Dagur - 08.11.1934, Blaðsíða 1
D AGUR
kemur út á þriftjudögum,
fimmtudögum og laugar-
dögum. Kostar kr. 9.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga
Gjalddagi fyrir 1. júlf.
XVII
. ár. |
Áfgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞÖR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 8. nóvember 1934.
129. tbl.
Hvenær verður
fyrsta slysið ?
Þessari spurningu, eða á þessa
leið, ávarpaði greindur og gætinn
bílstjóri okkur Snorra Sigfússon
skólastjóra, rétt nýlega. Það var
í spilliblotanum rétt fyrir óveðrið
mikla. Við komum sunnán Hafn-
arstræti og það var ekki á við-
vaningafæri, að hafa hemil á bif-
reiðinni í nálega viðspyrnulausri
snjókingjunni. Strákhnokki kom
í veg fyrir okkur með sleðann
sinn og bílstjórinn fékk rétt ráð-
rúm til þess að forðast slysið.
Það má annars heita óþarfi að
taka það fram, að bílstjórinn var
gætinn. Það er undantekning, ef
íslenzkir farþegabílstjórar eru
það ekki. Hvort þeir eru beztir
allra bílstjóra eins og sumir vilja
hafa eftir útlendingum, sem með
þeim hafa farið, skal ég ekkei-t
fullyrða um. En ég tel mig tala
af nokkurri reynslu, er ég full-
yrði, að í engu landi taka stéttar-
bræður þeirra þeim fram um
dugnað, gætni og menningu yf-
irleitt. En þeir eru þó ekki nema
mennskir menn.
Þess vegna er líka því nær ó-
skiljanlegt, að ekki skuli bam
verða fyrir bifreið svo að segja
á hverjum degi sem sleðafæri er
hér á veturna. Þau koma brun-
andi ein sér og í stórhópum, á
sparksleðunum sínum, úr öllum
áttum, ofan allar götur, þar sem
halla er að fá, í nýjum og niðum,
svartamyrkri jafnt og sólskini.
Að ekki skuli vera tíð slys á slík-
Xveir meim §kað-
brenna§t í Reykjavík.
í gærmorgun kl. 9 sprakk gufu-
suðupottur með sætindamauki í,
í verksmiðju sælgætisframleiðsl-
unnar »Freyju« í Reykjavík.
Þeyttist maukið, er var um 80°
heitt, á tvo menn, er inni voru,
Stefán Jónsson og Sigurð Jóns-
son, og skaðbrenndi báða. Var
þeim þegar ekið á Landsspítal-
ann. Segja læknar brunasárin
eigi djúp, en býsna víðtæk. —
Potturinn, sem sprakk, er nýlega
fenginn frá Danmörku, og er tal-
ið að hann muni hafa verið of
veígalítill til þess að þola þrýst-
ingu frá gufukatlinum, er hann
var í sambandi við. Hafði pottur-
inn eitthvaO bilað áður, en þá
um gatnamótum sem Batastígs og
Grófargils, Oddagötu og Hafnar-
strætis eða Oddeyrar- og Brekku-
götu, er í raun og veru meira en
ég fæ skilið. Eg veit að vísu að
það er eingöngu bílstjórunum að
þakka, ég hefi svo oft verið sjón-
arvottur að því, en mér er það
oftlega því nær sem kraftaverk.
En það nær ekki nokkurri átt,
að bæjarfélagið varpi allri sinni
áhyggju upp á bílstjórana, leikni
þeirra og gætni. Og bæjarfélagið
á heldur ekki með að leggja svo
geysilega ábyrgð þeim á herðar.
Þess vegna veröur hið opinbera
að taka í taumana, og það fljótt,
— áður en fyrsta slysið er orðið.
En hvað á þá að gera?
Bærinn á að sjá börnunum fyr-
ir sleðabrekkum. Eg hygg að nóg
sé hér slíkra staða, sem einangra
má frá hættulegri umferð, án
þess miklu þurfi til að kosta.
Einhverstaðar verða bömin að
fá að vera með sleðana sína í
góðviðrinu og góðfærinu. Þau
mega aðeins ekki lengur vera á
akbrautum bæjarins. Það á hið
opinbera TAFARLAUST AÐ
BANNA og sjá um að því sé
hlýtt. Það ætti ekki að vera sér-
legt vandamál, að sleðabrekkun-
um fengnum.
En verði ekki fljótlega hafizt
handa í þessu efni, þá eigum við
ekki skilið góða samvizku, er
fyrsta slysið hendir.
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
verið gert við hann. Mönnunum
leið eftir öllum vonum í gær-
kvöldi.
Tveir iiiemi biða bana
af eitruðu áfengi.
Rétt um helgina biðu tveir
menn á Akranesi bana af eitur-
vínanda (tréspíritus) er þeir
höfðu neytt með því að drekka
hárvatn frá Efnagerð Reykjavík-
ur. Er í hárvatnið notaður sams-
konar vínandi og hafður er á
áttavitum. — Landlæknir hefir
farið þess á leit við stjómina, að
banna þessa tegund eiturvínanda
í hárvötn, enda mun Efnagerðin
þegar hafa sjálfkrafa stöðvað
sölu á honum.
Guðrún Björnsdottir
Xullugu <>K fiillI>1
tkra starfsafmæli.
Fyrsta nóvember átti frú Guð-
rún Björnsdóttir frá Kornsa
tuttugu og fimm ára starfsafmæh
við barnaskólann á Siglufirði.
Tók hún við stjórn hans 1. nóv.
1909. Síðan hefir hún láHaust við
hann starfað, ýmist sem skóla-
stjóri, kennari, í skólanefnd eða
sem formaður hennar. Eru engin
tvímæli á því, að hún hefir og
á herðum sér borið önnur skóla-
mál Siglfirðinga í þessi tuttugu
og fimm ár og það með þeirri
piýði, að eigi verður í stuttu máli
lýst. Síðasta afrek hennar í þeim
efnum er stofnun unglinga- eða
gagnfræðaskólans þar, og hýsing
hans ágæt, á kirkjuloftinu nýja,
er sérstaklega var til þess búið,
svo að tekið var til notkunar í
haust.
En þessa afmælis síns minnist
frú Guðrún nú, að því er útvarps-
fregn frá Siglufirði hermir, á
þann hátt, að hún gefur bama-
skólanum á Siglufirði erfðafestu-
land sem hún á og nokkra pen-
ingaupphæð að auki, í því skyni,
að þar verði garð-, blóma- og
trjárækt, er börnin læri að ann-
ast sjálf og vonar gefandinn, »að
þeim glæðist við það ást á rækt-
un, og félagslund og starfsemi«.
Slysavarnafélag íslands
biður menn á Norðurlandi, er
strandlengis búa, að svipást um
eftir einhverju rekaldi af vél-
bátnum »Sigurði Péturssyni«, er
fórst í veturnáttabylnum um
daginn. Kveður félagið helzt leit-
andi þar sem aðdjúpt sé .og lágir
klettar eða stórgrýti.
Roosvelt stórsigrar.
í fyrradág fóru fram kosning-
ar í Bandaríkjunum til Allsherj-
arþingsins. Ekki eru úrslit ennþá
kunn, en auðséð þykir að demó-
kratar muni stórsigra, svo að
þeir fái % hluta í hvorri fyrir
sig, öldunga- og fulltrúadeild.
Hafa nú niörg ríki, er áður hafa
ætíð kosið repúblíkana í öldunga-
deild, haft »hestaskipti« og kosið
demókratíska asnann í stað repú-
hlíkanska fílsins.1)
Ekki eru þó miklar líkur til
þess að Upton Sinclair, er fyrir
Táknmyndir þessara tveggja flokka
í skopteikningabókmenntum Banda-
ríkjanna,
Nýja-Bíó
Fdstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9.
Tal og hijómmynd 110 póttum.
Aðalhlutverkin leika :
Kay Franci§
og Nils Aster.
Mynd þessi er leikin eftir leik-
riti Sandor Hunyady. Hún ger-
ist í Ungverjalandi í byrjun
stríðsins 1914. Inn í myndina
er fléttað ástaræfintýri. Spenn-
andi og mjög vel leikin mynd.
Bönnuð fyrir börn.
nokkru náði tilnefningu af hendi
demókrata, sem ríkisstjóraefni í
Californíu, nái þeirri tign að
sinní. Hafa auðjarlar ríkisins
hamast gegn honum, og var
keppinautur hans, ríkisstjóraefni
repúblíkana, langt á undan hon-
um, er síðustu atkvæðafregnir
komu.
Bœjarilfóm
hefir nú og undanfarið haft ýms
stórmæli um að fjalla, t. d. skóla-
bygginguna og tillögur atvinnu-
nefndar. Urðu þær ekki allar á
einn veg, er nefndin klofnaði
mjög og verður i næsta blaði gerð
nánari grein fyrir tillögunum. En
samþykkt var tillaga Snorra Sig-
fússonar skólastjóra, þess efnis,
að bæjarstjórn hefji þegar for-
göngu um að koma hér á sjávar-
útgerð og leita eftir undirtektum
bæjarbúa um þátttöhu..
Það tilkynnist vinum og vanda-
mönnum að ekkjan Sigurjóna Jóhanns-
dóttir frá Ingvörum andaðist á sjúkra-
húsinu á Akureyri þann 3. þ. mt
Jarðarförin fer fram frá Tjörn í Svarf-
aðardal. Aðstandendur.
Jarðarför Andrésar Kristjánssonar frá
Höfða í Glerárþorpi, er andaðist 5.
þ. mj, fer fram mánudaginn þann 12.,
að Lögmannshlíð, og hefst með hús-
kveðju frá heimili hins látna, klukkan
11 árdegis. Aðstandendur.