Dagur - 10.01.1935, Blaðsíða 1
D AGUR
Ktmui' út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
‘Afgreiðslan
©r hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVIII. ár
i
Akurcyri 10. janúar 1935,
2. tbl.
Tilkynning.
útgáfustjórn »Dags« hefir tek-
ið þá ákvörðun, að blaðið komi
fyrst um sinn aðeins einu sinni
út í viku. Jafnframt lækkar verð
blaðsins, meðan svo stendur, nið-
ur í 6 kr. árgangurinn.
Þessi breyting á blaðinu er gerð
vegna fjárhagsörðugleika. Stækk-
un blaðsins á síðasta ári hafði
vitanlega í för með sér stórlega
aukin útgjöld, en tekjurnar hafa
ekki vaxið að sama skapi. Af-
leiðingin hlýtur að vera fjárhags-
halli, sem verður að stemma stigu
fyrir.
Það er auðskilið, að útgáfa
blaða, eins og rekstur annara fyr-
irtækja, gengur örðugar á erfið-
um tímum, eins og nú eru, held-
ur en þegar góðæri er. Það þarf
því enginn að kippa sér upp við,
þó að »Dagur« dragi saman segl-
in í bili, jafnhart og nú er í ári.
Strax og ástæður leyfa, mun blað-
ið færast í aukana aftur.
Frá bæjarstjórn.
Á fyrsta bæjarstjórnarfundi
ársins, 4. þ. m., urðu einna mest-
ar umræður um 2. lið í einni
fundargerð fjárhagsnefndar af
þremur, er.lágu fyrir fundinum.
Var þar þess getið, að Tunnu-
verksmiðja Akureyrar ætlaði sér
eigi að nota ábyrgðarheimild bæj-
arstjórnar, er fengin var til þess
að starfrækja verksmiðjuna, sök-
um þess að fél. hefði eigi tekizt
að tryggja henni vinnufrið.
Lagði nefndin því til að bæj-
arstjóri leitaði leigukjara á verk-
smiðjunni, ef bæjarstjórn sýndist
að láta bæinn sjálfan smíða tunn-
umar, og þá sömul., að bæjar-
stjóri leitaði samþykktar verk-
lýðsfélaga bæjarins um að hindra
ekki vinnu þeirra, er vildu vinna
að tunnusmíði, eða öðrum at-
vinnubótum, séu þær reknar
þannig, »að i vinnulaun sé greitt
það, sem vinnan gefur af sér, eða
m. ö. o. sá tekjuafgangur, sem
eftir verður þegar allur reksturs-
kostnaður við fyrirtækið, annar
en vinnulaun, hefir verið greidd-
ur. Jafnóðum og vinnan hefir*
verið af hendi leyst, greiðist fyrir
hana að nokkru leyti eftir því,
sem bæjarstjóm telur fært, án
þess að hætt verði við halla á
fyrirtækinu, en afgangurinn
greiðist þegar uppgerð hefir far-
ið fram«. — Var þessi till. samþ.
Eins og getið var í síðasta
blaði, er nýlátinn í Reykjavík síra
Guðmundur Guðmundsson frá
Gufudal. Hann lézt á Landakots-
spítalanum aðfaranótt 2. þ. m.,
75 ára að aldri.
Síra Guðmundur var fæddur að
Giljá í Húnaþingi 7. júlí 1859. ólst
hann upp með móður sinni. Byrj-
áði hann fulltíða maður á skóla-
námi, því að bláfátækur var
hann, en námsgáfurnar óvenju-
legar. Lauk hann stúdentsprófi
árið 1887, en guðfræðipmfi 1889
og vígðist prestur að Gufudal
sama ár. Þjónaði hann því presta-
kalli, unz hann fluttist til ísa-
fjarðar árið 1905.
Snemma kom í Ijós áhugi séra
Guðmundar á stjórnmálum og
hneigðist hann fljótt til jafnaðar-
stefnunnar. Blað gaf hann út á
ísafirði, »Njörð«, en stofnaði síð-
an »Skutul«, sem nú er orðinn
málgagn Alþýðusambands Vest-
firðingafjórðungs. — Snemma
gat síra Guðmundur sér þann
orðstír fyrir mælsku, að flaug um
allt land. En annars mun hiklaust
mega það um hann segja, að
hann sé að flestu einna merkileg-
asti’ brautryðjandi hérlendur
þeirrar stefnu, er hann fylgdi.
Síra Guðmundur var giftur Re-
bekku dóttur Jóns Sigurðssonar
frá Gautlöndum og Sólveigar
Jónsdóttur frá Reykjahlíð, hinni
merkilegustu konu. Áttu þau 10
börn, 7 syni og 8 dætur, og eru
öll á lífi. Meðal þeirra eru Jón
ríkisendurskoðandi, Haraldur at-
vinnumálaráðherra, Steingrímur
ríkisprentsmiðjustjóri og Þóra,
fyrrverandi yfirhjúkrunarkona
við Akureyrarspítala.
S. H. f. H.
Jan'ðrækta/rfélag Akureyrar hetdur
fund n. k. sunnudag. Eins og sjá má á
auglýsingu, sem birt er hér í blaðinu
verður þar til umræðu mál, sem alla
félagsmenn varðar og taka þarf af-
stöðu til* á fundinum.
Messaö á Akureyri á suhnudaginn
kemur, kl. 2 e. h.
ásamt viðbótartill. frá Jóh. Jón-
assyni á þá leið, að bæjarstjórn
óskaði eftir 8ja manna nefnd frá
hverju verklýðsfélagi til að ræða
þetta mál við nefnd úr bæjar-
stjórn.
Þá var og samþykkt að lækka
rafmagnsmælaleiguna um helm-
ingr.
Kosnin^in í Saar.
Á mánudaginn var hófst at-
kvæðagreiðslan í námahéraðinu
Saar, um það, hvort héraðið skuli
framvegis lúta Þjóðverjum eða
Frökkum. Telja flestir langlík-
legast að atkvæðagreiðslan muni
falla Þjóðverjum i vil. — Á
mánudaginn greiddu atkvæði öku-
menn og póstmenn, er sérstaklega
verða önnum kafnir sjálfan kosn-
ingadaginn, sem er 13. þ. m.
Atkvæðagreiðslunni á mánu-
daginn er haldið stranglega
leyndri, unz aðalkosningin er um
garð gengin.
Dularfullt hvarf.
Undanfarin kvöld hefir í út-
varpinu frá Bakkafirði verið lýst
eftir manni. Hafði maður þaðan,
er var við smalamennsku þar í
Hafnarlandi, rekizt á annan
mann og spurði sá sma-lamann um
rétta leið til Bakkafjarðar. En
eigi hefir vegleitandi komið fram
á Bakkafirði síðan, né annarstað-
ar, svo menn viti.
Eldsvoðar.
Af mmma völdum.
Á fimmtudagsmorgun kl. 8
varð elds vart á efri hæð í húsi
Kaupfélagsins í ‘ Stykkishólmi.
Varð eldurinn fljótt slökktur, því
að veggir og gólf eru úr stein-
steypu, en skemmdir urðu auðvit-
að allmiklar á vörum af reyk og
vatni.
Síðar um daginn, er farið var
að rannsaka þetta nánar, kom i
ljós, að brotizt hafði verið inn í
húsið um kjallaraglugga á norð-
urstafni og leit svo út sem eldur
hefði verið kveiktur á tveim
stöðum í vörugeymslunni. Er vit-
anlega haldið áfram rannsókn-
um í málinu.
Skeprmtjón.
Á bænum Tungu í Brynjudal
gekk bóndinn, 'Helgi Árnason,
síðastur um fjósið, kl. 8 á föstu-
dagskvöldið. En kl. 7 um morg-
Nýja-Bíó
sýnir fimtadagskvðld kl. 9
hina ágætu mynd
' ii1 !■ I ■
ir mmmm.
fllpýflusýning. Niðursetf verð.
Sýnd i siðasta sinn.
uninn, er fólk kom á fætur, var
fjósið mjög brunnið að innan, eða
langmest af innviðum, og lágu
þar dauðar, kafnaðar og brunnar,
5 kýr og 1 lambhrútur, en í kálfi,
■ er lá í dyrunum, var líf, og hjam-
aði hann er út kom. Er talið að
kviknað hafi í þaki frá neista úr
strompi bæjarhúss, er þar er ná-
lægt.
Ofsarok
*
æddi í gær víða unl Vestur- og
Norðurland, síðari hluta dags, en stillt-
ist vel með kvöldinu,
Um tjón er lítið frétt nema að þak
með öllum bitum tók af steinsteypu-
húsi á Skagaströnd. Mun þó enginn
hafa meiðst, en flytja verður fólk úr
húsinu.
Hálfhræddir voru menn í gærkvöldi
um vélbátinn NJÁL frá Siglufirði, er
reri kl. 4 í gærmorgun á djúpmið 14
mílur NV. af Siglufirði.
5. þ. m. opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Anna Kristín Ásgeirsdóttir frá Sól-
borgarhóli, Kræklingarhlíð og Gísli M.
Ólafsson, bílstjóri.
.. /
Zíon. — Sunnudaginn 13. jan. kl. 10 f.h.
Sunnudagaskóli, kl. &llt e. h. Almenn
samkoma. — Allir velkomnir.
K.F.U.M. — Fundur í báðum deildum
manudaginn 14. þ. m. kl. 8 >/2 e. h. —
Áríðandi að meðlimir mæti.
Guösþjónustur í Grundarþingaprcsta-
kalli: Hólum 20. jan. kl. 12 á hádegi.
Saurbæ sama dag kl. 3 e. h.
Fátxkrafulltrúastaöan var á síðasta
bæjarstjórnarfundi veitt Jóhannesi Jón-
assyni bæjarfullti-úa.
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að konan mín og móðir
okkar, Guðlaug Sigríður Þórðardóttir, frá Staðarhóli, andaðist á Sjúkrahúsi
Akureyrar Iaugardaginn 5. þ. m.
Jarðarförin fer fram frá heimili hinnar látnu laugard. 12. þ.m. kl. 1 e.h.
Páll Jónsson.
Gunnar Pálsson. Sigurjóna Pálsdóttir.
Snorri Pálsson. Halldóra Pálsdóttir.
Lovísa Pálsdóttir. Matthildur Pálsdóttir.