Dagur - 18.01.1934, Blaðsíða 1
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og lauga.r-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júií.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir l.des.
Norðurgötu3. Talsími 112.
XVII. ár.
Akureyri 18. janúar 1934.
• • • • ••-
í 4. tbl.
Bæjarstjórnarkosningin. Kosning bæjarstjóra.
ÚKSLIT
Dorst, Dorsteinsson, m. 368>3/22 atkv.
bæjarstjórnarkosninga á Akureyri urðu
sem hér segir:
A-listi fékk 210 atkv. og kom 1 að.
B-listi fékk 406 atkv. og kom 2 að.
C-listi fékk 355 atkv. og kom 2 að.
D-listi fékk 377 atkv. og kom 2 að.
E-listi fékk 410 atkv. og kom 3 að.
F-listi fékk 154 atkv. og kom I að.
Kosningu hlutu þeir, er er nú skal
greina :
Af A-lista :
Erliogur Friðjónsson, með 210 atkv.
Af B-lista:
Steingr. Aðalsleinsson, m. 40221/22 atkv.
HBYRT OG SÉÐ
í SALNXJM.
Kl. 10 á þriðjudagskvöldið
skyldi byrja að telja atkvæöi. Þá
var salurinn í Samkomuhúsinu
orðinn fullur af fólki. Spenning
var gríðarleg, þar sem sex listar
skiptu atkvæðum. Allstaðar voru
á lofti blöð og hvassyddir blýant-
ar, og eigendurnir allt frá 10—
70 ára að aldri. En bæjarstjóri
tilkynnir að eigi sé á mennskra
manna færi að lesa svo mörg at-
kvæði svo snjallt að heyrist um
sal allan, heldur muni við hver
200 atkv., eða svo, tilkynnt at-
kvæðamagn hvers lista, og verður
þá gnauð nokkurt í blaðamönnum
og blýantseigendum. Og nú er
lesið — og nú stendur bæjarstjóri
upp og tilkynnir: A. 17; B. 44, C.
50 (og brosir örlítið um leið), D.
48; E. 41 og F. 23. — Ýmsir
þykjast sjá deyfðarsvip á Erlingi
og Hlíöar. En við næstu tilkynn-
ingu réttist Erlingur ögn í sessi.
Hans listi er kominn í 46 en F
aöeins 42. Og um leið heyrast fá-
ein ánægjuleg sjálfstæðisóp, E-
listinn cr hæstur, með 100 atkv.,
9 atkv. fieiri en C. Annars fylgj-
ast B., C., D. og E. fast að. Við
þriðju tilkynningu heldur E velli,
en kommúnista skortir aðeins eitt
atkv. til jafns. Við fjórðu hlakk-
ar í nokkrum kommúnistabörk-
um, því nú hafa þeir atkvæði
fleira en E, og smáréttist úr Er-
Jingi, sem dregur jafnt og þétt
Af C-lista :
Jón Sveinsson, með 35410/n atkv.
Jón Guðlaugsson, með 33817/22 atkv.
Af D-lista:
Vilhjálmur Dór, með 358V22 atkv.
Jóhannes Jðnasson, með 3436/n atkv.
Af E-lista: -
Sigurflur Hlfðar, með 3933/22 atkv.
Sielán Jónasson, með 3705/n atkv.
Jón Guðmundsson, með 4681/22 atkv.
þar af 114 atkv. frá F-lista.
Af F-lista :
Jóhann Frlmann, með 154 atkv.
í næsta blaði verður nánar minnzt
á úrslit kosninganna.
fram úr F, og er nú þegar, á
miðri leið, sloppinn fram hjá ör-
lagaspá leynibréfsins, er réði hon-
um til þess að fremja siálfsmorð,
þar eð hann fengi aldrei fleiri
en 80 atkv. Við fimmtu og sjöttu
heldur í sama horfi, en við sjö-
undu tilkynningu, heyrist sjálf-
stæðishljóð á stangli, því að nú
hefir E. 4 atkv. fleira en B. Þó
virðist ekki bjart yfir Hlíðar og
geta menn til, að honum þyki
heldur fá atkvæðin samt. Og við
áttundu tilkynningu þykir sýni-
lega dofna yfir honum, en
breikka brosið á kommúnistum,
því að þá hefir B. 14 atkv. fleiri
en E og aðeins eftir heimagreiddu
atkvæðin. Og nú er Erlingur tein-
réttur og rólegur, með 209 atkv. í
skut. — En á skammri stund
skipast veður í lofti. Þau atkvæði
sem eftir eru, falla því nær öll
á E-listann, svo að lokum hefur
hann sig með 4 atkv. fram yfir
B-listann. Feginleikur skín úr
hverju rétttrúuðu E-andliti, rétt
eins og eigendurnir rauluðu all-
ir undir niðri sttrsum corda, en
það er, eins og Benedikt Gröndal
segir, upp hjörtun! Og nú líður
fyrsta brosið yfir andlit Hlíðars
þetta kvöld. Hafi E-listinn feng-
ið færri kosna en vonast var eft-
ir, þá hefir hann þó fengið þrjá,
en það er einum fleira en nokkur
hinna listanna.
Og nú fer að líða á nótt. Spenn-
ingin slaknar og börn og borgar-
ar streyma úr salnum, heim á leið
í háttinn.
Eins og getið var um í síðasta
blaði, má fullyrða að Steinn
Steinsen verkfræðingur í Reykja-
vík verður meðal þeirra, er sækja
um bæjarstjórastöðuna hér á Ak-
ureyri. Eru allar líkur til þess
að þar sé að ræða um mjög heppi-
legan mann í þá stöðu.
Steinn Steinsen sýndi þegar á
unga aldri að hann var ágætur
námsmaður, enda óvenju skýr í
hugsun. Hann gat sér og þann
orðstír meðal háskólabræðra
sinna, að hann væri yfirlætislaus
og enginn veifiskati, heldur
hreinskilinn og ein? *ur, heiðar-
legur til orðs og æðis og drengur
góður. Enda munu fáir samtíðar-
menn hans meðal íslenzkra stú-
denta hafa átt í senn jafnmiklum
vinsældum og trausti að fagna.
Hann veitti forstöðu Flóa-áveit-
unni síðustu árin, en flutti til
Reykjavíkur að því mikla verki
loknu og er nú, að því er vér
bezt vitum, formaður Verkfræð-
ingafélags íslands. Að pólitík hef-
ir hann aldrei gefið sig.
Sú var tíðin, og eigi- langs að
FRETTIR.
□ Rún 59341238 - Ffl.\
Hljómsveit Akureyrcir efndi til
hljómleika í Nýj a Bíó á sunnudaginn
var. Verður þeirra nánar getið í næsta
blaði.
Karlakór Akureyrar syngur í Sam-
komuhúsinu kl. 8% síðd. á sunnudag-
inn.
Bxjarstjórna/rkosning fór fram á
Siglufirði á laugardaginn var.
Atkvæðamagn flokkanna var á þessa
leið:
Alþýðuflokkurinn hlaut 204 atkv.
Framsókn hlaut 210 —
Kommúnistar fengu 225 —
íhaldsflokkurinn fékk 366 —
Fengu flokkarnir þannig tvo full-
trúa hver, nema íhaldið, sem fékk 3.
Einnig fór fram atkvæðagreiðsla. um
það, hvort bærinn ætti að fá sérstakan
bæjarstjóra. Var það fellt með 433 at-
kvæðum gegn 395.
Eimskipafélag fslands átti 20 ára
afmæli í gær. Minntist þess í útvarp-
inu Sveinn Björnsson, sendiherra, sem
nú er staddur í Reykjavík.
‘Dagur kemur næst út á laugardaginn.
minnast, að lögfræðingar þóttu
því nær sjálfkjörnir til forystu
framkvæmda og fyrirtækja allra.
En á vorri vélrænu öld er verk-
fræðingurinn víðast að rýma lög-
íræðingnum úr sessi. Nauðsyn
margvíslegra verklegra fram-
kvæmda knýr nú að dyrum Akur-
eyrarbæjar, enda er það tvímæla-
laust álit þeirra, er þetta skilja
og þær framkvæmdir vilja, að
bænum sé hin mesta nauðsyn á
verkfróðum forystumanni í bæj-
arstjórn.
Gg þar sem langflestir vita og
viðurkenna, að óánægja sú, með
forystu núverandi bæjarstjóra,
er fram hefir komið í öllum blöð-
um bæjarins, þótt langt um of
seint kæmi fram, á sér djúpar og
víðtækar rætur meðal almenn-
ings, þá virðist í lófa lagið hinni
nýkosnu bæjarstjórn, að tryggja
sér í skiftum þann verkfróða
mann, er notið hefir, og nýtur
sýnilega enn, fyllsta trausts stétt-
arbræðra og þeirra er hann
þekkja. —
Vestfirðinga- og Breiðfirðingamót. 1
ráði er að halda Vestfirðinga- og
Breiðfirðingamót hér í bænum um
mánaðamótin Jan.—febr. n. k.
Áskriftarlistar liggja frammi í verzl.
»Esju«, á rakarastofu Sigf. Elíasson-
ar, Saumastofu Gefjunar í K. E. A. og
hjá Sigurði Kristjánssyni, M. A. Allar
nánari upplýsingar á áðurtöldum stöð-
um. óskað er eftir að menn verði bún-
ir að ákveða sig fyrir 25. þ. m.
Álfadans verður haldinn á Reistará
næstk. laugardagskvöld kl. 8.
átti fertugsafmæli á laugardag-
inn var. Minntist félagið þess
með borðhaldi og dansleik l
Skjaldborg. Forseti félagsins, frú
Soffía Ásgeirsson, bauð gesti vel-
komna undir borð, en síðan talaði
hver af öðrum. Frú Gunnhildur
Ryel talaði fyrir félaginu og þá
um leið fyrir frú Dómhildi Jó-
hannesdóttur, sem eina viðstödd-
um stofnanda. Frú Dómhildur
þakkaði og minntist sérstaklega
aðalstofnanda félagsins, frú Þor-
bjargar Jónsson, fyrri konu Kle-
Framh. á 3. síðu.