Dagur - 10.05.1934, Page 1
D AGU R
kemur út á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugax-
iögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Akureyri 10. maí 1934.
Áfgreiðslan
er hjá JONI Þ. ÞOR.
Norðurgötuö. Talslmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
- 51. tbl.
Erl. fréttir.
Þrír fylgdarmenn dr.
Nielsen komnir fram.
Hafin leit að hinum fjórum.
í gærcnorgun hermdi útvarpið,
að komnir væru til byggða þrír
fylgdarcnenn dr. Nielsen, þeir
Helgi Pálsson, Sigmundur Helga-
son og Guðlaugur ?-son. Kváðust
þeir hafa skilið við dr. Nielsen,
Jóhannes Áskelsson og hina tvo
hjá Pálsfjalli á Vatnajökli 28.
apríl, er þeir (þessir þrír) sneru
aftur til tjaldsins við jökulrönd-
ina til þess að sækja skíði og mat-
væli og koma því, í tjaldstaðinn
hjá Pálsfjalli. En sögu alls ferða-
lagsins segja þeir í stuttu máli á
þessa leið:
Frá Kálfafelli var farið 24.
apríl. Voru þá alls 9 saman, en
af þeim fóru 2 aldrei nema að
jökulröndinni, og tóku hestana
þaðan til baka. Að kveldi hins
25. var lagt á jökulinn. Var hald-
ið áfram næsta dag til kl. 12 á
hádegi. Þá var orðið dimmt af
hríð og var þá haldið kyrru fyrir
til kl. 8 um kveldið. Þá var hald-
ið áfram í tvo tíma og sá þá fyr-
ir Pálsfjalli. Tjölduðu þeir þar og
lágu af um nóttina og næsta dag
allan, því að þá var blindhríð.
Næsta dag skildu leiðir. Hélt þá
dr. Nielsen, ásamt Jóhannesi Ás-
kelssyni, Kjartani Stefánssyni
frá Kálfafelli og Jóni Pálssyni
frá Seljalandi til gígsins, en þeir
þrír, er nú eru komnir til byggða
til tjaldstaðsins við jökulröndina,
til þess að sækja vistir, og skíði
og koma því í tjaldstaðinn við
Pálsfjall. Þeir dr. Nielsen höfðu
með sér 6 daga vistir, 1 sleða,
tjald og annan farangur, en eng-
in skíði. í tjaldinu við Pálsfjall
var skilinn eftir fatapoki og olía.
Ferð þremenninganna að tjald-
inu við jökulröndina gekk mjög
vel, voru þeir 12 klukkustundir á
leiðinni, en þar lágu þeir hríð-
artepptir allan 29. apríl og fram
að hádegi þann 30. Þá lögðu þeir
aftur á jökulinn. Gekk ferðin nú
mjÖg seint, sökum illviðra. Urðu
þeir tvívegis að tjalda og halda
kyrru fyrir heilan dag í hvort
skifti, sökum blindbylja. Komu
þeir ekki í tjaldstaðinn við Páls-
fjall fyrri en á laugardag, en
lagt höfðu þeir af stað á mánu-
dag.
Þegar að tjaldinu kom var það
því nær komið í kaf í snjó. Eng-
in merki sáust þess, að dr. Niel-
sen eða félagar hans hefðu aftur
þangaö komið. í tjaldinu voru
þremenningarnir kyrrir til
sunnudags, sneru þeir þá heim-
leiðis aftur. í tjaldinu við Páls-
fjall skildu þeir eftir tvenn skíði,
tvenna snjóskó pg vistir til 5 eða
6 daga fyrir dr. Nielsen og félaga
hans. Álítur Guðlaugur, sem er
heimildarmaður útvarpsins, enga
ástæðu til þess að óttast enn um
þá félaga.
Þó mun í gær hafa verið lagt
á stað frá Kálfafelli, til þess að
komast til þeirra dr. Nielsen. —
Ennfremur bað atvinnumálaráð-
herra í fyrradag þá Guðmund
Einarsson frá Miðdal, ásamt Jóni
frá Laug og Guðmundi Gíslasyni,
er báðir hafa verið á Grænlands-
jöklum, að leggja af stað í gær,
ef ekkert fréttist til dr. Nielsen
í fyrrakvöld. Einnig mun ósvald
Knudsen verða með í förinni og
líklega einn maður enn. útvarps-
fregn í gær um hádegi kvað Guð-
mund frá Miðdal og þá félaga
vera farna austur.
Eins og sagt var frá í síðasta
bl. »Dags«, er Pálmi rektor Hann-
esson kominn austur ásamt frú
Nielsen. Að því er útvarpið
hexmir ber Pálma saman við Guð-
laug um það, að enn muni engin
ástæða til að óttast um dr. Niel-
sen og þá félaga, svo framarlega
sem þá hafi ekki eitthvert sér-
stakt slys hent á jöklinum.
Bíða menn nú óþreyjufullir
frekari frétta.
— Það sem þeir þremenning-
arnir kalla Pálsfjall, hyggur
Pálmi rektor að muni að réttu
lagi vera Vatnajökulsgnýpa.
Frásögn um fundahöld, sem birtist í
síðasta blaði, var rituð á laugardaginn
var og ætlast til að hún kæmi í laugar-
dagsblaðinu, en komst þá ekki vegna
þrengsla. Þetta ber frásögnin með sér
á tveimur eða þremur stöðum.
Á laugardaginn vóru gefin saman í
hjónaband ungfrú Kristín Konráðsdótt-
ir og Aðalsteinn Tryggvason og ung-
frú G«fn Geirdal o* Jén Ingimarsaon.
Frá London er símað á þriðju-
dag, að Ponsonby lávarður, mál-
svari stjórnarandstæðinga í lá-
varðadeild, hafi ráðizt hart á
stjórnina fyrir afskiftaleysi henn-
ar um ástandið í Austur-Asíu og
um afvopnunarmálin. í Austur-
Asíu kvað hann stjórnina hafa
verið afskiftalausa um ótrúlegt
ofbeldi Japana. í afvopnunarmál-
unum hefði hún ekkert gagn unn-
ið, enda væri nú svo kom'ð, að
England, jafnt sem önnur stór-
veldi, væri komið á stað í full-
komið hervæðingarkapphlaup.
Laugardaginn 21. apríl hélt
Rómaborg hátíðlegan 2688. af-
mælisdag sinn. í tilefni af því
skipti ítalska stjórnin lífeyris-
skírteinum, að upphæð 50 mill-
jónum líra, milli gamalla og
dyggra verkamanna.
Atvinnuleysingjar í Danmörku
voru nú um miðjan Apríl um
100.000 manns. í miðjum apríl í
fyrra nam tala þeirra 155.490.
Hinn heimsfrægi danski vís-
indamaður, Niels Bohr prófessor,
sérfræðingurinn um »atom«-kerf-
in, hefir þegið heimboð til Rúss-
lands og er farinn þangað ásamt
konu sinni. Á hann að flytja fyr-
iilestra um »atomin« við háskól-
ann í Leningrad og því næst sitja
allsherjarfund eðlisfræðinga úr
Evrópu, er haldinn verður í Khar-
koff. Er gert ráð fyrir að hann
verði margar vikur í þessari ferð.
Prófessor Pinkevitsj, forystu-
maður rússneskra uppeldisfræð-
inga, er gist hefir Kaupmanna-
höfn undánfarið, og þar verið
mjög vel tekið, flutti prófessor
Bohr þetta heimboð og kvað
mega telja hann sannkallaðan
heiðursgest rússnesku þjóðarinn-
ar, þar eð áhugi upprennandi
kynslóðar um eðlisfræði væri
feiknarlegur, enda þekkti hver
slíkur rússneskur unglingur nafn
þessa mikla danska vísindamanns.
— Meðal annars gat prófessor
Pinkevitsj þess, að ákaflega atalt
væri unnið að því í Rússlandi, að
gera hvern einasta þegn bókfær-
an, enda væri nú svo komið
fræðslukerfinu, að bömin byrj-
uðu í leikskólum (Börnehave) 3
ára gömul, síðan í barnaskóla, en
í framhaldsskóla þaðan og væru
þar unz þau væru fullra 18 ára
að aldrii
Nýja-Bíó |
IFimtudagskvöld kl. 9.
Tákn
krossins.
Heimsfræg tal- og hljóm mynd
í lOþáttum. Aðalhlutverkin leika:
Charles Laughton, Claudette Colbert,
Frederick March og Elissa Lantíi,
auk þess 35 aðrir leikarar og
7500 aðstoðarleikarar.
Myndin gerist á dögum NERÓS,
Er sýndur bruni Rómaborgar og
afleiðingar hans, ofsóknir kristna
safnaðarins, ástaræfintýr Marcus
Surberbus og kristnu stúlkunnar,
Merciu. — Myndin er stórkost-
legt meistaraverk, sem enginn
kvikmyndavinur má láta óséð.
Börn jd ekki aðgang.
Söngfélagið Geysir
syngur í dag, kl. 5 e. h., í Nýja Bíó.
Verða á söngskránni margir gamlir
kunningjar, fjörug lög og alþýðleg, en
eftir valda höfunda, t. d. »Einu sinni
svanur fagur«, »Hæ tröllum», »Þú
komst í hlaðið«, »Vakir aftur vor í
dölum«, »Stjönulagið« og »Bádn Lát«.
Heyrst hefir, að félagið hafi fengið
hr. Unndór Jónsson tíl þess að taka
að sér hina vandasömu en sprenghlægi-
legu »mjálmsóló« í »Bádn Lát«.
Geysir hefir aldrei sungið betur en í
vetur, og líklega- aldrei eins vel. Hefir
verið þar um stöðuga framför að ræða,
bæði um raddval, meðferð og efnisval,
eins og vel kom í ljós við síðustu sam-
scngva, sérstaklega í hinum nýbreytnu,
vandasömu, en yndisfögru lögum eftir
finnska tónskáldið Toivo Kuula.
S. H. f. H.
FYRIRSPURN.
Að því er heyrzt hefir, mun þetta
vera í fyrsta skiptið, sem niðurjöfnun-
arnefnd Akureyrar hefir haft einhvem
skattstiga til hliðsjónar við niðurjöfn-
unina. Mundi nú ekki niðurjöfnunar-
r.efndin vera fús til að birta hann, svo
að hægt sé að sjá hvaða reglum hefir
verið fylgt.
Nokkrir borgarar*