Dagur - 18.01.1934, Side 2

Dagur - 18.01.1934, Side 2
14 DAGUR 4. tbl. Dagur hefir nú lokið sínu 16. aldursári. Við fæðingu sína var hann aðeins lítið hálfsmánaðar- blað, en færðist áður langt um leið nokkuð í aukana, þar til hann hafði náð venjulegri stærð viku- blaða, eins og hún hefir tíðkast hér á Akureyri. Við það hefir svo setið um mörg ár. Á síðari árum hefir hraði lífs- ins aukizt að miklum mun og það orðið margbreyttara en áður var. Við það hafa kröfurnar til blað- anna aukizt. Fyrr á tímum sættu menn sig vel við vikublöð, nú síð- ur. Þess vegna færast blöðin meira og meira í það hoi’f að koma út daglega eða nálgast það takmark að verða að dagblöðum. Litlar líkur eru fyrir því, að dagblað geti þrifizt hér á Akur- eyri, til þess er bærinn enn of lítill. En hitt er það, að blöðin þurfa að koma oftar út en einu sinni í viku. Dagur hefir alltof lítið getað sinnt útlendum og innlendum fréttum að undanförnu, og hann hefir sama og ekkert getað snú- izt að bæjarmálum vegna rúm- leysis, er þó á þessu hvorutveggja hin brýnasta þörf, ef fullnægja skal réttmætum kröfum lesend- anna. Nú hefir verið afráðið að bæta úr þessu hvorutveggja. Hvernig ber að skilja það? Eftir að þeim Jóni í Stóradal og Hannesi á Hvammstanga var vikið úr Framsóknarflokknum, skildist Tryggvi Þórhallsson við sína fyrri samherja og sagði sig úr þeim flokki, er hann hafði unnið fyrir vel og lengi sem blaðamaður, þingmaður og ráð- herra. Ástæðuna fyrir þessu brott- blaupi sínu úr Framsóknarflokkn- um telur Tr. Þ. þá, að flokkurinn hafi svikið þá stefnu sína að vinna fyrir bændur og sé því ekki lengur bændaflokkur, en í flokki, sem ekki er bændaflokkur, geti hann alls ekki verið. Því hafi hann tekið það ráð að yfirgefa sinn gamla flokk og mynda stofn að nýjum »bændaflokki« með þeim Jóni í Stóradal, Hannesi Jónssyni, Halldóri Stefánssyni og Þorsteini Briem, sem allir eru á landssjóðslaunum. Það kemur nú fyrst mjög und- arlega fyrir, ef Framsóknarflokk- urinn er horfinn frá því að bera sérstaka umhyggju fyrir hags- munamálum og velferð bænda- stéttarinnar, þegar þess er gætt, að flestir þeir, sem þingflokkinn mynda, eru einmitt bændur. Þeir ættu þá að hafa svikið sjálfa sig. Hvað segja t. d. eyfirzkir bænd- ur um þá fullyrðingu Tryggva Útgáfustjórn blaðsins hefir tekið þá ákvörðun, að blaðið skuli framvegis koma út þrisvar í viku hverri, þannig að heilt blað kem- ur út á hverjum fimmtudegi eins og áður, og auk þess tvö blöð hálf, annað á þriðjudögum, hitt á laugardögum; kemur blaðið þannig út annanhvern vii'kan dag hverrar viku og tvöfaldast því að stærð frá því, sem áður hefir ver- ið. Þrátt fyrir þessa miklu vaxtar- aukningu blaðsins, hækkar verð þess aðeins um 3 kr., árgangur- inn, úr 6 kr. í 9 kr. Kaupendur blaðsins eru beðnir að athuga það, að á þenna hátt fá þeir í raun og veru vikublað á stærð við Dag fyrir einar þrjár krónur. Þá eru kaupendur blaðsins eigi síður beðnir að hafa það hugfast, að umrædd breyting á því hefir mik- inn aukinn kostnað í för með sér, og er þess því fastlega vænzt, að þeir greiði blaðið skilvíslega. Undir því er það að miklu leyti komið hvort breytingin getur orð- ið varanleg. Vegna aukins starfs, sem stækk- un blaðsins hefir í för með sér, hefir Sigfús Halldórs frá Höfn- um verið ráðinn starfsmaður við blaðið. Er starf hans fyrst og fremst í því innifalið að sjá um Þórhallssonar, að þeir Einar Árnason og Bernharð Stefánsson hafi svikið málstað þeirra? Hvað segja Þingeyingar um slíka ásök- un á Ingólf í Fjósatungu o. s. frv. Þó er eitt atriðið í fullyrðingu Tr. Þ. allra óskiljanlegast. Hann segir, að nokkrum dögum áður cn þeir Jón Jónsson og Hannes Jónsson voru reknir úr Fram- sóknarflokknum, hafi hann barizt fyrir því, að allur flokkurinn héldi saman, og hefir honum því þá dagana og allt þangað til Jón og Hannes voru reknir, ekki kom- ið til hugar að hlaupast á brott úr flokknum. Þá hefir flokkurinn að hans skoðun hlotið að vera bændaflokkur, því í öðrum flokki getur Tr. Þ. ekki verið. En um leið og þeir Jón og Hannes fara úr flokknum, eða er vísað úr hon- um, þá lítur Tr. Þ. svo á, að Framsóknarflokkurinn geti ekki lengur talizt bændaflokkur, af því að hann hafi brugðizt mál- stað bænda. Hvemig ber nú að skilja allt þetta? Það verður ekki skilið nemaá einn veg. Ástæðan til þess, að Framsóknarflokkurinn hefir svikið málstað bænda og er ekki lengur bændaflokkur, hlýtur sam- kvæmt rökleiðslu T. Þ. og í hans augum að liggja í því, að þeir Jón í Stóradal og Hannes á Hvamms- tanga eru ekki lengur í Fram- sóknarflokknum. Það er þá eftir þessu orðið einkaskilyrði fyrir #-#-#-##• allt það, er að fréttum lýtur. Verður lögð áherzla á að skýra frá viðburðum, útlendum og inn- lendum, jafnóðum og þeir gerast. Á þenna hátt hyggst Dagur geta orðið bezta fréttablaðið á Akui’- eyri. Þá er eins og áður er sagt ætl- un blaðsins að ræða mál bæjai’- ins miklu meira og rækilegar en áður hefir verið gert. Vegna smæðar blaðsins hafa þau mjög orðið útundan, þó illt sé, og ann- að orðið að sitja í fyrirrúmi. Hef- ir meðal annars komið fram óá- nægja í kosningaskrifum nú og í umræðum manna á milli yfir því, hvað blöðin hafa litla rækt lagt við bæjarmálin og talið, að þau hafi brugðizt skyldum sínum í þessu efni. Hefir þessi óánægja og umkvartanir við mikil rök að styðjast. Niðurröðun efnis verður nokk- uð á annan hátt og í fastara formi en áður. Hinn nýi starfsmaður við blaðið, Sigfús Halldórs skólastjóri frá Höfnum, er eins og kunnugt er víðförull og fjðlmenntaður maður og kunnur blaðamennsku úti um heim, hefir hann og verið ritstjóri í Canada um alllangt skeið. Mun blaðinu því mikill fengur í að njóta starfskrafta hans. Dagur treystir því, að kaup- endur hans og vinir víðsvegar kunni að meta að verðleikum þessa djarflegu ákvörðun út- gáfustjórnarinnar um stækkun blaðsins og aukið hlutverk þess, og að þeir styðji það á allan hátt til þrifa og aukinna áhrifa. því, að landsmálaflokkur geti ver- ið bændaflokkur og svíki ekki málefni bænda, að Jón i Stóradal og Hannes á Hvammstanga séu í honum. Aðra ályktun en þessa er ekki hægt að draga út úr orðum og framferði Tryggva Þórhallsonar, þegar þess er gætt, að frá því að Tr. Þ. barðist fyrir því að halda flokknum saman sem bændaflokki og þar til hann sagði sig úr honum, af því hann væri ekki lengur bændaflokkur að hans dómi, hafði engin breyting orðið á flokknum önnur en sú, að þeir Jón og Hannes voru farnir. Þó að þeir Jón og Hannes AÐALFUNDUR UngmennaféDgs Akureyrar verður haldinn f Skjaldborg, mánudaginn 29. þ. m., kl. 8V2 e. h. Dagskrá samkvæmt félagsiögum. Stjórnin. Umrœður um bæjarmá! Reykjavíkur hafa fram farið undanfarin 3 kvöld, og hefir þeim verið útvarpað til fróð- leiks fyrir lýðinn. Bæjarstjórnar- kosningar fara fram f Reykjavík á laugardaginn, og hafa 5 flokkar Iista í kjöri: Sjálfstæöið, Framsókn, Alþýðuflokkurinn, Kommúnistar og Pjóðernissinnar (nazistar). „Eins og skotin œðarkollau. í bæjarmálaumræðum Rvíkur ósk- aði Gísli Bjarnason lögfræðingur og nsz sti þess, að Hermann Jón- asson, sem er efstur á lista Fram- sóknar, lægi »eins og skotin æðar- kol a« við bæjarstjórnarkosningarn- ar þar. Hermann leggur mikia á- herzlu á aukning fískiskipaflotans f Rv. og eflingu útgerðarinnar, og G. B. hvað þetta einmitt vera eitt sitt mesta áhugamál. Mikið er sam- ræmið í huga nazista! Gagnrýning á svivirðingum. í sömu umræðum minntist Stef- án Jóhann á gagnrýningu Verklýðs- biaðs kommúrista á stefnu og að- förum Emars Olgeirssonar. E. O. svaraði því á þá leið, að gagnrýn- ing á svfvirðingum væri ætíð n«uð- synlegl „Við krefjustum Efsta manni á lista »þjóðérnis- sinna* í Reykjavfk fórust 12 sinn- um svo otð á einni mínútu. »Við krefjustum*. Þjóðernissinnar ættu að byrja á þvf að læra móðurmál sitt. kunni að vera mikilhæfir menn og miklir bændavinir, þá verður samt ekki varizt þeirri hugsun, að Tryggvi Þórhallsson sé hald- inn af oftrú á þessa tvo menn. Góður bændaflokkur, eins og Framsóknarflokkurinn er, þó ekki sé hann einhliða stéttar- flokkur, getur ái’eiðanlega stað- izt án Jóns í Stóradal og Hann- esar Jónssonar. Enda væri mál- efnum bænda þá hraklega komið, ef þeir ættu alla velferð mála sinna undir þá að sækja. ■immnBiinniiiiiw K Timburfarmur 3 — sænskt timbur — kemur í næstu viku. Danskt cement kemur með sama skipi. Þakjárn °g húsapappi allskonar — kemur með Brúarfossi 23. jan. Kaupfélag Eyfirðinga.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.