Dagur - 24.08.1933, Blaðsíða 4
138
D AGUR
34. tbl.
Landspítalinn.
Nýlega er komin út skýrsla um
Landspltalann frá þvi hann hóf
starfsemi sína í árslok 1930 og til
ársioka 1932. Margskonar fróðleik-
ur er í skýrslu þessari og skal hér
drepið á nokkur atriði.
Landspitalinn tók til starfa 20.
des. 1930, þá komu fyrstu sjúk-
iingarnir á spitalann. Stjórn spital-
ans var skipuð yfirlæknunum og
ráðsmanni; yfirlæknir O. Ciaessen
var formaður hennar þangað til 1.
nóv. 1931, að Vilmundur Jónsson
landlæknir var skipaður f stjórnina
og gerðist formaður hennar, sem
fulltrúi ríkisstjórnarinnar.
Um miðjan aprilmánuð 1931
voru sjúkiingarnir orðnir 92, öll
hin áætluðu sjúkrarúm fullsetin, og
í lok aprflmánaðar voru sjúkling-
arnir orðnir 100, þá farið að bæta
við rúmum og þrengja á stofunum.
Siðan hefir sjúklingatalan enn auk-
izt og eins eftirspurn eftir sjúkra-
rúmum, svo oft hafa sjúklingar
órðið að bíða eftir spitalavist.
Pvottabús spitalans hefir verið
rekið sem sérstök stofnun, enda er
þar þveginn þvottur víðar að en
frá Landsspítalanum.
Landspftalinn starfar i fjórum
aðaldeildum: Lyflæknisdeild, hand-
læknisdeild, fæðingadeild og Rönt-
gendeild. Yfirlæknir i lyflæknisdeild
er Jón Hjaltalin Sigurðsson pró-
fessor og aðstoðarlæknir Björn
Gunnlaugsson.
Fyrsti sjúkl. var lagður á þessa
deild 21. des. 1930. Til ársloka
1930 komu á deildina 10 sjúkl., 7
konur og 3 karlar, Fyrir árslok var
einn sjúkl. farinn albata og einn
dáinn.
Árið 1931 komu alls á deildina
112 karlar, 141 kona og 31 barn
undir 15 ára, samtals 284, Á ár-
inu dóu á deildinni 14 karlar, 10
konur og 2 börn. Af deildinni fóru
87 karlar, 111 konur og 20 börn,
alls 218 sjúklingar.
Árið 1932 komu á deildina 115
karlar (þar af 11 drengir) og 130
konur (þar af 14 telpur). Á árinu
dóu 17 karlar og 9 konur. Af deild-
inni fóru 89 karlar og 123 konur,
og fóru sumir þessara sjúklinga á
aðrar deildir spitalans eða önnur
sjúkrahús.
í handlækningadeild er Ouðm.
Thoroddsen prófessor yfirlæknir og
aðstoðarlæknir Kristinn Björnsson.
Fyrsti sjúklingurinn kom á deild-
ina 20. des. 1930; enginn fór af
deildinni á þvf ári.
Á árinu 1931 komu á deildina
alls 479 sjúklingar að meðtöldum
þeim, sem komu i árslok 1930. Af
deildinni fóru á árinu 410 sjúkl.,
24 dóu, en 45 voru eftir við áia-
mót.
Ouðmundur Quðfinnsson augn-
læknir og Ólafur Porsteinsson háls-
nef- og eyrnalæknir framkvæma
sérfræðingsaðgerðir á handlæknis-
deildinni, hver í sinni sérgreim
Á árinu 1932 komu alls 571
sjúklingur á deildina, 518 fóru á
árinu og 43 dóu.
Á skurðstofu voru skráðar alls á
árinu 447 aðgerðir.
Fæðingadeildin er undir yfirstjórn
Bifreiðaeigend url
Bifreiðadekk viðgerð með gúmmísuðu (Vulkanisering).
Nýtízku vélar. Fyrsta flokks hráefni. Símar 123 & 225.
Síeingrímur G. Guðmundsson, Strandg. 23, Akureyri.
Sápuverksmiðjan
“SJ0FN”
framleiðir nú beztu sápur, sem búnar eru til
hér á Iandi, og engu Iakari en beztu
erlendar sápur.
II
Styðjið innlendan iðnað.
Notið Sjafnar-sápur.
Vagnhjól
bezt — ódýrust.
Samband isl. samvinnufélaga.
Guðm. Thoroddsen, en yfirljós-
móðir er Jóhanna Friðriksdóttir.
Arið 1931 komu 254 konur á
deildina, en 12 þeirra fóru án þess
að fæða. Fæðingar voru alls 244.
Um áramót voru eftir ö konur, 3
dóu á árinu.
Árið 1932 komu á deildina 341
kona, 333 fóru á árinu, 2 dóu og
12 voru eftir um áramót. A'ls
fæddust á árinu 326 börn.
Yfirlæknir Röntgendeildar er dr.
med. Ounnlaugur Claessen og að-
stoðarlæknir Sveinn Ounnarsson.
Fyrstu sjúklingarnir voru skoðað-
ir í deildinni 17. janúar 1931 og
lækningar byrjuðu nokkrum dögum
siðar.
Á árinu 1931 fóru alis fram 1774
röntgenskoðanir á 1575 sjúkl. Af
þessum sjúklingum voru 346 á
Landspitalanum og 1229 utan spít-
alans.
Árið 1932 varð mikil aukning á
starfinu. Á því ári fóru ails fram
2274 skoðanir á 1854 sjúk!., þar af
401 á Landspitalanum óg 1453 utan
hans.
í byrjun októbermánaðar 1930
fiuttu nemendur Ljósmæðraskólans
í spilalann, og þar hófst þá bók-
leg kennsla þeirra, en verkleg kennsla
í spitalanum ekki fyr en eftir ára-
raót, þegar fæðandi konur fóru að
koma í spitalann. Kennari skóians
var, eins og undanfarin ár, Ouðm.
Björnson iandlæknir, enhann veikt-
ist f janúarmán. og lét þá af kennslu,
en við tók Ouðm. Thoröddsen
prófessor. Námstíminn var 9 mán-
uðir fyrra árið, en eitt ár síðara
árið. 11 Ijósmæður luku prófi hvert
árið.
Pegar Landspitalinn tók tii starfa,
voru teknir 4 hjúkrunarnemar, en
þeim fjðlgaði brátt og vorið 1931
voru þeir orðnir 12, og í ársbyrjun
1932 voru 13 hjúkrunarnemar í
spitalanum. Verklega hjúkrun kenndi
Kristfn Thoroddsen yfirhjúkrunar-
kona spítalans.
í ap^ílmáni 1932 var Níeis Dungai
prófessor ráðinn til þess að veita
iíkskoðunarstofu Landspítalans for-
stððu. Eftir það voru flestir, sem
dóu á spítalanum krufðir. Alis voru
krufin 31 Iík árið 1932.
Við líkskoðun kom f Ijós, að
krabbamein hefir verið aðalbanamein
3. hvers sjúkl., sem dóu á spítalan.
um á þessum tfma. Sullir fundust
i 5, en aðeins í gömlu fólki, Menjar
um berklaveiki fundust i 16 hinna
látnu.
Sjúklingar á Lsndspltalann eru
aðeins teknir samkv. skriflegri beiðni
læknis, nema um slys sé að ræða.
Daggjöld sjúkl. á sambýlisstofum
eru 6 kr. fyrir fullorðna og 4 kr
fyrir börn, yngri en 12 ára. A ein-
býlisstofum er daggjaldið 12 kr,
Utlendingar, að dönskum þegnum
undanskildum, greiða tvöfalt gjald.
Skurðstofugjald er kr. 15, 30 og 50
eftir aðgerðum. Fæðingastofugjald
er 15 kr. Aukagjóld eru engin.
Starfsmannafjðídi spítalans var
árið sem leið 63 þegar fæst var og
74 er flest var. Aðaltekjur spítalans
eru daggjöld sjúkl. og námu þau
árið sem leið um 247 þús. kr.
Hæstur gjaldliður er laun tii starfs-
manna, sem námu rúmlega 124
þús. kr.
Reksturshalli spítalans var sem hér
segir: Oreiðsluhalli kr. 14984,12
og fyrning kr. 40,315,96, samtals
kr. 55,300,08.
Ráðsmaður spitalans er Ouðmund-
ur Oe3tsson.
John Grierson, enski flugmaðurinn, sem
getið var um í síðasta blaði að kpmið
hefði til Rvíkur með bilaða vél, ætlaði að
leggja af stað í flug sitt til New York á
sunnudagsmorguninn var, eftir að viðgerð
hafði fram farið á vélinni. Vélbátur dró
hana út á ytri höfnina, en þegar vélin
átti að heijast til flugs, steyptist hún koll-
hnýs og brotnaði, en flugmanninum lá við
drukknun. Vélbáturinn var þar skammt
frá og bjargaði hvorutveggja til lands.
Verður fiugvélin nú tekin í sundur og
send til Englands og flugtnaðurinn tekur
sér far þangað með skipi.
Ritstjóri: Ingiioar Eydal.
| Lœkkandi verð. |
Prentsmiöja Odds Bjömssonar.