritinu 45. árg. 1931, 12. mo,
32 bls.
2s Áburður og spretta. 12, mo.
16 bls. Reykjavík 11. nóv. 1931.
3. Um heyskap og heyverkun. 32
bls. Reykjavik 11. nóv. 1931,
4. Tvær stefnur. 12. mo. 32 bls.
Reykjavík 27. apríl 1932.
Öll eftir Árna O. Eylands, jarðyrkju-
fræðing, og öll snildarlega samin
af viðtækri þekkingu, nákvæmri at-
hugun og margra ára reynslu.
Ættu að vera á hverju sveitaheim-
ili. Fæst hjá böfundii
Sveilavinur.
Látinn er í Eeykjavík Sigurður Þórð-
arson, fyrv. sýslumaður í Borgarfjarð-
ar- og Mýrasýslu.
Peir sem vilja taka að sér tlutning i
mjólk úr Arnaness og Skriðu sam-
lagsdeildum fyrir árið 1933, skili tiiboðum
þar að lútandi, til undirritaðs fyrir 20. nóv.
n- k. Þrastarhóli 2/. okt. 1932.
Pórh. Ásgrímsson.
Bækur og rit.
Nýjar Kvöldvökur, síðustu tvö
hefti, flytja sögu eftir hinn góð-
kunna rithðfund Kristmann Ouð-
mundsson. Pá eru og tvær sögur
frá Færeyjum, báðar frá fyrri tim-
um og mjög einkennilegar. Enn-
fremur framhald af hinni ágætu
sögu: »Og hann sveif yfir sæ« og
fleiri skemmtilegar sögur. Síðast
en ekki sízt flytja N.-Kv. framhald
af hinni prýðilega vel rituðu Fnjósk-
dælasögu eftir Sigurð Bjarnason.
Fróðleiksfúsir menn byrja á Iestri
þeirrar sögu, þó hún sé aftarlega í
ritinui
Bakkabrœður kannast hvert is-
lenzkt barn við, sem komið er til
vits og ára. Sögurnar af þeim
bræðrum hefir Porsleinn M. Jóns-
son gefið út. Nú geta börnin feng-
ið að sjá þá bræður, þvf að sög-
urnar eru með myndum.
Sunna, timarit fyrir skólabörn,
er byrjað að koma út. Útgefendur
eru Aðaisteinn Sigmundsson og
Ounnar M. Magnússon kennarar f
Rvík. Ritið á að koma út mánaðarlega
að vetrinum og kostar árg. 2 kr.
Efnið á að vera við barna hæfi og
hðfundarnir eru bæði fullorðnir og
börni Ritið fer vel af stað, enda
eru útgefenduruir áhugasamir skóia-
raenn.
Morgunn er nýkominn út. Efni
ritsins er að vanda margvislegur
fróðieikur um andleg mál, rneðai
annars um >frægasta sannanamiðil
Norðurálfunnar«, erindi eftir Einar
H. Kvaran, >annað líf í íslenzkri
þjóðtrú<, eftir sfra Jakob Jónsson
og margt fleira.
F r é 11 i r.
Einar Jónsson á Geldingalæk, fyrv. al-
þingismaður, drukknaði í Rangí síðastl.
laugardagskvöid, Líkið fannst daginn eftlr.
— Einar var nær 64 ára að aldri. Hann
var mörg ár þingmaður Rangvellinga og
hafði búið á Geldingalæk vestri á Rang-
árvðllum milli 30 og 40 ár.
Alpingiskosningin i Rvfk. Álaugardaginn
var fór fram kosning á þingmanni fyrir
Reykjavik í stað Einars Arnórssonar hæsta-
réttardómara. Úrslitin urðu þau, að listi
Alþýðuflokksins hlaut 2155 atkv., listi
kommúnista 651 atkv, og listi íhaldsflokks-
ins 5303 atkv. Á listunum voru Sigurjón
Á, Ólafsson, Brynjólfur Bjamasón og Pétur
Halldórsson. Hefir því hinn siðasttaldi
hlotið kosnlngu.
Togarinn Skúli fógeti, sem Ægir tók að
veiðum í Iandhelgi í síðustu viku, var
dæmdur i 17 þús. kr. sekt og afli og veið-
arfæri gerð upptæk.
Trúlolun: Ungfrú Anna Steingrímsdóttir
héraðslæknii og Árni Kristjánsson píanó-
leikari.
Akureyrarbær.
Dráttarvextir.
Dráttarvextir falla á síðari hluta útsvara i Akureyrarkaupstað árið 1932,
ef eigi er greitt fyrir 1. nóvember næstk. Dráttarvextirnir reiknast frá
1. september s; I.
Bæjargjaldkerinn.
Tvær ágætar bújarðir
fást til ábúðar í n. k. fardögum. Kaup geta komið tii mála. Upplýsingar
gefa hr. Ingimar Eydal ritstjóri og hr. alþm. Bernharð Stefánsson Pverá.
eru þrautreyndar að gæðum og endingu.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Höfum til:
Handverkfæri allskonar og garðyrkjuverkfæri.
Samb. ísl. samvinnufélaga
Söngflokkur Áskels Snorrasonar (Karla-
kór Akureyrar) söng siðasta sunnudag á
Húsavík og Breiðumýri við dágóða að-
sókn og ágætar viðtökur.
Hjúskapur. Ása T. Kristjánsdóttir og
Haraldur Kr. Jónsson bæði til heimilis hér
S bænum voru gefin saman að Bægisá á
laugardaginn var, af sóknarprestinum þar.
Dánardægur. Þann 14. þ. m. andaðist á
Siglufirði frú Sigríður Pálsdóttir, ekkja
Hafliða Guðmundssonar hreppstjóra.
Siðastl. þriðjudagsmorgun andaðist að
heimili sínu, Gröf i Kaupangssveit, bænda-
öldungurinn Stefán Guðjónsson, áttræður
að aidri.
Heim aö Hólum. Á miðvikudaginn i
síðustu viku fóru nemendur 6. bekkjar
Menniaskólans ásamt skólameistara og
kennurunum Brynieifi Tobiassyni og Brynj-
ólfi Svcinssyni, sem báðir eru Skagfirð-
ingar, vestur að Hólum í Hjaltadal í
kynnisför. Komu þeir heim aftur að kvöidi
næsta dags. Förin var farin í kassabil.
Prestskosningin I Grundarpingum. úrsiit
kosningarinnar eru nú kunn orðin og eru
á þessa leið: Af 600 kjósendum greiddu
399 atkvæði. Af þeim hlaut síra Benjamin
Kristjánsson 229 atkv., en Gunnar jóhann-
esson kandidat 165 atkv. Þrír seðlar voru
auðir og tvelr ógildir, — Sira Benjamin er
þvi löglega ko-inn.
óskast til kaups
Ritstjórí visar á
með prjónuðum barna
fötum i, fundin á göt
unni.
Qeymd i Litla-Qarði
eru vinsam
lega beðnir að
koma auglýs
ingum í Dag á framfæri
daginn áður
en blaðið kemur út, að svo
miklu leyti sem hægt er. Eru
það mikil þægindi fyrir blað-
ið að fá auglýsingarnar fyr
en á siðustu stund.
Meðal farpega hingað á Dettífossi á
föstudaginn voru Davíð Stefánsson tkáld,
Eggert Mclstað slökkviliðsstjóri og Arthur
Oook trúboði-
Pingmðlafund héldu þingmenn Eyfirð-
inga að Grund í Svarfaðardal 21. þ. m.
og annan fund í Árskógshreppi næsta dag.
Ályktanir þær, er samþykktar voru, birt-
ast f næsta biaði.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonax’