Dagur - 06.12.1934, Side 1

Dagur - 06.12.1934, Side 1
DAGUR kemur út á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- dögum. Kostar kr. 9.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreiðsían er hjá JÓNI Þ. ÞÖR. Norðurgötu3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. 13% tbl. ]4D> Framsöknarmenn. Munið skemmtisamhomuna — með danzi — í »Skjald- borg« á laugardagskvöldið kemur, kl. 9: — Aðgöngumiðar fást við inn- ganginn. Komið allir — öll — konur og karlar. Enginn sitji heima. „Salka Yalka" hin danska þýðing' Gunnars Gunnarssonar á skáldsögu Lax- ness, er getið hefir verið um áð- ur, er nú seld Alb. Bonnier, mesta bókaútgefenda Svía, til útgáfu í sænskri þýðingu, samkvæmt út- varpsfregn í fyrrakvöld, og að því er Laxness hefir ritað útgef- anda síðustu skáldsögu sinnar, Eggert P. Briem. Er Laxness í Tirol, er hann ritar bréfið, en fer þaðan til Rómaborgar og I- stanbúl en þaðan til Rússlands. Brugtí og smygl. Teknir voru af logreglumii í Rvík nú um helgina fyrir brugg og smygl tveir menn, Guðni Bær- ingsson og Guðmundur Jónsson. Var sérstaklega feitt á öngli hjá Guðna: 125 flöskur bruggaðar og 2 smyglaðar. Hjá Guðmundi 8—10 flöskur. — Rannsóknarstofa í þágu atvinnuveganna. Menntamálanefnd efri deildar Alþingis, hefir eftir beiðni at- vinnumálaráðherra flutt frumv. um stofnun atvinnudeildar við Háskóla íslands. Er ætlast til þess, að komið verði upp full- kominni rannsóknarstofu í þágu atvinnuveganna. Hundrað og sex- tán háskólastúdentar hafa sent Alþingi áskorun um að sam- þykkja frumvarpið. í frumv. er gert ráð fyrir að starf þessarar deildar verði þrí- þætt: Fiskirannsóknir, líffræði- rannsóknir og efnarannsóknir. Fiskideildinni er ætlað að fást við almennar fiski- og hafrann- sóknir, áturannsóknir, klakrann- sóknir og veita leiðbeiningar um fiskiðnað. Líffræðideildin á að fást við almennar gerlarannsóknir, hús- dýrasjúkdóma, mjólkur- og mjólkuriðnaðarrannsóknir og fjörefnarannsóknir. Efnafræðadeildin á að fást við almennar efnarannsóknir, iðnaðarefnarannsóknir, fóður- rannsóknir og ennfremur jarð- vegs- og áburðarefnarannsóknir. Fyrstnefndu deildinni er þvi ætlaö að starfa í þágu sjávarút- vegsins, en tveimur síðarnefndu deildunum aðallega í þarfir land- búnaðarins. Gei’t er ráð fyrir að hver deild hafi sérstakan forstöðumann,. og verði þeir prófessorar, en að þeim séu skipaðir alls 6 aðstoðarmenn. Núverandi háskólaráð hefir lagt það til, að við forstöðu þess- ara deilda taki þeir mag. Ámi Friðriksson í fiskideild, prófessor Níels Dungal í líffræðideild og Trausti Ólafsson í efnafræðideild, en allir þessir menn eru nú í þjónustu ríkisins, og ætti því kostnaður að verða minni fyrir það. Með þessu frumvarpi er stefnt í þá átt, að taka vísindin í þjón- ustu atvinnuveganna og koma þeim þannig í samband við dag- legt líf vinnandi manna. Sú stefna er að sjálfsögðu laukrétt. Gangleri, rit Guðspekifélagsins, 2. h. þ. á., er nýlega út kominn. 1 ritinu er ræða hins nýkjörna forseta félagsins, dr. G. S. Arundale, er hann flutti við móttöku embættis síns 21. júní í sum- ar, og ávarp til almennings, eftir sama höfund. Að öðru leyti er meginhluti ritsins helgaður minningu liins merki- lega manns og látna biskups, C. W. Leadbeater, sem um langa hríð hefir verið einn helzti máttarstólpi guðspeki- hreyfingarinnar í heiminum. 1 ritinu eru tvö kvæði, annað eftir Grétar Fells, hitt eftir Jónas Þór, Útsölumaður Ganglera hér á Akur- eyri er eins og áður Sigurgeir Jónsson, söngkennari. Dætur Reykjavíhur heitir ný- útkomin saga, eftir Þðrunni Magnúsdóttur. Höf. gaf út sögur í fyrra undir þessu sama nafni. Af þessari nýútkomnu sögu birt- ist aðeins fyrri hlutinn og má því eiga von á meiru síðar. Sagan fjallar, eins og nafnið bendir til, um ungar nútímastúlkur í Reykjavík, hugðarefni þeirra og áhugamál og er það flest fremur hégómlegt. Sagan er fremur fjör- lega skrifuð, en tilþrifalítil. Það tilkynnist vinuin og vandamönnum að jarðarför okk- ar ástkæru eiginkonu og móður Guðrúnar Yngveldar Jónsdóttur á Hrísum, sem andaðist 26. nóvember, fe- fram að Saurbæ þriðjudaginn 11. Desember kl. 12 á hádegi. Aðstandendur. NÆTURLÆKNAR: Föstudagsnótt: Jón Geirsson. Laugardagsnótt: Jón Steffensen. Nýja-Bíó sýnir i kvöld, fimmtud 6- p m kl 9. - myndina Sænsk talmynd i 10 páttum tekin efiir gamanleik Gustat Esmanns. Aðalhlutverkin leika: Tutta Berntzen. Gesta Ekmann. Fegurðarvörur. Andlits-púður Three Flowers Tokalon Tamari Maja Amanti Yardlay Hollywood og fleira, Talcum Barna-talcum Varalitir Naglalakk Hár-shampoo margar tegundir. Andlits-krem »Sjafnar« Three Flowers Tokalon Tamari Nivea Nebula Vinolia Amanti. Ennfremur ilmvötn í mjög fjölbreyttu úrvali frá 40 aurum til 22 kr. glasið. — 5°/0 afsláttur gegn peningum. Kaupið allar fegurðarvörur í Kaupfélag Eyfirðinga, j Nýlenduvörudeildin. MIMM Jólin eru að koma og þá er nauðsynlegt að fara að athuga hvar bezt er að kaupa jólagjafirnar. Gler- og kristalsvörur höfum við nú í mjög miklu úrvali. Komið og lítið á birgðirnar því margt gott og fallegt getið þið fengið til þess að gefa á jólunum. Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeild.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.