Dagur - 27.07.1933, Qupperneq 2
120
D A G U R
30. tbl.
fflSfSlifffflllffSfiffSg
Sumarkjólaefni |
ódýr, í fjölbreyttu úrvaii, Jg
— nýkomin. — J®
Kaupfélag Eyfirðinga. SS
Vefnaðarvörudeild.
aftiifiiiiiftiiiiiiiiiiiiiis
Jfýa'itant þaMUz Wí aU'ta þeázza, a&m
a\\£)5\fya<kn mé't v\natyf\acj ocj, cjióááa \nicj,
á '\aa'tcjaa íxáii á oyóiín áza a|mceli aixaa.
^ónxÁúíáaz 3ó fxanneodótU't.
My ndastof an
Gránufélagsgötu 21 er opin alla
daga frá kl. 10—6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
Á viðavangi.
Maður i manns stað.
Frá Öxnadalshéiði austur og
suður um land, alla leið aðjökulsá
á Sðlheimasandi, hafa öll sveita-
kjördæmi hnigið til fylgis við Fram-
sóknarflokkinn við undanfarnar Al-
þingiskosningar. Svo varð enn við
siðustu kosningar að undantekinni
Vestur-Skaftafellssýslu einni; þar
náði yfirvaldið kosningu með Iitl-
um atkvæðamun fram yfir héraðs-
höfðingjann Lárus á Klaustri. Á
öllu hinu fyrgreinda svæði voru
í kjðri fyrv. þingmenn Framsóknar-
flokksins að einum undanteknum.
Er það Sveinrt Ólafsson í Firði,
aldursforseti Alþingis undanfarin
þrjú þing. Sveinn varð sjötugur að
aldri snemma á þessu ári, og kaus
hann nú að draga sig i hlé við
sfðustu kosningar, eftir að hafa
setið óslitið á öllum þingum síðan
1916 sem 1. þingmaður Sunnmýl-
inga. Hefir hanp jafnan verið einn
hinn alira mest virti og vinsælasti
meðal þingmanna og jafnan talinn
einn af mestu vitmönnum þingsins
og vel menntur. Mun þessum
aldurhnigna sæmdarþingmanni hafa
verið einkar Ijúft að skila kjördæm-
inu fyrir sitt leyti f hendur yngsta
frambjóðanda Framsóknarflokksins,
sem er Eysteinn Jónsson skattsljóri
Reykjavfkur, er nú tekur sæti
Sveins á þingi sem fyrsti þingmað-
ur Suður-Múlasýslu. Eysteinn cr
skarpgáfaður maður, ötull og fylg-
inn sér og þegar þjóðkunnur fyrir
mælsku og rökvísi af þátttöku
sinni i útvarpsumræðum um stjórn-
mál. Hefir hann sýnt, þótt ungur
sé, að engum meðaimönnum og
þvf síður aukvisum er hent að etja
kappi við hann, enda er fullyrt, að
skugga hafi dregið yfir sigurgleði
andstæðinganna, þegar það vitnað-
ist, að Eysteinn Jónsson væri kos-
inn 1. þingmaður Sunnmýlinga.
Ut- og innflutningur
alls landsins hefir verið sém hér
segir sfðan 19201
Innflutt: Utflutt:
1920 kr. 82.3 milj. kr. 60 5 milj
1921 — 46.1 — — 47.5 —
1922 — 520 — — 50.6 —
1923 — 507 — — 58.0 —
1924 63.8 — — 86.3 —
1925 — 70.2 — — 78.6 —
1926 — 51.0 — —- 48.0 —
1927 — 53.2 — 63.2 —
1928 — 64.4 — — 80.6 —
1929 — 77,0 — — 74.2 —
1930 — 72.0 — — 60.1 —
1931 — 42.0 — — 45.4 —
1932 Utan - 35.0 flokka. 44.0
Einn af frambjóðendunum f Norð-
ur-Pingeyjarsýslu hefir sent blaðinu
eftirfarandi athugasemd:
Par sem f siðasta blaði af Degi
eru taldir upp þeir, sem í kjðri
voru við sfðustu Alþingiskosningar,
stendur aftan við nafn mitt F., sem
á að tákna það, að eg sé framsókn-
armaður, eða sé f Framsóknar-
fiokknum. Par sem þetta er ekki
allskostar rétt, vil eg taka það fram,
að eg hefi aldrei verið i neinum
ffokki, enda bauð eg mig fram
utan flokka, eins og um var getið
f útvarpinu og sumum blöðum.
Pó eg væri eindregið fylgjandi
stefnu Framsóknarflokksins, á með-
an hann barðist gegn fhaldinu Og
afneitaði þvf og öllu þess athæfi,
þá hefi eg hlotið að fjarlægjast
hann, siðan bann lagðist f þessa
pólitísku flatsæng með þeim argasta
flokki, sem eg ber kennsl á.
Benjamín Sigvaldason frá Giisbakka.
Árds Mbl. d Hermann fónasson.
Fyrir sfðustu Alþingiskosningar
bóf Morgunbl. svæsna árás á H. J.
lögreglustjóra og kenndi honum
um, að bann hefði látið niður falla
saksókn gegn Lúðvik C. Magnús-
syni >endurskoðanda< Magn. Guðm.
fyrir sviksamlegt gjaldþrot, er hann
var við riðinn. Út af þessari árás
Mbl. sendi lögreglustjórinn blaðinu
eftirfarandi
Leiðrétting.
í blaði yðar, Morgunblaðinu, 9.
þ< m. birtist grein með fyrirsögn-
inni: >Hefir Hermann Jónasson van-
rækt embættisskyldu sfna? Eða er
hann að leika fffl frammi fyrir þjóð-
inni?« Greinarhöfundur skýrir rétt
frá þvf, að eg hafi sent dómsmála-
ráðuneytinu prófin f gjaldþrotamáli
Lúðvíks C, Magnúsionar og spurst
fyrir um það, hvað gera skyldi f
málinu. En út frá þessu er svo i
greininni dregin sú ályktun, að eg
hafi með þessu sýnt, að eg hafi
talið gjaldþrótið ósaknæmt, eða að
eg hafi með þvi vanrækt embættis-
skyldu mfna, þvi hafi gjaldþrotið
verið sviksamlegt, þá sé >dómara
skylt að höfða mál til refsingar, án
þess að le'ta umsagnar ráðuneytis-
ins«.
Pelta hyggst svo greinarhöfund
ur að rökstyðja með tilvitnun til
8. gr. gjaldþrotalaganna. sem meðal
annars segir, að hafi réttarrannsókn
leitt f Ijós, að gjaldþrot sé sviksam-
legt, >þá skal dómari án þess hann
þurfi að leita til dómsmálaráðu-
neytisins, höfða mál til refsingar
gegn brotamannic.
Pað er næsta einkennilegt, ef
nokkrum manni er það alvara, að f
þetta ákvæði eigi að leggja þann
skilning, að dómara sé óheimilt að
senda sviksamlegt gjaldþrotamál f
dómsmálaráðuneytið til umsagnar
áður en hann höfðar mál og það
sé jafnvel brot á embættisskyldum
hans ef hann gerir það; þvf í grein-
inni segir aðeins, svo sem allirsjá,
að dómarinn >þurfi< ekki að leita
þessarar umsagnar,
Gjaldþrotalögín eru þannig í fullu
samræmi við þá almennu réttarfars-
reglu, að dómaraerætfð heimilt að
senda sakamál til umsagnar í dóms-
málaráðuneytið áður en mál er höfð-
að, þó afbrot sé fullsannað.
Svo augljóst er þetta mál, að eg
gæti látið nægja að benda á þetta
eitt, en skal þó ennfremur benda á
hvernig ákvæði greinarinnar hafa
verið skilin f framkvæmdinni þann
tlma, sem þau hafa verið f gildi.
Sannleikurinn er sá, að mái út af flest-
um gjaldprotum, pótt sviksamleg hafi reynst
við rannsókn, hafa, bæði af mér og öðrum
dómurum, verið send dómsmálaróðuneytinu
til umsagnar, óður en dómari höfðaði mái
og málshöfðun síðan iramkvæmd eftir fyrir-
skipun dómsmálaráðuneytisins sjálfs. Eg
nefni sem dæmi, þessu til sönnunar,
gjaldþrotamál Glsla J. Johnsen og
Ingvars Ólafssonar, svo tvö stór
gjaldþrot, sem allir munu kannast
við, sé talin. Pessi mál vóru send
dómsmálaráðuneytinu til umsagnar
og var málssókn síðan hafin sam-
kvæmt fyrirskipun ráðuneytisins og
gjaldþrofar dæmdir sekir, bæði f
undirrétti og Hæstarétti, f þvf mál-
inu, sem var áfrýjað. Ennfremur má
f þessu sambandi nefna gjaldþrota-
mál Hansfnu Ingu Pétursdóttur og
Björns Gfslasonar, sem einnig var
sent til umsagnar f dómsmálaráðu-
neytið áður en mál var höfðað, en
sektardómur er nú nýlega genginn
í þessu máli í Hæstarétti.
Skiiningur greinarhöfundarins á umræddu
ékvæði gjaldprotalaganna, er pví nákvæm-
lega öfugur við pann skilning, sem lagður
hefir verið I greinina f framkvæmdinni, enda
kemur ekki annað til greina.
Ojaldþrotamál Lúðvíks C, Magn-
ússonar fékk nákvæmlega sömu
afgreiðslu hjá mér og ýms stór
sviksamleg gjaldþrotamál hafa feng-
ið hjá dómnrum landsins. Pað var
sent dómsmálaráðuneytinu til um-
sagnar, tll þess, að ráðuneytið f
því máii eins og öðrum hliðstæðum
fyrirskipaði málshöfðun eða ákvæði
að saksókn skyldi falla niður.
Árásin á mig er þvf öll byggð á
þvf, að greinarhöfundurinn skilur
ekki lagaákvæðið, sem hann vfsar
til, og þekkir ekki framkvæmd þess.
Reykjavík, ii. júlí 1933,
Hermann Jónasson.
H. J, krafðist þess, að Mbl. birti
leiðréttingu sína með skírskotun til
11. gn tilsk. am prentfrelsi frá 9.
mai 1855. En Mbl. þorði ekki að
láta lesendur sina sjá leiðréttinguna
og harðneitaði að birta hana. Mælt
er, að H. J. muni þvinga Mbl. með
dagsektum til þess að birta leiðrétt-
inguna sfðar.
-----o-----
Nýr íslenzkur dokíor.
Hinn 30. júni sl. var Porkell
meistari Jóhannesson frá Syðra-Fjalli
f Aðalreykjadal sæmdur doktors-
nafnbót við Kaupmannahafnarhá-
skóla fyrir bók, sem hann hefir rit-
að um >Frjálst verkafólk á íslandi
til siðaskifta*. Er bók þessi 256
bls. á stærð i 8 blaða broti og
gefin út á þýsku.
Pegar háskóli veitir doktorsnafn-
bót, fer sú athöfn fram opinberiega
og oft að viðstöddu fjölmenni. Sér-
stakir menn eru af hálfu háskólans
til þess skipaðir að gagnrýna f
heyranda hljóði efni bókarinnar; erú
þeir nefndir andraælendur, en dokt-
orsefnið stendur fyrir svörum og
ver verk sitt. Sker þá stundum f
harðar deilur um ýms ágreinings-
efni, er upp koma meðal vísinda-
mannanna. Andmælendur Porkels
voru þeir Finnur Jónsson fyrv.
prófessor f nórrænum fræðum og
Erik Arup prófessor f sögu. Margt
annara manna var viðstatt, bæði
prófessorar og stúdentar við bá-
skólann, blaðaraenn, ýmsir íslend-
ingar, sem búsettir eru eða staddir
voru í Kaupmannahðfn o. fl. Var
viðburður þessi talinn merkilegur,
ekki sfzt fyrir þá sök, að Porkell
er fyrzti fræðimaðurinn af þeim, er
eingðngu hafa stundað nám hér
heima, sem doktorsnafabót htýtur
við Kaupmannahafnarháskóla. And-
mælendur Porkels fóru mjög lof-
samlegum orðum um verk hans.
Vakti prófessor Arup sérstaklega
athygli á þeim kafla bókarinnar, er
fjaliar um fslenzkar fiskiveiðar á
fyrri öldum, og hvatti höf. til að
skrifa íslandssögu eflir þeirri fyrir-
mynd.
Porkell á til gáfaðra manna að
telja. Hann er sonur Jóhannesar