Dagur - 19.10.1933, Blaðsíða 3

Dagur - 19.10.1933, Blaðsíða 3
42. tbl. DAGUR 169 Atkvæðagreiðslan á laugardaginn fer fram á sama hátt og kosning til bæjarsljórnar. Pegar kjósandinn kemur inn í kjðrstjórnarherbergið fær hann atkvæða- seðilinn og fer með hann inn f kjðrklefann. Par setur hann kross X með blýant fyrir framan »Já« eða »N3í«, eftir þvi hvort kjósandi víll leyfa innflutning og sölu á sterkum vinum eða ekki. Eftir að kjósandi, sem ekki viii leyfa innflutning á sterkum vfnum, hefir kosið, iítur seðillinn þannig út, eða sá hluti hans, sem sýnir kosninguna: Já X Nei Þegar kjósandi heíir kosið, brýtur hann seðilinn i sömu brot og hann var, þegar kjðrstjórnin fékk honum hann og stingur honum niður i gegnum rifu í ioki á atkvæðakassans i herbergi kjðrstjórnar, þegar hann fer út. Ekki má skrifa neitt á seðilinn eða merkja hann nema með kjðrkrossinun*. Varnaðarorð. Á nýlega afslöðnum kennarafundi hér á Akureyri var samþykkt svo hljóðandi tillaga: »Fundurinn telur nautn áfengra drykkja oft og tíðum hafa átt rík- an þátt i iilu uppeldi æskulýðsins, og vinna á móti þeirri hugsjón kennarastéttarinnar, að ala upp hrausta og göfuga menn. Af þessum ástæðum, og með sérstöku tilliti til atkvæðagreiðslu þeirrar um rýmkun áfengishaftanna, er fram á að fara l.vetrardag n.k., lýsir fundurinn sig mótfallinn öll- um rýmkunum áfengislaganna, er ieitt geti af sér aukið áfengisflóð, og þar af leiðandi aukinn drykkju- skap i !andinu.< Eins og försendurnar í ofan- skráðri tillögu bera með sér, bygg- ist afstaða þessa kennarafundar til áfengismálanna yfirleitt á þeirri staðreynd, að drykkjuskspur og illt uppeldi fer allt af saman. Fátækt, heilsuleysi og siðleysi eru óað- skiljanlegir fylgifiskar drykkjuskap- arins. Á því getur þó verið stig- munur, en enginn eðlismunur; slíkt er fáum kunnara en okkur kennur- unum. Það væri því meira en lftið ábyrgðarleysi, ef nokkur kennari, eða yfirleitt nokkur sá, er við upp- eldi fæst, stuðlaði að þvf raeð at- kvæði sfnu, að uppeldi þjóðarinnar væri stefnt i enn meiri voða með aukinni áfengisnautn. En þá er komið að þvf, sem aðallega er um deilt f sambandi við atkvæða- greiðsluna um afnám innflutnings- haftanna 1. vetrardag n. k:: Verð- ur það til að auka eða minnka á- fengisnautnina, ef leyfður verður innflutningur á sterkum drykkjum f viðbót við það sem fyrir er? Sumir halda því fram, að það verði til þess að bæta ástandið og minna verði drukkið eftir en áður. Pað getur vel verið að þessu sé haldið fram f fullri alvöru og ein- lægni, þólt ótrúlegt sé, en mér þætti ekki ótrúlegt, að þeir yrðu nokkuð margir, sem ættu erfitt með að beygja sig fyrir þeim rök- um, að aukinn innflutningur áfeng- is verði til að minnka áfengisnautn- ina, að menn drekki slður á- fengið, ef þeir geti náð i það hvar sem er, og hvenær sem er. En nú er rétt að bæta jþvi við, að þessir sömu menn segja: Menn eiga nú þegar aðgang að áfengi, hvar og hvenær sem þeir vilja, þar sem heimabruggið er, og það er það, sem við yiljum úttýma með af- námi innflutningshaftanna. Petta . eru þeirra höfuðrök, sem óneitan- lega eru ekki alveg út í bláinn. En í fyrsta lagi er rétt að gera sér það Ijóst, að aðgangur að heimabrugg- uðu áfengi mun ékki vera eins greiður og margir halda, og til eru heilar sveitir, ekki allfáar, þar sem það þekkist ekki. í öðru lagi sýnir reynsla annara þjóða það ótvfrætt, að heimabruggið þrffst engu síður þar sem engum bannlögum er til að dreifa, og í þriðja lagi: Jafnvel þótt afnám innflutningshaftanna yrði til þess að heimabruggið minnkaði, eða jafnvel hyrfi, sem þó engar minnstu líkur eru til, þá væri það þó ekki neroa aukaatriði. Frá sjónarmiði okkar bindindis- manna og annara þeirra, er sjá, að áfengisnautnin er þjóðfélagsböl, er það aukaatriði, hvaða tegund á- fengis menn drekka. Aðalatriðið er og verður hinar hryggilegu afleið- ingar áfengisnautnarinnar. Foreldr- arnir, sem sjá á eftir börnunum sínum út i myrkur ógæfunnar af völdum áfengisnautnarinnar, spyrja ekki um, hvar áfengið hafi verið búið til. Eiginkonan, sem horfir á eftir manninum sínum inn á vín- knæpurnar, gerir það fráleitt heldur, og börnin, sem mega »bera þess sár um æfiiöng ár<, að faðirinn var drykkjumaður, munu vafalaust telja slfkt aukaatriði. Frá hvaða sjónarmiði sem litið er á þessi mál, yrði ekkert unnið méð afnámi innfiutningshaftanna, þvert á móti blasir sú staðreynd við, að því greiðari, sem aðgang- urinn er að áfenginu, og þvf meira sem á boðstóium er, þvf meira er drukkið. Við bindindismenn og bannmenn viljum ekki halda f nú- verandi ástand, af þvf, að við sé- um ánægðir með það, heldur af þvi að við kjósum heidur hið verra en það versta. Við fyrirlítum heima- bruggunina, en við höfum ekki trú á þvf, að við þurrkum lækinn með þvf að veita ánni í hann. Vil vilj- um skapa almenningsáiit, sem dauðadæmir slíka iðju, og við krefj- umst þess, að þeir menn, sem laganna eiga að gæta, geri skyldu sfna f þessu efni. L j ó s i ð þarf að vera Q ff* | OSRAM-lampinn hagnýtir •s ® rafstrauminn á réttan hátt og er því ódýr í notkun. Gætið eigin hagsmuna og forðist lampa er lakari eru að gæðum, pví peir eru dýrari í notbun. Hatið petta Ihugapegarpérkaup ið lampa Og blðjið um Hin^ víðfrœga LILA DAMITA segir: ,, Lux Handsápan er besta meðalið sem jeg þekki til þess að halda hörundinu mjúku og fögru. Hin slcæra bir- ta, sem notuð er við kvikmyndatökur, orsa- kar það, að hvað smá misfella sem er i hörun- dinu, kemur fram.“ ★ HÖRUNDSFEGURÐ * í Kvikmyndaheiminum í hinum vi'Shafnarmestu búningsherbergum í Hollywood, sjáiS þjer hina látlausu hvítu Lux Handsápu, sem er fegurSarleyndarmál filmstjamanna. Myndavjelin sýnir hina minstu misfellu í hörundinu. HiS milda löSur Lux Handsápunnar, hefir fengiS óskift hrós film- stjarnanna fyrir \>ann 'yndislega æskuhokka, sem hún heldur viS á hörundi peirra. Því ekka aS fylgja tízkunni í Hollywood, og láta hörund ySar njóta sömu gæSa. HANDSÁPAN iSofuft af öllum filmstjörnum LEVER BROTHERS LlMÍTED, PORT SUNLIGHT, ENGLAKD X-LTS 223-50 IC Nú llður óðum að þeirri stund, að fslenzkir kjóséndur eiga að ráða fram úr því, hvort þeir vilji fá meira og sterkara áfengi inn f landið. fslenzkir foreidrar, sem eruð að hyggja upp framtlð baroa yðar! ís- lenzkir æskumenn, sem eigið að búa við það ástand, sem nú er verið að leggja grundvöll að l Eg fullyrði, að skyldao býður okkur öllurn að greiða atkvæði á M Ó T I meira áfengi. Hannes J. Magnússon. Iðnskolinn var settur á laugardaginn og er fullskipaour. í skólanum eru alls 6o nemendur, þar af asiðnnemar. Skólastjóri er eins og áður Jóhann Frímann. í Oagnfræðaskóla Akureyrar eru 31 nemandi, f Menntaskólanum 190 nem- endur; af þeitn eru 73 í lærdómsdeild,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.