Dagur - 19.10.1933, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtm-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
GJalddagi fyrir 1. júll.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son i Kaupfél. Eyfiröinga.
Afgreiðslan
er hjá Jónx Þ. Þ&r,
Uppsögn, bundin viö ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Noröurgötu 3. Talsími 113.
XVI
. ár. j Akureyri 19. októ
október 1933.
42. tbl.
¥
Jarðarför Jóns sál. Jónssonar fer fram að heimili hans Möðru-
felli þriðjudaginn 24. október, og hefst kl. 12 á hádegi.
Aðstandendur.
Andbanningar ha'.da því fram, að
áfengisneyz'a og áfengisböl sé sitt
hvað. Með því eiga þeir vitanlega
við það, að svo vel megi fara með
áfengi að ekkert böl hljótist af
neyzlu þess. Pað er hin svonefnda
hófdrykkja, sem andbanningar eru að
hampa. Nú skal þvf alls ekki neit-
að, að svo hóflega megi neyta á-
fengis og svo gætilega hafi ein-
stöku menn neytt áfengra drykkja,
að það hafi ekkert sýnileot böl haft
í för með sér. Pað má þvf ef til
vill segja, að f fyrnefndri fullyrð-
ingu andbanninga felist sannleikur,
en þó ekki nema hálfur sannleikur,
en vitrir ménn hafa sagf, að hálfur
sannleikur væri oft lygiuni verri,
af þvf hann er liklegri til að blekkja
grunnt hugsandi menn.
Hversvegna er þá staðhæfing
andbanninga, um það að áfengis-
neyzla og áfengisböl sé sitt hvað,
ekki meir en bálfur sannleikur, ef
hún er þá það ?
Skýr sönnun liggur fyrir í þvf
efni. Hún er á þessa leið: El enginn
maður I veröld vlöri neylti ðlengra diykkja,
pá væri öllu áfengisböli jalnframf úlrýmt
Úr heiminum. Neyzlan er ávalt undan-
fari og örsök bölsins. Bölið er af-
leiðing neyzlunnar. Pað verður naum-
ast sagt af rökréttri hugsun, að or-
sök og afleiðing sé með öllu sitt
hvað. Réttara líkingamál er, að or-
sök og afleiðing séu tvær hliðar á
sama hlut.
Nú skilst mér svo,að bannmenn og
bannandstæðingar séu að vissu leyti
sammála um það, að áfengisböl
hafi átt sér stað og eigi sér enn
stað f heiminum og þar á meðai
hér á voru landi, Íslandí. Einhver
skoðanamunur kann að vera milli
þessara tveggja aðila um það, hversu
áfengisbölið hafi verið þungt. En
það skiftir ekki svo ýkja miklu máli-
Böl er böl og áfengisbölið er af
verstu tegund, af þvi að það er
sjálfskaparviti. Pjóð vor gæti með öliu
losnað undan þessu böli, ef hver
einstakiingur hennar hefði nægan
þroska og vilja til þess að hætta
allri áfengisnautn.
Par sem það er nú öldungis vfst,
að alit áfengisböl hefir allar rætur
afnar í áfengisneyzlu, þá er það sið-
ferðisleg skylda hvers þess, sem
nokkru lætur sig skifta hamingju
einstaklinga og þjóðar að firra hvor-
tveggja þessu höli, en það verður
einungis gert með þ.í að koma i
veg fyrir neyzlu áfengis með öllu
Ieyfilegu móti. En hver er sá, er
trúir því í einlægni, að þessi neyz'a
minnki við það að steypa flóði
sterkra drykkja inn yfir landið, eins
og sumir beita sér nú fyrir að gert
verði? Eru ekki mörgum sinnum
meiri líkur fyrir að áfengisneyzla
vaxi að stórum mun við þá ráðstöf-
un og þar með áfengisbölið i iand-
inu ? Mikil ábyrgð fylgir þvi að haga
svo atkvæði sfnu fyrsta vetrardag,
að það böi aukist. Hver er viðbú-
inn að leggja hönd á bjarta sér og
mæla af einlægum hug og sannfær-
ingarkrafti:
Eg skal taka pá ábyrgð á mig.
Bannvinur.
—----0----—
Olöggt er pað m,
hvað pjir vilja.
Allir þeir íslendingar, konur og
karlar, sem hafa kosningarrétt í mál-
efnum sveita og kaupstaða (eru 21
árs á kjördegi og standa á kjörskrá),
hafa rétt til þess að greiða atkvæði á
tnorgun um bannmálið.
Já og nei.
Peir, sem merkja X framan við já
á atkvæðaseðlinum á morgun, biðja
um afnám núverandi áfengislaga, biðja
um brennivín, whisky, koníak og
romm I viöbót VÍð Spánaivínin, sem fyrir
eru.
Hinir, sem merkja X með blýant-
inum framan við nei á atkvæðaseðlin-
um á morgun, segja löggjafarþinginu
skýrt og skorinort, að þeir vilji ekkeft
áfengi inn í landið, hvorki brennivín
né romm, whisky né koníak. Þeir eru
óánægðir með Spánarvínin, en þeir
viija ekki bæta gráu ofan á svart, með
þvf að bæta nýjum, sterkum drykkjum
í skápa vínbúðanna, til sölu raeðal
feðra, bræðra, sona, systra, mæðra og
unnusta.
Pað er mikil ábyrgð, sem fylgir
því, kjósandi góður, er þú gerir á
morgun f kjörherberginu.
Ef þú segir já, þá biður þú um
áfengi handa þjóð þinni. Pað ersagt,
að hver sé sínum gjöfum líkastur.
Viltu bera ábyrgð á því, sem hlýtst
af brennivíninu, sem þú ert ef til vill
að hugsa um að biðja um handa þjóð
þinni? Nei, þú ert ekki maður til
að rísa undir henni. Sérðu ekki í anda
afleiðingarnar af áfengisverzlun í jal-
gleymingi, í hverjum bæ í þessu landi?
Með einu jái getur þú orðið þess
valdandi, að núverandi hömlur á inn-
flutningi, sölu og veitingum áfengra
drykkja verði afnumdar. —
Það er sannarlega ekkert hégómamál,
sem hér um ræðir.
Nei-ið er í raun réttri krafa um
bann, um ráðstafanir til umbóta, um
sterkari hömlur, um leið út úr slæmu
ástandi.
Já-ið erhinsvegar krafa um brennda
drykki handa þjóðinni, krafa um það
að slaka til í viðskiftunum við áfengið,
um að greiða götu þess sem bezt til
manna og kvenna. Já-ið er raunverulega
krafa um leið út úr slæmu ástandi í
enn verra ástand, úr mýrinni í fenið.
Það er mikill vandi að fylgja regl-
unni: Játa, þegar játa ber, og neita,
þegar neita ber,
Eitt já og eitt nei markar iðulega
tímamót í lífi okkar. Pessi einsatkvæð-
isorð eru örlagaþrungin. Pan bera í
sér gæfu og ógæfu. Ef þú segir já á
morgun við kjörborðið, þá gerir þú
þitt til að opna dyrnar fyrir miklum
vágesti. Hann drepur á dyrnar hjá þér
og segir: Má eg koma inn? Ef þú
opnar með já-inu þínu, þá er það
ekki aftur tekið.
»Oldruð búsfrú óhamingja
inn til þín með prjóna sezt«.
Ef þú neitar, þá snautar vágesturinn
burtu. Heill þín er bundin við það
að hýsa hann ekki.
Fínir gestir.
Fyrir nokkrum dögum var nýtt blað
borið í húsin hér í bænum. Pað var
sent út um allt land, á heimili ríkra
og fátækra, veikra og vel hraustra,
Blaðið heitir Andbanningur og er í
stóru broti. Hvað sjáum við? Stóra
stafi, feitar undirskriftir 90 Reykvíkinga,
88 herra og tveggja frúa.
Finir gestir eru komnir í bæinn.
Peir sjást ekki á hverjum degi f kotinu.
Hvað vilja þeir? Peir biðja þig »að
greiða í haust atkvæði gegn því banni
á aðflutningi áfengra drykkja, sem nú
er f lögum«, Petta er þá erindið. —
Hvað býður þessi gullhálsafylking fólk*
inu í staðinn? Að »leggja inn á nýjar
og heppilegri brautir í áfengismálinu,
með nýrri, skynsamlegri áfengislöggjöf,
er miðist við raunverulegt ástand f
landinu«2
Við vitura ekki fyrir víst, í hverju
þessi »nýrri, skynsamlegri áfengislög-
gjöf á að vera fólgin«. Fyrir því er
engin grein ger, en við sjáum af
greinunum, sem fylgja áskoruninni, að
það, sem kallað er að »leggja inn á
nýjar og heppilegri brautir í áfengis-
málinu«, merkir að leyfa innflutning á
brenndum drykkjum til íslands, að því
er bezt verður séð, til þess að draga
úr drykkjuskapnum og efla bindindis-
starfsemina!
Pessar kenningar flytja 90 höfðingj-
ar í höfuðstaðnum landslýðnum. —
Peir ætla fólkinu að trúa þessu.
Þeir ætla sér, andbanningar í Reykja-
vík, að sannfæra þjóðina, með niannanÖfn-
um um eitt hið allra fáránlegasta, sem
haldið hefir verið að landsfóikinu
langa hríð.
Hafa þessir menn nokkurntíma gefið
út ávarp tii þjóðarinnar um bindindis-
starfsemi, löghlýðni, ráð til þess að
fræða fólkið um áfengisbölið og hætt-
una, er af því leiðir? Nei.
Pað ávarp er ókomið! — En áskor-
un er send út um að PíjÓta ílÍÖUf það,
sem eftir er af því vígi, sem reist var
á sínum tíma, gegu herhlaupum Bakk-
usar og þjóna hans á hendur þjóðinni.
En varið ykkur á ráðum þessara
raanna. Pau eru Lokaráð.
Enginn hugsandi maður, sem hefir
einlægan vilja á útrýming drykkjuskapar,
fæst til að trúa því, að meíta áfengi
inn f landið muni ráða bót á drykkju-
skapnum.
Látum þessa herra og frúr fara bón-
ieið til búðar.
Brugg og smygi.
Pað er sífellt klifað á þvf, að
bruggið fylgi hvarvetna banninu, og
að það muni væntanlega hverfa, ef
bannið verði afnumið.
Ennfremur er það látið klingja, að
smyglið hverfi úr sögunni, ef bannið
verði strikað út úr löggjöfinni.
Hversvegna verja Svíar ca. 800 þús-
undum króna á ári til þess að reyna
að hafa upp á smyglurum og heima-
bruggurum, ef brugg og smygl þekk-
ist hvergi, nema í bannlöndum? Sví-
þjóð hefir þó aldfCÍ verið bannland.
Fleiri dæmi mætti nefna f svipaða
átt frá þeim rikjum, sem aldrei hafa
haft bann,