Dagur - 10.11.1932, Blaðsíða 4
170
DAGUR
44 tbl.
ÁVAR P.
Við undirrituð, sem höl’um
kynnt okkur stefnu og starfsemi
Alþjóðasamhjálpar Verkalýðsins
(A. S. V.), lýsum yfir fyllstu
samúð með félaginu og viljum
sérstaklega skora á allt verkafólk
að hvetja börn sín til að taka þátt
í barnadeildum þeim, sem A. S.
V. hefir nú stofnað í ýmsum kaup-
stöðum landsins eða sem stofnað-
ar verða bráðlega. A. S. V. er líkn-
arfélag verkalýðsins sjálfs og ó-
háð öllum pólitískum flokkum, en
starfar þó eindregið á grundvelli
verklýðshreyfingarinnar og telj-
um við það hið mesta nauðsynja-
mál, að börn verkalýðsstéttarinn-
ar læri þannig sem yngst að starfa
fyrir verkalýðinn.
Magnús V. Jóhannesson, fátækrafulltr.
Finnur Jónsson, listamaður.
Einarr Magnússon, memrtaskólakennari.
Svb. Sigurjónsson, kennari.
Jón Árm. Jakobsson, verzlunarmaður.
Bína Thoroddsen, kennari.
Kristín Ól. Thoroddsen, hjúkrunarkona.
Sigurðwr Einarsson, kennaraskólakenn.
Guðný Jónsdóttir, frú.
Kristín Guðmuiuisdóttir, frú.
Jakobína Jakobsdóttir, kennari.
Valgerðwr Pétursdóttir, frú.
Sigurður Thoroddsen, verkfræðingur.
Eiríkur Magnússon, stud. theol.
Caroline E. R. Siemsen, húsmóðir.
Guðjón B. Baldvinsson, verkamaður.
Katrín Thoroddsen, læknir.
Bjöm Franzson, stud. mag.
Theodora Thoroddsen, rithöfundur.
TJnnur Skúladóttir, frú.
Pábmi Hannesson, rector.
R. Á. Ivcursson, sjómaður.
Benedikt Elfwr, söngvari.
Marteinn Bjömsson, járnsmiður. v
Einar Bjamason, járnsmiður.
Erl. Guðmundsson, skrifstofumaður.
Ben. Stefánsson, gjaldkeri.
M. Stefánsson, búnaðarmálastjóri.
Lára Pálsdóttvr, frú.
Sverrir Thorodd&en, skrifstofumaður.
Birt samkv. beiðni.
mánuðina á þessu ári hafa Rússar
flutt út fjórðungi minna en á
sama tíma í fyrra. Af þessum or-
sökum hafa þeir orðið tilfinnan-
lega að skera við neglur sér kaup
erlendra nauðsynja, svo að nemur
þriðjungi. Þó hafa þeir, á þessum
fimm mánuðum keypt af öðrum
þjóðum um 325.000.000 króna,
virði meira en þeir hafa aftur selt
erlendum viðskiftamönnum.
Færeyjar.
Norska blaðið »Tidens Tegn«,
flytur þá frétt, að um miðjan fyrri
mánuð hafi hneykslisatburður sá
orðið í Færeyjum, að æðsti valds-
maður eyjanna, Ringberg amt-
maður, hafi eigi boðið formanni
heimastjórnarflokksins (Selvstyre-
partiet), Patursson kóngsbónda í
Færeyjum, í hina árlegu miðdegis-
veizlu, er amtmaður, venju sam-
kvæmt, heldur lögþingmönnum
Færeyinga. Danska blaðið »Poli-
tiken« fékk það svar við eftir-
grennslan sinni að amtmaftur
hefði viljandi sett Patursson hjá
af því að hann hefði undanfarið
neitað ókurteislega munnlegu boði.
Þessu neitar Patursson. En afleið-
ingin varð sú, að þingflokkur
heimastjórnar tilkynnti amt-
manni, að hann sæi sér eigi fært
að sitja veizluna, er formanni
flokksins hefði ei verið boðið. —
Svíþjóð.
Frú Amia Borg, eða réttara
sagt, frú Anna Reumert, er var
fulltrúi íslenzkrar leiklistar, ís-
lenzku vikuna i Stokkhólmi, var
á mánudagskvöidið 19. september
sæmd heiðurspeningnum úr gulli:
Litteris et artibus (fyrir bók-
menntir og listir). Þann dag bauð
Gústaf Adolf krónprins henni til
hádegisverðar, og var Friðrik
krónprins þar einn gestanna. Síð-
ar um daginn bauð Gústaf kon-
ungur henni til tedrykkju, og um
kvöldið, er hún við hátíðahljóm-
leika á Konunglega söngleikhús-
inu hafði flutt íslenzka þjóðsöng-
inn, færði konungur henni sjálfur
heiðurspeninginn.
* * *
Við þingkosningar, er fram fóru
í Svíþjóð síðari hluta september-
mánaðar fóru svo leikar að sósíal-
demóhratar fjölguðu atkvæðum
sínum úr 873,931 í 1.013.176, en
þingmannafjölda úr 90 í 104 —
miðað við síðustu kosningar áður.
Bændaflolchitrmn fjölgaði atkvæð-
um úr 263,501 í 351,055, en þing-
mönnum úr 27 í 36; atkvæði
hægrimanna fækkuðu úr 692,434 í
563,743, en þingmenn úr 73 í 58;
atkvæði hins frjálslynda. þjóö-
flokks fækkuðu úr 303,995 í
247,092, en þingmenn úr 28 í 20;
atkvæði frjálslynda flokksins (de
liberala), fækkuðu úr 70,820 í
40,859, en héldu 4 þingsætum; at-
kvæði hinna svokölluðu Kilbom-
kommúnista fækkuðu úr 151,567 í
130,882, en þingmenn úr 8 í 6, en
Sillén-kommúnistar (kommúnista-
flokkurinn sænski er klofinn og
nefnist eftir foringjum sínum)
fengu 73,508 atkvæði og 2 þing-
sæti • K azista-flokkurinn sænski
fékk aðeins 14,845 atkvæði, og
kom engum þingmanni að.
Hamrin'forsætisráðherra, sá er
tók við af Ekman forsætisráð-
herra, er varð að segja af sér sök-
um þess, að hann hafði á laun þeg-
ið stórfé af miljónasvikaranum
Kreuger, baðst þegar lausnar fyr-
ir sig og ráðuneyti sitt.
Nokkrum dögum síðar mynduðu
sósíaldemókratar ráðimeyti. For-
sætisráðherra er flokksforingi
þeirra, Per Albin Hansson. Her-
málai’áðherra varð Ivar Wenner-
ström, ritstjóri, ágætur maður og
íslandsvinur mikill, enda giftur
íslenzkri konu, Ólafíu (Lóu) frá
Nesi á Seltjarnarnesi, dóttur
merkisbóndans Guðmundar Guð-
mundssonar, er þar bjó.
Hún. er hin mesta fríðleiks og.
gáfukona, og hafa þau hjón verið
mörgum íslendingum vel, er til
Stokkhólms hafa komið.
Stjórnin er talin föst í sessi og
skipuð dugandi mönnum.
ALFA LAVAL
A. B. Separator í Stokkhólmi er eítt af þeim fyrirtækjum Svfa, er mest
og best hefir stutt að því að gera sænskán iðnað heimsfrægan.
í meira en háifa öld hafa ALFA LAVAL vélarnar verið viður-
kenndar sem bestu og vönduðustu skilvindurnar á heimsmarkaðinum, enda
hefir versmiðjan hlotið yfir 1300 FYRSTU VERÐLAUN.
Reynslan, sem fengist hefir við að smíða meira en 4.000.000 Alfa-
Laval skilvindur, er notuð út i æsar til þess að knýja fram nýjar og
verðmætar endurbætur. Hið nýjasta á þessu sviði er:
Algerlega ryðfríar skilkarlsskálar
og algerlega sjálfvirk smurning.
Vér höfum þessar tegundir af hinum nýju endurbættu ALFA LAVAL
skilvindum á boðstólum:
Alfa Laval Nr. 20 skilur 60 litra á klukkustund
— > — - 21 - 100
—> — - 22 - 150
— }— - 23 - 525
Varist að kaupa lélegar skilvindun — Biðjið um
ALFA LAVAL.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Allt með íslenskum skipum! «fí
Smælki.
Amei'íkumaðurinn Gar Wood
hefir á Michiganvatni náð nýju
hraðameti með mótorbát sínum,
Miss America X. Nam hraðinn
231.5 kílómetra á klukkustund.
Áður átti Englendingurinn Kaye
Don mótorbátametið. Náði hann
192.7 kílómetra hraða í júlí i sum-
ar, svo met hans hefir eigi gamalt
orðið. S. H. f. H.
■o-- ■
Eg sakna þín sumar.
Eg sakna þin sumar með svana-klið
og samhljóma röddum í fossa nið,
meðregnbogaskrúði og skógarangán
skini um nætur og daginn langan.
—O— — 0— —0— —o —
Eg fagna þér vetur, þó frjósi
hver lind,
og fannirnar breiðist um dali og tind.
Pótt elfurnar hyljist und is
fram að ægi,
þá enn tendrar norðurljós
fornhelgur Bragi.
Sigfús Elíasson.
-----o-------
F r é t|t i r.
□ Rún 59321188 - Frl.\
Vélbáturinn Þorsteinn Svörfuðnr frá Dal-
vík sökk á fimmtudaginn var undan Hnífs-
dal. Orsökin var árekstur við bát frá ísa-
firði. Mannbjörg varð með naumindum.
Vélbátur sá, er sökk, hafði nýlega verið
seldur vestur.
lörubíll lagði af stað frá Hornafirði á-
eiðis til Reykjavíkur á föstudaginn var.
Tíu manna voiu i förinni. Bíllinn kom til
Rvíkur heilu og höldnu laust fyrir hádegi
á mánudaginn. Er þetta fyrsti billinn, er
fer alla jjiessa leið.
Auglýsendur
eru vinsam-
lega beðnir að
koma auglýs-
ingum í Dag á framfæri
daginn áður
en blaðiö kemur út, að svo
miklu leyti sem hægt er. Eru
það mikil þægindi fyrir blað-
ið að fá auglýsingarnar fyr
en á siðustu stund.
Hjúnaband: Ungfrú Heba Sæmundson
og Skúli V. Ouðjónsson iæknir i Kaup-
mannahöfn.
Dánardægur. t>ann 19. þ. m. andaðist að
heimili sínu Pálmholti í Arnarneshreppi
Ólafur Ólafsson fyrrum bóndi þar. Hann
var nokkuð hniginn að aldri, vinsæii og
vel látinn dugnaðarmaður.
Drukknun. Maður að nafni jón Karlsson
á Skálum á Langanesi féll út úr bát nú
nýskeð og drukknaði.
Fundur verður haldinn næstk. föstudags-
kvöid, kl. ðVs, í Iðnaðarmannafélagi Akur-
eyrar.
Leikurinn > Alt Heidelberg. hefir verið
sýndur hér níu sinnum, ailt af við góða
aðsókn. Oert er ráð fyrir að sýna Ieikinn
enn um næsiu helgi,
Horúanhrið aitmikn var hér á sunnudag-
inn og setti niður nokkurn snjó. Penna
dag var óiátaveður á Siglufirði og sjó-
gangur svo mikill, að bryggjur skemmdust.
Falliö höfðu Úr í prentun í skólasetning-
arræðu í síðasta blaði, á eftir orðinu
>starisaðferðir« á 2, siðu, 4. dálki, 31.—
32. línu að neðan, þessi orð:
UppeldisviBindi nútimans fullyrða, að
gamii skólinn með öiium ítroðningnum
og iexíuþvarginu, köldu og daufu yfir-
heyrslunum, þurfi og verði að breyta ali-
mjög til um starfshætti.
í >Ritfregn< í sama tbl. hafði misritast
orð í síðustu setningu: Fæst fyrir fást.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Björnssonar