Dagur - 27.07.1933, Blaðsíða 3
30. tbl.
DAGUR
121
sál. Þorkelssonar bónda á Syðra-
Fjalli, sem var kunnur fræði- og
gáfumaður og í allra fremstu röð
ritfærra manna á landi hér. Hann
var bróðir Indriða skálds á Ytra-Fjalli.
Þorkell kom þroskaður og ágætlega
undirbúinn í skóla. Hann lauk stú
dentsprófi við Menntaskólann í
Reykjavik og méistarprófi I norræn-
um fræðum við háskólann í Reyk-
javík vorið 1927. Var saga sérnáms-
grein hans. Að loknu meistaraprófi
gegndi hann nokkra vetur skóla-
stjórn i Samvinnuskóianum, meðan
Jónas Jónsson var ráðherra. Nú er
bann 1. bókavörður við Lands-
bókasafnið.
Doktorsritgerð Þorkels er þýðing
á ritgerð, er hann samdi og lagði
fram við samkeppnispróf um pró-
fessorsembættið í sögu við háskól-
ann i Reykjavík um áramótin 1930
— '31. Er hinum nýja doktor það
mikill heiður, að svo merk vísinda-
stofnun, sem Kaupmannahafnarhá-
skóli er, skyldi meta verk hans svo
hátt sem raun er á orðin. Öll fs-
Ienzka þjóðin nýtur og góðs af
þeim vísindalega frama, er doktor
Þorkeli Jðhannessyni hefir nú hlotn-
ast.
-- O
fréííir.
Skriúuhlaup. A sunnudaginn var hljóp
stórfelld ikriða úr fjallinu fyrirofan bæinn
Jökul í Hólasókn og breiddist yfir tún og
engjar jarðarinnar og eyðilagði hvort-
tveggja að meitu. Einnig lagði skriðan
sumt af bæjarhúsunum á Jökli við jörðu,
en skekkti þau, sem uppi standa. Á Jökli
hafa búið roskin hjón, Þorsteinn Magnús-
son og Sesselja Sigurðardóttir og eitt barn
mun hafa verið á vegum þeirra. Fleira var
heimilisfólkið ekki, og var það ekki heima
er skriðan féll, og ekkert manntjón hlauzt
af. Jörðin er óbyggileg eins og stendur,
og er fólkið flutt burt þaðan.
Leiltflokkurinn úr Heykjavík fór héðan til
Húsavíkur og hafði þar leiksýningar vlð
ágæta aðsókn. Á vesturleið sýndi leik-
ilokkurinn á Sauðárkróki og Blðnduósi
og fékk góða aðsókn á báðum þeím
stööum.
Sjtítugsafmæli átti frú Dómhildur Jó-
hannesdóttir, ekkja Magnúsar Kristjánsson-
ar ráðherra, 25. þ, m. Ekki lér teljandi
ellimörk á henni enn þrátt fyrir aldurinn.
Lik Hallgríms Davíðssonar var flutt
hingað norður með Oullfossi, er kom
hingað á fimmtudaginn var. Jarðarförin
fór fram 25. þ. m. að viðstöddu fjölmenni.
Bæjatbiuni. Að kvöldi hins 16, þ. m.
brann íbúðarhúsið að Búrfelli í Miðfirði
til kaldra kola. Enginn var heima, en allt
fólkið á heimlcið frá kjörfundarstað. Þegar
heim kom, var húsið alelda og ekki hægt
að bjarga neinu. Ætlað er að kviknað hafi
út frá raflögn. Bæði hús og innbú var
óvátryggt.
Ensko ferðamannaskipið »Arandora Star*
kom hingað á föstudagimorguninn og fór
aftur að kvöldi sama dags.
Fyrsta mánudag I ágúst, þ. e. 7, dag
mánaðarins, verða búðir lokaðar allan dag-
jnn, samkvæmt hinni nýju samþykkt um
’okun sölubúða i Akureyrarkaupstað.
Maiía Markan söngkona er væntanleg
hingað tll Akureyrar innan fárra daga og
ætlar að syngja hér fyrripart næstu viku.
Er það nýnæmi, sem öllum sóngvinum
hæjarins má vera óblandið fagnaðarefni.að
fá nú tækiiæri til að heyra þessa glæsilegu
söngkonu okkar fslendinga, semsvomikið
orð fer af. *
Félag verzlunar og sktifslolufólks efnfr tn
skemmtifarar f Mývatnssveit, laugardaginn
5. ágúst næstkomandi, um kvóldið. Mánu-
dagurinn 7. ágúst er almennur frídagur
ver8lunarmanna á þessu sumri, svo þeir
hafa yfir að ráða 2 sólarhringum ti! farar-
innar. Verslunarmönnunr utanfélags er
einnig gefinn kostur á að vera með í för
þessari, og verða þeir að tilkynna þátttöku
sína til félagsformanns, Stefáns Ág. Krist-
jánssonar, eða nefndarformanns Tómasar
Stefngrfmssonar, og gefa þeir allar nánari
upplýsingar um tilhögun fararinnar.
------------------o------
Bœkur og rii.
Fornritaútgáfaru Hinn 22.
maí sl. var 800 ára dánarafmæli
Sæmundar prests hins fróða. Þann
dag sendi Hið íslenzka fornritaiéiag
þjóðinni Egils sðgu Skaliagrímsson-
ar i nýrri útgáfu. Er þetta fyrsta
bindið, er út kemur af fornritaút-
gáfu féiagsins, sem Alþingi hefir
veitt styrk til í fjárlögum. Sigurður
Nordal hefir séð um útgáfu þessa
bindis og ritað inngang að sög-
unni, rúmar 100 bis. að lengd.
Neðanmáls eru orða- og efnisskýr-
ingar margskonar. Sömuleiðis eru
myndir óg kort af sðgustððum og
héruðum. Útgáfan er hin vandaðasta
á allan hátt, og hafa íslendingar
aldrei eignast slika af fornsögunum.
Mun hún verða kærkomin öllum
sðgufróðleiksfúsum mönnum og
þeim, sem hafa yndi af að eiga
vandaðar bækur. Formáli Nordais
er prýðilega ritaður eins og vænta
mátti og merkilegur á marganhátt.
Meðal annars færir hann sterk rök
fyrir þvf, að Hafursfjarðarorusta
hafi ekki verið fyr en um þrettán
árum síðar en áður hefir verið talið,
eða ekki fyr en 885, og færast aðrir
atburðir aftur samkvæmt þvf. Þá
færir Nordal merkileg og sannfær-
andi rök fyrir þvf, að Snorri Sturlu-
son sé höfundur Egils sðgu. Fyrir
áratugum sfðan hélt Björn M. Olsen
hinu sama svo fast fram f Árbókum
fornfræðafélagsins og f Skirni að
nærri stappaði fullyrðingu. Nú þeg-
ar hin veigamiklu rök Nordals bæt-
ast við, fer varla hjá þvf að alþýða
manna sannfærist um, að enginn
annar en Snorri hafi getað ritað
Egils sögu. En líklega er þetta þó
eitt af þvf, sem aldrei verður full-
sannað.
En þó að skiftar kunni að vera
skoðanir um þetta efni, þá orkar
hitt ekki tvímælis meðal viti borinna
manna, að Egils saga er ein dýr-
mætasta perlan I fornbókmenntum
okkar, og að snilld ritháttar óg
mannlýsinga sögunnar séu ámóta
og f Heimskringlu Snorra. Fyrirþvf
eiga allir góðir ísiendingar að taka
þessari prýðilegu útgáfu Egils sðgu
með fögnuði og opnum örmum.
Rit Nemendasambands Laug-
arvatnsskóla 1933. Þetta er fyrsta
ritið, sem Nemendasamband skólans
gefur út, og fer það mjög laglega
af stað. í því birtist ágrip af sögu
héraðsskólamáls Sunnlendinga. Þá
sögu rita þeir Bððvar Magnússon
Laugarvatni og Jónas Jónsson al-
þingismaður. »Hafa báðir þessir
menn tekið mjög mikinn þátt í
þessu máli og bafa oftsinnis staðið
hlið við hlið, þegar þunglegast
horfðic, segir I formáia ritsins, er
Ouðmmidur Gislason hefir skrifaði
Haia þeir skift með sér verkum
þannig, að Bððvar segir sögu skóla-
málsins I héraði, en Jónas Jónsson
þann hlutann, sem sérstaklega snýr
að þingi og landstjórn. Forsaga
Laugarvatnsskóla á sér lengri aldur
en flésta mun gruna. Það eru full
50 ár síðan fyrsta tilraunin var gerð
til þess að endurreisa skóia á Suð-
urlandi, og 46 ár liðu, þangað til
byrjað var á byggingu héraðsskól-
ans á Laugarvatni. Er þetta eitt
dæmi þess hversu góð raái eiga
oft erfiða Ieið og langa til fullnað-
arúrslita. Og ekki mundi þessi
menntastofnun alþýðu enn á legg
komin, ef ekki hefði notið við áhrifa
kennslumálaráðherrans, er auðnaðist
öðrum fremur að leiða mál þetta
til sigurs, Jónasar Jónssonar.
Ounnar Eggertsson ritar grein
um Nemendasambandið og tilgang
þess. Ouðmundur Ólafsson kennari
ritar nemendaannál o. fl. Ennfremur
birtast I ritinu þrjú kvæði eftirhag-
yrðinga skólans. Skólaskýrsla tveggja
síðustu ára fylgir og með riti þessu,
ásamt stuttri ritgerð eftir Bjarna
Bjarnason skólastjóra.
Á þeim 5 árum, sem Laugarvatns-
skólinn hefir starfað, hafa327nem-
3
Odýrt!
Karlm. buxur frá kr. 5,50
Kbakiskyrtur - - 4,90
Karlm. sokkar - — 0,65
— nærskyrtur - — 1,85
— nærbuxur — - 1,85
Eiiskar húfur - - 2,25
Leðurbelti - - 1,75
Gummíbelti - - 0,85
Vinnuvetlingar - - 0,75
Handklæði — - 0,65
Tvisttau - - 0,65
Léreft, hvít - - 0,70
Flónel, röndótt - - 0,85
Rúmteppi, hvít — - 4,90
o. m. tn. 11.
Brauns-Verslun
Páll Sigurgeirsson.
Nýtísku kvensokkar
í stóru úrvali — nýkomnir.
Brauns-Verslun.
Páll Sigurgeirsson,
endur notið þar kennslu, og hafa
þeir verið úr öllum sýslum og
kaupstöðum landsins að ísafirði
einum undanskitdum. Sézt af þessu,
að þó skólinn sé fyrst og fremst
ætlaður fyrir Suðurland, þá er hann
jafnframt skóii fyrir ailt landið.
„Ekkert veitir stúl-
kum eins mikið að-
dráttarafl og fagurt
hörund“ segir hin
fagra Mary Nolan.
,,Jeg nota altaf Lux
Handsápu, vegna
þess að hún veitir
hðrundinu silkimýkt
og heldur við æsku-
útliti. Hún er dá-
samleg."
VERNDARENGILL
HÖRUNDSFEGUR-,
ÐARINNAR
Hin yndislega fegurö filmleik-kvenna í Holly-
wood, er a'S þakka hinni stöðugu notkunn
hvítu Lux Handsápunnar. Þær treysta á hi'Ö
mjúka lööur hennar og láta þaö halda viö
yndisþokka sínum og æskufegurÖ. Látiö hörund
yðar njóta sömu gæða, og J>jer munuö undrast
yfir árangnum.
LUX
HANDSÁPAN
TöframeSal stjarnanna
UVa« BROTHEVS l-IUITEU, PORT SUNMCHT, ENOfcAHD
K-tTS £31.66 ip